Morgunblaðið - 16.11.1940, Síða 2
i.
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 16. nóv. 1940.
Serrano Suner á leiO til
Berlín:
Þýskt herlið sagt ætia að
Yfirhershöíðingjar Ifala og'
Þfóðverja á ráðstefnu
Amerískum frjettastófum
bannað að flytja fregnir
"■ frá Spáni
..—---
RÁÐSTEFNA æðstu hershöfðingja Þjóðverja og
ftala, von Keitels og Badoglios marskálks,
sem hófst í Innsbruck (Austurríki) í gær,
er talin boða, að stjórnmálaviðræðunum, sem farið hafa
fram undanfarið, sje nú lokið, og að undirbúningur sje
nú hafinn undir hernaðarlega sókn á einhverjum víg-
stöðvanna í Evrópu, í Grikklandi, Egyptalandi, Gibraltar,
Englandi, eða ef til vill á öllum samtímis.
SPÁNN
Tveir atburðir, sem gerðust í gær, hafa alt í einu
sett Spán fram á sjónarsviðið að nýju. Það var tilkynt
í Berlín í gærkvöldi, að Serrano Suner, utanríkismálaráð-
herra Spánverja, væri væntanlegur þangað í heimsókn
innan skams, í boði von Ribbentrops.
Fyr í gær tilkynti spanska stjórnin frjettariturum amerískra
frjettastofa í Madrid. að frá og með n. k. mánudegi, yrði þeim
ekki leyft að senda frjettir frá Spáni. Sú skýring var gefin á
þessu að amerísk yfirvöld hefðu neitað fulltrúa spanskrar frjetta-
stofu, aðalfrjettastofu Spánverja, að setjast að í Bandaríkjunum
og senda þaðan frjettaskeyti til Spánar.
Bannið var í fyrstu álitið ná aðeins til tveggja amerískra
frjettastofa, „United Press“ og „Associated Press“, en fregnir
*em bárust frá Madrid seint í gærkvöldi, bentu til þess, að allar
amerískar frjettastofur og amerísk blöð yrðu sett undir þetta
bann.
GIBRALTAR
í fregn frá Washington í gærkvöldi segir, að þar sje ekki
kunnugt að nokkrum fulltrúa spönsku frjettastofunnar hafi verið
bannað að setjast að í Bandaríkjunum, nje heldur að senda það-
an frjettaskeyti. Hefir Bandaríkjastjórn falið sendiherra sínum,
í Madrid að rannsaka þetta mál til hlítar.
í Washington er talið, að erindi Serrano Suners til Berlín,
sje að gera samning við þýsku stjórnina um leyfi fyrir þýska
hermenn til að fara yfir Spán til þess að ráðast á Gibraltar.
Suner kom í gær til San Sebastian við frönsku landamærin á
leið til Berlínar.
Fregnir hafa borist um að þýskt herlið sje þegar komið
til Spánar, dulklætt sem ferðamenn.
Spánn kann að vera einn
þátturinn í viðrœðum von
Keitels og Badoglios og
herforingjaráða þeirra,
sem einnig eru viðstödd í
Imsbruck. En höfuðum-
rœðuefnið er álitið vera
Grikkland, og er talið
að sókn Itala þar sje nú í
aðsigi.
Fregnir frá Júgóslafíu
herma (skv. Associated Press)
að sóknin sje þegar hafin á
Florinavígstöðvunum.
TILKYNNINGAR.
í hernaðartilkynningu
Grikkja í gærkvöldi er þó
skýrt frá því, að Grikkir sjeu
enn í sókn, en að hernaðarað-
gerðirnar sjeu í stærri stíl en
verið hefir undanfarið. 1 gær
var aðallega barist um 6 þús.
feta hátt fjall, Ivan-fjallið,
sem gnæfir yfir aðalbækistöð
Itala, Koritza. Segjast Grikkir
hafa tekið hjer 400 ítalska
fanga og mikið af hergögnum.
Gfikkir segjast hafa skotið nið-
ur 21 ítalska flugvjel í loftbar
dögum í gær.
í herstjórnartilkynningu ítala í
gærmorgun segir, að eðlilegar
framvarðaskærur og könnunarferð
ir hafi átt sjer stað á Epirus-víg-
stöðvunum,
ítalir segjast hafa skotið niður
13 breskar og grískar flugvjelar,
en mist sjálfir 1.
Tyrkneski sendi-
herrann gefur
skýrslu
Sendiherra Tyrkja í Berlín
fór þaðan í gær áleiðis til
Ankara til þess að ræða við
tyrknesku stjórnina.
Er talið að för hans standi
í sambandi við heimsókn
Molotoffs í Berlín,
Bretar senda
Rússum orð-
sendingu,
Rússar svara
ekki
að var upplýst í London í
gær, að sendiherra Breta
í Moskva, Sir Stafford Cripps,
hefði þ. 21. okt. síðastliðinn af-
hent Vishinsky, aðstoðar utan-
ríkismálaráðherra Rússa orð-
sendingu frá bresku stjórninni,
þar sem hún gerir Rússum þau
boð til samkomulags:
1) að viðurkenna de facto
innlimun Eystrasaltsríkjanna,
Eistlands, Lettlands og Lithau-
en í Sovjet-Rússland.
2) að leyfa Rússum þátttöku
fríðarráðstefnunni sem haldin
verður eftir stríðið og
3) að taka ekki þátt í neinum
samtökum gegn Rússum.
Bresku stjórninni hefir ekk-
ert svar borist við þessari orð-
sendingu.
Hinsvegar frjettist ekkert
hvað Molotoff og Hitler fór á
milli, meðan Molotoff var í Ber-
lín.
Tassfrjettastofan rússneska
bar í gær til baka, fregnir sem
birtar hefðu verið um 1) að
Rússar hefðu fallist á (til sam-
komulags við Japana) að hætta
að veita Kínverjum stuðning, og
2) að Japanar hefðu (til sam-
komulags við Rússa) fallist á
að Rússar fengju Indland í sinn
hlut.
En annað en þessar neikvæðu
yfirlýsingar, heyrist ekkert um
sambúð Rússa og öxulríkjanna.
Þýsk blöð birtu í gær langar
greinar um þessa sambúð og
tala um eins og t. d. „Völkischer
Beobachter“, að sú staðreynd,
að vinátta Rússa og Þjóðverja
hefði náð að festa rætur á
styrjaldartímum, sýndi að þess-
ar þjóðir væru staðráðnar í að
ganga braut sína, án tillits til
auðvaldsríkjanna.
Þjóðverjar vitna í blað rúss-
neska flotans, sem segir, að
Berlínarfundurinn sje söguleg-
ur viðburður.
Molotoff kom í fyrrinótt til
þýsk-rússnesku landamæranna
á heimleið og sendi Hitler það-
an svohljóðandi skeyti:
„Þar sem jeg er nú að hverfa
burtu af þýskri grund, færi jeg
yður þakkir mínar fyrir hinar
vinsamlegu móttökur, sem jeg
hefi hlotið í Þýskalandi“.
FRAMH. Á 8JÖUNDU SÍÐU.
ráðast á Gibraltar
Sprengjuregn frá
dagsetri til dög-
unar úr 500 þýsk-
um flugvjelum
- - ♦
FREGNIR frá London seint í gærkvöldi hermdu.,
að tjónið af völdum loftárásar, sem þýskar
flugvjelar gerðu á Coventry í Mið-Englandi í
fyrrinótt, hafi verið svo ægilegt, að varla sje hægt að
ganga um nokkra götu borgarinnar án þess að verða á
einhvern hátt var við eyðileggingarnar. íbúar í Coventry
eru tæplega 200 þúsund.
Fólkið í borginni segir, að varla hafi orðið hlje í tvær
mínútur samfleytt á loftárásunum frá því um dagsetur
þar til í dögun. Hefir verið giskað á, að 500 flugvjelar
hafi tekið þátt í árásunum, og kemur það heim við það,
sem haldið er fram í Þýskalandi.
Þjóðverjar segja, að 500 flugvjelar hafi hver varpað nið-
ur 1000 kg. af sprengjum og auk þess hafi þær varpað niður 30
þús. smálestum af eldsprengjum.
Sjónarvottar á Coventry segja, að flugvjelarnar hafi komið
smáhópum, 25 saman og slept sprengjufarmi sínum og skundað
síðan í burtu. 1 fyrstu vörpuðu þær aðallega eldsprengjum yfir
borgina, sem kveiktu þegar í stað ótal elda.
ll fregn frá London í gær var skýrt frá því, að eldarnir
hefðu verið svo miklir, að tunglið hvarf í bjarma þeirra. Þjettur
reykjarmökkur lá yfir borginni.
Flugvjelarnar flugu mjög hátt og segja Bretar, að þær
hafi því ekki getað tekið mið á iðnaðarstöðvarnar í borginni.
Tjónið hefir ekki síst orðið í miðhluta borgarinnar fjarri iðn-
aðarstöðvunum.
M. a. var hæfð gömul kirkja í borginni, frá 14. öld.
Onnur borg
í nótt?
Bretar segjast hafa skotið nið-
ur 20 þýska flugvjelar í gær
og í fyrrinótt, þar af 18 í gær og
2 yfir Coventry í fyrrinótt.
Þýskar flugvjelar reyndu hvað
eftir annað að nálgast London í
gær, og nokkrum sprengjum var
varpað yfir borgina.
í gærkvöldi hófst næturárásin
á svipuðum tíma og venjulega og
stóð fram eftir nóttu.
Sást til margra þýskra flugvjela
og flugu sumar þeirra þvert yfir
borgina ,eins og þær væru á leið-
inni til einhverrar annarar horg-
ar lengra inni í landi.
ÁRÁSIN á taranto
Myndir, sem teknar voru at’
höfninni Taranto í fyrri-.
nótt, leiða í ljós, að ítalir virðast
telja eitt orustuskipanna (af
Cavour-gerð, 23.500 smál.) gjör-
tapað, en verið er að reyna að
gera við hin tvö, sem urðu fyrir
sprengjum breska flughersins.
Einn breskur flugmaður skýrir
svo frá, að hann hafi sjeð fjóra
skipaskrokka á kafi í höfninni,
og er talið að það sjeu beitiskip-
Manntjón í borginni er álitið hafa
orðið um 1000. En engar endanlegar
skýrslur hafa þó verið birtar um það.
Ýmsar sögur eru birtar i London
frá hörmungum fólksins i Coventry.
M. a. er skýrt frá því, að 5 lögreglu-
þjónar og 2 hermenn hafi verið á leið
niður eina götu borgarinnar, þegar
flugvjelar birtust yfir þeim. Þeir vörp-
uðu sjer í götuna, og lögðust her-
mennirnir yfir lögregluþjónana til að
hlífa þeim. En ein sprengjan kom
beint niður á þá og fórust þeir allir.
Þjóðverjar segja að árásin hafi ver-
ið gerð í hefndarskyni við árásina á
Miinchen á dögunum, þegar Hitler
flutti þar ræðu sína.
í Coventry eru miklar flugvjelaverk-
smðijur, þ. á m. Vickers- Armstrong-
verksmiðja, Standard Work, Daimler
o. fl.
ÁRÁS Á BERLÍN.
Bretar gerðu í fyrrinótt loftárás
á Berlín og segjast Kafa hæft
nokkrar járnbrautarstöðvar, Stett-
inerstöðina, Schesischerstöðina,
Anhalter- og LehrterstöSvarnar,
Pulitzerstöðina og ennfremur
Tempelhofer járnbrautarstöðina
og orkuverk í Charlottenburg og
Wilmersdorff.
Loftárásin á Berlín var aðeins ein
af mörgum, þvj að árásir voru gerðar
á 26 staði frá Stavanger í Noregi til
Lorient í Frakklandi.
í öllum þessum árásum segjast Bret
ar hafa mist 10 flugvjelar.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU FRAMH. Á SJÖTTU SÉÐU