Morgunblaðið - 23.09.1941, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.09.1941, Blaðsíða 7
Þriðjudaffur 23. sept. 1941. MORGÚNBLAÐ í 0 Snorra Sturlu- sonar minst í Há- skólanum í dag dag og á morgun verður haldin sýning í Háskólan- um í tilefni af sjö hundruðustu ártíð Snorra Sturlusonar. Verða þar sýndar helstu útgáfur af rit- um Snorra, kveðskap hans, bæði íslenskar útgáfur og þýðingar. Sömuleiðis rit hans, heimildir um ævi Snorra, rit um Snorra og verk hans. Sýningin er aðal- lega fyrir fræðimenn og aðra, sem áhuga hafa fyrir þessuin iræðum. Hún er opin fyrir al- menning í dag og á morgun frá kl. 5—7 og 8—10. í, dag kl. 2 verður haldin minningarathöfn í Háskólan- um. Rektor Háskólans flytur þar ávarp, prófessor Sigurður Nordal erindi og Lárus Pálsson leikari les kvæði, Snorraminni eftir Einar Benediktsson. —- 25 manna hljómsveit leikur og 30 rnanna kór syngur undir stjórn Páls ísólfssonar og verður m. a. leikið nýtt lag eftir Hallgrím Helgason. Stðdentaíjelag Reykja víkur boOar til fundar um siðferðismálin Stúdentafjelag Reykjavíkur hefir ákveðið að boða til al- menns stúdentafundar n.k. fimtu- dag um siðferðis- og þjóðernis- mál. Verður fundurinn haldinn í stærsta fyrirlestrasal Háskólans og hefst kl. 8i/2 e. h. Prummæl- andi verður dr. Broddi Jóhannes- • son, en hann var einn þeirra þriggja manna, sem sæti áttu í hinni svokölluðu „ástandsnefnd11. Er nefndinni allri sjerstaklega boðin fundarseta og auk hennar ennfremur dómsmálaráðherra, ut- anríkismálaráðherra, lögreglu- stjóra, barnavarndarnefnd og kon- um þeim, sem kjörnar voru til þess að segja álit sitt um tillögur og greinargerðir „ástandsnefndar- innar“. Má vænta þess, að ályktanir verði gerðar mn þessi mál á fund- inum. Er það vel til fallið, að Stú- dentafjelagið beiti sjer fyrir þvi, að einhver skriður komi á fram- kvæmdir, sem stuðli að því að þjóðin geri sjer ljóst, hve geig- vænleg hætta felst í því ástandi, sem er að skapast í iandinu og raunar hefir shapast nú þegar. Má þúast við að Stúdentar eldri og yngri' fjölmenni á fund Stúdentaf jelagsins, er þessi al- varlegu mál eru tekin til með- ferðar. Reykholts-máldagi. Ljósprentun af þessu elsta liandriti, sem geymt er á þjóð skjalasafninu, er í dag seld í til- efni 700 ára afmælis Snorra Sturlusonar. Ljósprentunin kostar ]0 krónur. Bókaverslun ísafoldarprentsmiðju. Aukaþing? FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU lagi innlendra neysluvara, var út af fyrir sig góð og rjettmæt. En til þess að hugmyndin yrði fram- kvæmanleg, varð vitanlega hitt að fylgja með, að ríkisvaldið hefði eftirlit með verðlaginu. Eu þessu gekk Alþingi alveg framhjá, svo að iitkoman hlaut að verða sú, að framleiðendur reyndu, hver um sig, að koma verðlagi sinnar vöru sem hæst upp, í von um að fá sem mesta upphót úr dýrtíðar- sjóði. Auðvitað gat þetta ekki haft aðrar afleiðingar en þær, að dýr- tíðin yxi nú hraðara en nokkru sinnj áður, sem og raun varð á. Og þar sem ríkisstjórnin sá sjer ekki fært að grípa í taumana, með öruggu eftirliti með verðlaginu, var ekki annað iirræði fyrir hana en að gefast ■ alveg upp við að framkvæma dýrtíðarlögin. Þennan kostinn valdi hún. Og nú hefir ríkisstjórnin í hyggju að kasta málinu aftur í Alþingi'. Alt er þetta ein samfeld raunasaga. En dýrtíðin mun halda áfram að vaxa, jafnt og þjett. Og verði ekkert aðgert, til þess að vinna bug á þessuin vágest, verður það dýrtíðin, sem skapar nýtt hrun hjá okkar atvinnuvegum. Satt að segja höfum vjer ekki mikla trú á, að Alþingi geti levst dýrtíðarmálin svo, að nokkurt gagn verði að. Ekki gat það leyst þau í júnímánuði’ og ósennilegt, að það hafi vitkast mjög síðan. Eins og mál þessi standa nú er eina úrræðið, að hækka gengi krónunnar og koma á öflugu eft- irliti með verðlagi nauðsynja, inn- lendra og erlendra. Bardagarnir i Rússlandi FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. heldur gagnsókn Timoschenkos áfram. Segir í herstjórnartil- kynningu Rússa að þeir hafi tek- ið 32 þorp á þessum slóðum síð- astliðna tvo daga. Er látið í veðri vaka í Moskva, að svo kunni að fara, að Rússar nái Smolensk á sitt vald aftur fljótlega. Þýskir fangar, sem teknir hafa verið á þessum slóðum, lýsa að- stöðuþýska hersins þarpa með ó- fögrum orðum. Segja þeir, að svo mikill hluti hersins hafi verið fluttur á aðrar vígstöðvar til þess að reyna að knýja þar fram úrslit í leiftursókn, að auðsætt sje að Smolensk verði ekki' haldið. LENINGRAD Á Leningradvígstöðvunum til- kynna Þjóðverjar áframhaldandi sókn, en Rússar segjast hinsvegar hafa unnið þar á og hafa hrakið Þjóðverja fjær borginni. Ilefir floti Rússa tekið þátt í hernaðaraðgerðum gegn hersveit- um Þjóðverja, er sækja fram með ströndum Kirjálabotns frá Eist- landi. Þjóðverjar segjast hafa tekið eyna Ösel við Eistlandsströnd og sje Rússum að því mikill hnekkir. Dagbók •••••••••••• ••••••••••OO J Stuart 594Í9237 I. 0. O. F. Rb.st. nr. 1 Bþ. 909238i/2. Næturvörður er í Ingólfs Apó- teki og Laugavegs Apóteki. Sextugur er á morgun, 24. sept. Gí-ísli Daníelsson, Klapparstíg 9, Keflavík. Trúlofun sína liafa nýlega op- inberað ungfrú Svava Eyþórs, Sandgerði og Thomas William. Kvennadeild Slysavarnafjelags- ins í Hafnarfirði heldur fund í kvöld á Strandgötu 19. Til Hallgrímskirkju í Saurbæ: Prá Lárusi Björnssyni vinningur í Ilappdrættinu 100 kr. Með þakk- læti móttekið, Ól. B. Björnsson. Gjafir til væntanlegs liúsmæðra- skóla í Reykjavík: Frú Svanfríð- ur Hjartardóttir 2000 kr. Alþýðu- brauðgerðin 1000 kr. Kærar þakk- ir. — Vigdís Steingrímsdóttir. Áheit og gjafir til ekkjunnar með börnin: 3 mæðgur 20 kr. Ó- nefndur 10 kr. Áheit frá Huldu 10 kr. F. H. K. 10 kr. Frá fjöl- skvldu í Keflavík 50 kr. Áheit frá Á. 20 kr. Safnað á heimili 42 kr. Áheit frá í. D. 50 kr. Áheit frá í. Þ. í Keflavík 50 kr. Kærar þakkir. — Garðar Svavarsson. Til Strandarkirkju: M. A. (gam alt áheit) 10 kr, Jóhaim 5 kr„ S. J. 10 kr, J, P. 5 kr„ G. G. 10 kr,' M. E. 10 kr„ G. Ó. 10 kr. Heklufarar 5 kr„ B. J. 10 kr„ S- M. 5 kr, í. í. 15 kr„ ónefndur 10 kr„ B. G. 10 kr„ G. f. 5 kr„ Þórína 10 kr. N. N, 2,50, Ó. S 15. kr„ G. R. 2 kr. X. 2 kr. Útvarpið í dag: 12.00—13.00 Hádegisútvarp. 14.00 Útvarp frá minningarhátíð í Háskólanum: 700 ára dánar- dægur Snorra Sturlusonar. 19.30 Hljómplötur ; Lög eftir Gershwin. 20.00 Frjettir. 20.30 a) Frá Snorrahátíð í Révk- holti (H. Hjv.). b) „Víg Snorra Sturlusonar“; kvæði Matth. Jochumss. (Þorst. Ö. Stephensen les). c) Kaflar úr Heimskringlu. (Árni Pálsson prófessor). d) fslensk lög. 21.50 Frjettir. Elln Thorarensen 1 tilefni af sextugs- afmæli Sextíu ár þótt eigir að baki Enn er þjer ljett um dagsins önn, hvert skyldustarf þú tekur taki og tökin eru rjett og sönn. Hefur þitt starf að hefðársið, hálfgert verk aldrei skilur við. Vinsæl um alla æfi-daga með ógætum hefir verið þú, ■ mun um þig jafnan mæla saga, að' málstað þínum varstu trú. Geymast sú minning mun um þig, að manndáða hafir þræddan stig. Lífsgleði njóttu í löngu starfi, ljómi þjer dagsins tignar-brá, færi þjer þrótt af feðra arfi friðarins herra um daga þá, sem þú' átt eftir enn á jörð, um þig hann stöðugt haldi vörð. P. Jak. LITLA BILSTÍ8III Er nokkuS itór. UPPHITAÐIR BÍLAR. Lokaö til kl. 1 I dag vegna jarðar- farar. Viðtækjaverslun rikisins lækfargötu ÍOB. Viðtækjaútsalan Lækjargötu 8. Skrifstofum vorum er lokað I dag frá kl. ÍO árd. tii kl. 2 siðd. Túbakseinkasala rfkisins. Móðir okkar KRISTÍN ODDSDÓTTIR frá Þórustöðum andaðist að Elliheimilinu Grund þann 20. þ. m. Börn hinnaj: látnu. Jarðarför elsku litlu dóttur minnar og systur okkar ELÍSU HJÖRDÍSAR fer fram frá dómkirkjunni fimtud. 25. þ. m. Athöfnin hefst . - með bæn á heimili okkar Grund við Langholtsveg kl. 2% e- h. Fyrir mína hönd og systkina hinnar látnu Guðrún Hjörleifsdóttir. Jarðarför konunnar minnar, móður og tengdamóður okkar GUÐRÚNAR ÁSGEIRSDÓTTUR fer fram frá dómkirkjunni fimtudaginn 25. þ. m. og hefst með húskveðju að heimili hennar, Bragagötu 38, kl. l'i/2 e. h. Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum. Stefán Runólfsson. Guðmundína Stefánsd. Valgarður Stefánsson. Ragnheiður Jónsd. Kjartan Stefánsson. Þökkum fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður okkar og tengdaföður þórðar edilonssonar . ’ hjeraðslæknis. Ben, Gröndal. Gunnar Þórðarson. Halldóra Gröndal. Guðlaug Þorsteinsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarð- arför föður okkar og tengdaföður JÓNS GUDMUNDSSONAR frá Gamla-Hrauni. Börn og tengdabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.