Morgunblaðið - 08.01.1941, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 8. jan. 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Ailsherfar atkvæðagreiðsla i Dagsbrún
Dagsbrúnarmenn! Fjölmennið
á kjörstað og greiðið atkvæði
m e ð samkomulagstillögunum
Norskt llnuskip
strandar við
Skaftárós
Snemma í gærmorgun strand
aði norskt línuveiðaskip,
„Rundehorn“, á Kaustursfjöru,
Kommúnistar hamast gegn samkomulaginu.
Andúðin gegn þeim ter vaxandi eftir útöýting
landrððaplaggsins á sunnudaginn
Foringfar kommún*
ista hlaupa í felur
ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLA hófst í
Dagsbrún í gær um samkomulagstillögurnar.
Það var upphaf þess máls, að sáttasemj-
ari ríkisins, dr. Björn Þórðarson, skrifaði stjórn Dags-
brúnar brjef, þar sem hann fer fram á það við stjórnina,
að hún efni til allsherjaratkvæðagreiðslu til þess að fá úr
því skorið hver sje vilji meirihluta fjelagsmanna.
Sáttasemjari segir í brjefi sínu, að hann geti ekki borið
fram sáttatillögu, sem feli í sjer betri kjör, en þau, sem feli í
sjer betri kosti en samninganefnd Dagsbrúnar hafði fengið fram-
gengt í samkomulagstillögunum. Brjef sáttasemjara birtist á öð-r
um stað hjer í blaðinu.
Stjórn Dagsbrúnar varð strax
við þessum tilmælum sáttasemj-
ara.
Atkvæðagreiðslan hófst kl.
5 e. h. í gær í Hafnarstræti 21
og stóð til miðnættis. Á þeim
tíma kusu 784 af 2220, sem eru
á kjörskrá. Atkvæðagreiðslunni
á að verða lokið kl. 12 á mið-
nætti í nótt.
IJndir eins og atkvæðagreiðsl
an hófst kom það í ljós, að
kommúnistum var mjög illa við
hana. Söfnuðust þeir á kjör-
stað og höfðu hinn æsilegasta
áróður í frammi, tóku menn
tali hvern af öðrum, sem komu
til að greiða atkvæði og báru í
þá allskonar ósannindi. Rudd-
ust þeir inn í ganga hússins.
En þar eð þeim var misjaínlega
tekið, lenti stundum í stymp-
ingum.
FORINGJARNIR
SÁUST EKKI.
Það vakti sjerstaka athygli,
að í þessu áróðursstarfi sáust
engir af þeim forsprökkum
kommúnista, sem venjúlega
láta mest á sjer béra. Bendir
fjarvera þeirra til þess, að
jafnvel þeir sjeu farnir að sjá,
að framferði Kommúnista-
flokksins síðustu daga er ekki
giftusamlegt fyrir þann flokk
og framtíð þeirra.
Því, hafi menn áður verið í
vafa, þá er það ekki hægt eftir
daginn í gær að efast um, að
meginþorri verkamanna hjer í
bæ fordæma með öllu tiltæki
kommúnista á sunnudaginn, er
þeir rjeðust í það, að leita að-
stoðar bresku hermannanna,
jafnframt því sem þeir reyndu
að fá hina erlendu hermenn
til þess að óhlýðnast yfirvöld-
um sínum.
Eftir þetta tiltæki ætti áhrif
kommúnista meðal íslenskra
verkamanna að vera lokið.
FÁMENNUR FUNDUR.
1 gærkvöldi reyndu þeir
kommúnistar samt að efla fylgi
sitt meðal Dagsbrúnarmanna,
með því að kalla saman fund í
Kaupþingssalnum. Þar var Jón
Rafnsson aðal ræðumaðurinn.
Þar komu ekki fleiri en 50
manns.
Enginn af öðrum forsprökk-
um kommúnista sást á fundin-
um. Þeir, sem eru í fremstu röð
í þeim flokki hugsuðu sjer í
gær, að láta smala sína og
„minni spámenn“ vinna verkin.
Þátttakan.
Það er mjög áríðandi að sem
allra flestir fjelagsmenn í Dags-
brún mæti í dag og greiði at
kvæði, þar sém atkvæðagreiðslunni
lýkur í kvöld. Ekki einn einasti
Dagsbrúnarmaður, sem er andvíg-
ur kommúnistum, má láta hjá líða
að greiða atkvæði með samkomu-
lagstillögum þeim, sem samninga-
nefnd Dagsbrúnar og vinnuveit-
endúr höfðu Orðið ásáttir um og
fela í sjer miklar kjarahæbtur fyr-
ir verkamenn.
Atkvæðagreiðslan byrjar í
dag kl. 7 fyrir hádegi og verð-
ur lokið kl. 12 á miðnætti.
Lygaframíeíðsla
kommúnísta
víðstöðtilatís
Eftir að atkvæðagreiðslan hófst
söfnuðust kommúnistar að kjör-
stað og ljetu mjög dólgslega við
verkamenn þá er þangað komu til
áð greiða atkvæði.
framh. á sjöttu síðu.
FfárhagsAætlunin 1941
Vænst lækkunar á
útsvarsstiganum
Þó útgjöldin hækki vegna
dýrtiðar og ófriðarástandsins
FRUMVARPI BÆJARRÁÐS að fjárhagsáætlun
fyrir Reykjavík fyrir árið 1941 var útbýtt til
bæjarfulltrúa og blaða í gær. Átti Morgun-
blaðið tal við settan borgarstjóra, Bjarna Benediktsson,
í gærkvöldi um frumvarpið.
Hann kvaðst ekki telja tilhlýðilegt að fara ítarlega út 1
málið áður en hann gerði grein fyrir þessu frumvarpi bæjarráðs
á bæjarstjórnarfundi. Hann komst að orði á þessa leið:
við Skaftárós.
Skipið var að koma frá Eng-
landi, hafði flutt þangað fisk,
en var nú með kolafarm. Á-
gætt veður var er skipið strand-
aði og sjór dauður. Fóru menn-
irnir í skipsbátinn og reru til
lands.
Á skipinu voru 9 menn, 4 Is-
lendingar og 5 Norðmenn og
voru þeir allir ómeiddir. Með
skipið þessa ferð var Magnús
Höskuldsson stýrimaður, en
skipstjórinn varð eftir í Skot-
landi ,vegna lasleika.
Þetta er lítið skip, um 100
tonn; menn hjer í Rvík höfðu
skipið á leigu.
Byrjað var í gær að skipa
kolunum upp úr skipinu, en
ætlunin er að reyna að ná skip-
inu út.
Dagsbrúnaratkvæða-
seðillinn er á bls. 6.
Veítíng prestsemhættanna
Kirkjumálaráðherr-
ann valdi yfirdrotn-
unarstefnuna
Traðkar lýðræðinu
UM HÁDEGI í GÆR barst sú fregn út um
bæinn, að Hermann Jónasson kirkjumála-
ráðherra væri búinn að skipa í hin nýju'
prestsembætti í Reykjavík.
Ráðherrann skipaði eftirtalda menn í embættin: I Nessókn
var skipaður síra Jón Thorarensen, í Hallgrímssókn síra Sigur-
björn Einarsson og síra Jakob Jónsson og í Laugarnessókn síra
Garðar Svavarsson.
Gjaldaliðir fjárhagsáætlun-
arinnar hafa hækkað verulega.
Stafa hækkanirnar af hinni
vaxandi dýrtíð og þarafleiðandi
verðlagsuppbótinni á kaupi
manna. Auk þess þykir nauð-
synlegt að bæjarsjóður hafi
nokkurt handbært fje vegna
ófriðarástandsins, t. d. vegna
yfirvofandi vandræða t. d. ef
atvinnuleysi skellur yfir. Til
þess eru áætlaðar 200 þúsund
krónur og 300 þús. krónur í
•tryggingar.
Hinsvegar þykir ekki fært að
lækka fátækraframfærið, þó
það hafi á undanförnu ári orðið
lægra, en áætlað var, vegna
hinnar algerðu óvissu um það,
hvernig afkoma almennings
verður á næsta ári.
Niðurstaða áætlunarinnar
hefir orðið sú, að leggja þurfi
kr. 1600 þúsund á bæjarbúa
umfram álögurnar síðasta ár.
Fljótt á litið mætti ætla, að
þetta hefði í för með sjer, að
útsvör hækkuðu fyrir allan
þorra bæjarbúa. En til þess á
ekki að þurfa að koma. Er það
mál að vísu í höndum niður-
jöfnunarnefndar og löggjafar-
valdsins og hefir bæjarstjórn
ekki bein áhrif á hvernig því
verður ráðið til lykta.
Hinsvegar höfum við, við
undirbúning fjárhagsáætlunar-
innar gert ráð fyrir því, að sam-
komulag fáist um það, að út-
gerðin, sem í fyrra naut sjer-
stakra hlunninda í útsvarsá-
lagningu, greiði nú hæfileg út-
svör. Sýnist eðlilegast, að á
hana verði lagðar þær 1600
þús. kr. sem nú þarf til viðbót-
ar frá í fyrra. Með því móti
virðist ekki of hart að henni
gengið, en hún taki með því
fyllilega sinn þátt í byrðum
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Ekkert við að athuga skip-
un þeirra síra Jóns, sjra Sigur-
björns og síra Garðars, því að
þeir fengu flest atkvæði við
prestskosningarnar. Með skip-
an þeirra er fylgt viðurkendum
lýðræðisreglum.
Hinsvegar er með skipan síra
Jakobs öllum lýðræðisreglum
traðkað. Hann er fjórði 1 röð-
inni að atkvæðamagni í kosn-
ingunni og hefir 237 atkvæðum
færra en síra Jón Auðuns, sem
var annar í röðinni.
I meira en aldarfjórðung
hefir það verið ófrávíkjanleg
venja við veitingu prestsem-
bætta hjer á landi, að embættið
hefir sá hlotið, sem flest at-
kvæði hefir fengið, án tillits
til þess, hvort kosnkig hafi ver-
ið „lögmæt“ eða ekki.
Núverandi biskup landsins,
herra Sigurgeir Sigurðsson
fylgdi í sínum tillögum þess-
ari viðurkendu reglu. Hann
lagði til, í tillögum sínum, að
atkvæðin yrðu látin skera úr.
Tillaga hans að því er Hall-
grímssókn snertir, var því sú,
að þeim síra Sigurbirni Einars-
syni og síra Jóni Auðuns yrði
veitt embættin. Þessa tillögu,
að því er síra Jón Auðuns snert-
ir, virðir ráðherrann vettugi, og
skipar síra Jakob Jónsson í em-
bættið.
★
Samviskan hefir sýnilega
ekki verið sem best hjá kirkju-
málaráðherranum, Hermanni
Jónassyni, er hann ákvað þessa
embættisveitingu. Áður en ráð-
herrann gekk formlega frá
veitingunni, hafði hann skrifað
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.