Morgunblaðið - 26.03.1941, Qupperneq 2
MÖIfcGUMiáLAÐIÐ
Miðvikudagur 26. mars 1941.
ÞJOÐVERJAR LÝSA HAFN-
BANNI Á ÍSLAND
Stækkun á hernaðarsvæð-
inu umhverfis England
„Hafnbannsbrjótar nota
dönsku eyjuna Island
sem bækistöð“
ÞÝSKA ÚTVARPIÐ tilkynti í gærkvöldi, í öllum
útsendingum sínum, „að ísland væri komið á
ófriðarsvæðið“. Hefir hafnbannssvæðið um-
hverfis England, sem Þjóðverjar settu í fyrrasumar, ver-
ið stækkað, svo að ísland er nú innan þess.
Hafnbannssvæðið nær alllangt norður fyrir ísland og
vestur á bóginn, alla leið vestur að landhelgi Grænlands.
Tilkynning þýska útvarpsins var á þessa leið ,,að vegna hins
ólögmæta hernáms Breta á dönsku eyjunni íslandi, yrði ekki hjá
því komist að láta ófriðarsvæðið ná yfir ísland“.
Það hefir komið í ljós, ,,að breskir hafnbannsbrjótar notuðu
ísland sem bækistöð“, og þessvegna yrði að færa út hernaðar-
aðgerðasvið Þjóðverja.
Síðan var skýrt frá takmörkum þessa nýja hernaðarað-
gerðasviðs.
Var sagt vera þetta. Frá Belgíuströnd, þar sem 3. gráða
austlægrar lengdar sker ströndina, að 62. gráðu norðlægrar
breiddar, þaðan að 68. gráðu norðlægrar breiddar og 10. gráðu
vestlægrar lengdar, þaðan eftir 68. gráðu vestur til Grænlands.
Síðan frá 65. gráðu norðlægrar breiddar og 38. gráðu vestlægrar
lengdar og til 45. gráðu norðlægrar breiddar og 20. gráðu vest-
lægrar lengdar. ,
Takmarkalínurnar eru þessar: Lengdarbaugurinn 3° aust-
lægrar lengdar er frá Belgíuströnd skamt austan við England,
og er hið auglýsta svæði takmarkað að austan með þeirri línu
norður á móts við Færeyjar, en 62. breidargráðan liggur um
miðjar eyjarnar. Frá staðnum 3° austlægrar lengdar og 62° norð-
lægrar breiddar, sem er nálægt Noregsströnd, liggur takmarka-
línan svo að 68. gráðu norðlægrar breiddar og 10. gráðu vest-
lægrar lengdar og er sá staður alllangt norðaustur af Langanesi.
Þaðan liggur takmarkalínan eftir 68. gráðu vestur að land-
helgi Grænlands og fylgir henni suður til Angmagsalik. Þaðan
liggur takmarkalínan að 45. gráðu norðlægrar breiddar og 20.
gráðu veslægrar lengdar, og er sá staður allangt vestur í hafi,
vestur af Biscayaflóa.
Eftir að hafa skýrt frá takmörkunum hins nýja hafnbanns-
svæðis gat þýska útvarpið þess, að þann 17. ágúst 1940 hefði
verið birt tilkynning um hafnbannssvæði umhverfis England.
Hver sá, sem fari um þetta hafnbannssvæði stofnaði sjer í hættu.
Nú, er Þjóðverjar hefðu stækkað þetta hernaðarsvæði, þá stofn-
uðu þau skip, sem færu um þetta svæði, sjer í hættu, að þeim
verði tortímt. Þýskaland mun ekki telja sjer skylt að bæta það
tjón, sem skip þessi yrðu fyrir.
Júgóslafar 8.
þríveldabanda-
lagsþjóðin
Ókyrð i Júgóslafín
JÚGÓSLAFAR undirskrifuðu þríveldasáttmálann í
gær, og undirskrifuðu þeir allar greinar sáttmál-
ans, en eru ekki undanþegnir ákvæðum um
gagnkvæma hernaðarlega aðstoð, eins og gert hafði verið
ráð fyrir.
En eftir að Cvetkovic, forsætisráðherra Júgóslafa og
Markovic, utanríkismálaráðherra höfðu undirskrifað sátt-
málann, voru þeim afhentar tvær yfirlýsingar frá Þjóð-
verjum og ítölum, önnur um að Þjóðverjar og ítalir muni
ekki um alla framtíð gera neinar landakröfur á hendur
Júgóslöfum, en hin um að Þjóðverjar og Italir muni ekki
í þessari styrjöld fara fram á að leyfð verði för eða flutn-
ingur herliðs yfir Júgóslafíu.
SKÝRING BRETA.
í fregn frá London í gærkvöldi var skýrt frá því, að fulltrúar
þýsku stjórnarinnar hefðu bent blaðamönnum, sem spurðu um mikil-
vægi þessarar síðari yfirlýsingar, á, að í henni væri talað um herlið eu
ekki hergögn. Er alment álitið, í samræmi við fregnir, sem áður höfðu
borist frá Júgóslafíu, að gert sje ráð fyrir að Þjóðverjar og ítalir fái
að flytja um landið hergögn og særða menn.
í London var einnig vakin athygli á því í gærkvöldi, að þótt
Þjóðverjar og ítalir hefðu lýst yfir því, að þeir ætli ekki að gera landa
kröfur á hendur Júgóslöfum, þá felist ekki í þessu nein vernd á landa-
mærum Júgóslafíu, og að Ungverjar, Rúmenar og Búlgarar hafi ó-
bundnar hendur til að gera það sem þeir vilja.
FORDÆMING BRETA.
Skoðun bresku stjórnarinnar á spori því, sem júgóslafneska
stjórnin hefir nú stigið, var lýst þannig í gær, að Júgóslafar hefðu
opnað dyrnar að íhlutun Þjóðverja í innanríkismálefni sín. Þeir
hefðu ekki aðeins leyft Þjóðverjum íhlutun í samgöngumálum land3-
ins, heldur gætu komið fyrir ýmsir atburðir, sem hefðu í för með sjer
margskonar viðtækari afskifti Þjóðverja. Júgóslafar væru komnir inu
á hina hálu braut undanlátsseminnar.
ítalir hafa mist
70 sinnum fleiri
menn
Page-Croft, aðstoðarhermála-
ráðherra Breta skýrði frá
því í breska þinginu í gær, að
fram til 23. febrúar hefði mann-
tjón Breta í Afríkustyrjöldinni
verið 604 menn, en 2362 menn
hefðu særst eða týnst.
' Á sama tíma mistu ítalir 200
þús. manns, en þar af hafa 180
þús. manns verið teknir til fanga.
Enn dularfull
.aðvörun* Rússa
Spanska blaðið Alkazar birti' þá
fregn í gær, að sendiherra
Júgóslafa í Moskva hefði sent
júgóslafnesku stjórninni orðsend-
ingu, þar sem hann varar hana
við því að undirskrifa þrívelda-
sáttmálann og segir, að Rússar
telji sig enn hafa hagsmuna að
gæta á Balkanskaga.
Sáttmálinn
sem Júflóslafar
undirskrifuðu
Oáttmálinn, sem Júgóslafar
^ undirrituðu í gær, er í þrem
liðum: 1) Júgóslafar gerast að-
ilar að þríveldasáttmálanum, er
Þjóðverjar, ítalir og Japanar
gerðu með sjer 27. sept. síðast-
liðinn, 2) Ef ákvæði 4. greinar
þessa sáttmála um ráðagerðir
varðandi framkvæmd hans,
snerta Júgóslafa beinlínis, skulu
sjerfræðingar frá þeim taka
þátt í þessum ráðagerðum, 3)
Orðalag þessa samnings fylgir
sem fylgiskjal í þýskri, ítalskri,
japanskri og júgóslafneskri
þýðingu.
Samningurinn gengur í gildi
sama dag og hann er undirskrif-
aður. Gerður í Vínarborg 25.
mars 1941, á 19. ári fascista-
tímatalsins, sem svarar til 25.
dags 3. mánaðar, 16. árs Sai-
yoga-tímatalsins.
Þríveldasáttmáliim, sem gerður var
27. sept. 1940, var á þessa leið:
1. gr. Japanar viðurkenna og virða
forustu Þjóðverja og ítala í stofnun
nýs skipulags í Evrópu.
2. gr. Þjóðverjar og ftalir viður-
kenna og virða forustu Japana í stofn-
un nýs skipulags í Austur-Asíu.
3. gr. Þjóðverjar, ítalir og Japanar
hafa komið sjer saman um að vinna
saman í viðleitni sinni samkvæmt fram-
ansögðu. Ennfremur fallast þeir á, að
aðstoða hver annan á allan stjómmála-
legan, viðskiftalegan og hemaðarlegan
hátt, ef ráðist verður á einhvem hinna
þriggja samningsaðila af herveldi, sem
ekki tekur nú þátt í Evrópustríðinu eða
kínversk-japönsku deilunni.
4. gr. Til þess að geta staðið við
þenna sáttmála, skulu sjerfræðinga-
nefndir, sem stjómirJÞýskalands, ftalíu
og Japan skipa hver um sig, koma sam-
an á fund án tafar.
5. gr. Þýskaland, Ítalía og Japan
staðfesta að skilmálar þeir, sem að
framan era taldir, hafa ekki á neinn
hátt áhrif á stjómmálasamband það,
sem ríkjandi er nú milli hvers hinna
þriggja samningsaðila og Sovjet-Rúss-
lands.
6. gr. Samningur þessi gengur í gildi
undir eins og hann hefir verið undir-
skrifaður, og skal gilda í 10 ár frá
þeim degi, sem han ngengur í gildi.
Hvenær sem hentugt þykir, áður en
þessi frestur er liðinn, skulu samnings-
aðilar, ef einhver þeirra æskir þess,
koma saman og hef ja samninga, til þess
að endumýja hann.
Engin viðskiftamál gætu hafa
neytt Júgóslafa til að stíga þetta
spor, því að ef þeir heíðu haldið
trúnað við vini sína Breta og
Grikki, þá myndi það hafa styrkt
málstað frelsisins. En samvinna
Júgóslafa við Þjóðverja og ítali
myndi hafa alvarlegar afleiðingar
í för með sjer fyrir þá, og þannig
beri að skilja orðsendingu Breta
frá því í fyrradag, þar sem því
var lýst yfir, að breska stjórnin
myndi ekki geta fyrirgefið slíkt
spor.
ÓKYRÐIN.
Júgóslafnesku ráðherrarnir
fóru frá Vínarborg með sjer-
stakri lest í gærkvöldi, eftir að
þeir höfðu átt klukkustundar
viðræður við Hitler í nærveru
von Ribbentrops.
í London er á það bent, að ráð-
herrarnir hverfi ekki' heim til
lands, þar sem ríki kyrð og ró.
Þvert á móti höfðu í nótt borist
fregnir um vaxandi andúð og ó-
kyrð í sveitum landsins, og einn-
ig í Belgrad.
Ókyrð þessi er aðallega sögð
vera í Serbíu og Montenegro.
Fjelagsmálaráðherran í stjórn
Cvetkovie sagði af sjer í gær, en
hann er foringi serbneska bændá-
flokksins. Sex öldungadeildarþing
menn úr serbneska bændaflokkn-
um hafa tilkynt að þeir muní
leggja niður þingmensku.
Páll ríkisstjóri er sagður hafa
ætlað að ávarpa þjóðina í útvarp
í gær, en að ávarpi þessu hafi tví-
vegis verið frestað. En hinsvegar
hafa heillaskeyti farið á milli rík-
isstjórans og Hitlers í tilefni dags
ins.
Breskar frjettastofufregnir
herma, að þegar aukablöðin voru
gefin út í Belgrad í gær, um að
Júgóslafar hefðu undirskrifað sáti
málann, hefði víða mátt sjá menn.
gráta vfir blöðunum á götunum.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐD