Morgunblaðið - 18.12.1941, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.12.1941, Blaðsíða 5
JFImtudagur 18. des. 1941. QVQtmblatób Útfet.: H.f. Árvakar, R«ykJ»vlk. Kltatjörar: Jön KJartanaaon, Valtýr Stefánsson (ábTTKÖarm.). Auglýsingar: Árni Óla. Bltatjörn, auglýsingar og afgrrelQsla: Austurstræti 8. — Slnl 1600. Áakriftargjald: kr. 4,00 á mánutSl innanlands, kr. 4,60 utanlanda. 1 lausasölu: 26 aura elntakiB, 30 aura meC Leabök. Samþyktir Knattspymu GlBymum ekki AÐ hafa verið birt ávörp til Reykvíkinga og þeir ihvattir til að rjetta hjálparhönd þeim nú um jólin, sem erfiðasta hafa aðstöðu og minstu úr að spila. Þessi ávörp hafa komið frá Vetrarhjálpinni og Mæðra- styrksnefndinni. Einhver kynni ef til vill að efast um, að slíkar hjálpar- beiðnir ættu við rök að styðjast á þessum tímum, þar sem pen- ingarnir flæða nú yfir landið í stríðum straumum. En það eru til margir ein- staklingar, fjölskyldufeður og mæður í þessu bæjarfjelagi, er peningaflóðið nær ekki til. En það er annað, sem nær til þessa fólks, engu síður en hins, sem meira hefir úr að spila. Það er dýrtíðin, sem vex stöðugt. Vetrarhjálpinni hafa þegar borist um 300 hjálparbeiðnir. Þessar beiðnir eru að heita má eingöngu frá eldra fólki, sem getur ekki stundað erfiðisvinnu cg hefir því ekki annað sjer og sínum til lifsframfæris en elli- iaun og örorkubætur. Hver og -einn getur sagt sjer sjálfur, að nessi framlög ná skamt í dýr- tíðinni, sem nú ríkir. Það verð- ur lítii tilbreyting hjá þessu fólki um jólin, ef þeir bæjarbú- ar, sem hafa betri afkomu og aðstöðu rjetta því ekki hjálpar- hönd. Mæðrastyrksnefndin veit eg um margar einstæðings mæður, sem litlu hafa úr að spila, en hana langar til að -gleðja nú um jólin. Því ber hinsvegar að fagna, -a.ð afkoman hjá meginþorra manna er nú betri en mörg und- anfarin ár. Og þeir eru margir, sem haf^ nú miklu meira fje handa milli en nokkru sinni áð- ur. En þetta ætti þá líka að =tuðla að því, að enginn þurfi að líða skoi*t um þessi jól og allir geti haft tilbreytingu há- væri það ekki vansalaust, ef tíðisdagana. Og satt að segja menn gleymdnu nú skyldunni við þá samborgara, sem hafa •cngin úrræði til þess að gera sjer dagamun á jólunum. Hvers virði er þjer jólahátíð í alls- nægtum, ef þú veist af einhverj- um samborgara, sem fer á mis -við þetta alt, vegna þess að hann -getur ekkert veitt sjer og sín- um, umfram hinn daglega sult- .arskamt ? Góðir Reykvíkingar! Jólin -eru hátíð gleðinnar. Þau eru lýsandi viti í hinu dimma skammdegi. En það er ekki nóg að bjart sje ytra. Það verður -einnig að vera bjart innra — í lijarta hvers eínstaklings. — Þá f’vrst hverfur hið dimma skammdegi og gönn 'jöla-hátíð ríkir. Arsþingi knattspyrnumanna í Reykjavík lauk sunnudaginn 7. des. Meðal annars voru eftir- farandi tillögur samþyktar á þing inu: í slysatryggingar málinu. 1. Nefndin leggur til að K. R. R. verði falið að afla frekari upplýsinga og tilboða um þessi mál, enda leggi það niðurstöðuna fyrir aukaþing, ef það telur unt, að koma málinu í framkvæmd fyr- ir næsta sumar. Þá leggi nefndin til’við knattspyrnuþingið, að það skori á K. R. R. stjórn fþrótta- vallarins að sjá um, að framvegis verði útbiiin sjerstök slysastofa á Iþróttavellinum með nauðsynleg- ustu tækjum, svo sem sjúkrabör- um o. fl., til þess að veita fyrstu hjálp, ef slys ber að höndum. í öðrum málum voru þessar til- lögur samþyktar; 2. Þar sem allar horfur virðast vera á því, að fyrirhugað íþrótta- svæði við Eskihlíð verði tekið til annara nota, leggur ársþing knatt spyrnumanna eindregið til, að nú þegar verði ákveðinn staður undir íþróttavöll (stadion). Arsþingið skorar á bæjarstjórn Reykjavíkur að ákveða sem fyrst í samráði við fulltrúa íþróttafje- laganna í Reykjavík, stað fyrir og hefja undirbíining að æfinga- völlum fyrir almenning víðsvegar um bæinn, þar sem ákveðið muu, að taka æfingavöll yngri flokk- anna, undir byggingu, er nauð- synlegt að fá nýtt æfingasvæði í stað hans, og skörar ársþingið á bæjarstjórn að ákveða 'nú í vet- ur stað undir slíkan æfingavöll, í samráði við fulltrúa íþróttafje- laganna í Reykjavík, og hefja um leið vinriu á honum, svo að hann þingsins verði tiltækur til æfinga um leið og bygging hefst á gamla vell- inum. Ársþingið kýs þriggja manna nefnd til þess að starfa að vallarmótun bæjarins í samvinnu við aðra aðila til næsta ársþings. *3. í tilefni af því að hernaðar- aðgerðir hafa orðið þess valdandi, að hið fyrirhugaða íþróttasvæði bæjarins, hefir verið tekið til hernaðaraðgerða, lýsir knatt- spyrnuþingið' yfir vonbrigðum út af þessum ráðstöfunum, um leið og það mólmælir henni harðlegá. 4. Knattspyrnuþingið sam- þykti, að utanbæjarfjelög fái 6% af nettó ágóða þeirra leikja, sem' þaú taka þátt í við Reykjavlkur- fjelög. Keppi þau saman, fær hvort fjelag 40%, en mótanefnd 20% af nettó. 5. Knattspyrnuþingið samþykk- ir að ekki sje rjett að leyfa ieik- mönnum að keppa í eldri aldurs- flokki, nema samkvæmt sjerstöku vottorði íþróttanæknis. 6. Knáttspyrnuþingið samþykk- 3r, að veita verðlaunapeninga keppendum í þeim flokkum, sem sigra í Knattspyrnumóti íslands og Knattspyrnumóti Reykjavíkur. Ennfremur samþykkir þingið, að heimila K. R, R. að láta gera gripi, er fylgi sömu mótum, sem fjelögin eigi til endurminninga um sigra sína, í þessum mótum, enda greiði fjelögin kostnaðinn við gripina. 7. Knattspyrnuþingið samþykk- ir að kjósa 5 manna nefnd til þess að rannsaka, gaumgæfilega orsakir þess, að hjer í Reykjavík ríkir nú tilfinnanlegur skortur góðra knatt spymudómara. Að athugunum sín- um loknum, geri nefndin tillögur um, á hvaða hátt helst megi bæta úr í þessum efnum, og skili til- lögunum fyrir aukaþing, er vænt- anlega yrði haldið eigi síðar en í aprílmánuði næstkomandi. 8. Knattspyyrnuþingið 1941 á- lyktar, að rjett sje að kalla sam- an aukaþing eigi síðar en 15. apríl n. k., þar sem afgreidd verða þau mál, sem yfirstandandi þing hefir haft til ineðferðar, en eigi fengið fullnægjandi afgreiðslu, einkum þó mót, er sjerstaklega snertu knatt- spyrnuna í sumar. 9. Knattspyrnuþingið telur rjett, að skírteini Blaðamannafjelags ís- lands gildi framvegis sem aðgöngu miði að Knattspyrnukappleikjum í Reykjavík, enda hætti mótanefrid ir jafnframt að senda blöðum og iitvarpi sjerstaka aðgöngumiða. 10. Knattspyrnuþingið skorar á f. S. í., K. R. R., stjórnir knatt- spyrnufjelaganna, ritstjóra iþrótta blaðsins og íþróttaritstjóra blaða og útvárps, að taka höndum sam- an og útrýma hugtakinu „besti knattspyrnumaðurinn“, eða öðrum svipuðum titlum, því að það sam- rýmist hvorki hugsjón nje skipu- lagi knattspyrnuíþróttarinnar. 11. Ársþirig knattspyrnumanna, haldið í Reykjavík dagana 12. og 13. nóv. og 2. des 1941, skorar á ríkisstjórn íslands, að hlutast til við íþróttanefnd ríkisins, að fram lag nefndarinnar til Iþróttasam- Latínan, Linné og leiðin Agæt hugmynd var það hjá mag. Kristni Ármannssyni að hafa í iesbók sinni nokkur sýnis- horn af latínu einsog fræðimenn og ‘vísindamenn síðari tíma hafa ritað hana. Þó að sú stofnun, sem nú er kölluð mentaskóli, hjeti á mínum námsárum latínuskóli, og miklum tíma væri þar varið til latínunnar, þá var ekki borið við að kenna þar neitt um latínuna sem alþjóðlegt fræða- og vísinda- mál. — Jeg var að lesa í bók Kristins, fvrsta kaflann sem tekinn er upp úr náttúrufræði Linnés, og er liann á ýmsan hátt einkar fróðlegur. „Stjörnurnar eru mjög fjarlægir lýsandi líkamir“, segir Linné, og hann skiftir þeim í himintungl sem eru björt af eigin ljósi, einsog sólin og fastastjörnurnar sem eru ennþá lengra burtu frá oss, og svo reikistjörnur, sem fá Ijós sitt frá stjörnunum. Hjer er dálítið einkennilega að orði komist, þar sem ekki var kunnugt um neinar reikistjörnur nema þær, sem fá | ljós sitt frá sólinni. Einnig það er eftirtektarvert, að Linné tekur ekki beinlínis fram, að fastastjörn- urnar sjeu sólir. Það var á síðari hluta 16. aldar, sem Brúnó, einn af ágætustu heimspekingum, sem varið hafa, skildi þetta, og skrif- aði hina frægu setningu: Astra ultra Saturnum continue sensibilia, soles sunt (sjá Nýal s. 489). En þó var þessum orðum fyrst í stað enginn gaumur gefinn; jafnvel hiu ir miklu brautryðjendur í vísind- um, Galilei, ^Kepler, Tycho Brahe og Baeo, sem uppi voru samtímis þessum mesta vitfrömuði þeirra tíma, virðast ekki hafa veitt neina eftirtekt orðunum, sem á svo ó- vænt stórkostlegan liátt miðuðu til að færa út þekkingarsvið mannkynsins. Og jafnvel öll 17. öldin leið án þess að menn upp- götvuðu þessi orð. Því miður veit jeg ekki hver það var, sem fyrst gerði hinn stórkostlega skilning Brúnós á stjörnuheiminum að sín- um, en ef einhver af lesendum mínum veit það, þá væri vel gert að segja frá því. Ennþá fróðlegri en það sem Linné segir um stjörnurnar, eru orð hans um manninn, sem hann kallar fullkomastan, æðstan og efstan alls hins skapaða. Hitt væri þó sönnu nær, að maðurinn sje vanskapaðasta og ófarsælasta skepna jarðarinnar. En þetta var mönnum ekki ljóst á Linnés dög- um og jafnvel löngu síðar. En að ) svo er kejnur af því, að maðurinn er tilraun til nýsköpunar, sem ekki hefir tekist .ennþá. Maðurinn á að verða svo fuHkominn að viti og orku, að hann geti að nokkru leyti tekið í sínar liendur sköp- unarverkið og stjórn náttúruafl- anna, að því er þessa jörð snertir. í þessu eiga rót sína hugmyndirn- ar um lausn eða björgun mann- kyns. Og er nú svo komið fyrir oss hjer á jörðu, að ekki má tæp- ara standa, ef ekki á al^erlega að mistakast tilraunin til að koma hjer upp vitveru, sem geti orðið nægilega fullkoriiin til að taka þátt í sköpunarverkinu eins og nauðsynlegt er (sbr. ritgerð þá, sem heitir „Björgun mannkyns- ins“ og er aðalkaflinn í bókinni Framnýal). Undarlegt virðist mjer, að vanta skuli í orðaþýðingarnar úr kakfla þessum orðin „stella“, „indicium11 og- „ultimus“. í lesbók- um er stórum betra. að iitskýring- ar og þýðingar sjeu heldur fleiri en færri. Þvíaðeins, að ekki sje vangert í þeim efnum, veitir lesbókin nægilega góða undirstöðu undir framhaldsnám. 30. okt. ’41 Helgi Pjeturss. bands íslauds verði að minsta kosti 25 þúsund krónur á ári. 12. Knattspyrnuþingið felur K. R. R.. að hefja þegar á næst.a starfsári undirbúing að söfnnn Kuattspyrnusögunnar hjer frá byrjun, með það fyrir augum að gefa það út á 25 ára afmæli K. R. R., sem er 29. maí 1944. Ráðið gefí skýrslu um gang málsins á næsta þingi. 13. Knattspyrnuþingið samþykk ir að keyptar verði nú þegar 3 dómaraklukkur, er verði til taks. þegar vormót hefjast á vori kom- anda. 14. Knattspyrnuþingið 1941 sara þykkir, að næsta reglnlegt knatt- spyrnuþing verði haldið í byrjan febrúarmánaðar 1943, í stað nóv- embermánaðar 1942. Á því þingi verði og tekin á- kvörðun um, hvort knattspyrnu- þingið skuli ekki framvegis kallað saman í febrúarmánuði, með til- li.ti til þess, að knattspyi-nnmenn hafi þá betri tíma til athugunar og afgreiðslu málanna, en á hanstin.. St jórnm álafundlr í Hreppum Samband SjálfstæBismanma í Árnessýslu boðaði til al- mennra stjórnmálafunda um síð- ustu helgi að Ásaskóla í Gnúp- verjahreppi og að Plúðum í Hrunamannahreppi. Fyrri fundurinn var haldinn í Gnúpverjahreppi. Steinþór Gests- son frá Hæli, formaður Sjálí- stæðisfjelags Gnúpverjahr., setti fundinn. Fundarstjóri var Páíl Stefánsson, oddviti, ÁsólfsstöðunD. Á fundinum mættu fulltrúar mið- stjórnar Sjálfstæðisflokksins, þei- Eiríkur Einarsson, alþm., Bjarari Benediktsson, borgarstjóri og Jó- hann Hafstein, logfræðingur. Fluttu þeir ítarlegar ræður um stjórnmálaviðhorfið, og var gerður góður rómur að máli þeirra. Því næst fóru fram frjáls ræðuhöld og tóku þá til máls: Brynjðlfur Melsteð, bóndi að Stóra-Hofi, Einar Gestsson, bóndi, Hæli, Guð- jón Ólafsson, bóndi, Stóra-Hofi og að lokum Páll Stefánsson, Ásólfs- stöðum. Síðari fundinum, í Hrunamanna hreppi, stjórnaði Helgi Kjartans- son, bóndi að Hvammi'. Ræður fluttu sömu fulltrúar miðstjómar Sjálfstæðisflokksins. Báðir fundirnir fóru prýðilega fram. Leyndi það sjer ekki, að bændum þótti lítt um tiltektir Framsóknar í dýrtíðarmálunum og „ábyrgðarleysis“-hjúpinn, sem for sætisráðherra steypti yfir sig og flokksmenn sína A’ið myndun hinn- ar nýju samstjórnar. Fundirnir voru eftir atvikum mjög vel sóttir, en mestu áhyggju- efni bænda þar eystra, hversu erfiðlega gengur að fá fólk til sveitavinnunnar, enda svo hörmir- lega komið, að flestir eru nú að- eins einyrkjar — og geta naum- ast skroppið nokkuð frá búununu þó að ekki sje nema daghluta. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.