Morgunblaðið - 23.09.1941, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.09.1941, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 23. sept. 1941. Vatnselgur teppir samgöngur undir Eyjaíjöilum Undanfarna daga hafa verið stórrigningar hjer á Suð- urlandi og mikill vöxtur í ám og vötnum. Hafa vegir víða skemst og sumstaðar svo, að samgöngui" hafa alveg tepst. Þannig hefir það orðið austur undir Bvjafjöllum, fyrir vestan Hrútafell. Þar komast bílar nú ekki lengur, vegna vatnselgs, sem brýst þar fram og hefir grafið sig í gegn um þjóðveginn. Komust bílar við illan leik þarna yfir á sunnudag, en í gær- morgun var þar orðið alófært fyr- ir bíla. Brúarsmiðir og vegavinnumenn voru komnir á staðinn, til þess að lagfæra þetta. Verður að setja þarna. bráðabirgðabrú. En það verður erfitt að vinna að þessu, vegna þess að stöðugt rignir og vatnselgurinn verður æ meiri. Hinsvegar er það mjög bagalegt, ef lengi verður ófært fyrir bíla, því að kjötflutningar eru byrjaðir austan úr Vík í Mýrdal. -—w— !T Heræfingar Breska herstjórnin gefur til kynna: T T eræfingar fara fram 23. til 25. september á suðurströnd Hvalfjarðar, á svæðinu milli Lax- ár _og Brautarholts, Álafoss, Geit- hál's og að Esju. Á meðan heræfingar fara fram verða eftirfarandi vegir ef til vill að mestu uppteknir vegna æfing- anna: a) Vegurinn frá Laxárbrú til Álafoss, Brautarholts, Saurbæjar, Útskálahamars, Laxár. b) Vegurinn Álafóss—Þingvell- Ir sunnan megin Esju að Leir- vogsvatni. ★ Frá kl. 9.00 f. h. í dag, þriðju- dag 23. september 1941 verður setfc ur farartálmi, þar sem vegurinn sunnan Hvalfjarðar byrjar. Innan við þennan farartálma er bannað að hafa með sjer myndavjel, nema hún hafi áður verið innsigluð af skrifstofu hjá „Base Censor“, i Laugavegi 67 A, Reykjavík. Ný bók Frá Líkn, Templarasundi 3. Bólusetning barna gegn barna- veiki hefst aftur og fer fram þriðjudaga og föstudaga kl. 6—7 síðdegis. Hringja verður fyrst í síma 5967 á þriðjudögum kl. 11 —12. AUG AÐ hvílist með gleraugum frá THIELE Samtíð 09 saga Um leið og háskólinn flutti í hin nýju húsakynni sín, sköpuðust honurn skilyrði til víð- tækari starfsemi en áður. Hefir háskólinn, sem kunnugt er, nú allmjög aukið starfsvið sitt, með því að bæta við mörgum nýjum kenslugreinum, svo sem kenslu í verkfræði, viðskiftafræði, tanu- lækningum. En jafnframt því hef- ir háskólinn nú betra tækifæri til þess að sinna öðrum en þeim, sem beinlínis stunda. þar nám. 1 fyrra- vetur var tekin upp sú nýbreytni, að háskólakennarar fluttu fyrir- Iestra fyrir almenning í hátíða- salnum. Var þeim tekið afarvel og var aðsókn svo mikil, að stundum urðu fleiri frá að hverfa en að komust. Nú í dag, á 700. ártíðardegi Snorra Sturlusonar, um leið og háskólinn heldur um hann minn- ingarhátíð, koma þessir fyrir- lestrar fyrir almennings sjónir, gefnir út af ísafoldarprentsmiðju. Hefir þeim verið valinn titillinn „Samtíð og saga“, og segir hann til um efni fyrirlestranna, þeir taka til meðferðar jöfnum hönd- um efni úr sögu landsins og við- fangsefnum samtíðarinnar. Eru 2 heimspekilegs efnis, 2 um söguleg efni, 2 um efni úr læknisfræði og 2 úr lögfræði. Höfundarnir eru prófessorarnir dr. Ágúst H. Bjarna. son (2), Ólafur Lárusson (2), Niels Dungal, Guðmundur Thor- oddsen, dr. Magnús Jónsson og dr. Sigurður Nordal. T vetur verða fluttir fyrirlestr- ar í háskólanum með sama sniði' (í hátíðasalnum á sunnudögum) og er til þess ætlast, að þeir verði síðan gefnir út með sama hætti. Skipatjón Itala I tilkynningu bresku herstjórn- ■- arinnar í Kairo í gær var skýrt frá árás breskra kafbáta á ítalska skipalest á vesturhluta Miðjárðarhafs. Voru þrjú skip í skipaflotanum og tókst hinum bresku kafbátum að hæfa 2 þeirra og sökkva þeim. Var annað skipanna um 20 þús. smálestir að stærð, en hitt 24 þús. smálestir. Var í tilkynningunni talið, að skip þessi hefðu verið meðal hinna vönduðustu 'farþegaskipa, sem ít- alir eiga. Höfðu þau verið tekin til flutninga í þágu hersins. Úrslitakappleik í Walterskepn- inni var frestað á sunnudaginn vegna bleytu á vellinum, og verð- ur kepnin líklega n.k. sunnudag. Hinn árlegi dansleikur, sem knattspyrnumenn halda að aflokn- um piótum, verður haldinn í Odd- fellow á laugardaginn kemur. Ungur verslunarmaður getur fengið atvinnu við afgreiðslustörf við eina af stærri verslunum bæjarins. Eiginhandarumsókn ásamt meðmælum sendist afgreiðslu þessa blaðs . fyrir 25. sept., merkt „Duglegur“. Snorrahátíðin í Reykholti FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. ið máli sínu, las St. Jóh. Stefáns- son upp skeyti er Sv. Björnssyni ríkisstjóra hafði borist frá Joh. Nygaardsvold forsætisráðherra norsku ríkisstjórnarinnar í til- efni Snorrahátíðarinnar. Skeyt- ið var á þessa leið: ,,Fyrir hönd norsku ríkis- stjórnarinnar sendi jeg yður al- úðarkveðjur í tilefni af minn- ingarhátíð á 700. ártíð Snorra Sturlusonar. Noregskonunga- sögur Snorra Sturlsonar hafa verið stórum mikilsverðar fyr- ir þroska þjóðlegs lífs og menn- ingar með Norðmönnum. f sorta þeim, sem nú grúfir yfir þjóðinni lifa minningarnar um fornsögur vorar máttugra lífi en nokkru sinni fyr. Þess vegna berum vjer í brjósti hugheilustu þakk- látssemi til hins mikla íslenska höfðingja, er gaf okkur sögur vorra öldnu konunga. ijohan Nygaardsvold“. forsætisráðh. Norðmanna. Þá flutti sendiherra Norð- roanna, Esmark, ávarp á ís- lensku. Hann skýrði frá fjársöfnun Snorranefndarinnar í Noregi til kaupa á standmynd af Snorra, en sagði að það yrði að bíða vegna styrjaldarinnar, að hægt yrði að afhenda þessa stand- mynd og sýna þenna vitnisburð mikillar virðingar fyrir verkum Snorra. — Hann kvaðst vonast eftir því, að þau bönd, sem tengt hafa Norðmenn og ís lendinga, ættu eftir að tengja þjóðirnar saman á ókomnum ár- *wm. Árni Pálsson mælti nokkur orð fyrir minni Noregs. Þegar hjer var komið skýi;ði formaður- Snorranefndar frá því, að frá ríkisstjóra íslands hefði borist svohljóðandi skeyti: Frá ríkisstjóra íslands barst samkomunni svohljóðandi skeyti: Hugur minn er bundinn við Snorra, Reykholt og það, sehi þar fer fram í dag. Alúðarkveðjur Sveinn Björnsson ríkisstjóri' íslands. Áður en samkomunni var slit- ið flutti Halldór Helgason skáld að Ásbjarnarstöðum snjalt kvæði um Snorra, var síðan gengið út og allir gest-< lirnir kvfcikmynda(|ir. Lagt var af stað frá Reykholti klukkan laust eftir 5 e. h. Gert hafði verið ráð fyrir, að Esja“ flytti gestina frá Borgar- nesi. En vegna aftaka roks hafði Esja ekki komist upp í Borgar- nes. Varð það að ráði að „Lax- foss“, sem var á förum til Reykja- víkur, fluttí gestina út á miðjan fjörðinn. Við Miðfjarðarsker lá „Esja“, og þótt rok væri talsvert, síbyrti Laxfoss við Esju og fóru gestir um borð í Esju. Var sest þar að snæðingi og komið hingað kl. 12 á miðnætti. 'OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO 0 o ÞaR sem jeg hefi nú aflað mjer að- o stöðu til verslunarreksturs hjer í Banda- £ ríkjunum og Canada, leyfi jeg mjer að o bjóða aðstoð mína við kaup á vörum o o í stærri stíl og sölu íslenskra afurða með hagkvæmum kjörum. Skrifstofa mín í Reykjavík veitir einnig pöntunum móttöku og gefur upplýsingar Gaiðar Gítlason 52 Wall Street New York N.Y. Símnefni: „Gíslason“ New York. ooooooooooooooooooooooooooo<>oooooooo< Óperettan Nitouche verðnr sýnd annað kvöld og hefst sala aðgöngu miða kl. 4 í dag. FLORA MIKIÐ OG FAGURT ÚRVAL AF Pottapiöntum FLÓRA ♦ > ♦ > ♦> ♦> o «.♦ «> ♦> *>*:♦ Kven-rykfrakkarnir komnir aflur Verslunin HOF t ? t r x X * | Laugaveg 4. X t Garðyrkjusýnjngin Útborgun reikninga vegna garðyrkjusýn- ingarinnar fer fram í sýningarskálanum í dag og á morgun kl. 2—5 síðd. Skrifstofustúlka Stúlka með góðu verslunar eða kvennaskólaprófi, sem skrifar góða rithönd og kann vjelritun, getur fengið at- vinnu nú þegar. Umsókn, ásamt afriti af prófskírteini og meðmælum ef til eru, sendist afgreiðslu þessa blaðs fyrir 27. þ. m., merkt „Skrifstofustúlka“. BEST AÐ AUGLYSA 1 MORGUNBLAÐINU. oooooooooooooooooooooooooooooooooooooo

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.