Morgunblaðið - 04.02.1941, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 4. febr. 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
T
'Láns og leigu‘-frumvapiö
— og Willkie
PRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
vegna -\ æri ekki annað að gera, en
að sætta sig við Jjað“. Wlieeler
svaraði um hæl, að þetta væri „hel-
ber lygi“.
I umræðunum í fulltrúadeildinni
er húist, við (að því er Lundúna-
fregnir hermdu í gærkvöldi), að
andstæðingar frumvarpsins leggi
megináherslu á tvö atriði: 1) að
ef frumvarpið verður samþykt, þá
muni það hafa í för með sjer að
Bandaríkin fara í stríðið og 2)
að einræði sje komið á í Banda-
ríkjunum.
Andstæðingar
frumvarpsins.
Þrátt fyrir hvatning Willkies til
flokksbræðra sinna um að sam-
þykkja frumvarpið og um að and-
æfa því ekki í blindni, því að það
gæti haft í för með sjer að repu-
blikanaflokkurinn yrði stimplaður
sem einangrunarflokkur, en það
myndi geta riðið honum að fullu
— þrátt fyrir þessa yfirlýsingu
sætir frumvai-pið megnri andstöðu
frá forvígismönnum republikana-
fíokksins. Aííir hinir gömlu for-
ingjar flokksins berjast gegn
frumvarpinu, eins og t. d. Herbert
Hoover (fyrv. forseti), Landon
(forsetaefni flokksins 1936),
Thomas Dewey, Taft (sonur Tafts
forsetaj, Yande'nberg Mc Nary,
La Folette o. fl. berjast gegn
frumvarpinu.
I fregnum frá New York er á
það bent, að þegar Willkie kom
fram á sjónarsviðið og var kjör-
inn forseatefni republikanaflokks-
ins fyrir átta mánuðum (og bar
þá hærra hlut yfir. Taft, Dewey
og Yandenberg, sem allir gáfu kost
á sjer), þá var hann í raun og
veru óskrifað blað í , flokknum.
Hinir gömlu foringjar flokksins
fylgdu honum ekki nema af hálf-
um hug í kosningabaráttunni og
við yfirlýsingu hans um stuðning
við láns- og leigu-frumvarpið hefir
ándúð þeirra í garð hans aukíst.
Hitler gefur miljón R.M
til tiefmannaheimila
í Noregi
U itler hefir persónulega
gefið miljón ríkismörk í
sjóð, sem dr. Göbbels hefir
stofnað, og sem verja á til að
reisa hermannaheimili fyvi>’
þýská hermenn í Noregi. Dr.
Göbbels hefir birt ávarp til
þýsku þjóðarinnar og hvatt
hana til að leggja eitthvað af
mörkum til stofnunar slíkra
heimila, og söfnuðust þegar
fyrsta dagipn (segir í fregn frá
Berlín) 4 milj. marka.
í ávarpi dr. Göbbels er bent
á, að þýsku hermennirnir í Nor-
egi eigi við annað loftslag og
önnur lífsskilvrði að búa, held-
ur en þeir hafi átt að venjast,
og þessvegna sje nauðsynlegt
að reist sjeu fyrir þá hermanna
heimili, þar sem þeir geti m. a.
átt kost á að s.já kvikmyndir.
Hinsvegar telja stjórnmálarit-
stjórar í New York rangt að á-
lykta, að allir þingmenn flokksins
muni fylgja hinum gömlu foringj-
um, heldur sje þingflokkurinn
skiftur. Aftur á móti stendur
demokrataflokkurinn næstum sem
einn maður að baki Roosevelts.
Framtíð Willkies.
Um Willkie sjálfan og framtíð
hans er mikið skrifað í Banda-
ríkjablöðin þessa dagana og þar
rifjað upp, að skömrnu eftir forseta
kosningarnar gaf hann út ávarp
til republikanaflokksins og hvatti
hann til að fylgja sjer í sann
gjarnri andstöðu við Roosevelt-
stjórnina. í fyrstu hjeldu menn
(eins og einn blaðamaðurinn í
Bandaríkjunum hefir orðað það),
að hann myndi leggja áhérslu á
„andstöðuna“, en nú, eftir fram-
komu hans síðustu vikurnar, þyk-
ir sýnt, að hann ætlar að leggja
megináherslu á „sanngimina“.
En það sem fyrir Willkie vakir
er álitið vera, að undirbúa jarð-
veginn undir framboð sitt við for-
setakosningarnar 1944.
I mörgum áhrifamiklum New
York blöðum hefir framkoma
Willkies síðustu vikurnar hlotið
eindreginn stuðning og lof. og í
„Herald Tribune" er hann hyltur
sem langþráður foringi „til þess
að herða á ríkisstjórninni, eftir
hálfkák hennar undanfarin ár“.
100. tilkplng grlsko
tierstjúrnarinnar
Hundraðasta tiikynning grísku
herstjórnarinnar var gefin
út í gærkvöldi. Tilkynningin var
aðeins nokkur orð: „Lítilsháttar
framvarðaaðgerðir og fallbvssu-
liðið hjelt uppi skothríð".
En frá blaðaskrifstofu grísku
stjórnarinnar í Aþenu bárust í
gærkvöidi frjettír um. að grískn
hersveitirnar hefðu sumstaðar get-
að sótt lítilsháttamfram. þrátt fyr-
ir ákafar rigningar.
Með bardögúnum í gær náðu
þeir á sitt vald fjalli, sem gerir
þeim kleift að drotna yfir svæð-
inn fýrir austan Tepelini og yfir
veginum í norður frá Klisura í
áttina til Berat.
í tilkynningu ítölsku herstjórn-
arinnar í gær segir um aðgerð-
irnar í Albaníu: „Venjulegar stór-
skotaliðsaðgerðir".
50 ÞÚS. KANADISKIR
HERMENN
fj ermálaráðherra Kanada,
^ Rolston, sagði í gær, að
gert væri ráð fyrir, að 50 þús.
kanadiskir . hermenn yrðu
sendir til útlanda á þessu ári.
Er gert ráð fyrir, að sent verði
m. a. heilt skriðdrekaherfylki
(Division) og einnig eitt bryn-
vagnaherfylki.
Ráðherrann sagði, að á þessu
ári væri gert ráð fyrir, að kalla
þyrfti til herþjónustu í Kanada
80—90 þús. menn.
Dagbóh
•00«»00«0009 OOOOOOOOOOOO
ÍD Helgafell 5941247-JV.-Y.-2.
Næturlæknir er í nótt Björgvin
Finnsson, Laufásevg 11. Sími 2415.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Hallgrímssókn. Síra Sigurbjöm
Einarsson biður væntanleg ferm-
ingarbörn sín að koma til viðtals
í Austurbæjarskólanum næstkom-
andi fimudag kl. 5 síðdegis. (Geng-
ið inn frá leikvellinum). Og síra
Jakob Jónsson biður fermingar-
börn sín að koma til viðtals við
sig á sama stað og tíma.
Spurningabörn síra Garðars Þov-
steinssonar, sem eiga að fermast
á þessu ári, og næsta ári, komi til
viðtals í Flensborgarskólanum n.k.
fimtudag kl. 6 síðdegis.
Dánarfregn. Jóhannes Guðjóns-
son, faðir Magnúsar V. fram-
færslufulltrúa, ljest í Landakots-
spítala á sunnudaginn var, eftir
langa legu.
Gaseitrun. Menn, sem voru að
vinna um borð í Skallagrími í gær-
morgun, en hann liggur nú í Slipp,
urðu fyrir lítilsháttar gaseitrun.
Gasið stafaði frá koksofni, sem var
í lest slcipsins og hafður var þar
til að þurka lestina. Mennirnir
náðu sjer brátt.
Atvinnuleysisskráning fer fram
í Góðtemplarahúsinu í dag og á
morgun og stendur vfir báða dag-
ana frá kl. 10 að morgni til kl. 8
að kvöldi.
Almælisskemtun í. S. f. í Iðnó á
sunnudaginn fór hið besta fram.
Forseti f. S. í„ Ben. G. Waage,
setti skemtunina og banð gesti
velkomna. Sveinn Björnsson sendi-
herra flutti erindi um íþróttir í
æsku hans. Fjórir piltar úr Ár-
manni sýndu hnefaleika. Tveir
piltar sýndu borðknattleik. Úr-
valsfimleikaflokkur karla úr K. R.
sýndi fimleika undir stjórn Vignis
Andrjessonar, og loks ljekur skát-
ar skopleik, sem nefndist „Mann-
talið“. Um kvöldið fór svo fram
dagskrá f. S. f. í útvarpi. Merkja-
sala var á götunum, en vegna. þess
hve kalt var úti og fátt manna á
ferli mun merkjasalan hafa geng-
ið lakar en biiist hafði verið við.
Pyrirlestur Mr. C. Jackson,
sendikennara Háskólans, um Lond-
on. er í kvöld kl. 8.15 í Háskól-
anum í kenslustofu nr. 1. Skugga-
myndir verða sýndar með erind-
inu.
Sæbjörg dregur bát í höfn.
Björgunarskútan Sæbjörg er nú í
fylgd með fiskiflotannm hjer í
Faxaflóa til að geta Verið til tkks
ef eitthvað ber iit af. f fyi*radag
dró Sæbjörg Keflavíkurbát inn til
Keflavíkur. Hafði orðið vjelarbil-
un í bátnum.
Til bágstadda heimilisins. N. N.
5 kr. Haraldur 10 kr. Þ. G. 5 kr.
A. 4 kr. E. H. 5 kr. Freyr 5 kr.
Inger 5 kr. ,1. J. 5 kr. í brjefi 10
kr. Játvarður 5 kr. J. S. 10 kr.
Ónefndur 10 kr. N. N. 5 kr. N. N.
5 kr. N. N. 2 kr. „0“ 10 kr.
Hallgrímskirkja í Saurbæ. S. S.
5 kr. X. 10 kr.
Útvarpið í dag:
19.25 Erindi: Uppeldismál. n (dr:
Símon Jóh. Ágústsson).
20.30 Erindi : Kynþættir Evróþu
(Ólafur Þ. Kristjánsson kenn-
ari).
21.00 Tónleikar Tónlistarskólans:
Sónata fyrir celló og píanó, C-
dúr, eftir Beethoven (celló: dr.
Edelstein; píanó: dr. Urbant-
schitsch).
21.20 Hljómplötur; Symfónía nr.
1, eftir Sibelius.
Nýk omið:
Borðhnífar — Matskeiðar og Gaflar — Deserthnífar og
Gaflar — Brauðhnífar — Salathnífar — Steikarhnífar og
Gaflar — Sjálfblekungar ódýrir o. fl.
K. Einarsson & Björnsson
Bankastræti 11.
Sfmar 1540, þrjár iinur.
Góðir bílar. Fljót afgreiCcla.
B. S. í.
BEST AÐ AUGLYSA 1 MORGUNBLAÐINU.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum, að
GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu, Bergstaðastræti 39 O. 2. febrúar.
Aðstandendur.
ELINBORG SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÖTTIR
andaðist í Hafnarf jarðarspítala sunnudaginn 2. þ. mán.
Þorgerður Jónsdóttir, Aðalbjörn Bjamason og börn.
Eiginkona og móðir okkar,
GUÐLAUG ÁRNADÓTTIR,
ljest á sjúkrahúsinu í Hafnarfirði 2. febrúar.
Oddur ívarsson. Guðni Oddsaon.
Konan mín og fósturmóðir,
VILBORG JÓNSDÓTTIR,
andaðist 2. þ. m. á heimili sínu, Hringbraut 108.
Þórðnr Bjarnason. Lóa Þórðardóttir.
ÞORSTEINN JÓNSSON,
Grund, Akranesi, andaðist að heimili sínu 2. febr. síðastliðinn.
Vandamenn.
Paðir minn, tengdafaðir og afi,
JÓHANNES GUÐJÓNSSON,
andaðist að Landakotsspítalanum sunnudaginn 2. febrúar,
Magnús V. Jóhannesson. Príða Jóhannsdóttir,
Svala Magnúsdóttir.
Elsku litli drengurinn okkar,
TÓMAS HALLDÓR,
andaðist 2. febrúar að heiimli okkar, Öldugötu 42. Jarðarförin
ákveðin síðar.
Þuríður Tómasdóttir. Kamillus Bjarnason,
Jarðarför „
ÁRNA PÁLSSONAR,
hreppstjóra frá Hurðarbaki, fer fram fimtudaginn 6. febrúar
að Hraungerði kl. 2 e. hád.
Aðstandendur.
Okkar hjartans þakkii* til allra, er sýndu hluttekningu við
greftrun mannsins míns og föður,
GUÐMUNDAR SIGURÐSSONAR skipstjóra.
Þóra Jóhannsdóttir. Kristín Guðmundsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarð-
arför dóttur minnar og systur okkar,
JÓHÖNNU GÍSLADÓTTUR,
frá Mosfelli.
Sigrún Kjartansdóttir og börn.