Morgunblaðið - 20.02.1941, Síða 4

Morgunblaðið - 20.02.1941, Síða 4
4 AÐALFUNDUR RAFVIRKJAFJELAGS REYKJAVÍKUR Verður haldinn í Baðstofu iðnaðarmanna föstudaginn 21. þ. m. kl. 8.30. STJÓRNIN. Duglegur unglÍKigtir éikast lil að bera Morgunblað- ið fil kaupenda í Langholbð. Tilkynning frð setuliðinu. Skotið verður úr fallbyssum fimtudaginn 20. febrúar kl. 11 f. h. í áttina frá Álafossi til Kollafjarðar í autt svæði fyrir sunnan Kollafjörð. Vegurinn frá Álafossi að aðalveginum verður lok- aður. Flutningur til íslands Reglulegar hálfsmánaðar ferðir frá vesturströnd Bret- lands til Reykjavíkur. 3—4 skip í förum. Sjerstaklega hagkvæm flutningsgjöld ef um stærri v'MW'-vndinimr ei að ræða. Tilkynningar um vörur sendist Culliford & Clark Lid. Bradleys Chambers, London Street, Fleetwood, eða Geir H. Zoega Símar 1964 og 4017, er gefur frekari upplýsingar. b\ TTVFR? MOHGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 20. febr. 1941. 4 atriði sem stuðluðu að sigrunum í Atríku Samtal við Waveli Miðfarðarliafs> hernaðurinn: Fyrsta þýska skipinu sökt f Miðjarðarhafi 61 loftárás á Malta Londno í gær. Breska flotamálaráðuneytið til kynti í gær, að flugvjelar flotans hefðu sökt 4 þús. smálesta þýsku birgðaskipi, um miðbik Mið- jarðarhafsins, og er álitið að þetta sje fyrsta þýska skipið, sem Bret- ar sökkva á þessum slóðum. ítalir notuðu þetta skip senv birgðaskip. Flugvjelarnar hæfðu einnig 6 þús. smálesta ítalskt birgðaskip og þegar þær skildu við það mar- aði stefni þess í kafi og reykstrók- ur stóð upp af því. Einnig var 4 þús. smálesta ítalskt kaupskip og ítalskt hjálparbeitiskip laskað. Flugvjelarnar komu allar aftur heifu og höldnu. í tilkynningu breska flotamálaráðu- neytisins segir, að 2 milj. smálestum af kaupskipastól Þjóðverja og ítala hafi veriS sökt frá því að stríðið hófst. Frá því að flotamálaráðuneytið gaf síðast skýrslu um skipatjón Þjóðverja og ítala 7. jan. síðastliðinn, hefir tal- an hækkað um rúmlega 257 þús. smá- lestir (á hálfum öðrum mánuði), þar af voru þýsk skip 23 þús. smál., ítölsk skip 170 þús. smálestir (sökt aSallega í höfnum í Norður-Afríku) en hitt skip annara þjóða, sem verið hafa í siglingum fyrir annaðhvort Þjóðverja eða Itali. Deutsches Nachrichtenburo skýrði frá því í gær, að öflugar þýskar sprengjuflug- vjelasveitir hefðu tekið sig upp frá Sikiley til þess að gera loft- árás á Malta. Síðustu vikurnar hefir verið gefið 61 loftárásamerki á Malta. í fregn frá London er skýrt frá því, að óvinaflugvjelar hafi verið yfir Suez-skurðinum í gærmorgun, en ekkert tjón hafi hlotist. ,W' Alþintíi Innilokun pundanna 1A rumvarp stjórnarinnar nm *- gjaldeyrisverslun, þ. e. nm pnndaskamtinn, var til 1. umræðu í neðri deild í gær. V i ðskiftamálará ðh erra fyl gd i frnmvarpínu úr hláði nieð nolckr- um skýringum á efni þess* og til- drögum. Engar umræður urðu um frum- varpið og var því síðan vísað til 2. umræðu með samhljóða atkvæð- um og til fjárhagsnefndar. ’ELLINGTON breska heimsveldisins“ er Sir Archibald Wavell, „hinn mikli sig- urvegari í Afríícu“, kallaður í gríska blaðinu „Vradyni“, en frjettaritari blaðsins hefir átt tal við Wavell um herförina í Afríku. „Það er fernt, sem stutt hefir hina sigursælu herför“, sagði Wavell við blaðamanninn: 1) Fullkomin samvinna milii landhers, sjóhers og flughers. 2) Hinn mikli dugnaður her- foringjanna, sem jeg hafði und- ir minni stjórn, Wilsons, O’Con- nors og liðsforingjanna sero stjórnuðu indversku hersveitun- um, er rjeðust fyrst inn í Sidi Barrani. 3) FramlínuhermeiyiirnirjSem börðust af hreysti og þolgæði við fáheyrðar þrautir. Hin- ar djarflegu atlögur þeirra og hraði þeirra hafði í för með sjer að ítalir gátu aldrei safn- að kröftum að nýju eftir hið hræðilega áfall þeirra í Sidi Barrani. 4) Flutningastarfsliðið, sem rækti starf sitt af frábærri ná- kvæmni, en án þess hefði ekki verið hægt að koma vistum til hermannanna þúsund kílómetra frá upphafs bækistöðvum þeirra. I flutninga starfsliðinu gátu Kyprusmenn sjer ágætan orðstý, með því að hafa aðdá- unarverða samvinnu". SIGRAR GRIKKJA. Wavell sýndi mjer (þannig heldur frjettaritarinn áfram), skeyti frá yfirhershöfðingja okkar, Papagos og hjelt áfram: Við erum fúsir að viðurkenna að hinir hraustu grísku banda- menn okkar voru á undan okk- ur með hina dásamlegu sigra sína í Albaníu og greiddu með þeim Itölum hræðileg högg. Sigrar þeirra eru ekki aðeins mikilvægir þar á staðnum. Þeir höfðu áhrif á allan gang stríðsins“. Með þessum orðum lauk samtalinu við Bonaparte blökku manna álfunnar, sem gjörsigr- aði italska herinn, 250 þús. menn, á 50 dögum“. Hver er mtm- ttrínn á fangelsí og varðhaldí? Menn veittu því athygli, að í dónmum í dreifihrjefsmál- inu voru 4 dæmdir í fangelsi og tveir (ritstjórar Þjóðviljans) í varðhald. Hver er munurinn á þessu?, spyrja menn. í fangelsi má dæma æfilangt eða tiltekinn tíma, ekki skemur en 30 daga og ekki lengur en 16 ár. Fangar, sem dæmdir eni til skammrar fangelsisvistar, skulu að jafnaði taka út refsinguna í einrúmi, en aðrir í fjelagi. Vinnu- skylda fylgir fangelsisvist og skulu fangar þar fylgja þeim reglum, sem settar eru um vinnu fanga. Um fæði og annan aðbún- að skal farið eftir settum reglum. í varðhald má dæma tiltekinn tíma, ekki skemur en 5 daga og elcki lengur en 2 ár. Varðhaldsvist skal að jafnaði taka út í einrúmi, nema annað sje nauðsynlegt vegna aldurs eða heilsu fangans. Ekki má hafa varð- haldsfanga með föngum, er dæmd- ir hafa verið til fangelsisvistar. Várðhaldsfangar þurfa ekki að láta sjer nægja venjulegt fangar viðurværi. Þeim er heimilt að út- vega sjer sjálfir og taka við fæði, húsmunum, bókum og öðrum per- .sónulegum nauðsynjum, að svo ■miklu leyti sem það fer ekki í hág við öryggi og góða reglu í varðhaldinu. Varðhaldsfangi iná sjálfur út- vega sjer vinnu, sem samrýmist öryggi og góðri reglu. Arðinn af vinnunni -á fanginn sjálfur. 4 gjaldþrot (14 árið 1939) Fjögur gjaldþrot urðu hjer á landi síðastliðið ár (skv. skýrslu Ifagstofunnar), en árið áð- ur 14, árið 1938 18, árið 1937 12 og árið 1936 23. Meðaltal g.jaid- þrota á landinu síðustu áratugina hefir verið; Skip slííur frá bryggju í hvassviðri 1908—11 1912—20 1921—25 1926—30 1931—35 1936—40 28.5 5.9 20.6 20.0 30.8 14.2 Ihvassviðrinu í fyrrakvöld sleit tvö skip frá Björns- bryggju og fóru skipin með flötu og barðist annað þeirra við uppfyllinguna. Voru þetta vjelskipið Grótta og línuveiðar- inn Pjetursey. Hafnsögumenn fengu vit- neskju um, hvernig komið var og fengu þeir dráttarbát til þess að koma skipunum til að- stoðar. Tókst þeim að draga skipin frá uppfyllingunni og binda þau við festar á ný. Ekki er vitað að nokkrar telj- andi skemdir hafi orðið á skip- unum. EF LOFTUR GETUR 1>AH EKTCT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.