Morgunblaðið - 27.03.1942, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ
Dr. Jón
Dr. Jón Helgason við skrifborðið.
*2
FRAMH. AF FIMTU SÉÐU.
Má nærri geta, að undirtektim-
ar urðu serið mismunandi. Dr.
-;ón gaf uin þessay mundir út
tímarit: Verði |jós!, og flutti
nann nú h|nar nýju skoðanir
hjer og varði þær gegn árásum.
Bókagerð sína hóf hann með
því, að gefá út kenslubækur
föður síns: Siðfræði, Kirkju-
sögu og Prjedikunarfræði, en
brátt fór hann að vinna að sín-
am eigin bókum. Vann hann að
þýðingu Nýja testamentisins, en
áþið 1904 kom út eftjr hann all-
njikil kehslubók: Sögulegur
uppruni Nýja testamientisins. Er
þar beitt hihni sögulegu gagn-
rýni, en mjög varlega, og langt
frá því að hann fýlgi þeim þýsku
viísindamönnum, sem lengstfóru
i því að hafna ritvissu eða deila
á; erfikenningar um Nýja testa-
nientisritin.
Af öðrum kenslubókum skrif-
aði hann, eins og áður er að
vikið Trúfræði, hvað eftir ann-
að, en hún var aldrei prentuð.
Síðar ritaði hann og gaf út í
sjerstakri bók útdrátt úr kafla
trúfræði sinnar, er hann nefndi:
Grundvöllurinn er Kristur, trú-
málahugleiðingajr frá nýguð-
fræðilegu sjónarmiði.
En sj’erstaklega sneri hann
sjer rtú að kirkjusögu. Gaf hann
jjt smám saman Alraenna kristni
sögu í 4 bindum og Kristnisögu
íslands í 2 bindum, en auk þess
komu út eftir hann Kristnisaga
lálands á dönsku: Islands
Kirke. Stutt ágrip af kristni-
sögu Islands kom og út eftir
hpnn á sænsku: Islands Kyrka.
★
HUGUR dr. Jóns tók nú, eftir
að hann var orðinn biskup,
að hneigjast mcira að sögu al-
ment einsog vonlegt var, er
hann var laus við kenslustarfið.
Yar það sjerstaklega mannfræði
tiðari alda á íslan&i, sem hann
gaf sig að, svo og saga Reykja-
rfíkur. Var hann svo fróður um
hana, að vafal. hefir þar enginn
verið honum fremri, hvort held-
i<r var um byggingarsögu bæj-
arins eða það fólk, sem þar hef-
ir búið. Komu út mörg rit eftir
hann um sögu bæjarins, t. d.
Þegar Reykjavík var 14 vetra
vSafn til sögu íslands), Reykja-
vík í reifum (Þættir úr sögu
Reykjavíkur), Reykjavík í
myndun , Annálar Reykjavíkur
Þeir, sem settu svip á bæinn
0: s, frv,
Þá tóku að koma út eftir
hann miklar æfisögur ís'lenskra
merkismanna íslensku kirkj-
unnar á síðari öldum: Meistari
Ilalfdán, Jón prófastur Hall-
dórsson, Hannes biskup Finns-
son, Tómas Sæmundsson. Jókst
bókagerð hans stórum eftir að
l. ann ljet af biskupsembætti
1939, og losnaði við hin tíma-
freku embættisstcrf.
Mannfræði áhugi hans kom
m. a. fram í því, að hann gaf út
Stúdentatal frá Reykjavíkur
lærða skóia 1847—1896 og
Xandidatatal frá prestaskólan-
um 1847—1897. Enn gaf hann
út : íslendingar í Danmörku.
Þótt hjer sje aðeins lauslega
á þetta drepið, og vel geti verið
að einhverri bók sje sleppt, því
að jeg nefni þær eins og þær
toma í hugann án frekari rann-
sóknar, ma af þessu sjá, að hjer
er um óvenjumikil ritstörf að
ræða. Auk þess gaf hann út tím-
aritið Verði ljós í 9 ár, og skrif-
aði fjölda ritgerða í tímarit hjer
lend og erlend. Þá gaf hann út
prjedikanir eftir föður sinn,
Heiga lektor Hálfdánarson,
Brjef Tómasar Sæmundssonar
og ýmislegt fleira.
★
FTIR heimkomu sína frá
Kaupmannahöfn 1894 tók
dr. Jón prestsvígslu, og messaði
í dómkirkjunni annan hvern
sunnudag í 13 ár án nokkurar
safnaðarmyndunar eða endur-
gjalds.Hann var mjög sköruleg-
ur prestur, bæði fyrir altari, því
að hann var raddmaður góður
og vel söngvinn, og í prjedikun-
arstól. Hafði hann ágæta kirkju
sókn, og Ijetti þetta mikið starf
hins eina prests, sem þá var í
Reykjavík. Hefir löngu síðar
komið út eftir hann postilla, er
hann nefndi: Kristur vort líf.
Vandaði hann mjög prjedikanir
sínar og hjelt fast í ákveðna
,.byggingu“ ræðunnar, inngang,
umræðuefni og skiftingu, helst
þrískiftingu. Voru prjedikanir
hans því mjög skýrar og áheyri-
iegar og þegar við bættist sköru
legur flutningar, var ekki furða
þó að hann hlyti miklar vinsæld-
ir sem prjedikari.
Dr. Jón var ágætlega máli
íarinn einnig utan kirkju, en
þess gætti helst á preststefnum
og öðrum kirkjufundum, því að
við öðrum málum gaf hann sig
ekki.
IÐ 1917 var dr. Jón skip-
aður biskup yfir íslandi.
Tilkynning
frá kolaverslunum
Vegnafarðarfarar Gannars
Ginarssonar w|elfræ5flngs
verða undirrilaÖar kola-
verslanir lokaðar á morg-
un, laugardag 28. þ. n>.
allan daginn.
H.f. Kol & Salf
H.f. Kolasalan
Kolaveralun Sigurðar Ólafssonar
Kolaverslun Ólafs Ólafssonar
Kolaverslun Guðna Einarssonar & Elnars
biskup
Kom nú hinn lærði kennari í
þetta margþætta og vandasama
umsjónar og stjórnarstarf og
ljek mörgum forvitni á, hvernig
honum myndi falla það. og hve
rnikið yrði þar úr honum á því
sviði. Hann hafði ekki einu sinni
verið prestur í embætti og máfti
því vænta, að hann yrði úti á
þekju í þessum málum. Gekk
hann og út í það með nokkrum
kvíða og ugg um það, hvernig
honum tækist þetta nýja starf.
En hann gekk að því með
sömu atorku og öðru. að setja
sig inn í hin mörgu málefni
biskupsskrifstofunnar, og leið
ekki á löngú þar til hann var
orðinn svo fróður um þau mál
öll, að fábært þótti. Hafa þeir
menn sagt mjer, sem með hon-
um störfuðu í stjómarráðinu, að
þek^ing hans á öllum þessutn
margvíslegu málum, dómgreind
hans um þau og allur embættis-
xekatur hafi verið svo með ágæt
um, að ekki hafi annað þurft
en fela honum alla meðferð
þeirra mála. Mun honum og
hafa fallið það best að fá þar að ^
ráða.
Hann hóf þegar yfirreiðir um
landið með hinum mesta dugn-
aði og lapk því á fárra ára
fresti , enda taldi hann biskupi
alveg nauðsynlegt að kynnast
öllu af eigin sjón og reynd. Fór
þá saman á yfirreiðum hans,
skörungskapur í stjórn allri og
einurð, og prjedikunarhæfiléik-
ar hans og andleg leiðsögn.
Hann gerði og það, sem enginn
annar biskup hefir leikið eftir
honum, að hann teiknaði mynd-
ir af öllum kirkjum landsíns,
og er það merkilegt safn og ein-
rtætt.
Á yfirreiðum sínum safnaði ;
hann, auk fróðleiks um allan j
hag kirkjunnar, því sem hann
taldi ekki minna virði, en það |
voru vinsældir allra presta og
leikmanna, því að hann var j
hverjum manni eðlilegri og al-
þýðlegri í viðmóti.
Hinar árlegu prestastefnur
urðu á biskupsárum dr. Jóns að
merkilegum kirkjufundum,
enda tíðast fjölsóttar. Var hann
þar, einkum á síðari árum, eins
og konungur í ríki sínu.
D
R. JÓN var hinn alúðleg-
asti maður í viðkynningu,
Föstudagur 27. mars 1942..
skemmtilegur qg ræðinn, fastur
ú sinni skoðun og ekki myrkur
í máli. Sameinaði hann á besta,
hát.t höfðiiigsskap og alþýðlegt
viðmót, Hann var fjöl-
hæfur að gáfum og afar víð-
iesinn, söngvinn og smekkmað-
ur á allar listir. Hann var drátt-
listarmaður góður og málari,
og hefði vafalaust getað orðið
góður í þeirri grein ef hann
nefði gefið sig að því.
Hann fór margar ferðir til út-
landa j biskupstíð sinni, einkum
til Norðurlanda, sat þar biskupa
þing og aðra fundi, hjelt fyrir-
lestra og prjedikaði í höfuð-
kirkjum- Hóf hann veg íslensku
idrkjunnar hvar sem hann kom,
því, að hvarvetna þótti hann
hinn mesti skörungur í fram-
komu jafnfíjamt ágætum lær--
dómi og gáfum. Hann var heið-
prsdoktor bæði KaupmanjJahá-
skóla og Háskóla íslands, auk
margra annara heiðursmerkja
og titla, er hann hlaut að mak-
legleikum.
Heimili hans var frábært að
gestrisni, og var frú hans hon-
Tim þar samhent sem mest. mátti
vera, heimilisrækin og átsúðleg
húsmóðir. Mátti segja um hana
f.ins mann hennar, að henni
fjell aldrei verk úr hendi. Þau
njón áttu 5 börn, 3 dætur og %
syni, er öll íifa, og mátti segja
a5 hinn aldraði biskup lifði in-
dælt æfikvöld í hóp ástvina og
við sífelt starf til síðustu stund-
ar, Það voru ekki margir dag-
ar frá því er penninn fjell úr
hendi hans og til þess er hann
var hjeðan farinn. Var það sem
annað honum mikil Guðs gjöf.
því að erfitt hefði honum fallið
að þurfa að vera lengi iðjulaus.
Hann likist um margt aía sín
um, Tómasi Sæmundssyni, bæði
í útliti og eðlisfari. Og honum
má fylgja úr garði með sömu
ósk, sem Jónas ljet fylgja Tóm-
asi:
Fljúgðu á vængjum morgun-
roðans
meira að starfa Guðs um geim.
Síðasta bók dr. Jóns biskups
bar heitið: Þeir^ sem settu svip
á bæinn.
Mörgum Reykvíkingum mun
þykja sjónarsviptir að því, er
þessi höfðingi í hóp höfuðstað-
arbúanna er ekki lengur í vor-
um hóp. Hann unni Reykjavík
heitt og var um langt skeið
einn þeirra manna, er í þess orðs
besta skilningi
settu svip á bæinn.
Sölubúð og vinnustofa
okkar verOa lokaðar
kl. 12-4 á morgnn vegna
(arðarfarar
Poul Ammendrup, klæðskerí
Lan^aveg 58
HANGIKJÖT:
Verslanir eru ámintar uni að kaupa hangikföt lil laáfíílariiinair í dag og á morgun
§amband íslenskra samvinníiífelaga. Simar: 4241, 2078 og 1080