Morgunblaðið - 29.10.1940, Síða 3
Þriðjudagur 29. okt. 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
o
u
Bæjarlánið
Trygð salá á öllum
skulcla brjefunum
Sala á skuldabrjefum í bæjarláninu var stöðvuð um
hádegi í gær, en þá var örugt orðið, að trygð
væri sala á öllum brjefunum.
Þessi lántaka bæjarsjóðs hefir því gengið eins vel
og frekast verður á kosið. Skuldabrjefin seldust upp á
3—4 dögum og er það meiri og örari sala en nokkru
sinni áður við lántöku hjer innanlands. Þetta er gleði-
legur vottur þess, að hjer eru til menn, er hafa nokkur
fjárráð og eins hins, að menn bera traust til Reykja-
víkurbæjar.
Þegar Mbl. gat á laugardag um, hvar menn gætu
skrifað sig fyrir skuldabrjefum, fell Kauphöllin af van-
gá niður, en hún seldi mjög mikið af brjefum.
Þýsk ílugvjel yíir
Austfjörðum
og Lóni í gær?
ÞÆR FREGNIR bárust hingað í gær, að sjest
hefði til þýskra flugvjela fyrripartinn í gær,
á svæðinu frá tívalsnesi í Lóni og norður að
Vattarnesi við Fáskrúðsfjörð.
Eftir þeim upplýsingum sem hlaðið fekk í gærkvöldi að austarx,
er ekki fullvíst, að um nema eina flugvjel hafi verið að ræða.
En að hún hafi verið þýsk fullyrða menn, sem sáu hana fljúga
lágt yfir Hvalsnesi, og sáu á henni einkennismerkin.
Þetta var um kl. 11 í gærmorg-
un. Um svipað leyti sást til flug-
vjelar þar eystra á Djúpavogi,
Stöðvarfirði Páskrúðsfirði og víð-
ar, en ekki nema ein í einu. Ym-
ist var hún á norður- eða suður-
leið! En fólk á þeim slóðum gaf
þessu engan sjerstakan gaum,
hjelt að hjer væri ensk flugvjel
á ferð.
Dagsbrúnar-
fundurinn
á sunnudag
En það var ekki fyrri en fregn-
in barst frá Hvalsnesi í Lóni, að
menn fóru að geta sjer þess til, að
flugvjelin, sem sást yfir Aust-
fjörðum, hafi verið þýsk.
Einn af þeim mönnum, sem
blaðið átti tal við eystra í gær-
kvöldi, leit svo á, að flugvjelin,
sem sást frá fjörðunum, hafi hag-
að ferð sinni með svipuðum hætti
eins og flugmaður væri að svip-
ast eftir skipum.
Maður slasast
við uppskipun
að slys vildi til á sunnudag,
að kassi, sem verið var að
taka upp úr skipi hjer í höfninni,
f jell á verkamann og slasaði hann.
Verkamaðurinn, Ingibergur
Grímsson á Laugaveg 68, var flutt-
ur- á Landssptíalann. Hafði hann
fengið áverka allmikinn á höfuðið
og meiðst í mjóhryggnum og a
fótunum.
Líðan Ingibergs var eftir at-
vikum sæmileg í gær, en ekki var
fullkunnugt um hve alvarleg
meiðslin kunna að vera innvortis.
Slysið vildi til með þeim hætti
að „stroffa" slitnaði.
Um 300 manns sótti Dagsbrún-
arfundinn á sunnudag. For-
maður, Sigurður Halldórsson, setti
fundinn, en Haraldur Guðmunds-
son var kjörinn fundarstjóri.
Pyrst var sjóðþurðarmálið rætt.
Skýrði stjórn fjelagsins frá því,
að greitt væri að fnllu fje það,
sem tekið var úr sjóðum fjelags-
ins og að stjórnin hefði óskað
þess, að ekki yrði höfðað saka-
mál gegn hinum brotlegu.
Urðu nokkrar umræður um
rnálið og tvær tillögur komu fram.
Önnur frá Felix Guðmundssyni,
þess efnis, að fundurinn samþykti
gerðir stjórnarinnar, en hin frá
Nikulási Þórðarsyni, þar sem
stjórnin var vítt fyrir sínar gerð-
ir. Málinu var frestað og komu
tillögurnar ekki undir atkvæði.
Kosnir voru tveir menn í nefnd
til að gera uppástungu um menn
í stjórn fjelagsins, og hlutu kosn-
ingu þeir Pelix Guðmundssón og
Jón Rafnsson. Trúnaðarráð kýs
þriðja manninn í nefndina.
í kjörstjórn var kosinn Guðm.
Ó. Guðmundsson og til vara Þor-
lákur Ottesen.
Þá var rætt um uppsögn samn-
inga og undirbúning nýrra samn-
inga. Málið var ekki útrætt.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni.
Mvndir frá Grikklandi
Myndin hjer að ofan er af Georg
Grikkjakonungi. Hann hefir tvisvar
verið konungur í Grikklandi. Var land--
flótta um tíma, en sneri síðan heim
til Grikklands aftur fyrir fáum árum.
— Myndin efst til hægri er af grísk-
um hermönnum í hátíðabúningi, sem
er mjög forn og líkist að miklu leyti
búningi Há-Skota. — Myndin neðst til
hægri er frá hafnai'borginni Saloniki.
Efri myndin er frá höfninni, en sú
neðri er tekin inni í borginni.
Talið er að sókn ítala sje stefnt til
Saloniki, en sú borg hefir mikla hern-
aðarlega þýðingu.
Ffárpestirnar:
Bustofnínn
hrynwr
niðfir
Jón Pálmason alþm. á Akri er
nýkominn hingað til bæjar-
ins. Mun hann dvelja hjer fram
að jólum, við endurskoðun ríkis-
reikninganna.
Morgunblaðið hitti Jón rjett
sem snöggvast að máli í gær og
spurði hann tíðinda að norðan.
Heyskapur gekk illa í Húna-
þingi í sumar, sagði Jón. Hey eru
að vísu allmikil að vöxtum, en
mjög hrakin. Uppskera var lítil í
görðum. í moldargörðum brást
uppskeran alveg að heita má, en
hálf uppskera í sandgörðum. Þetta
verður mikill hnekkir fyrir mörg
heimili.
— Hvað er að segja um mæði-
veikina ?
— Hún heldur áfram að herja
hjeraðið og er mjög útbreidd sums
staðar, einkum í Þingi og Ásum.
Einnig nokkuð austan Blöndu,
norðan Vatnsskarðsgirðingar..
Hinsvegar virðist veikin heldur í
rjenun á því svæði, sem hún var
mest í fyrra. Fjárstofninn er orð-
inn lítill hjá mörgum bændum;
t. d. .má geta þess, að í vor átti
. Þórarinn bóndi á Hjaltabakka ein-
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Sjóður til minningar
um síra Magnús
Helgason
Stjórn Sambarids ísl. barna-
kennara hefir ákveðið að
stofna sjóð, sem beri nafn síra
Magnúsar Helgasonar og samþykt
að leggja til hans eitt þúsund
krónur úr sambandssjóði sem
stofnfje. Ennfremur var ákveðið
að leita meðal kennara og annara
neinenda síra Magnúsar eftir
frjálsum framlögum í sjóðinn.
Fulltrúaþing S. í. B., sem haldið
verður næsta sumar, mun ákveða j
hvernig sjóðnum skuli aflað tekna
framvegis og semja skipulagsskrá.
Það er ósk Sambandsstjórnar- j
innar, að sjóður þessi megi hio j
fyrsta verða sem öflugastur, og
eru það því tilmæli vor, að þeir !
kennarar og aðrir nemendur og
vinir síra Magnúsar, sem vilja
heiðra minningu hans, leggi skerf
sinn í sjóðinn. Skrifstofur barna-
skólanna í Reykjavík veita við-
töku fje í þessu skyni, og þar
liggja frammi skrár, sem gefend-
ur rita nöfn sín á.
í Hafnarfirði veitir Guðjón Guð-
jónsson skólastjóri gjöfum mót-
töku.
P. h. stjórnar S. í. B.
Sigurður Thorlacius.
Háskólafyrirlestur. Dr. Símon
Jóh. Ágústsson flvtur fyrirlestur
í kvöld kl. 6 í III. kenslustofu.
Efni: Undirvitund. Öllum heimill
aðgangur.
SkemtiSeg
skíðaferð
á Lang-
jökul
Skíðafjelag Reykjavökur fór
skemtilega skíðaför á
Langjökul síðastl. sunnudag.
Ekið var í 18 manna bíl um Þing-
völl upp Kaldadal og alla leið
norður á Langahrygg, nokkuð
norður fyrir Bræðravirki.
Sumir fóru úr bílunum neðst
á Kaldadal og gengu sunnan
við Hrúðurkarla á milli Þóris-
jökuls og Björnsfells inn í Þór-
isdal, en þaðan yfir sporðinn á
jöklinum niður á Geitáraura og í
bílinn á Langahrygg. Er þetta
um 8 stunda gangur. Aðrir fóru
með skíði upp vesturhornið á
Þórisjökli, stigu á skíðin á brún-
inni og gengu á hæstan jökulinn
(1350 m.). Dásamlegt skíðafæri
var um allan jökulinn og skygni
með afbrigðum gott, því sólskin
og heiðríkja var allan daginn og
uppi á jöklinum 6 stiga frost.
Rendu skíðagarparnir sjer
niður allan jökulinn niður á Geit
áraura og voru þá komnir niður
í 550 metra hæð. — Enn aðrir
fóru af Langahrygg yfir aurana
upp í Þórisjökul en það er 1 %
stundar gangur þar til hægt er
að spenna á sig skíðin, en úr því
var ágætt skíðafæri á jöklinum.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.