Morgunblaðið - 02.04.1941, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 2. apríl 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
Aðalf undur Skaft-
fellingafjelagsins
Aðalfundur Skaftfellingafje-
lagsins hjer í Reykjavík
var haldinn að Hótel Island
föstudaginn 28. þ. m. Var fund-
urinn mjög fjölmennur.
1 byrjun fundar mintist for-
maður fjelagsstjórnarinnar,
Hjalti Jónsson, með nokkrum
orðum sjómannanna, sem látið
hafa lífið undanfarið og sjer-
staklega þeirra Skaftfellinga,
sem druknað hafa, en sú sýsla
hefir sem kunnugt er goldið
mikið afhroð. Fundarmenn risu
úr sætum til minningar um hina
látnu.
Þvínæst hófust hin venjulegu
aðalfundarstörf. Stjórnin gaf
skýrslu um störfin á liðnu starfs-
ári og lagði fram reikninga. Var
stjórnin öll endurkosin.
Á fundinum voru kjörnir 5
heiðursfjelagar, þeir Hjalti
Jónsson framkvæmdastjóri,
Gísli Sveinsson sýslumaður, Lár-
UÍS Helgason bóndi, Kirkjubæj-
arklaustri, Sigurður Jónsson
bóndi Stafafelli og Þorleifur
Jónsson fyrv. alþm. í Hólum.
Gísli Sveinsson var mættur á
fundinum og þakkaði þenna
sóma f. h. sína og hinna fjar-
stöddu Skaftfellinga.
Er fundarstörfunum var lok-
ið, skemti fólk sjer við söng,
-dans og spil fram til kl. 2.
s lí
Kaupum
I Selskinn og Kanínuskinn |
hæsta verði.
M AGNI,
Þingholtsstræti 23.
Sími 1707 (2 línur).
]ll!ll!lllll!lll!l!ll!ll<lllll!ll!llllllllllllll!ll!!!ll!!l!ll!ll!i!!!lll1
SkíOamút á Húsavfk
Frá frjettaritara vorum
í Húsavík.
Okíðamótið í Húsavík helt áfram
^ á sunnudag og var veður á-
gætt. Kepnin í svigi hófst kl. 2
og urðu úrslit þessi:
1. Gunnar Sigurðsson (Völsung-
ur) 77.8 sek., 2. Steingrímur Birg-
isson (Völsungur) 84.8 sek., 3.
Stefán Sv. Guðjohnsen (Völsung-
ur) 84.9.
f svigi var flokkakepni um svig-
bikar, gefinn af 12 Húsvíkingum
í Reykjavík, og unnu Völsungar
hann.
Stökk hófust kl. 5, og urðu íír-
slit þessi:
1. Birgir Lúðvíksson (Völsung-
ur), stökk 19.5 og 20 metra, 211.5
stig,- 2. Sigurður Jónsson (íþrótta-
fjelag Reykdæla), 17 og 20 m.,
208.5 stig; 3. Gunnar Sigurðsson
(Völsungar) 19.5 og 20 m., 208.2
stig.
Lengsta stökk sem hægt hefði
verið að stökkva á stökkbrautinni
var ca. 24 metrar.
í samanlagðri göngu og stökki
var veitt iiorn að verðlaunum og
nafnbótin Skíðakapjji Þingeyinga,
og hlaut hann nú Jón Jónsson úr
íþróttafjelagi Reykdæla.
í 18 km. göngunni var kept um
,,K. Þ. bikarinn“, gefinn af Kaup-
fjelagi Þingeyinga, og vann hann,
eins og áður er um getið, Ung-
mennafjelagið „Gaman og alvara“,
Köldukinn.
Mótið fór hið besta fram.
Asmara
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
þar til Massawa, síðasta mikilvæga
hafnarborg ítala í Austur-Afríku, fell-
ur einnig. Massawa er 60—70 kin. fyrir
vestan Asmara.
En með töku Asmara opnast Bretum
enn ný IeiS til sóknar inn í Abyssiníu,
eftir ágætum vegi, sem ftalir hafa
lagt frá Asmara til Addis Abeba. Vega-
lengdin frá Asmara til Addis Abeba
er 700 til 800 kílómetrar. Breski
flugherinn hefir undanfarið verið á
sveimi yfir þessum slóðum ,meðal ann-
ars var gerð loftárás á Dessye fyrir
nokkru. ítölsku hersveitimar sem tóku
Addis-Abeba árið 1936 komu einmitt
þessa leið.
En Addis Abeba er hætta búin úr
fleiri áttum. Bresku hersveitimar, sem
tóku Diredawa um síðustu helgi, sækja
nú vestur á bóginn eftir jámbrautinni og
þjóðveginum í áttina til Hawasa-
fljótsins (þar sem búist er við að ítalir
reyni a8 veita viðnám) og til Addis
Abeba.
HandknattleikamútiO
A laugardagskvöldið s.l. helt
^ handknattleiksmótið á-
fram. Fór þá fyrst fram leikur
milli Vals og Víkings í 2. fl.
Leikar fóru svo, að Valur sigr-
aði með 20:15.
Þá fór fram leikur milli Ár-
manns og F. H. í 1. fl.. Lauk
þeim leik með sigri Ármanns
25:24.
f fyrrakvöld keptu svo A-lið
K.R. og B-lið K.R. í 2. fl. Ljek
A-liðið mun betur, hafði örugg-
ari samleik og meiri hraða.
Mesta eftirtekt vakti minsti
leikmaðurinn í A-liðinu, Finn-
bogi Guðmundsson.
Strax á eftir fór fram leikur
milli Hauka og Í.R. í 1. fl. Leik-
urinn var frá upphafi til enda
mjög hraður og spennandi, en
full harður á köflum. Lauk
leiknum með sigri Hauka 26 :22.
í gærkvöldi hjelt svo mótið á-
fram. Keptu fyrst Ármann og
Haukar 2. fl.; lauk leiknum með
sigrí Ái’manns 24:14, eftir skemti-
legan og vel leikinn leik.
Þá fór fram kepni milli A- og
B-liðs Ármanns í kvenflokki. Leik-
ur þessi var daufur og frekar leið-
inlegur, sem stafaði fyrst og
fremst af því, hve mikið sterkara
A-liðið var. Þrátt fyrir mikinn
markamismun, 29:5, er styrkleika-
mismunurinn ekki’ rjettur, þar sem
auðsjeð var, að A-liðið lá all-
veriilega á liði sínu.
Að lokum keptu í. R. og Fram
í 1. fl. sigraði í. R., 21:17. Leikur
þessi var illa leikinn, og jafnvel
full hrottalegur á köflum. Áber-
andi skortur var á allri leikni og
knattmeðferð hjá Fram. en hjá
t. R.-ingunum bar stundum á ó-
þarfa hrottamensku.
I kvöld heldur mótið áfram,
keppa þá fyrst Víkingur og K. R
A-lið í 2. fl. og þá B-lið Vals og
Haukar 1. fl. S.
»RáðherrarM
fara að herfa
IVr or;sI;;l frjettastofan í London skýr-
” ir frá því samkvæmt fregn frá
Osló, að Quisling-ráðherramir Jonas
Lie, og Sverre Risnæs sjeu famir til
Þýskalands til þess að ganga í minsta
herfylkið „NordIand“.
Til bráðabirgða hafa aðrir menn
verið settir til að gegna störfum þeirra.
í Osló saknar þeirra sennilega enginn
(bætir frjettastofan við).
All cívílían Brítísh subjects
resident in the Reykjavik area are requested to
register at the British Consulate General, Þórs-
hamar, Templarasund, Reykjavik, and to call for
this purpose with their passports at their early
convenience, between the hours of 10—12 and 2—5
(except Saturdays).
Brítísh Consulate General
Ðagbók
□ Edda 5941447 = 2
Næturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12. Sími
2234.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni.
Föstuguðsþjónusta í Dómkirkj-
unni í kvöld kl. 8.30. Síra Friðrik
Hallgrímsson prjedikar.
Föstumessa í Fríkirkjunni í
kvöld kl. 8.15, sr. Árni Sigurðsson.
70 ára verður í dag frú Guð-
ríður R. Bjarnadóttir, Sölfhóls-
götu 14.
Hjónaefni. Nýlega hafa opiiiber-
uðu trúlofun sína ungfrú Guðrún
Jónsdóttir, Njálsgötu 43, og Ein-
ar Sæmundsson, Bergstaðastræti 2.
Bæjarstjórnarfundur verður hald
inn á morgun kl. 5 e. h. í Kaup-
þingssalnum. 11 mál eru á dag-
skrá.
Silungapollur. Vegna ástands-
ins byrjar barnaheimili Oddfell-
©wa við Silungapoll starfsemi sína
miklu fyr í ár en venjulega. Þeir,
sem vilja koma börnum sínum þar
fyrir, þurfa að senda umsóknir
fyrir 8. þ. inán.
Tónlistarfjelagið og Leikfjelag
Reykjavíkur sýna óperettuna
,,Nitouche“ í kvöld.
Revýan ,Hver maður sinn skamt'
verður næst sýnd annað kvöld.
Sökum þess hve margar leiksýn-
ingar eru á ferðinni í sama hús-
inu, verður ekki hægt að sýna
revýuna aftur fyr en eftir páska.
Eftirtöldum mönnum hefir bygg
inganefnd veitt viðurkenning til
að tanda fyrir húsasmíði í Reykja-
vík: Sem trjesmiðir: Bergþór ÓI-
afsosn Theodórs, Hávallagötu 48;
Páll Kristjánsson, Njálsgötu 6, og
Páll B. Oddsson, Mímisveg 2. Sem
Múrarar: Ásmundur Ólason, Hring
braut 34, og Kristján Kr. Skag-
fjörð, Njálsgötu 87.
Samþyktir sjómanna í Hafnar-
firði. I sambandi við frjettina af
sjómannafundinum í Hafnarfirði £
blaðinu í gær, skal það tekið fram,
að það voru eingöngu sjómenn,
sem vinna á Hafnarfjarðartogur-
unum, sem samþyktu að sigla ekki
áfram nema þeir fengju greidda
áhættuþóknun. Áður um kvöldið
hafði verið haldinn fundur í Sjó-
mannafjelagi Hafnarfjarðar, en sá
fundur tók enga afstöðu til þessa
máls.
IJtvarpið í dag:
15.30 Miðdegisútvarp.
20.00 Frjettir.
20.20 Föstumessa í dómkirkjunni
(síra Friðrik Hallgrímsson). —
Sálmar nr. 30, vers 8—12, 31,
vers 7—12, 33, vers 10—13 og
34, vers 9—11.
21.20 Útvarpshljómsveitin: Laga-
syrpa eftir Suppé.
21.50 Frjettir.
Siglingar.
Vjer höfum 3—4 skip stöðugt í förum milli vestur-
strandar Englands og íslands. Tilkynningar um vörur
sendist (
Culliford & Clark Ltd.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD,
eða
Geir H. Zoéga
Símar 1964 og 4017,
ER GEFUR FREKARI UPPLÝSINGAR.
Cífrónur
eru væntanlegar eftir nokkra daga.
Eggert Kristjánsson & Co. h.L
Sími 1400.
Jarðarför systur okkar,
ÖNNU EIRÍKSDÓTTUR,
frá Litlu-Háeyri, fer fram frá Fríkirkjunni fimtudaginn 3. apríl
og hefst með húskveðju að Leifsgötn 11 kl. 1 e. h.
Fyrir hönd syátkinanna.
Einar Eiríksson.
Jarðarför sonar mins,
SIGURJÓNS JÓNSSONAR,
læknanema, fer fram fimtudaginn 3. apríl og hefst með hús-
kveðju að Skarphjeðinsgötu 4 kl. 10.30 f. hád.
María Sigurbjörnsdóttir.
EF LOFTUR GETUR ÞAD
EKKl — — ÞÁ HVER?