Morgunblaðið - 02.04.1941, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 2. apríl 1941
Bretar
taka
Asmara
Höftíðborgína
í „elsttí ný-
lendtí Itala“
>--4; w; - J2 S-y1BV
Breska herstjórnin í Kairo til-
kynti síSdegis í gær, að
Asmara, höfuðborgin í elstu ný-
lendu ítala, Eritreu, hefði gefist
upp.
Laust fyrir íniðnætti í nótt barst
skeyti til London, um að æðsta
yfirvald borgarinnar hefði í gær
komið til aðalbækistöðva bresku
herstjórnarinnar í Ka, skarnt fyr-
ir vestan Asmara, borið hvítan
fána og til lcynt að borgin gæfist
upp.
Asmara er ekki aðeins höfuðborg í
elstu nýlendu ítala, heldur er hún
stærsta boigin í nýlendum ítala og vel
skipulögð. Hún liggur 7000 fet yfir
sjávarmál.. Ibúar þar eru um 100 þús.,
þar af um 50 þús. ítalir.
Með töku Asmara lokast enn ein
samgöngnleið Itala í Austur-Afríku til
hafsins. Með lokun samgönguleiðanna
til Mogadisku í ítalska Somalilandi,
Berbera í 'breska Somalilandi, Djibouti
í franska Somalilandi og nú Massawa
í Eritreu, á ítalska vamarliðið í Addis
Abéba í raun og veru aðeins eina sam-
gönguleið opna til hafs, um smáborgina
Assab, syðst í Eritreu.
Fregnin um töku Asmara hefir eins
og vænta mátti vakið feikna fögnuð í
Englandi. A tæpri viku hafa Bretar tek-
ið Keren, Harar, Diredawa og nú As-
mara, en á tveim mánuðum, eða frá því
6. febrúar hafa þeir tekið höfuðborg-
imar í þremur nýlendum Itala: Beng-
hazi í Cyrenaica, Mogadishu í ítalska
Somalilandi, og Asmara í Eritreu.
Það varð greinilegt, að tilkynningu,
sem herstjóroin í Kairo hafði birt fyr í
gær, að illa horfði fyrir ítalska herlið-
inu, sem var á undanhaldi frá Keren,
því að tilkynt var að teknir hefðu ver-
ið 800 fangar, þ. á m. einn herforingi.
Herfróðir menn í London benda á, að
ekki sje hægt að segja að svo stöddu
hvaða áhrif fall Asmara hefir á sókn
Breta, eða ekki fyr en kunnugt er hvar
hersveitir hertogans af Aosta, sem vörðu
Keren, hafa tekið sjer varnarstöðu- En
þó er talið, að ekki geti liðið á löngu
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU
Bretar og Grikkir undirbúa
stórfelda sókn í Albaníu
Liðssamdráttur Júgóslafa með-
fram landamærum Albaníu
Djoðverjar segja horf-
urnar um Júgóslafíu
„mjög ískvggilegar“
Frjettaritari New York Times hefir símað blaði
sínu, að yfirvofandi sje stórfeld grísk, bresk
og — ef svo ber undir júgóslafnesk — sókn í
Albaníu, með það fyrir augum, að kasta ítalska herliðinu
þar í sjóinn. Eru Grikkir og Bretar sagðir hafa mikinn
liðssafnað meðfram öllum landamærunum, alla leið frá
júgóslafnesku landamærunum ti lstrandar, við Otranto-
sundið.
Júgóslafar eru sagðir hafa mikið lið norður með öllum
landamærum Albaníu, norður til Svartfjallalandsins.
Frjettaritarinn skýrir frá því, að síðustu dagana hafi breskir
brynvagnar sjest frá júgóslafnesku landamærunum, nálægt víg-
stöðvunum í Albaníu.
ÞaS verður ráðið af herstjórnartilkynningum Grikkja síð-
ustu tvo dagana, að Grikkir eru nú aftur, eftir langt hlje, í
sókn. I herstjórnartilkynningunni í fyrradag var skýrt frá
því að tvær ítalskar sveitir (compagny) hefðu verið gjör-
sigraðar í skyndiárás á miðvígstöðvunum og yfir 200
fangar teknir.
I gærkvöldi tilkynti herstjórnin, að yfir 80 fangar hefðu verið
teknir í orustu á miðvígstöðvunum, og auk þess annað herfang.
í tilkynningu ítölsku herstjórnarinnar í gær var talað um að
áhlaupum Grikkja á vígstöðvunum þar sem 11. ítalska herfylkið
er, hafi verið hrundið".
FERÐALAG EDENS.
Hin nýja heimsókn Edens og Dills til Aþenuborgar er álitin í
London mjög mikilvæg. Fregnir, sem þýska frjettastofan birti í
gær um að Eden og Dill væru komnir til Belgrad, virðist ekki hafa
við rök að styðjast, því að í gærkvöldi var skýrt frá því í London,
að Eden hefði farið í heimsókn til Georgs Grikkjakonungs.
Þýska frjettastofan hafði snemma í gær skýrt frá því,-að
Eden væri kominn til Belgrad, og hefði sennilega þegar hafið við-
ræður við júgóslafneska stjórnmálamenn, en nokkru síðar skýrði
Reuter-frjettastofan frá því, að enga staðfestingu væri hægt að
fá á þessari fregn í London.
Amerískir frjettaritarar í Ber
lín síma, að í gærmorgun hafi
þýskir stjórnmálamenn alt í einu
breytt um tón í dómum sínum
um horfurnar í Júgóslafíu, og að
þeir teldu horfurnar nú mjög al-
varlegar. En áður höfðu stjórn-
málamennimir talað gætilega
um horfurnar þar, þótt þýsku
blöðin hafi látið ógætilegar.
Fulltrúi þýska utanríkismála-
ráðuneytisins sagði í gær, að
heimköllun þýska sendiherrans
í Belgrad til að gefa skýrslu og
för júgóslafneska sendiherrans
til Belgrad, væri vottur um hve
mjög horfurnar væru alvarleg-
ar. Þýski sendiherrann, von
Heeren fer beint á fund Hitl-
ers, til að gefa honum skýrslu.
Samkvæmt fregn frá London
lagði júgóslafneski sendiherr-
ann í Berlín af stað frá Belgrad,
áleiðis til Berlín í gærkvöldi,
eftir að hafa setið lengi á ráð-
stefnu með hinum nýja forsæt-
isráðherra Simovich.
FRAMH Á SJÖTTU SlÐt
Vörður settur um
franska skipið
„Normandie*-
T3 osevelt hefir sett vörð um 7
1 frönsk skip í höfnum í
Bandaríkjunum, þ. á m. haf-
skipið „Normandie". En franski
sendiherrann í Washington hef-
ir skýrt frá því, að Bandaríkja-
stjórn muni ekki leggja löghald
á þessi skip.
Þjóðverjar og ítalir mistu 6
skip í höfnum í Suður-Ameríku,
Venezuela og Peru í gær, á þann
hátt, að áhafnirnar kveiktu í
skipunum. Tvö þýsk skip reyndu
að sigla úr höfn í Peru, en peru-
ansk beitiskip stöðvaði þau, og
kveiktu áhafnirnar þá í skipun-
um. Skipin voru hlaðin baðmull
og logaði því glatt í þeim.
60 þýsk og ítölsk skip liggja í
höfnum í Suður-Ameríku.
Hvernig
byltingin í
Júgóslafíu
var gerð
Frjettaritari „The Times“
í Belgrad hefir sent blaði
sínu eftirfarandi frásögn
af því, hvernig byltingin í
Júgóslafíu var framkvæmd.
Liðsforingjar úr júgóslaf-
neska hernum, alt ungir
menn, sem vildu binda enda á
þjónkun Júgóslafa við Hitler.
áttu aðal-upptökin að því, að
byltingin var gerð. Nú síðast
um nokkurt skeið höfðu þeir
haft stuðning frá lífvarðarliði
konungs, sem höfðu það hlut-
verk að vernda Pjetur konung.
EORYSTUMENNTNIR komu saman í
hemaðairáðuneytinu á miðnætti, hina
örlagaríku nótt. Þangað símuðu hjálp
armenn þeirra skýrslur sínar, en þa'ð
voru alt liðsforingjar úr flughemum,
sem falið hafði verið það hlutverk að
handtaka ráðherrana og ná opinber-
nm byggingum á sitt vald. Er verki
þessu hafði verið lokið, eins og til
var ætlast og allar stjórnarbyggingar
og opinberar byggingar höfðu verið
teknar, ók Simovich hershöfSingi til
konungshallarinnar og bað um að
konungur yrði vakinn.
ÞJÓNARNIR mölduðu í móinn í fyrstu,
en hershöfðinginn endurtók þá ósk
sína. Og nokkram mínútum síðar kom
hinn ungi konungur í náttfötum og
með stírurnar í augunum inn í eina
setustofuna í höllinni, þar sem hers-
höfðinginn beið.
„Yðar hátign, frá þessari stundu
em þjer konungur Júgóslafíu, hafið
öll æðstu völd í yðar höndum", sagði
hershöfðinginn.
RAKOTCHEYITCH, höfuðsmaður,
sem hafði með sjer sveit 40 flugliðs-
foringja, vakti forsætisráðherrann,
Draghisa Cvetkovitch. Hann ávarp-
,aði forsætisráðherrann og sagði:
„Gerið svo vel og fylgið mjeríf Cvet-
■kovich fölnaði- „Með hvaða rjetti
skipið þjer svo fyrir?“ spurði hann.
„Þjer getið verið viss um að jeg mun
ekki hlýða“. Liðsforinginn dró þá
fram skammbyssu sína og sagði: „Af
* stað, eða jeg hlyepi af“. Eorsætis-
ráðherrann hlýddi.
Þegar Cvetkoviteh kom í hermála-
ráðuneytið, krafðist hann að fá að
tala við Simovich. „í hvers nafni haf-
ið þjer tekið völdin í yðar hendur?“
spurði hann Simovich. „t nafni
þeirra, sem þjer hafið aldrei haft for-
ustu fyrir“, svaraði hershöfðinginn
stuttlega.
STMOVICH og aðrir æðri flugliðsfor-
ingjnr höfðu lagt á ráðin um það,
hvemig valdatakan skyldi fara fram.
1 Belgrad var ráðgert að taka lög-
„Kraftaverka-
dagurinn"
í forustugrein í „The
Times“ (London) er fimtn-
dagurinn 27. mars kallaður
„dies miribilis“ — krafta-
verkadagnrinn. — Þenna dag
var byltingin gerð í Júgó-
slafíu, sjóorustan í Joniska
hafinu („Matapan-orustan“,
eins og „Times“ kallar hana)
hófst, og breskar hersveitir í
Eritreu tóku Keren, og í
Abyssiníu Harrar.
Matztioka
gengíir
á páfaftmd
T itli guli maðurinn“, Matzu-
oka utanríkismálaráðherra
Japana, gengur á páfafund í dag.
í gær gekk liaim á fund Viktors
Emanuels konungs og átti ráða-
gerðir með Mussolini og Ciano
greifa.
í gærkvöldi var honum haldiu
veisla í Rómaborg, þar sem hann
drakk full ti lsigurs ítölum og
Þjóðverjum. Hann sagði að Japan-
ar myndu standa við hlið ítala á
komandi árum.
Japanar, ítalir og Þjóðverjar
væru að endurbyggja heiminn,
sagði ráðherrann.
I samtali við blaðamenn í gær,
skýrði Matzuoka frá því, að hann
myndi fara aftur til Berlínar, og
eiga þar viðræður við von Ribben-
trop og Hitler.
Amerískur blaðamaður spurði
hann, hvort hann myndi koma við
í Bandaríkjunum á ferð sinni.
„Til þess verður enginn tími“,
svaraði ráðherrann.
En fulltrúi japönsku stjórnar-
innar í Tokio skýrði frá því í
gær, að viðskiftasamningum Jap-
ana og Rússa miðaði svo vel á-
fram, að þess væri ekki langt að
bíða, að undirskrift gæti farið
fram. Matzuoka kann þess vegna
að eiga erindi til Moskva á heim-
leiðinni.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐ6
Franco sýknar
35-40 þúsund
pólitíska fanga
Fj' í-ancesco Franco hjelt hátíðlegt 2
* ára afmæli sigurs síns í borgara-
styrjöldinni á Spáni me'ð því að sýkna
alla pólitíska fanga, sem teknir vorn í
varðhald í boi-garastyrjöldinni. Er á-
ætlað að 35—40 þús. manns fái þannig
aftur frelsi sitt.
Eina sldlyrðið, sem sett er fyrir sýkn-
uninni er að fangamir taki sjer ekki
bólfestu aftur í grend við fyrri átthaga
sína.