Morgunblaðið - 10.03.1942, Side 5
f»riðjudagur 10. mars 1942.
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
• Prámkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar:
JÖn Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgCarm.).
; Auglýsingar: Árni Óla.
. Rit«tjörn, auglýsingar og afgreiTSsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald: kr. 4,00 á mánuSi
innanlands, kr. 4,50 utanlands.
\ f lausasölu: 25 aura eintakiö,
30 aura með Lesbók.
Flóttinn frá
málefnunum
Umræður þær, sem nú standa
yfir vegna bæjarstjórnar-
ikosninganiia hjer í Reykjavík
hafa itdki'ð á sig -sjerkennilega
smynfl i biöðum andstæðinga
íSjátfktæðisflokksins. Það sama
kom fram í útvarpsumræðunum á
•dögunum. Allir flokkarnir þrír
Ihafa bið sameiginlega áhugamál,
•að níða niður stjórn Sjálfstæðis-
manna á bænum. Væri líklegt, að
aðalefnið í ræðum þeirra og
greinum væri þá þetta.
ÍBn svo er ekki. Andstöðuflokk-
;ar þessir stagast sífelt á málum,
-sem meirihluti bæjarstjórnarinnar
flefir engin áhrif á, svo sem ýms-
mm 'þeim, er nú liggja fyrir Al-
iþingi.
Bn þegar þeir tala um bæjar-
-ímálin, þá grafa þeir upp ummæli
• dáinna manna, úr gömhim þing-
tíðinduin, til þess að benda á, að
Iþessir látnu'heiðursmerra hafi ver-
íð an'dstæðingar vinstriflokkanna
í málefnum Reykjavíkurbæjar.
Sumir 'þessara þingmanna, sem
Títóðumenn vinstri flokkanna höfðu
á milli tanna sjer í útvarpinu,
hafa aldrei verið í bæjarstjórn
Reykjavíkur, og engin afskifti
;kaft h'jer af bæjarmálefnum.
★
Þessi flótti vinstriflokkanna frá j
málefnálegum grundvelli sýnir
Ijóslega, hve erfiðlega gengur fyr
ir þessum mönnum að koma fram
rökfastri gagnrýni á stjórn
Reykjavíkurbæjar. Jafnframt er
hún sæmilega skýr mynd af
drengskap þeirra í málflutningi.
fslenskir kjósendur hafa alveg
sjerstakan viðbjóð á því, eins og
. allir vita, þegar f jarverandi mönn
um og öviðkomandi er blandað í
opinberar deilur. Bn þá þykir
lengst gengið, jiegar ummæli lát-
inna heiðursmanna eru grafin
í app í kosningaáróðursskyni. /
+
Maðurinn frá Isafirði hafði um
það mörg orð, að Reykjavíkur- j
tiær ætti of lítið af lóðum þeim,
sem bærinn stendur á. Rjett eins
og hann hjeldi, að núverandi
foæjarstjórn hefði lagt kapp á að
selja lóðir, eða þeir menn, sem
hafa haft þar úrslitavakl síðustu
árin. Veit hann sennilega ekki,
eða þykist ekki vita, að áratug-
nm saman hefir bæjarstjórn lagt
kapp á, að bærinn eignaðist bygg-
ingarlóðirnar, enda hefir nýbygð í
bænum nú um langt skeið svo til
■ einvörðungu farið fram á lóðum
foæjarins.
Er þetta tekið sem dæmi um
það, hvernig andstæðingar
Reykjavikur eru ráðalausir í gagn
rýni slnni, er jieir halda því
' fram, að meirihluti bæjarstjórnar
1 hafi alt aðrar stefnur og aðferðir,
- en bæjarstjóna hefir fylgt um
] langt, skeið.
B
t.
Framkoma anðstöðuflokk-
anna í bæjarmálum
Undirbúningur bæjar-
stjórnarkosninga
þeirra, sem nú fara í hönd,
hjer í bænum, er mjög með
öðrum hætti en venja hefir
verið til að undanförnu.
Svo lengi sem jeg man eftir,
hafa stjórnmálaflokkarnir staðið
jafnt að vígi í kosningabarátt-
unni, að öðru en.því, að málstað-
ur þeirra liefir verið í mesta máta
ólíkur. Sjálfstæðismenn hafa liaft
svo mililu betri málstað fram að
bera, að af hefir borið, enda hefir
kjörfylgi þeirra vaxið við hverjar
kosningar. Þetta liefir engum ■
getað dulist, og þetta vita and-
stæðingar Sjálfstæðismanna fylli-
lega.
Þeim var því alveg Ijóst, að
þeir yrðu að grípa t.il einhverra
örþrifaráða, ef þeim átti að auðn-
ast að hindra enn vaxandi fylgi
bæjarstjórnarmeirihlutans í
Reykjavík.
Sjeu allar aðstæður athugað-
ar, þá er þetta ekki óeðlileg nið-
urstaða.
Andstæðingum Sjálfstæðismanna
í hæjarstjórn er vitanlegt, að þeir
hafa ekki barist fyrir nokkru
meiriháttar framfaramáli bæjar-
ins í fullri alvöru. Heldur þvert
á móti. Þeir hafa verið óþarfur
Þrándur í Götu stærstu framfara-
málanna, sem á dagskrá hafa ver-
ið. Voru það ekki andstæðingar
Sjálfstæðisflokksins, sem á Al-
þingi töfðu Sogsvirkunina ? Voru
það ekki andstæðingar Sjálfstæð-
ismanna, sem vildu ekki einu sinni
leggja hitaveitunni svo mikið liðs-
yrði að greiða atkvæði með því
að tryggja henni nauðsynleg vatns
rjettindi? Voru það ekki andstæð-
ingar Sjálfstæðismanna, sem hindr
uðu það í 18 mánuði, að levfi feng
ist fyrir nanðsynlegum bor til að
auka heita vatnið, svo að auðið
yrði að koma þessu þýðingarmesta
framfara- og menningarmáli bæj-
armanna,* sem fyrst í framkvæmd ?
Sósíalistar hafa. að vísu haldið
því fram í útvarpsumræðunum, að
þeir hafi hvað eftir annað rekið
á eftir framkvæmdum hitaveit-
unnar. Þess er þá væntanlega
vænst, að menn sjeu búnir að
gleyma þeim velvilja, sem hún
átti að mæta úr þeirri átt í upp-
hafi. Hitt kann að vera, að þeir
hafi sjeð þann kost vænstan að
draga nokkuð úr opinherri and-
stöðu sinni gegn því máli, þegar
þeim var orðið það ljóst, að allur
meginþorri bæjarmanna átti ekki
annað heitara áhugamál.
Bf vera kynni, að menn væru
búnir að glevma gangi þessa máls
í byrjun, er rjett að minna á það,
að 1933 ákváðu Sjálfstæðismenn í
bæjarstjórn að tryggja sjer jarð-
hitarjettindi á Reykjum og
Revkjahvoli, með það fyrir augum
að hita bæinn upp með #jarðhita
þaðan, svo framarlega sem hann
revndist nægilegur til þess. Var
þá gerður samningur við eigendur
hitarjettindanna á þeim grund-
velli, að bærinn greiddi 15 þúsund
kr. fyrir rjett til borana og ann-
Eftir Guðmund Ásbjörnsson
ara rannsókna á liitasvæðinu og
þess utan sjerstakar bætur fyrir
jarðspjiill og skemdir á mann-
virkjum, eftir mati, ef ekki yrði
úr frekari framkvæmdum. Kæmist
bærinn hinsvegar að þeirri niður-
stöðu, að lokinni rannsókn, að
kaupa hitarjettindin að fullu og
ölln, skyldi hann greiða eige'ndum
rjettindanna 150 þúsund krónur
fyrir þau, í eitt skifti fyrir öll.
Þegar svo þessi ágæti samning-
ur var lagður fyrir bæjarstjórn,
til endanlegrar afgreiðslu, 6. júlí
1933, greiddu allir andstæðingar
Sjálfstæðismanna, sóm á fundin-
um voru, atkvæði gegn kaupun-
nm, að viðhöfðu nafnakalli, svo
þar er ekkert um að deila. Kaup-
in voru því samþykt af Sjálfstæð-
ismönnum einum, með átta atkvæð
um. Fleiri Sjálfstæðismenn áttu
þá ekki sæti í bæjarstjórn Reykja
víkur.
Jeg fæ ekki betur sjeð, en að
þessi atkvæðagreiðsla taki af öll
tvímæli.
Er nú hægt að ætlast til þess,
að þeir menn ,sem unnið hafa svó
markvíst gegn stærstu hagsmuna-
málum Reykjavíkur, geti vonast
eftir stuðningi kjósendanna, þegar
að kjörborðinu kemur, svo fram-
arlega sem kosið verður með hags-
muni þessa hæjarf jelags fyrir aug-
um? Jeg býst ekki við að nokkur
heilvita maður vænti þess.
Andstæðingum Sjálfstæðismanna
var alt þettaj Ijóst. Þeir vissu að
engin von var til kjörfylgis fyrir
þá, ef velja átti milli framkomu
Sjálfstæðismamia og þeirra í hæj-
armálum Reykjavíkur. Þeir hafa
því gert alt, sem í þeirra valdi
stendur, til þess að leiða athygli
kjósendanna frá bæjarmálunum og
reynt af fremsta megni að beina
hugum þeirra að öðrum málum.
Þeir hafa gengið svo langt, að
þeir hafa. stofnað til verkfalla, að
því er virðist, með það eitt fyrir
augum að geta á þann hátt hindr-
að útkomu þeirra blaða, er Sjálf-
stæðismenn ráða yfir. Jeg býst
ekki við að nolckur heilvita maður
efist um hvaða ást.æður lágu lijer
til grundvallar. Ef þessir menn
höfðu engu að leyna og töldu sig
hafa jafn góðan málstað og Sjálf-
stæðismenn, hvers vegná þorðu
þeir þá ekki að ganga til kosn-
inga á jöfnum og drengilegum
vettvangi? Hvers vegna þurfti að
ræða málin einhliða?
Það er látið í veðri vaka, að
vinnustöðvunin stæði í samhandi
við lög um gerðardóm í vinnu-
deilum. Enginn, sem til þekkir,
trúir ]iessu. Rauðliðar vita jafn
vel og aðrir, að hrýna nauðsyn
her til að stöðva dýrtíðina, ef
]iess er nokkur kostur. Þeim er
það engu síður ljóst eu öðrum, að
haldi dýrtíðin áfram að yaxa, eins
og hún hefir vaxið alt frá stríðs-
byrjun, hlýtur það að valda hruni
um það er lýkur. Hruni, sem fyrst
og fremst lendir á verkamönnum
og öðrum launþegum. Þeim hluta
þjóðarinnar, sem erfiðast á með að
mæta atvinnuleysi og afleiðingum
þess.
Það er reynt af fremsta megni’
að blanda þessum vinnudeilum og
lögunum um gerðardóm sáman við
bæjarstjórnarkosningarnar sem nú
standa fyrir dyrnm. Sýnir það
ineðal annars, hvað andstæðingar
okkar eru fátækir að ádeiluefni,
að þeir skuli ekki hafa annað
veigameira fram að bera í kosn-
ingabaráttunni, ekki’ síst þegar
þess er gætt, að bæjarstjórnin
tekur engan þátt í vinnudeilum
og hlandar sjer yfirleitt ekki í
þau mál.
Gamall málsháttur segir -. Það er
smátt, sem kattartungan finnur
ekki.
Hver myndi nú trúa því, að
andstæðingar okkar freistuðu þess
að nota það til árása, að Sjálf-
stæðismönnum hefir auðnast að
vinna það á, að framvegis ræður
meirihluti hæjarstjórnar hvernig
meirihluti niðurjöfnunarnefndar
verður skipaðnr, sem til þessa
hefir verið skipaðnr af minnihlut-
anum, en er nú, í fyrsta skifti í
mörg ár, skipaður meirihluta
Sjálfstæðismamia. Vonandi hafa
andstæðingar okkar það sjer til
afsökunar, að Reykvíkingar verði
aldrei svo langt leiddir, að þeir
feli rauðliðum meðferð bæjarmál-
anna, og þess vegna komi þeir
aldrei framar til að ráða meiri’
liluta niðurjöfnunarnefndar. En
langt er það sótt hjá andstæðing-
um okkar, að sakfella Sjálfstæðis-
menn fyrir það, að þeim hefir nú
lánast að vinna rjettindi til handa
bænum, sem hærinn átti heimt-
ingu á fyrir löngu, en v'oru hindr-
uð af rauðliðum.
Það er ekki nýtt við hæjar-
stjórnarkosningar hjer í Reykja-
vík, að andstæðingar okkar svíf-
ast einskis í baráttu sinni um
vöklin hjer í bænum. Þeir sem
minnugir eru, munu ekki hafa
gleymt álvgum þeim, sem hornar
hafa verið á fyrverandi horgar-
stjóra okkar, hvern af öðrum. Þær
áttu að duga til að vinna Reykja-
vík undan stjórn Sjálfstæðis-
manna, en það liefir hrngðist til
þessa.
Nú er verið að reyna að leiða
athygli kjósendanna frá baájar-
málunum, ef vera mætti, að'það
gleymdist hverjum Reykjavík á
meira að þakka, Sjálfstæðismönn-
inn eða rauðliðum.
Andstæðingum okkar Sjálfstæð-
ismanna er það ljóst, að þeir geta
ekki snúið Sjálfstæðismönnum til
fylgis við sig. Svo vel þekkja þeir
hyggindi þeirra og skapfestu. Þess
vegna hafa þeir breytt um aðferð.
Nú átti að vega aftan að Sjálf-
stæðismönnum með einhliða blaða-
kosti og.á þann hátt freista þess,
ef unt væri, að fá Sjálfstæðis-
menn til að sitja heima. Taka
ekki virkan þátt í kosningunum.
Það kann vel að vera að rógur
sá, sem blöð andstæðingann.»
fluttu, á meðan enginn kostur var
til andsvara, hafi dregið úr á-
huga einstakra Sjálfstæðismanna,
en erfitt á jeg með að trúa því,
að sá Sjálfstæðismaður finnist,
sem hefir ekki, nú þegar, sjeð,
að tilgangnr andstæðinga okkar
var sá einn að leyna ljótum lífs-
ferli þeirra í bæjarmálum.
Það væri líkast Sjálfstæðis-
mönnum að svara þessari eindæma
framkomu rauðliða með því að
fylkja sjer á kjörstað 15. þ. m.,
með meiri áhuga og atorkn ea
nokkru sinni áður og kjósa D-list-
ann.
---------------✓
Setuliðið og
Stúdenta-
garðurinn
--T
GarSsstjórn hefir beðið MbL
fyrir eftirfarandi:
t af yfirlýsingu bresku her-
stjórnarinnar í Morgunblað-
inu sunnudaginn 8. mars, þar sen»
hún virðist vilja gefa í skyn, að-
hún hafi Stúdentagarðinn á leiga
með frjálsum samningum við
Garðsstjórn, vill Garðsstjórn taka
eftirfarandi fram:
Breska setuliðið tekur Garð
hernámi 27. maí 1940, og er því
þá lofað af þess hálfu, að það
muni verða á hrott fyrir 1. okt.
þess árs. Jafnframt fóru Bretar
fram á, að Garðstj. viðurkendí,
að Garður væri „löglega hertek-
inn“. Þessu neitaði Garðsstjóm
og mótmælti jafnframt hernám-
inu.
Þegar að því kom, að Bretar
ættu að fara af Garði, tilkyntn
þeir, að þeir sæju sjer ekld fært
að rýma húsið að sinni. Reyndu
þeir að hefja samningaumleitan-
ir, en þegar þeir gátu ekki feng-
ið gerða neina samninga við
Garðsstj., fór málið í ísl.-bresku
samninganefndina.
Þegar samningsnppkast það,
sem hjer um ræðir, harst Garðs-
stjórn frá samnin ganef ndinni,
fylgdu því þær upplýsingar, að
Garður yrði .hernuminn áfram,
hvort sem Garðsstjórn skrifað*
nndir það eða. ekki, en ef hún
skrifaði ekki nndir, fengi hún
engar bætur. Það var að vísu
freistandi að skrifa ekki undir,
en G'arðsstjórn taldi sig ekki get»
það vegna hagsmnna stúdenta.
f samningi þessum er m. a. það
ákvæði, að breska herstjórnin
getur sagt honum upp með eins
mánaðar fyrirvara, en af Garðs-
stjórnar hálfu er hann alls ekki
uppsegjanlegur. — Má öllum vera
ljóst, hve frjálsir slíkir samning-
ar eru, og vekur það furðu Garðs-
stjórnar, að breska herstjórniio-
skuli gefa slíkt í skyn.