Morgunblaðið - 20.02.1941, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.02.1941, Blaðsíða 3
r Fimtudagur 20. febr. 1941. MORGUNBLAÐIÐ Erlendar viðikiftaleiðir okkar: 120 milj. króna úíflutningur til fjögurra þjóða en ein þeirra tók þó bróðurpartinn SKÝRSLUR HAGSTOFUNNAR, sem nýlega hafa verið birtar, sýna hvert viðskiftaleiðir okkar til annara þjóða liggja. Meginhlutinn af útflutningsvörum okkar fór til aðeins fjögurra þjóða, en þó langsamlega mest til Englands. Þessar 4 þjóðir eru: England fyrir kr. 91.333.000 Bandaríkin — — 18.153.000 Spánn — — 6.011.000 Portúgal — — 4.748.000 Samtals kr. 120.245.000 Þá verða eftir af heildarútflutningnum tæpar 12,7 miljónir króna. Nýa vurwmnK revyan MIN NÝJA REVÝA Reykjavíkur Annáls, sem allir bæjarbúar hafa beðið eftir með mik- illi eftirvæntingu, verður sýnd í fyrsta sinn næstkomandi mánudagskvöld. — Hvað heitir nýja revyan?, spurði Morgunblaðið tvo af höfundunum, er þeir komu inn á skrifstofu blaðsins í gær. Nafnið, sem hingað til hefir verið haldið leyndu, er: Hver maður *inn skamt. En þar af fór 10,4 miljón króna verðmæti til fjögurra þjóða, Norðurlandanna þriggja, og Ítalíu, sem við gátum rekið viðskifti við aðeins fyrstu 3—5 mánuði ársins, en sem nú eru lokuð fyrir okkur. Útflutningur þessi nam: til Íftalíu fyrir kr. 4.549 — Danmerkur — — 3.376 —* Noregs — — 1-0488 — Svíþjóðar — — 0.989 Þegar fjögur aðal-markaðs- lönd okkar eru talin og þessi fjögur gömlu markaðslönd okkar, sem nú eru lokuð, þá heildarupphæð 2,2 miljónir verða eftir af útflutningsins króna, sem skiftast að mestu leyti á milli Brazilíu (kr. 1.296.000), Cuba (657 þús.) og Kanada (115 þús.). Viðskiftaleiðir okkar liggja einnig aðallega til Bretlands og Bandaríkjanna, þegar um inn- flutninginn er að ræða,, því að af 74 miljón króna heildarinri- flutningi árið sem leið, fjellu á Bretland kr. 32.206.000 Bandaríkin — 19.535.000 Tvð tunMufl ðtaf Kolbeinsvlk TA ítirlitsskip, sem vinnur að slæðingu tundurdufla sá í dag 2 dufl á reki, annað út af Kolbeinsvik, en hitt við Gríms- ey. Vegna veðurs vár ekki hægt að sinna duflunum. Frjettaritari. eða samtals kr. 51.741.000 Frá Norðurlöndunum þrem og Ítalíu, sem voru okkur opin aðeins fyrri hluta ársins, keypt- um við fyrir rúmlega 10 milj- ónir króna (Italíu 3,5 milj., Danmörgu 3,2 milj., Noregi 2,5 milj. og Svíþjóð 1,2 milj.) og frá öðrum löndum, sem nú eru einnig lokuð, Hollandi, Belgíu, Frakklandi og Þýskalandi (420 þús.!) fyrir kr. 1,3 milj., svo að frá öðrum Iöndum, sem enn eru opin, höfum við fengið vörur fyrir tæpar 11 milj. króna. Þessi lönd eru: Curacao Kanada Spánn Portúgal Brazilía Spitzbergen Ekki sundur- greint FEAMH. fyrir kr. 2,9 milj. _ — 2,5 — — - L2 — — — 0,7 — — — 0,3 — — —0,3 — _ _ 2,5 -- Á SJÖTTU SfÐU. Frð Búnaðarþingi A fundi Búnaðarþings í gær hélt Árni G. Eylands stutt erindi um útlit og horfur um kaup á tilbúrium áburði á körii- ándi vori. Virtist útlitið um þáð.vera alt annað en glæsilegt. Afgreidd var frá Búnaðar- þingi tillaga um að mæla með því að Alþingi veiti fje tií landvarna í Meðallandi. Liggja stór svæði þar mjög undir skemdum vegna ágangs sands- ins. Fundur er í Búnaðarþingi í dag kl. 13,30 og mun verða rætt um breytingar á jarðræktarlög- unum og má búast við allmikl- um umræðum um það mikils- verða mál. Fárviðrið í Portugat Tjón af völdum hins gífur- lega fárviðris í Portúgal um síðustu helgi er metið á 1 miljarð eskutos. 12 menn fórust og þúsundir manna særðust. Vindhraðinn var 170—200 km. á sekúndu. Stjórnarfrumvörp. Barnsmeðlög ákveðin til eins árs I senn Atta stjórnarfnimvörpum var útbýtt á Alþingi í gær. Sjö eru staðfesting á bráðabirgðalög- um, sem stjórnin hefir gefið út milli þinga. Eitt frumvarpið er nýmæli og er það flutt af fjelagsmálaráð- herra. Er það breyting á 1. nr. 39, 19.35, um afstöðu foreldra til ó- skilgetinna barna. Segir svo í 1. gr.: „Annar málsliður 1. mgr. 1. gr. laganna orðist svo: En upphæð meðalmeðgjafa með óski'lgetnum börnum ákveðnr fje- lagsmáíafáðuiieytið, að fengnum tillögum sýsluriéfnda og bæjar- stjórna, fyrir hvert sveitarfjelag, nm eitt ár í senn og skal miða með almeðgjöf við aldur barna binn sama á öllú lándinu. Meðlagsárið er frá 1. ágúst ár hvert til 31. júlí næsta ár á eftir“. f greinargerðinni segir m. a.: „Sökum hinnar vaxandi dýrtíð- ar og hinna öru breytinga á fram- færslukostnaði allra landsmanna, hefir nú verið npp tekin sú regla, að láta alt kaupgjald og launa- greiðslur fara eftir dýrtíðarvísi- tölu. Er því éðlilegt, að einnig meðlögum með óskilgetnum börn- um sje hægt að breyta til sam- ræmis við það, sem telja verður hæfilegan framfærslukostnað barns á hverjum tíma, þar sem meðlagið verður að skoðast aðalframfærslu- eyrir barnsins, og fyri'r það er frumvarp það fram borið, sem hjer liggur fvrir“. Nii eru meðlög ákveðin fyrir- fram til þríggja ára, en í frv. er lagt til, að þau verði ákveðin til eins árs í senn. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðnnn. — Er það nokkuð leyndarmál hverjir eru höfundamir? — Höfundarnir eru hinir sömu og sömdu ,,Fornar dygð ir“, sem Reykvíkingar kannast við. Ekki meira um þá. En revy- an er að þessu sinni í fjórum dráttum og tveim glaðningum. — Einmitt það — en persón- urnar? — Aðalpersónurnar eru: Miljóníus Morgan og kona hans (sem er húsbóndi á sínu heimili), Jasína dóttir þeirra, Spectator Blaðran, tilvonandi tengdasonur þeirra; Sólon ts- landus og Sólon Sokrates; fræg ir Petsamófarar, í fyrsta drætti, og gegna öðrum embættum, er á líður; Nitouche, upprennandi revy-stjarna og Sjækfnundur, elskhugi hennar; Masína, vinnu kona í vandræðum. Auk þess ýmsar aðrar persónur, svo sem kvenpólití, skíðameyjar og far- fuglar — að ógleymdum Lár- usi Ingólfssyni, sem kemur fram í óteljandi gerf.um. — Hvar gerast öll þessi ó- sköp? — Að þessu sinni gerist öll revyan hjer á landi Vegna stríðshættu þorðum við ékki að láta einn þáttinn gerast 1 útt- löndum ,eins og vanalega. Fyrsti drátturinn gerist í hljómskálagarðinum, annar í sertugsafmæli hins fiskríka Miljóníusar, þriðji á kapp- móti við Skíðaskálann — þar sem annar Sóloninn setur heimsmet í langstökki. Loks gerist 4. dráttur við laxveiðar. — Leikendurnir? — Flestir hinir sömu, er áður hafa leikið í revýum annálsins, svo sem Friðfinnur,' Emilía Borg, Alfreð, Haraldur, Tryggvi og Lár- us Ingólfsson. Af nýjum leikend- um má nefna; Drífu Viðar, Helgu Gunnars, Svövu Einarsdóttur, Guðuýju Ástu Ottesen, Hjördísi Einarsdóttur, Gógó Helgadóttur, Svövu Jónsdóttur, Kristínu Guð- mundsdóttur, Sigfús Halldórsson og Ólaf Beinteinsson. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU 100% aukoing sutlaveltunnar árið 1940 ! Hjer fara á eftir nokkrar ! tölur, sem sýna þróun viðskiftalífsins hjer á landi síðastliðið ár; Seðlaveltan var í ársbyrjun 12.7 milj., i árslok 25.2 milj. (tæp 100% aúkning). Innlög í bönkunum námu í ársbyrjun kr. 78.9 mi'lj., í árs- lok 130.4 mil.i. (ca. 65% aukn- iug). Útlán bankanna nátnu í árs- byrjun kr. 104.7 milj., í árs- lok 97.2 milj. (~ 7%). Afstaða bankanna gagnvart útlöndum nam í ársbyrjun kr. — 12.7 milj., en í árslok + 59.6 milj. (batnaði þannig i á árinu um 72.3 milj.). Hæstirjettur. Guymslugjaldið 1200 krónur Hæstirjettur kvað í gær upp dóm í máli Síldar- bræðslunnar á Norðfirði gegn Versl. Sigfúsar Sveinssonar og gagnsök. Tildrög málsins eru þau, að Síldarbræðslan hafði komið síldarmjöli í geymslu hjá Versl. Sigf. Sveinssonar. Krafðist hún svo rúml. 4000 kr. geymslu- gjalds, sem Síldarbræðslan neit- aði að greiða. í undirrjetti var hún dæmd til að greiða kr. 2736.96, én Bíldarbræðslan >á- frýjaði. Hæstirjettur ákvað gjaldið 1200 kr. 1 forsendum dómsins segir m. a.: „Gagnáfrýjanúi geynuU í búsnni sínum fyrir aðaláfrýjanda 1686 poka sfldarmjöls frá 24. júlí 1939 til 14. nóv. s. á. og 89 poka fiskimjöls frá 20. sept. 1939 til 15. nóv. s. á. Eftir að dómur gekk í hjeraði, hefir hjeraðs- dómarinn atS beiðni aðaláfírýjajnda dómkvatt tvo menn til þess að meta gjald fyrir geýmslu þessa. Telja mats- menn hæfilegt geymslugjald kr. 876,12, og tjáir aðaláfrýjandi sig nú fúsari til að greiða þá fjárhæð. Gagnáfrýjandi krefst þess hinsvegar, eins og í bjer- aði, að gjaldið verði ákveðið kr. 1,50 fyrir smálest um hverja viku géymslu- tímans. ,-. Á f málinu er ekki upplýst, að var- an hafi verði afhent gagnáfrýjanda til geymslu með nokkra ákveðna skips- ferð fyrir augum, og jafnvel óvíst, að geymslu hafi veri heðist í því skyni, að varan yrði flntt á skipum þeim, er gagnáfrýjaudi annaðist afgreiðslu fyr- ir. En þótt til þess hefði verið ætlast, að varan yrði síðar flutt til útlanda á þeim skipum, þá reyndist geymslu- tíminn svo langur og óákveðinnn, að verð það, er skipaafgreiðslur taka fyr- ir geymslu á vörum, hefði verði ó- sanngjamt eins og hjer stóð á. Bet því að ákveða geymslugjaldið eftir því, sem sanngjamt þykir, sbr. 5. gr. laga nr. 39 frá 1922. Yerður þá aðallega FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.