Morgunblaðið - 28.12.1940, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 28. des. 1940,
Tilkynoing frá ioftvarnanefnd.
Loftvarnanefnd Reykjavíkur hefir vegna framkom-
ánna tilmæla frá stjórn breska setuliðsins, ákveðið að
merki um yfirvofandi loftárásarhættu skuli framvegis
standa yfir í aðeins 3 mínútur.
Rafflautur munu þvínæst þagna þar til merki um að
hætta sje liðin hjá verður gefið.
LOFTVARNANEFND.
Af sjerstðkum ástæðum
fer hraðfrystihús í einni aðal veiðistöð landsins til sölu.
Upplýsingar gefur
LÁRUS JÓHANNESSON
hæstarjettarmálaflutningsmaður,
Suðurgötu 4. Símar 4314, 3294.
Rafmagnshreyfill
3—5 hestafla óskast (rið-
straums — 220 volt).
A. v. á.
ÞnrkaOir
Ávextir:
Epli
Sveskjur
Vííllt
Laugaveg 1. Fjölnisveg 2.
□
=JQ
AUGLÝSING er gulls ígildi.
O
Hollendingarnir í jólaleikritinu „Hái-Þó“. í fremri röð
Brynjólfur Jóhannesson, í miðjunni Alda Möller og Valur
Gíslason, (lengst til vinstri). ___________________
Úr Jláa Þór“
Tilkynning frá ríkisstjórninni.
í Til viðbótar við áður auglýstar tálmanir á siglingaleiðum hjer við land, vegna hernað-
araðgerða breska setuliðsins, hefir herstjórnin tilkynt, að bannað sje að varpa akkerum eða
* stunda hverskonar fiskveiðar á eftirtöldum stöðum:
a) í Hvalfirði á belti yfir fjörðinn, sem takmarkast af eftirfarandi stöðum:
64° 21'40" n. br. 21° 45'24" V. lgd.
64° 20'40" n. br. 21° 41'18" V. lgd.
64° 23'02" n. br. 21° 42'20" V. lgd.
64° 21'36" n. br. 21° 39'10" V. Igd.
b) 1 Seyðisfirði á belti, sem takmarkast af línu, sem hugsast dregin þvert yfir fjörðinn í
144° stefnu frá stað, sem liggur 0,2 sjómílur í 258° stefnu frá flaggstönginni á verslunar-
húsunum á Vestdalseyri, og annari línu, sem hugsast dregin þvert yfir fjörðinn í 134°
stefnu frá stað, sem liggur 0,2 sjómílur í 043° stefnu frá áðurnefndri flaggstöng.
c) I Eyjafirði á belti þvert yfir fjörðinn, sem að norðan takmarkast af línu, sem hugs-
ast dregin milli Arnarnesnafa og Laufáskirkju, og að sunnan af línu, sem hugsast dregin milli
Hjalteyrarvita og bryggju framundan bænum Nolli.
d) I Hrútafirði á belti þvert yfir fjörðinn, sem takmarkast að norðan af línu, sem hugs-
ast dregin í rjett austur og vestur frá norðurenda Hrúteyjar, og að sunnan af línu, sem
hugsast dregin í rjett austur frá Kjörseyrartanga.
Ennfremur tilkynnir herstjórnin að hindrun hafi verið lögð þvert yfir Hvalfjörð, hjer um
bil í 317° stefnu frá suðurenda Hvaleyrar í Hvalfirði. Hindrunin er merkt með duflum, og
ér hættuleg skipum.
Sem stendur má þó sigla yfir hindrunina milli dufla, en skip, sem sigla yfir línuna, ættu
að gera það á stefnunum ANA—VSV, eftir seguláttum.
Skip verða að hlýða sjerhverri bendingu, sem þau kunna að fá frá nálægum gæslu-
skipum.
Reykjavík, 23. desember 1940.
Umsðtrin um
Bardia hafa stað'
ið i 10 daga
Síðustu 10 dagana hefir engin
breyting orðið á vígstöðv-
unum í Egyptalandi .
Frejttastofufregnir herma þó,
að breska umsátursliðinu hjá
Rardia berist stöðugt liðsauki,
og að látlausri fallbyssuskothríð
sje haldið uppi á hin tvö ítölsku
herfylki, sem halda uppi vörn-
um í borginni.
f tilkynningu ítölsku herstjórn-
arinnar í gær er skýrt frá áköfu
fallbyssueinvígi hjá Bardia.
Bretar segja, að engin merki
sjáist þess að Graziani ætli að
senda herlið, til þess að bjarga
setuliðinu í Bardia. Setuliðið sje
algerlega einangrað, og engin leið
sje fyrir það að fá nýjar skot-
færabirgðir í stað þeirra sem not-
aðar eru. Þess vegna hljóti setu-
liðið ,sem er undir stjórn Berta
hershöfðingjg, fyr eða síðar að
gefast upp.
Graziani er aftur á móti sagður
láta vinna af kappi að víggirðing-
um við Tobruk.
í ræðu, sem Churehill flutti um
jólin ,skýrði hann frá því, að Bret-
ar myndu ekki láta staðar numið
við Bardia og ekki við Tobruk,
þeir myndu halda áfram til Ben
gahsi og ekki hætta fyr en Libya
og aðrar nýlendur ítala í Afríku
væru lausar orðnar undan yfir-
ráðum þeirra.
Churehill ræddi einnig um þann
möguleika, að Bretar gerðu innrás
í Ítalíu.
Grikkland.
Fregnir. frá Grikklandi herma,
að gríski herinn sæki fram norð-
ur af Kimara í áttina til Vallona.
Á miðvígstöðvunum, hjá Klisura,
hafa ítalir fengið liðsauka og er
barist þar um mikilvæga hæð fyr-
ir sunnan borgina.
Nyrst á vígstöðvunum hafa
Grikkir hafið sókn að nýju og
stefna nú í áttina til Elbasar.
500 flugvjelar
á dag
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
það vjelaafl ,sem umráð væru yf-
ir, og einnig gengu margir lærðir
vjelaiðnaðarmenn atvinnulausir.
Talið er, að bifreiðaverksmiðj-
urnar í Bandaríkjunum geti fram-
leitt allar orustuflugvjelar, sem
þörf er fyrir, og geta flugvjela-
verksmiðjurnar þá lagt höfuðá-
hersluna á framleiðslu hinna full-
komnari sprengjuflugvjela. »
Samkvæmt opinberum skýrslum,
sem birtar hafa verið í New York
nam flugvjelaútflutningur Banda-
ríkjanna til Stóra-Bretlands og
Kanada í nóvembermánuði 240
flugvjelum ,en 279 flugvjelum í
október.
Sir Walter Layton, .hinn breski
hagfræðingur, sem dvalið hefir
undanfarið í Bandaríkjunum í er-
indum breska flugvjelaframleiðslu-
ráðuneytisins, sagði við blaðamenn,
er hann kom til London í fyrra-
dag, en menn mættu ekki búast
við að hjálpin frá Bandaríkjunum
gæti komið alveg án tafar. Sir
Walter benti á, að í heimsstyrj-
öldinni hefðu liðið 18 mánuðir frá
■ því að Bandaríkin fóru í stríðið
og þar til hjálpin frá þeim komst
á hámark.
Bandaríkin væru nú komin vel á
veg með framleiðsluáætlun sína,
þau hefðu sigrast á ýmsum byrj-
unarörðugleikum svo að í sumar
mættr vænta þess, að framleiðsla
þeirra væri orðin mjög álitleg, en
að ári liðnu myndi hún verða orð-
in „stórfeld skriða“.
Loftárásirnar
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
breskar flugvjelar hafi varpað
sprengjum á nokkra staði í
Frakklandi og að nokkrir
Frakkar hafi særst eða farist,
ekkert hernaðarlegt tjón hafi
orðið.
Breska flugmálaráðuneytið
tilkynti í gærkvöldi, að bresk-
ar flugvjelar hefðu í gær, ann
an daginn í röð, gert loftárás
í dagsbirtu á flugvelli á Bret-
agneskaga og á hafnarborg-
ina Lorient.