Morgunblaðið - 29.10.1940, Page 6

Morgunblaðið - 29.10.1940, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 29. okt. 1940, Gribkir munu berjast I . II < PRAMH. AF ANNARI SÍÐU. það fast, að fá landsskika frá Grikkjum, til að fá aðgang að Grikklandshafi. Fyrir stríð áttu þeir Þrakíu, en hún var afhent Grikkjum með Versalasamningunum. En þrátt fyrir að Búlgarar hafi lýst yfir hlutleysi sínu, voru í gær gerðar þar loftvarnavarúðarráðstafanir, m. a. með því að fyrirskipa myrkvun. En engar ráðstafanir hafa verið gerðar til hervæðingar. TYRKLAND: Tyrkir eru skuldbundnir til að veita Grikkjum aðstoð, samkvæmt samningi um gagnkvæma aðstoð,, sem Tyrkir og Grikkir gerðu með sjer árið 1933. En Tyrkir eru einnig skuldbundnir til að veita Bretum aðstoð ef þeir dragast inn í ófrið, vegna skuldbindinga sinna gagnvart Grikkjum. Samningur um þetta var undirskrifaður milli Breta, Tyrkja (og Frakka) í október í fyrra. Yfirmaður breska herforingjaráðsins í Egyptalandi, Smith, lagði af stað í gærdag frá Kairo áleiðis til Ankara og var gért ráð fyrir að hann ræddi við yfirmann tyrkneska herforingja: ráðsins í gærkvöldi. ____________________’ vJLc'S' jv HcrnaðaraðslaOan Strax eftir að Metaxas forsæt- isráðherra Grikkja hafði lýst yf- ir því, við sendiherra ítala, að hann skoðaði úrslitakosti þeirra og það, á hvern hátt þeir væru fram bornir, sem stríðsyfirlýs- ingu, kallaði hann sendiherra Breta á sinn fund og sagði við hann: Við þurfum stuðning allra þjóða, sem geta hjálpað okkur. Síðan kallaði hann á sinn fund sendiherra Tyrkja, Júgóslafa og Búlgara. Það er kunnugt, að Metaxas ræddi við Inenu, forseta Tyrk- iands í 50 mínútur í síma í gær. En ekkert er kunnugt, hvað þeim fór á milli. 1 gær voru 70 ár liðin frá því að tyrkneska lýðveldið var stofn að, og flutti sendiherra þeirra, Refik Saydam ræðu við það tækifæri, þar sem hann sagði m. a., að tyrkneska þjóðin stæði saman sem einn maður á þess- um myrkvatímum, sterk og reiðubúin til að verja heiður sinn og sjálfstæði. Það er vitað að Tyrkir hafa undanfarið dregið saman herlið á landamærnm Tyrklands og Búlg- aríu. En engin staðfesting hefir fengist á fregn, sem Associated Press frjettastofan hirti í gær- kvöldi, um það, að tyrkneskt her- lið væri komið inn í Þrakíu í Grikklandi á leið sinni til hjálpar Grikkjum. Svo virðist á fregnum frá Róma borg, að ítalir hafi gert ráð fyrir að Grikkir gæfust upp, án þess að vera sigraðir með vopnum. Það var látið í veðri vaka í gærkvöldi, að sókn ítala myndi ekki byrja fyrir alvöru, fyr en um dögun í dag, því að þeir iéæru að bíða eftir, að Grikkir hættu að veita viðnám. ÚRSLITAKOSTIRNIR. Úrslitakostir þeir, sem sendi- herra ítala í Aþenu, Garzia, aí- henti Metaxas forsætisráðherra í fyrrinótt kl.3, voru á þá leið, að gríska stjórnin átti innan þriggja klukkustunda að samþykkja að ítalskt herlið legði undir sig hern- aðarlega mikilvæga staði í Grikk- landi. Þegar Metaxas spurði Gar- zia, hvaða staðir þetta væru, þá kvaðst sendiherrann ekki vita það (að því er segir í fregn frá Lond- an). Sakirnar, sem ítalir báru á Grikki, voru þær, að grískir her- menn hefðu framið ofbeldisverk gagnvart albönskum hermönnum (vjer skýrðum frá þeim á sunnu- dag), að gríska stjórnin gætti ekki hlutleysis, þar sem breskum herskipum væri leyft að sigla inn- an grískrar landhelgi, breska leynilögreglan hefði fengið að koma sjer fvrir í Grikklandi og að breskt herlið hefði jafnvel fengið bækistöðvar í Grikklandi. Signor Gayda gefur frekari skýringar á þessu síðasttalda at- riði, er hann heldur því fram í blaði sínu í gær, að Bretar hafi þegar 30 hernaðarflokka á 30 stöðum í Grikklandi. Bretar hafi einnig fengið þar flotahafnir og flugstöðvar, sem þeir ætluðu að nota til árásar á Albaníu. Síi von ítala að Grikkir gefist upp baráttulaust virðist, sam- kvæmt fregnum frá Grikklandi, Jangt frá því að rætast. í gærkvöldi voru Aþenubúar að búa sig undir fyrstu ófriðarnótr- ina, fólki var sagt að safna vatns- birgðum, allar bifreiðar og öll önnur ökutæki voru tekin í þjón- ’ ustu hersins, og hermenn fóru syngjandi um borgina, á leið til vígstöðvanna. Strax í gærmorgun, eftir að Metaxas hafði hafnað úrslitakost- unum, var fyrirskipuð almenn hervæðing í Grikklandi. I ávarpi til grísku þjóðarinn- ar, sem Metaxas birti, hvatti hann hana til að veita innrásarhernum viðnám, og deyja, ef þess þyrfti, og deyja eins og menn. í útvarpsávarpi hvatti Georg konungur herinn til að sýna að hann væri verðugur forfeðra sinna. Hann hvatti hann til að berjast, til að berjast fyrir því, sem honum væri heilagt, fyrir föð- urlandinu, fyrir eiginkonum og börnum, en umfram alt: að berj- ast. Konungur og Metaxas óku í vagni um Aþenuborg í gær, sem öll var fánum skreytt og voru þeir alstaðar hyltir af miklum mann- fjölda. Alstaðar kváðu við hróp- in: „Niður með Ítalíu, lengi lifi Grikkland". Fólkið veifaði fánum Grikkja, Tyrkja og Breta ,og fór hópgöng- u rtil sendiherrabústaða Tyrkja, Breta og Sovjet-Rússa. FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. ítalskar flugvjelar gerðu einn ig árás á Korinthubrúna, sem tengir saman Pelopsskaga og meginlandið. En grískar flug- vjelar rjeðust hjer til móts við ítölsku flugvjelarnar og hindr- uðu að brúin væri eyðilögð, að því er fregnir frá Aþenu herma. Loftvarnamerki voru gefin í Aþenu nokkrum sinnum í gær, og fregnir bárust um að sjest hafi til ítalskra flugvjela yfir borginni. En engar fregnir hafa borist um tjón þar. Einnig bárust fregnir um loft- árásir á nokkrar aðrar borgir í Grikklandi. Um bardagana á landi er ekkert vitað með vissu ann- að en það, sem stendur í til- kynningu herstjórnarinnar, sem birt var í gærmorgun. Þar segir, að ítalskar her- sveitir hafi ráðist á varð- stöðvar Grikkja og að gríski herinn verji föður- land sitt. Fregnir bárust snemma í gær um að ítalir sæktu fram með- fram öllum landamærum Al- baníu og Ítalíu. Voru ítalir sagðir vera komnir að aðal- varnarlínu Grikkja. En ítalir virðast leggja höfuð- áherslu á sóknina á tveim stöð- um, nyrst við landamæri Al- baníu, þar sem þeir virðast sækja fram til borgarinnar Florina, um 35 km. frá landa- mærunum, með það fyrir augum að sækja þaðan til hinnar miklu hafnarborgar Saloniki, sem er um 150 km. frá landamærunum. Önnur álma Norðurhersins, stefnir nokkuð sunnar, til Kast- oria í Eipiros (skamt fyrir sunn- an Florina). En önnur höfuðsóknin er syðst við landamæri Albaniu, inn í Yunninahjeraðið í áttina til borgarinnarYunnina. En það var upphaflega Yunninahjerað- ið, sem ítalir vildu sameina Al- baniu. Fregnir bárust í gær um hern- aðaraðgerðir á sjó, á þá leið, að ítölsk herskip væru komin til eyj- arinnar Korfu, og hefðu mætt þar grískum herskipum. Korfu er stórlega mikilvæg frá hernaðar- legu sjónarmiði, vegna þess að þaðan er hægt að hafa hönd í bagga með siglingum um Adría- haf (sem ítalir kalla ítalskt stöðu- vatn). í heimsstyrjöldinni var Korfu á valdi Bandamanna og liotuðu þeir hana sem bækistöð fyrir skip, sem liöfðu það hlut- verk á hendi, að eyðileggja þýska kafbáta, sem höfðu bækistöð í Trieste. ítalir settu her á land í Korfu árið 1923, en urðu að hverfa það- an aftur, samkvæmt úrskurði Þjóðabandalagsins. I gær voru Italir sagðir vera að reyna að setja þar herlið á land aftur í skjóli ítalskra herskipa. En fregnir bárust um sjóorustu milli grískra og ítalskra herskipa, og síðar bárust fregnir um, að ítölsk og bresk herskip berðust hjá Korfu. Telja má víst, að Bretar leggi áherslu á, ekki síður en ítalir, að ná Korfu á sitt vald. ítalir voru einnig sagðir vera að setja herlið á land á aðrar grísk- ar eyjar í gær. Grísku eyjarnar hafa yfirleitt mikla hernaðarlega þýðingu, að því leyti, sem hægt er að nota þær sem flotabæki- stöðvár, og þar með sem vopn í átökunum um yfirráðin í ausan- verðu Miðjarðarhafi. Ilinar fáorðu fregnir, sem bor- ist hafa um hernaðaraðgerðir í eða við Grikkland, munu stafa af því, að allir aðilar vilja forðast að sama sagan endurtaki sig og í Noregi, þegar birtar voru mikil- vægar sigurfregnir, sem síðar reyndust á sandi bygðar. Dr. Helgi Tómasson hefir far- ið fram á að bæjarráð skipi ann- an mann í loftvarnanefnd í hans Bæjarráð hefir orðið við beiðninni og skipað Gunnar Thor- ocldsen í stað dr. Helga í nefnd- ina. Herstyrkuf Itala og Grikkja Italir hafa 10—11 herfylki (divi- sionir) í Albaníu, eða um 200 þús. manna her, að því er segir í fregn frá London. Þar af er ein vjelahersveit, ein hersveit (divi- sion úrvalsliðs fjallahermanna). Gegn þessu liði hafa Grikkir 14 herfylki fótgönguliðs og 1 herfylki riddaraliðs, eða um 280—300 þús. manna her. En þar að auki hafa þeir mikið varalið æfðra manna. Herskylda er í Grikklandi og eru allir menn á aldrinum 21—50 ára skyldir til að gegna herþjón- ustu í tvö ár. En til viðbótar verða menn í fyrsta varaliðinu að gegna herþjónustu í 19 mánuði, en í öðru varaliðinu í 8 Smánuði. Heildarherstyrkur Grikkja hefir verið metinn á 600 þús. manns: En það er þó talið hæpið að treysta því, að hjer sje um óyggj- andi tölu að ræða. Heildarherstyrkur ítala er met- inn á 8 milj. manna. (íbúar í Grikklandi eru rúm- lega 7 miljónir, í Ítalíu 45 milj.). FLOTINN. Grikkir áttu tvö gömul beiti- skip, en öðru þeirra „Hellas“ söktu ítalir í sumar. Þeir eiga 10 tundurspilla, 13 tundurskeytabáta og 6 kafbáta, auk nokkurra smærri skipa. ítalir eiga 5 orustuskip (3 í smíðum), 23 beitiskip (12 í smíð- um), 74 tundurspilla, 59 tundur- skeytabáta, 60 „molar“ tundur- skeytabáta, og 103 kafbáta (20 í smíðum). Auk þess eiga þeir 12 tundurskeyta-beitiskip í smíðum. Loks eiga þeir mörg minni skip. • Engar áreiðanlegar tölur eru til um flugflota Grikkja. í fyrra var álitið að þeir ættu um 300 ný- tísku flugvjelar, en um sama leyti voru ítalir sagðir eiga 4200 flug- vjelar. Bretar fá atikínn katip- skípaflota Grikkir eru meðal mestu siglingaþjóðanna í heim- inum. Þeir eiga kaupskipaflota, sem er 1,9 milj. smálestir. I gær var birt í breska útvarp- inu aðvörun til allra grískra skipa í Kyrrahafi, að halda á- fram ferð sinni til amerískra hafna, ef þau væru á austurleið, en ef þau væru á vesturleið, til Asíu, að fara til breskra eða hollenskra hafna, eða til hafna sem Bandaríkin ráða yfir. Grískum skipum í Atlantshafi var sagt, að haldia áfram til amerískra hafna, ef þau væru á vesturleið, en ef þau væru á austurleið, að fara þá til breskra hafna, eða hafna, sem Frakkar rjeðu yfir. stað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.