Morgunblaðið - 26.03.1941, Síða 3

Morgunblaðið - 26.03.1941, Síða 3
Miðvikudagur 26. mars 1941. MORGUNBLAÐIÐ 3 Togararnir búast til salt fisksveiða fyrst um sinn Þar til siglingar til Eng- lands verða öruggari Samtai við Kjartan Thors framkvæmdastjóra TOGARARNIR safnast nú hver af öðrum í höfn og er enn alt í óvissu um, hvernig úthaldi þeirra verður hagað í náinni framtíð. En vegna þess að togaraútgerðin snertir svo mjög hag og af- komu fjölda einstaklinga, bæjarfjelaga og þjóðfjelagsins í heild, fór tíðindamaður Morgunblaðsins í gær á fund Kjartans Thors framkvæmdastjóra, en hann er formaður Fjelags ísl. botnvörpuskipaeigenda, og spurði hann, hvað nú yrði gert með togarana. Honum sagðist þannig frá: — Strax og frjettist um liina hryllilegu árás á „Fróða“ greip ótti og skelfing útgerðarmenn, sjómenn og alla landsmenn. Sýnilegt var, að hjer var komin ný, alvarleg hætta fyrir siglingar okkar til Englands. Tveimur drengj- um bjargað frá druknun Lá víð slysí á Akiíreyrar- polií Frá frjettaritara vorum á Akureyri. veir drengir, 5 og 6 ára gaml- ir, synir Samúels Kristbjarn- arsonar rafvirkja, fóru í gærdag fram á ótraustan lagís hjer á höfninni, norðaustur af Prent- smiðju Odds Björnssonar við Hafnarstræti. Er þeir voru komnir skamt und- an landi, brast ísinn undan fótum þeirra, svo þeir lentu á kaf í sjó- inn. Menn, er þarna voru allnærri, heyrðu hljóðin í drengjunum og brugðu skjótt við og gátu með naumindum bjargað þeim frá druknun. Voru drengirnir fluttir fyrst í prentsmiðjuna allmjög þjakaðir og hjiíkrað þar. Síðan voru þeir flutt- ir heim til foreldra sinna og hrest- ust þar von bráðar, fyrir góða að- hlynningu, og líður nú vel. Fyrsti fundur Reykiavíkur- fprófastsdæmis yrsti hjeraðsfundur Reykja- víkur prófastsdæmis var haldinn í gær á heimili dómpró- fasts Friðriks Halgrímssonar. Fundurinn staðfesti samþykt- ir þær, er gerðar voru á safnað- arfundum allra safnaða pró- fastdæmisins síðastliðinn sunnu- dag, að kirkjugjöld skyldi vera 5 krónur á hvern gjaldskyldan safnaðarmann. Ennfremur var samþykt þessi ályktun: „Hjeraðsfundurinn samþykkir að skora á ríkis- stjórnina að hlutast til um, að orðið sje við framkomnum ósk- um safnaðanna í prófastsdæm- inú um að greitt verði á þessu ári það 300,000 króna tillag til nýrra kirkjubygginga í Reykja- vík, sem gert er ráð fyrir í lög- um nr. 76, 1940“. Rædd voru einnig fleiri mál, er prófastsdæmið varða. Iivað átti nú að gera? var fyrsta spurningin, sem vaknaði hjá okkur útgerðarmönnum, hjelt Kjartan Thors áfram. Útgerðar- menn komu strax saman á fund. Á þeim fundi var óskað viðtals við atvinnumálaráðherra, til þess að ráðgast við hann um, hvaða möguleikar væru á því, að gera siglingarnar öruggari og trygg- ari. Yar m. a. rætt við ráðherr- ann um möguleika á, að sigla í samflota undir vernd herskipa, og ýmislegt fleira bar á góma í þeim viðræðum. Atvinnumálaráðherra hrást vel við og lofaði að athuga, hvaða leið tiltækilegast væri að fara. Kvaðst hann mundu ræða þetta við yfir- stjórn breska setuliðsins hjer og sendiherra Breta. Nokkruy síðar skrifuðu stjórnir sjómannafjelaganna ríkisstjórn- inni og óskuðu þess, að atvinnu- málaráðherra boðaði á sinn fund fulltrúa allra stjettarfjelaga sjó- manna og útgerðarmenn, til þess að ræða sameiginlega þetta nýja viðhorf. Atvinnnmálaráðherra varð strax við þessum tilmælum. Síðan hafa verið haldnir marg- ir fundir með þessum aðiljum og er þeim ekki lokið enn. Ráðherr- ann hefir einnig oft rætt málið við bresku herstjórnina hjer og sendiherra Breta. SKIPIN í HÖFN. En hvað varð um skipin? spurð- um vjer Kjartan Thors. — Strax og þessi málaleitan hófst, hjeldu útgerðarmenn skip- um sínum í höfn, svarar Kjartan. Með hverjum degi fjölgaði' skip- unum í höfnunum, sum fullfermd, reiðuhúin að sigla. Þessi skip hiðu með farminn nokkra daga. En þar sem þessar málaleitanir hafa enn engan árangur borið, hafa útgerðarmenn ekki sjeð sjer annað fært en að taka fiskinn upp úr skipunum og verður hann nú ýmist saltaður eða seldnr við skipshlið. Einstaka útgerðarmenn hafa haft mögnleika til að frysta fiskinn í landi. — Eru það margir togarar, sem þurft hefir að losa hjer þannig? — Hjer í Reykjavík eru það sex heilir farmar og einn hálfur. Einn- ig nokkur skip í Hafnarfirði. — En hvað varð um skipin, sem voru ytra? — Þegar hingað bárust hin hryllilegu tíðindi af Fróða og síð- ar af Reykjaborginni, voru all- mörg skip ýmist á útleið eða stödd í enskri höfn. Eftir ákvörðun þá, sem tekin var á fundinum með atvinnumálaráðherra, símaði hver einstakur útgerðarmaður til síns umboðsmanns ytra og gaf fyrir- skipun um, að fresta burtför skip- anna uns frekari ákvörðun yrði tekin. En áður vorn nokknr skip lögð af stað heim og eru þau nú öll komin, heilu og höldnn. Þessi skip höfðu haft fregnir af árásinni á Fróða og einnig óljóst hugboð um Reykjahorgina, Þau tóku því það ráð, að sigla í samflota heim. Enn eru þó ytra 6 togarar, auk nokkurra smærri skipa, sem bíða þar, nns þau fá nánari fyrirskip- an. Á SALTFISKS- VEIÐAR. — En hvað verður nú nm tog- arana ? — Yfirleitt munu útgerðarmenn helst kjósa, þar til úr raknar, að senda skipin á saltfisksveiðar. Er og þegar ákveðið, að allmargir togarar hefji þessar veiðar. En eins og sakir standa er, því miður, ekki útlit fyrir langvar- andi úthald skipanna á saltfisks- veiðar. Er margt sem því veldur. Fyrst og fremst saltleysi, þar sem menn höfðu ekki gert ráð fyrir, að til þess kæmi, að saltfisksveið- ar yrðu stundaðar á þessari ver- tíð. Svo er, a. m. k. að því er FRAMH Á SJÖTTTJ SÍÐD ,-A Stúlkurnar í Ármanni eru frægar fyrir jafnvægisæfing- ar á hárri slá. Glæsílegar fimleika- sýningar I íþrótta- húsinu Olímufjelagið Ármann hjelt í gærkvöldi fimleikasýning- ar í íþróttahúsi Jóns Þorsteins- sonar. Var þangað boðið bæjar- stjórn, heiðursfjelögum Ármanns og mörgum fleirum. Sýningarnar vöktu mikla at- hygli áhorfenda, enda er fimleika- fólk Ármanns annálað fyrir leikni sína. í kvöld verða sýningarnar end- urteknar fyrir almenning og verð ur vafalaust margt um manninn í íþróttahúsinu, því bæði er það, að langt er síðan fimleikasýningar hafa verið haldnar, svo og, að þar sem Ármannsfólkið sýnir listir sínar, er jafnan margt áhorfenda. Aðgöngumiða er hægt að fá í Bókaverslun ísafoldarprentsmiðju og við innganginn, verði eitthvað óselt um þann tíma, sem sýning- arnar hefjast. Vivax. Intlúenza breiðist ðrt út á Akureyri Frá frjettaritara vorum á Akureyri. ¥ nflúenzan breiðist nú allmjög •* út hjer á Akureyri og ná- grenni, svo fjöldi fólks liggur rúmfastur. Mentaskólinn hefir verið lokað- ur vegna veikinda nemenda, en verðnr þó opnaður til kenslu aft- ur í dag. Aðrir skólar starfa og meira og minna, þó allmjög skorti á fulla tölu nemenda, er þá sæbja. Leikfjelag Reykjavíkur sýnir leikritið Á útleið, eftir Sutton Vane kl. 8 annað kvöld og hefst sala aðgöngumiða kl. 4 í dag. Verkfall hðr grelOslustúlkna uppleyst VT erkfalli hárgreiðslustúlkna, sem staðið hefir síðan í janúar, hefir nú verið leyst upp. Á fundi Sveinafjelagsins s.l. sunnudag var samþykt að leysa upp verkfallið. Eru flestar stúlkur því byrjaðar vinnu aft- ur, án þess fjelagið gerði nokk- urn samning fyrir þeirra hönd. Verður hver einstök stúlka að semja fyrir sig. Þessi endalok er mikill hnekk- ir fyrir Sveinafjelagið og stúlk- urnar, sem treystu því, að fje- laginu tækist að ná viðunandi samningum fyrir þeirra hönd. Vafalaust hefðu og náðst þol- anlegir samningar, ef fram- kvæmdastjóri Alþýðusam- bandsins hefði ekki haft þar spillandi áhrif. En hins er líka að vænta, að meistararnir láti stúlkurnar á engan hátt gjalda- þess, að fjelagið sem heild sem- ur ekki ,heldur semur hver ein- stök stúlka um sín kjör. Minningar- athöfnin í gær Minningarathöfn var haldin í Dómkirkjunni í gær um skipverjana á vjelbátnum Hirti Pjeturssyni. Hófst athöfnin á því, að sung- inn var sálmurinn „Legg þú á djúpið“. Þá flutti síra Jakob Jónsson minningarræðu. Síðan var sunginn sálmurinn „Lýs milda ljós“, en því næst var flutt bæn. Að lokum var svo sunginn sálm- urinn „Hærra, minn Guð, til þín“. Lík þess eina af skipverjum, er fanst, Unnars Hávarðsson, var flutt með Esju austur til Eski- fjarðar í gærkvöldi. Isar í Eystra saltí ¥ sar hamla enn siglingum í Eystrasalti. Frá því var skýrt í fregn frá Svíþjóð í gær, að skipið „Heimdal", sem lagði af stað frá Ábá í Finnlandi á laugardaginn, hafi ekki komið til Stokkhólms (ca. 250 km. vegalengd) fyr en í gær. HÁLFS DAGS STRÍÐS- ÚTGJÖLD. Heimvamaliöið breska kostar Bretá minna en háífs dags stríðsútgjöld (að því er Pagé-Croft, aSstoðarutanríkis- málaráðherra Breta skýrði frá í breskaj þinginu í gær.) „Mln Kamp“ Sænsk og norsk bókaforlög ætla áð gefa út bók Hitlers „Mein Kampf“ i þýðingu (skv. fregn frá Berlín í gær.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.