Morgunblaðið - 05.01.1941, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 05.01.1941, Qupperneq 7
Sunnudagur 5. janúar 1941. M 0 R G UNBLAÐIÐ 7 Háskólinn FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. 5. Kirkjusöngur á Islandi í kaþólskum og lútherskum sið. 6. Islensk tónskáld að fornu og nýju, sjereinkenni þeirra og þýð- ing fyrir þróun innlendrar tón- listar. 7. Erlend áhrif á íslenskar tón listahókmentir. 8. Tónlistin og sess hennar í vérkum Einars Benediktssonar. Eins og menn sjá, er hjer hið merkilegasta efni. Aðrir fyrirlestrar. Loks hefir verið ákveðið að sendikennari Breta, dr. Jackson flytji 10 fyrirlestra á ensku. Yerð- nr efni þeirra úr menningarlífi Breta. Dr. Símon Jóh. Agústsson held- ur áfram með sína fyrirlestra um uppeldisfræði. Sömuleiðis sænski sendiliennarinn, frk. Osterman, um sænska menningu. Verður nánar tilkynt um þessa fyrirlestra síðar. Hvar er útvarpið? — Er ekki þessum merkilegu háskólafyrirlestrum útvarpað ? — Sunhudagsfyrirlestrarnir virðast þó tilvalið útvarpsefni. — Nei, útvarpsráð hefir alls ekki farið fram á slíkt. Meira að segja var ekki farið fram á, að sjálfri háskólahátíðinni í haust væri útvarpað. Þar var þó fluttur mjög merkilegur fyrirlestur um hugverk (próf. Ól. Lárusson). Það hafa í vetur verið — og verða áfram — fluttir í tugataii ágætir fyrirlestrar um allskonar efni úr sögu þjóðarinnar, um heil- brigðismál, um menningu ná- grannaþjóðanna o. s. frv. En allir þessir fyrirlestrar hafa verið inni- lokaðir. Engum Arerið útvarpað. En þetta virðist þó tilvalið út varpsefni. Ef sá siður væri upp tekinn, að útvarpa merkustu háskólafyrir- lestrunum, yrði Háskólinn sann- kallaður þjóðskóli. Og það á hann vissulega að vera, en ekki fyrir Reykvíkinga eina. — Er nokkuð því til ívrirstöðu af Háskólans hálfu, að þessum fyrirlestrum verði útvarpað? — Nei, síður en svo. Háskólan- um Aræri einmitt kært að komast á þann hátt í samband við þjóð- ina. Hann myndi því vilja haga flutning fyrirlestranna á þeim tíma, sem útvarpinu hentaði; ann- ars virðist tíminn 6—7 s.d., sem nú ei’, heppilegur. Sunnudagafyr- irlestrarnir myndu áreiðanlega henta vel útvarpshlustendum. Við Háskólann eru flestir bestu fyrirlesarar, sem völ er á hjer á landi. Þeir, sem sí og æ eru að skrifa um þjóðskója, ættu vissu- lega að stuðla að því, að Háskól- inn komist í náin tengsl við þjóð- ina, gegn um útvarpið. Þá fengjum við hinn eina sanna og rjetta þjóðskóla. •HllllullHIIUIUlUIIIHHIIIUHtllllHMtHUIIiminillUUUIHUIIII^ Reglusamur maður, | í fastri stöðu í Hafnarfirði, | óskar eftir herbergi og helst | fæði á sama stað. Nánari upp- § lýsingar gefur Eyjólfur Krist- | jánsson. Sími 9071 og 9326 § Átökin á Balkanskaga FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. hans, að hann misti föður sinn eftir ára^nótin. I gær var ítarlega getið í þýskum blöðum nýs blaðs, sem farið er að gefa út í Búlgaríu og sem kallað er „Búlgaría á morgun“. I fyrsta tölubla,ði þessa -biaðs skrif- ar m. a. fyrverandi yfirmaður búlg- arska herforingjaráðsins, sem var yf- irmaður þess í heimsstyrjöldinni, og segir hann að Búlgarar geti ekki hliðrað sjer hjá þátttöku í hinum miklu breytingum, sem eru að gerast í Evrópu. Hvetur hershöfðinginn Búlg- ara til að taka þátt í hinni „nýju skipun“ Þjóðverja í Evrópu. Um stjórnmálasambúð Þjóðverja, og Grikk.ja upplýsti fulltrúi þýska utan- ríkismálaráðunevtisins í gær, að hún væri óbreytt. En hann neitaði að ræða hernaðaraðstöðuna í Albaníu. í Tvrklandi heldur von Papen á- fram, að reyna að sundra Tyrkjúm eg bandamönnum þeirra Bretum. Hann flutti um áramótm ræðu fyrir starfs- mönnum þýsku sendisveitarinnar og Þjóðverjum búsettum í Ankara og komst m. a. þannig að orði í þessari ræðu, að tyrkneskir stjómmálamenn þyrftu að gera sjer ljóst hverjir væru hinir raunverulegu vinir þeirra. Úthlutun Mentamálaráðs FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. Karl Ó. Runólfsson, Margeir Jónsson, Þórunn Magnúsdóttir. Kr. 500.00 hlutu: GuSmundur Davíðsson, Hraunum, Guðmundur Ingi Kristjánsson, Jóhann E. Kúld, Jóhann Sveinsson, Jón Stefáns- son, dr., Jón Þorsteinsson, Arn- arvatni, Kristleifur Þorsteins- son, Svava Jónsdóttir. Kr. 400.00 hlutu: Friðgeir H. Berg, Halldór Helgason. Kr. 300.00 hlutu: Guðmundur Kristinsson, myndskeri, Þorsteinn Bjarna- son, Háholti. Dansskóli Báru Sigurjónsdóttur tekur aftur til starfa eftir jóla- fríið n.k. þriðjudag. Fundur verður haldinn í Dagsbrúnardeild málfundafé- lagsins ,,Óðins“ í Varðarhús- inu í dag (sunnudag) þann 5. þ. m., kl. 1 e. h. Áríðandi að allir mæti. Nýársfagnað heldur St. Fram- tíðin í G. T.-húsinu í kvöld og kemur St. Varmá í Mosfellssveit þangað í heimsókn. Skemtunin hefst kl. 10, en fundur í stúkunni kl. 8, uppi á lofti. Fiskaklettur, Slysavarnadeildin í Hafnarfirði, hefir beðið Morg- unblaðið að færa áætlunarbílum Hafnarfjarðar þakkir fyrir rausn- arlega peningagjöf á gamlársdag. Vikuna 5.—11. janúar gegna þeir lækn- arnir -Ólafur Helgason og Friðrik Björnsson iæknisstörfnm mínum. Ólafur Þorsteinsson, Skólabrú 2. ^^^.Flutninour til Islands □ Edda 59411105 — Jólatrje í Oddfellowhúsinu. I. O. O. F. 3 = 122168 = Helgidagslæknir er í dag Ey- jór Gunnarsson, Laugaveg 98. — Sími 2111. ' Næturlæknir í nótt er Þórarinn Sveinsson, ÁsAmllagötu 5. Sími 2714. Næturvörður er í Reykjavílcur úpóteki og Lyfjabúðinni Iðunni. Næturakstur annast næstu nótt Bifreiðastöð Reykjavíkur. Sími 1720. Aðfaranótt þriðjudags ann- ast íxæturakstur Bifreiðastöðin Geysir. Sími. 1633. 85 ára verður á morgun, 6. janúar, Jensína Jónsdóttir, Lauf- ásveg 6. Barnaguðsþjónusta verður í Bænhúsinu í Gamla kirkjugarðin- um í dag kl. 2 síðd. Hjónaefni, Trúlofun sína hafa opinberað Jóna Ágústsdóttir, Þvergötu 4, og Óskar Sveinbjörns- sou trjesmíðameistari, Láugaveg 147. Leikfjelag Reykjavíkur sýnir „Háa Þór“ kl. 8 í kvöld, og hefst. sala aðgöngumiða kl. 1 í dag. Vatnsleysustrendingar halda Skemtun í Oddfellowhúsinu þanu 24. janúar n.k. Dr. Helgi Pjeturss flytur erindi í útvarpið í dag kl. 3 e. h. um eðli drauma. Útvarpið í dag: 9.45 Morguntónleikar (plötur): Óperan „Tosca“ eftir Puccini. 1. þáttur. 11.00 Messa í Dómkirkjunni (síra Friðrik Hallgrímssort). 12.10—13.00 Hádegisútvárp. 15.00 Erindi: Sannfræði og van- fr;eði um eðli drauma (dr. Helgi Pjeturss). 15.30— 16.45 Miðdegistónleikar (plötur). Óperan „Tosca“ eftir Puccini. 2. og 3. þáttur. 18.30 Barnatími. (Nemendur Kenn araskólans). 19.15 Hljómplötur: Þjóðlög frá ýmsum löndum. 20.00 Frjettir. 20.20 Sænsk kórlög (plötur). 20.30 „Svíþjóð á vorum dögum“. IJppléstur (Guðlaugur Rósin- kranz yfirkennari). 20.50 Sænsk alþýðulög (plötur). 21.00 Úr ritum Alberts Engström (Ásgeir Ásgeirsson alþingism.). 21.25 Sænskir dansar og söngvar (plötur). 21.50 Frjettir. 22.00 Danslög. Útvarpið á morgun: 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 Ðönskukensla, 3. flökkur. 15.30— 16.00 Miðdegisútvarp. 18.30 íslenskukensla. 2. fl. 19.00 Þýskukensla, 1. fl. 19.25 Hljómplötur: Álfalög. 20.00 Frjettir. 20.30 Um daginn og veginn (síra Bjarni Jónsson). 20.50 Útvarpshljómsveitin: Álfa- dansar og þjóðlög. 21.00 Þjóðsögur (Lárus Pálsson leikari). 21.20 Einsöngur (ungfrú Kristín Einarsdóttir). Útvarpshl jómsveitin: íslensk þjóðlög og garnlir dansar. 22.00 Danslög. 21.50 Frjettir. Reglulegar hálfsmánaðar ferðir frá vesturströnd Bret-; lands til Reykjavíkur. 3—4 skip í förum. Sjerstaklega| hagkvæm flutningsgjöld ef um stærri vörusendingar er að ræða. Tilkynningar um vörur sendist Culliford & Clark Ltd. Bradleys Chambers, London Street, Fleetwood, . eða (1 íxlfj Geir H. Zoega Símar 1964 og 4017, er gefur frekari upplýaingar. tknt LITLt tlLSTðSfll UPPHTTAflf* BtLAK. Fyrirliggfandi: RÚÐUGLER 24 ounz. Eggert EitsffAnsion A Co. h.f. Sími 1400. >0 íslenskustu barnabækurnar eru Trölli, Ljósmóðirin í Stöðla- koti og Sæmundur fróði. - w 1 '**' Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum að faðir okkar og tengdafaðir, JÓN ÓLAFSSON, andaðist að heimili sínu, Bergþórugötu 16 A, að morgni þess 4. þ. m. — Fyrir hönd aðstandenda. Helga og Gunnar Rocksén. Konan mín, GRJETA MARÍA JÓNSDÓTTIR, Ijest aðfaranótt 4. janúar í Landakotsspítala. Jón Þórðarson. Jarðarför hjartkærs eiginmanns síns, föður, tengdaföður, fósturföður og afa, GUÐMUNDAR SVEINSSONAR, fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 7. jan. og hefst með húskveðju frá heimili hins látna, Frakkastíg 11, kl. 1 e. h. Guðrún Guðmundsdóttir. Sveinn Ó. Guðmundsson. Þórfríður Jónsdóttir, Svanhvít S. Sveinsdóttir. Guðmundur Sveinsson. Guðrún Sveinsdóttir. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarð- arför mannsins míns og föður okkar, ÁGÚSTS MAGNÚSSONAR verkstjóra. Sjerstaklega þökkum við Verkstjórafjelagi Reykjavíkur og forráðamönnum Knattspyrnufjelagsins Fram. Lilja Guðjónsdóttir og börn. Hjartans þakkir færum við öllum er sýndu vinarhug og hluttekningu við andlát og jarðarför dóttur okkar og stjúp- dóttur, ÓLAFÍU KRISTÍNAR SIGURGEIRSDÓTTUR. Guðmunda Ólafsdóttir, Sverrir Sigurðsson og systkini. '•imiiiimiiimmmmimiimmmiumiiimiiiiiiiiiiiiimiimiMr

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.