Morgunblaðið - 20.02.1941, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.02.1941, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 20. febr. 1941. „Taugastríð“ í Austur-Asíu Hermenn Selassies vinna . sigur i Abyssiníu I Singapore nýtt 0 *■# 500 ioqoKm SlÐustu dagana hafa borist fregnir af sigrum hermanna Haile Selassies í Godjam í Abyssiniu. Hafa hermennirnir undanfarna daga tekið ekki færri en 6 herstöðvar frá Itölum og er þorpið Danagil þeirra mikilvægast, því að þaðan er í raun og veru hægt að drotna yfir Godjam hjeraðinu. ITALIR ERU sagðir hafa haft 9 þús. manna lið í Danagil (segir í Reutersfrjett) og sjálf var Jborgin víggirt. ítalir eru jafnvel ■ sagðir hafa haft þar skriðdreka. En breskar flugvjelar ruddu brautina 'fyrir abyssinsku hermennina. SELASSIE-hermennimir elta nú flótta ítala. DANAGIL stendur 240 km. fyrir norð-vestan Addis-Abeba og 70 km. fyrir suðvestan Tsanavátn. AÐRAR vígstöðvar í Abyssiniu eru: Vestur af Gondar, þar sem breskar hersveitir sækja fram frá Sudan og norður af Rud- olfsvatni (L. Rodolþho) í Suður-Abyssiniu, en þar sækja fram hersveitir frá Suður-Afríku. ENN SUNNAR sækja breskar hersveitir inn í ítalska Somali- land og hafa tekið borgina Kismayo. En sóknin frá Kismayo til Brava hefir stöðvast í bili við Djouba-fljótið EN NYRSTU vígstöðvamar í Austur-Afríku eru í Eritreu, en þar er búist við að hef jist þá og þegar úrslita orustan við borgina Keren, sem er við jámbrautina skamt fyrir vestan Asmara. Bretar eru að leitast við að hrekja Itali bæði úr Keren og Asmara, til þess að komast til Massawa (Massaouah) sem er aðal-hafnarborg Itala í Austur-Asíu. Selassie á hvitum hesti í samtalí, sem breskur blaðamaður átti nýlega við Haile Selassie, ságði hann: , 1 Abyssiníu og meðfram landamærunum, eru stríðsbumb- ur mínar Bai-ðar, Þjóð mín veit, að jeg er nálægt. Logi byltingarinn- ar fer um gjörvalt landið. Þúsundir fylgismanna minna heyja nú þegar smáskæruhernað gegn kúgurunum. . . , Innan skams verður búið að fleygja hverjum ei'nasta ítala út úr Abyssiníu. >P. - .leg mun far.a í fararbroddi fyrir hermönnum mínum inn í Addis Abeba á hvítum hesti, á sama hátt og Badoglio gerði fvrir fimm árum“. s " f. \ Loftárás i borg I Suður-Wales Ífregn fra, Londón í nótt var skýrt frá því, að þýskar flugyjelar þefðu í gærkvöldi látið eldsprengjum og tundursprengjum rigna yfir „borg eina í Suður- Wales“. , J£i London var gefið, Joftvarna- merki stuttu eftir myrkur í gær- kvöldi, en merki um að hættan væri liðin hjá var gefið fyrir mið- nætti. Börn flutt frá Ermar- sandsborgunum London í gær —: Pregnir frá Vichy herma. að járnbrautarlest, með börn úr hernumda hluta Frakklands; hafi komið til Suður Frakklands í gær. Börnin voiai frá fíðnsku borgunum víð 'Brmár- sund 0g frá hjeruðunurn umhvérfis París Ög verða þau flutt til Sviss óg elnnig til Túnis. Brottflutningur þeirra þýlcir benda til þess, að búist sje við að vor-hernaðaraðgerðirnar fari að hefjast. ! eyvirki Breta —Samningorinn - Tyrkirætlaekki að fara til móts við Þjððverja f Búlgarfu RÆÐA sem Philoff, fórsæt- isráðherra Búlgara flutti í gær, hefir á engan hátt orð- ið til þess að varpa ljósi yf- ir, hvaða a,fleiðingar tyrk- nesk-búlgarski samningurinn muni fá. Philoff sagði í ræðu sinni, að samningurinn væri vottur um friðarþrá Búlgara og um það, að þeir hefðu ekki í huga árás á neina þjóð. EN I SKEYTI, sem frjettaritari „The Times“ í Ankara hefir sent blaði sínu, er gerð nokk- ur grein fyrir samnnignum. I skeytinu segir: „ÞÝSKIR áróðursmenn látast hafa unnið nýjan sigur. Þeir segja, að með þessu sam- komulagi sje fyrsta sporið stigið til að tæla Tyrki út úr bandalaginu við Breta. En það er ljóst, að Tyrkir hafá engan veginn breytt um stefnu. Stefna þeirra er full komlega raunhæf og mótast hvorki af tálvonum nje blíð- mælgi Þjóðverja. TYRKIR vita hvað þýsk yfir- drotnan við Eyjahaf myndi þýða. Dardanellasundi yrði hætta búin frá tveim hliðum, úr vestri á sama hátt og því er núna ógnað úr norðri. Tyrkir vita einnig um hinn vaxandi mátt Breta við aust- anvert Miðjarðarhaf og í við- ræðum, sem fóru fram ný- lega milli herforingjaráðs Tyrkja og breskra herfor- ingja og flugmanna, er gert ráð fyrir víðtækri bresk-tyrk- neskri samvinnu. EN TYRKIR ætla ekkí að fær- ast það í fang, sem ómögu- legt er og fyrir skömmu tóku þeir þá ákvörðun, að hætta ekki á að eyða kröftum sín- um í það að ráðast inn í fjalllendi Búlgaríu til þess að stöðva innrás Þjóðverja. Víg- girðingar þeirra í ■Þra'kíu eru öflugar og bak við þær geta . Tyrkir safnað kröftum til á- rangursríkrar baráttú. Ef Tyrkir hefðu löfað að hjálpa Búlgörum, væri þeirri ásökúh Þjóðverja, að Rretar Japanskir (undur- spillar vænlanlegir «il Thailands FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU MIKIL ÓKYRÐ ríkir enn í Austur-Asíu. Því hefir verið veitt nokkur athygli í London og Washington, að koma þriggja japanskrá tundurspilla í mynni fljótsins, sem Bankok — höfuðborg Thailands — stendur við, hefir verið boðuð 25. febrúar. Þeir eiga að taka þar vistir. I London var tilkynt í gær. að "breski flugherinn og breski landherinn í Singapore hefði fengið mikinn lið- styrk síðustu dagana. í flugherinn hafa bæst margar nýj- ar sprengjuflugvjelar og orustuflugvjelar. I gærmorgun kom mikill skipafloti til Singapore með þús- undir ástralskra hermanna, og vbru þeir þegar í stað fluttir til herstöðva sinna. í London er sjerstaklega á það bent, að her- flutningar þessir eiga sjer stað í höfum fjarri Englandi og er þetta talinn vottur um yfirráð Breta á höfunum. i í fregnum frá New York segir, að Bretar sjeu að gerá nýtt eyvirki í Singapore. Singapore er eyja, sem tengd er við Malakkaskagann méð brúm. Undanfarin ár hafa Bretar varið 50 miljónum sterl- ingspunda til þess að gera Singapore eina öflugustu flota- og flugvjelabækistöð í heimi. Innan hersins í Japan hafa hinir nýju liðsflutningar Breta til Singapore vakið nokkra gremju. Fulltrúi hersins sagði í gær, að það væri sýnilegt, að Bretar vildu egna til ófriðar í Austur-Asíu. Sakaði hann Breta um að hella olíú í eldínn. 1 Bandaríkjunum eru síðustu atburðirnir í Austur-Asíu túlk- aðir á þá leið, að Bretar hafi nú tekið forustuna í „tauga- stríðinu“ þar. En í þessu tauga- stríði njóta Bretar öflugs stuðn- ings Bandaríkjanna. Þjóðþing Bandaríkjanna sam þykti í gær 242 miljón dollara fjárveitingu til þess að gera víggirðingar á eyjunum í Kyrra hafi — þ. á m. á Guam — og í Atlantshfai. Stark aðmíráll, yfirmaður ameríska flótans, sagði í gær, að mótbárur Japana gegn því, að víggirðingar værú reistar á Guam, væru ekki sanngjarnar, og hvatti hknn Bandaríkja- stjórn tíl að láta ekkert aftra sjer frá því, að hefjast handa um þessar víggirðingar. Það 'var upplýst, í Washing- ton í gær, að tvö orustuskip, sem éru í smíSum fyrir Banda- ríkin, myndu verða tekin í notkun 6 mánuðum á undan áætlun, annað „Nbrth Karo- lina“' 11. apríl, en hitt (,Was- hingtton" 11. maí. ^ ; ' : Settur forsætisráðlierra Ástralíu 'sagði í'- gær. að horfurúar i Aust- ur-Asíu héfðu ékkert versnað, ,en þær hefðu heldur ekkert batnað. Japanar bjóöast til að miðla málum - einnifl í Evrópu Fulltrúi japönsku stjórnar- innar sagði við blaða- menn í fyrradag, að Japanar væru fúsir til að reýna mála- miðlun í styrjöld Breta og Þjóð- verja. Butler, aðstoðar utan- ríkismálaráðherra, sagði í neðri málstofu þingsins í gær, að bresku stjórninni hefði borist ummæli fulltrúans, og hann bætti því við stuttlega, að þau myndu verða tekin til at- hugunar. En það er látið í veðri vaka, opinberlega, að stefna bresku stjórnarinnar sje óbreytt eins og Churchill hefir lýst henni, þ. e. að Bretar muni ekki semja frið, fyr en Þjóðverjar hafa verið gjörsigraðir. I Berlín hefir málamiðlunar- tilboði Japana einnig verið tek- ið mjög fálega. Breskir fall- hlífarhermenn ¥ gær yar gert heyrin kunnugt í London „eitt mestá hér n aðarleyn d áífra ál Breta“, én það ví»r, að frá því í fyrrasumar hefðu falÍhMffirhermenn verjð þjálfaðir í Bnglaödi; .- Var skýrt fVá' ;efingH. setn nýlega var’iiald- in einhversstaðaV ‘ í /Ehglándi méð fallhlífarhérmönmún. r’ / Viðstaddir þássá tfeföigu voru margir æðstu herforingjar Breta. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.