Morgunblaðið - 22.04.1942, Side 2
2
MORGUNÖLAtílt)
Miðvikudagur 22. apríl 1942.
Noregur „fyfirmynd
nýskipunarinnar“:
Hútuo Terboveos
Kýar hand-
lökur
Aðvörun Wavells: „Hætta
á innrás í lndland“
Þjóðverjar ætla að gera Nor-
eg að „fyrirmynd um ný-
skipun Evrópu með samvinnu
öxulsríkjanna“ og eru vjð því
búnir að beita hörku til þess.
Fyrra atriðiíS um „fyrirmyndina",
uppiýsti Wegner, ttaSgenjill Terbov-
ens, og hiS siSara, ura „hörkuna",
Terboven sjálfur, ■ rœtSum, sem þeir
fluttu í Oslo t gaer.
LiSin voru í geer tvö ár frá því aS
embætti þýska ríkisf ulltrúans var
stofnaS í Noregi og hjeldu starfsmenn
ríkisfulltrúans afmælis hátíÖlegt meÖ
samkomu i þjóÖleikhúsinu.
í rsetiu sem Terboven ríkisfulltrúi
flutti, sagtSi hann m. a.: Enda þótt
ekkert vald í heimi geti neytt Þjóí-
verja til aS fara frá Noregi, þá er þaS
þó mark þeirra aS reyna einlæglega
aS leiSa NorSmenn út úr hruninu frá
1940, eftir eina fnra veginum til nýs
frelsis.
Terboven aSvaraSi þá, sem hjeldu
sjer fast í liSna tímann og einkum
kennarana, sem lagt hafa niSur störf
sín undanfariÖ. Hann sagSi aS athsefi
kennaranna væri tilraun til verkfalls,
og verkföll hefSu í för meS sjer trufl-
ún á opinberum friSi og aga, en þaS
væri mál, sem varSaSi hervaldiS í
landinu og vseri því aSeins norskt
innanríkismát.
Jeg á aS gseta hagsmuna þýska varn
arhersins hjer (sagSi Terboven aS lok
um) og jeg mun gera þaS meS allri
nauÖsynlegri hörku.
Wegner, staSgengiIl Terbovens, tal-
aSi næstur og sagSi þá, aS markmiS
ÞjóSverja væri aS gera Noreg aS „fyr
irmynd um nýskipun Evrópu meS sam
vinnu öxulsríkjanna'*.
NÝJAR HANDTÖKUR
f NOREGI
Frá öSrum heimildum hafa borist
fregnir um aS nýlega hafi átt sjer
staS í Noregi allumfangsmiklar hand-
tökur. Tala þeirra, sem handteknir
hafa veriÖ er um S0—-100.
MeSai þeirra eru nokkrir lögfræS-
ingar, nokkrir prófessorar, þ. á. m..
Per Krogh málari, nokkrir liSsforingj-
ar úr norska hernura, þ. á. m. liösfor-
ingi úr herráSi konungs og ennfremur
nokkrir kaupsýslumenn.
Heræfingar Þjóð-
verja í Noregi
S ænska blaðið „Social Derao-
kraten“ skýrði frá því í gær
að þýski herinn í Noregi hefði
síðastliðinn föstudag og laugar-
dag haldið miklar heræfingar í
fjöllunum í Vestur-Noregi.
Þetta eru fyrstu stórfeldu
heræfingarnar, sem Þjóðverjar
hafa haldið í Noregi.
„ÞAÐ GENGUR BETUR“.
Litvinoff, sendilierra Rússa í
Washington, ræddi í gær-
morgun við Roosevelt og sagði á
eftir, að sending á vistum til
Rússlands frá Bandaríkjunum
gengi nú betur en nokkru sinni
áður.
Roosevelt
undlrbýr ávarp
tll trönsku
þjúðarinnar
Cordell Hull, utanríkismála-
ráðheTra Bandaríkjanna,
sag'ði í gær, að stefna Banda-
ríkjanna gegnvart Frökkum,
gæti breyst frá degi til dags.
Samkv. fregn frá Washington,
er utanríkismálaráðuneytið þar
að semja yfirlýsingu. sem verð-
ur í formi áskorunar frá Roose-
velt til frönsku þjóðarinnar. —
Svipaða áskorun til frönsku
þjóðarinnar birti Roosevelt í
maí í fyrra.
M. a. er gert ráð fyrir, að
Roosevelt lýsi yfir því, að þýsk-
frönsk samvinna sje óhugsan-
leg.
Cordell Hull sagði í gær, að
úrslitaákvörðun um afstöðu
Bandaríkjanna til Frakka
myndi velta á undirtektum
frönsku þjóðarinnar undir valda
töku Lavals.
Það hefir vakið athygli,' að
Laval mintist ekki á Bandarík-
in í ræðu sinni í fyrrakvöld og
í London er talið, að hann geri
sjer vonir um að geta vakið
sundrung milli Breta og Banda-
ríkjanna.
En í London er vitnað í for-
ustugrein í „New York Herald
Tribune“ í gærmorgun, þar sem
segir að svar Bandaríkjanna við
ræðu Lavals hijótý að vtjrða
það, að slitið verði algerlega
stjórnmálasambandi við Vichy
og reynt síðan að hafa áhrif á
frönsku þjóðina í þá átt, að hún
rísi upp gegn „landráðamönn-
unum“.
Harðar orustur
geisaíBurma i
Kyrrahafsráðið á fundi
IÚTVARPSRÆÐU, sem Arehibald Wavell, yfir-
hershöfðingi Breta í Indlandi, flutti í gær, var-
aði hann Indverja við innrásarhættunni og
skýrði jafnframt frá Þeim ráðstöfunum, sem gerðar hefðu
verið til að mæta þessari hættu.
Wavell sagði, að fyrst í stað kynni hættan að vera
mest frá loftárásum, en innrásarhættan væri þó raun-
veruleg.
Engin leið væri að reisa varnarvirki meðfram allri strand-
lengju Indlands, enda kæmi sjer það ekki til hugar, heldur myndi
Indland verða varið af öflugum árásarflugflota, sem ráðast
myndi að skipaflotum óvinanna og af öflugum landhersflokkum,
sem auðvelt væri að senda af einum stað á annan.
Sú hætta vofir yfir, að Japanar setji lið á land á einstaka
stað á strandiengju Indlands, sagðj Wavell, á meðan Bandamenn
hafa ekki bolmagn til þess að reka herskip þeirra af Indlandshafi,
en það getur þó orðið fyr en varir.
Tyrkir mótmæla
i Kuibyshev
Tyrkneska stjórnin hefir lát-
ið sendiherra sinn í Kuiby-
shev afhenda sovjetstjórninni
orðsendingu, þar sem skrifum
rússneskra blaða um rjettar-
höldin út af banatilræðinu við
von Papen í Ankrara, er mót-
mælt og þess krafist að þau
verði stöðvuð, eða að öðrum
kosti mun tyrknesk blöð láta af
þeirri nærgætni, sem þau hafa
tamið sjer.
★
ANKARA í gær-. — Þjóðverjar
skýra frá því, að Gur hersliöfð-
ingi sje væntanlegur til Ankara,
til þess að endurgjalda heimsókn
tveggja tyrkneskra hershöfðingja,
sem heimsóttu aústurvígstöðvarn-
ar í fvrrahaust, — Reuter.
En á meðan Indverjar eru trú
ii sjálfum sjer, hjelt hann á-
fram verður engin leið fyrir
Japana að leggja Indland undir
sig.
Waveil sagði, að Indverjar
hefðu við hlið sjer duglegustu
og þolbestu kynflokka heims-
ins, Bandaríkin, Bretland, Rúss
land og Kína, og þeir þyrftu
ekki að efast um hver sigra
myndi að lokum.
LOFTÁRÁSA
HÆTTAN
Um þá hættu, sem nær væri,
hættuna á japönskum loftárás-
um á indverskar borgir, sagði
Wavell, að loftvarnimar hefðu
verið stórlega bættar í öllum
þeim hjeruðum, sem mest ættu í
húfi. Það væri munur á loft-
vörnunum frá því sem þær voru
fyrir nokkrum vikum og stór
munur frá því, fyrir nokkrum
mánuðum, þegar þær voru
næstum engar.
Wavell fullvissaði Indverja um,
að Japanar myndu ekki geta hald-
ið uppi jafnmikium loftárásum á
Tndland og Þjóðverjar hafa hald-
ið á England og Bretar á Þýska-
land.
Wavell kvaðst hafa verið í
Singapore aðeins nokkrum dögum
áður en borgin gafst npp og jap-
anskar flugvjelar hefðu verið þá
næstum iátlaust yfir þorginni, en
hann sagði að borgin hefði aðeins
fengið fá ör og manntjón ó-
brevttra borgara hefði verið til-
töluiega lítið.
BURMA.
í Burma, þar sem Japanar leit-
ast nú við að skapa sjer aðstöðu
til þess að gera innrás í Indland
af landi, halda harðir bardagar á-
fram. Gagnárás Kínverja í fyrra-
dag liafði í för ineð sjer, að 7 þús.
manna breskur herflokkur, sem
króaður hafði verið inni, gat hörf-
að undan yfir fljót nokkuð, skamt
fyrir norðan olíuborgina, sem harð
ast hefir verið barist um. Olíu-
þorgin er enn á valdi Kínverja.
En á vígstöðvunum fyrir aust-
an, í Sittangdalnum hafa Japan- j
ar nú fengið liðsauka, og sækja á-
kaft að hersveitum Kínverja.
BEITISKIP HÆFT.
Frá Filippseyjum bárust þær
fregnir í gær, að dregið hefði úr
loftárásum Japana á Corregidor.
, PlotamálaráðuneytifLí Washing-
ton tiikynti í gær, að amerískir
hraðbátar hefðu fyrir nokkru
hæft japanskt beitiskip við Cebu-
eyju, og var það að sökkva,
þegar frá var horfið. — Tveir
hraðbátanna fórust. Er þetta 18.
japanska beitiskipið, sem Banda-
ríkjamenn segjast hafa sökt eða
laskað.
I Washington kom í gær saman
Kyrrahafsráðið á fjórða fund sinn
og skýrði Harry Hopkins á fuudin |
um frá ferð sinni til London. Á j
eftir 1 jetu meðlimirnir svo um
mælt, að þeir væru ánægðir með j
árangurinn. Fulltrúi Kínverja
sagði: „Okkur miðar áfram“.
Víg§löðv-
arnar
RÚSSLAND:
C'regnir frá vígstöðvunum í
*• Evrópu og í Afríku, eru um
batnandi veður og samfara því
auknar hernaðaraðgerðir í löfti
Þjóðverjar sögðu í gær, að
Rússar hefðu mist 41 flugvjel í
fyrradag, og Rússar sögðu i
nótt að sama dág hefðu Þjóð-
verjar mist 31 flugvjel. — En
Rússar viðurkenna ekki að þeir
hafi mist nema 11 flugvjelar.
Á landi gerðust engar mark-
verðar breytingar í gær, segir
rússneska herstjórnin. Þjöð-
verjar' segjast á hinn bóginn
hafa gereytt rússneskum her-
flokki á miðvígstöðvunum.
Leysingarnar halda áfram í
Rússlandi og nú fer að líða að
því (símar hermálaritari Reut-
ers), að hernaðaraðgerðir í stór
uttl stíl geti hafist. En ekkert
bólar á vorsókninni.
LIBYA:
V Libyu fylgdi það góða veðr-
* inu, að könnunarsveitir fóru
að hafa sig meir í frammi og
bæði Þjóðverjar og Italir til-
kyntu í gær, að árás breskrar
könnunarsveitar við Gazala,
hefði verið hrundið.
Það er vitað, að báðir hernað-
araðilar halda stöðugt áfram að
senda her og hergögn til Libyu.
Bandamenn
framleiða meir
NEW YORK í gær.
Donald Nelson, framkvæmda-
stjóri liergagnaframleiðsl-
unnar í Bandaríkjunum, sagði 5
gær á fundi rannsóknarnefndar
öldungadeildarinnar, að Bretar,
Bandaríkjamenn og Rússai- frain-
leiddu nú meir heldur Þjóðverjar,
Japanar og ítalir.
Hann sagði, að framleiðslan í
Bandaríkjunum væri nú komin yf-
ir byrjunarörðugleikana og að
stórfraraleiðsla væri nú hafin.
Hinar látlausu árásir Þjóð-
verja á Malta torvelda Bretum
eftirlitið með siglingum öxuls-
ríkjanna um Miðjarðarhafið.
1 tilkynningu, sem birt var á
Malta í gærkvöldi var skýrt frá
því, að 5 óvinaflugvjelar hefðu
verið eyðilagðar yfir eynni frá
því að árásirnar hófust um dög-
un í gær og 4 alvarlega laskað-
ar.
f fyrradag voru 11 flugvjelar
eyðilagðar og 16 laskaðar.
Þjóðverjar tilkyntu í gær, að
þeir hefðu valdið gífurlegu
tjóni í La Valetta í árusunum á
mánudaginn.
Kolaskiimfun
í Ensjlandi
Versl unarraá 1 aráðher rn Bréta
tilkynti í gær, að tekin
mýndi verða upp skömtun í Eng-
landi á kólum og Ijósum innan sex
mánaða. Við ákvörðun skamtanna
verður miðað við núverandi þarfir
en ekki fvrri notkun.