Morgunblaðið - 22.04.1942, Blaðsíða 7
Miðvikudaffur 22. anrfl 1942.
MORGUNBLAÐIÐ
7
CJOOOOOOOOOOOOOOOOO
I ÚR DAGLEGA |
| LÍFINU |
00-0000
BanniS viS skipa- og veíurfrejnuni.
í Sjómannablaðinu Víkingur birtist
nýlega eftirtektarverð grein eftir
Halldór Jónsson viðvíkjandi ýmsu er
að siglingum lýtur og að sjómönnum
snýr. Birtast hjer nokkrir kaflar henn-
ar„ ,sem varpa ljósi yfir þá erfiðleika
og það hugrastríð, sem sjómenn
standa í á þessum tímum. Þarna er
iíka minst á hinar „kýldu kveðjur“,
sem sjómenn fá hjá yfirvöldunum, er
þeír köma að landi. Hefir áður verið
að því vikið hjer í blaðinu.
Höfundurinn kemst þannig að orði
« grein sinni:
Skömmu eftir hernám Breta hjer,
Voru sett ákvæði um bann við því að
gefa nokkrar upplýsingar um veður.
Þessum reglum er mjög nákvæmlega
framfylgt gagnvart sjómönnum, og
jafnvel svo, að x sjávarháska voru
inienn hleraðir og gert tiltal fyrir að
'giapraðist út úr þeim, einhver tilvitn-
um um veðurlag. Auk fjölda fjár-
sekta, er sjómenn hafa orðið fyrir, af
því að tala í ógáti af sjer, um veður-
aðstæður.
En á sama tima gekk hver veltal-
andinn fram úr öðrum lausbeislaður
í sjálfu ríkisútvarpinu, og langrausaði
-oft um hið forboðna efni.
★
Þegar þeir komu heim.
•| Og hver skyldi trúa þvi, að ennþá
"viðgangist fyrir utan margvíslega
itímatöf frá því að komast heim til sín,
vegna ýmissa ráðstafana af hernaðar-
á&tæðum, eftir að komið er að landi,
að sjómennirnir skuli í hvert sinn er
þeir sleppa lifandi til baka, vera tekn-
ir undir ótakmarkaða rannsókn á
föggum þeirra, áður en þeim er slept
í Iand, eins og á ferðinni væru stór-
þjófar. Og verða oft fyrir stóróþæg-
indum fyi’ir það, sem þeir hafa keypt
til þess að gleðja heimili sín, sem lifa
jafnvel undir ennþá þyngra fargi en
þeir sjálfir, meðan ástvinurinn er að
heiman. Þó er heimverutími hans mið-
aður við einn sólarhring, og exm í flest
um tilfellum þessar köldu heimkomu-
kveðjur föðurlandsins þar innifaldar.
★
Athugaleysi.
Hjer skal aðeins því bætt við, að
sjálfsagt er, að allir leggist á eitt með
það, að láta hvex-gi nokkurn undan-
drátt vera í því, að bannið við skipa-
frjettum sje stranglega haldið. Enda
lxljóta allir að vera á einu máli með
það. Misfellur, er á þessu hafa verið,
hljóta fyrst og fremst að stafa af at-
hugaleysi.
★
Svör:
1. Ormurinn langi er talinn að
hafa verið meira en helmingi lengri en
sfejp Columbusar er var 28 metrar, en
skip Ólafs Tryggvasonar um 60 m.
2. Þrjá daga og þrjár nætur var
Jónas í hvalnum.
3. Paul Kreuger var forseti Búa í
Búastríðinu.
4. Newton sá epli falla til jarðar
og fekk af þeirri sýn sinni fyrstu hug-
snyndina um þyngdarlögmálið.
5. Frelsishátíð Bandaríkjanna er 4.
júlí, til minningar um frelsisskrána 4.
júlí 1776.
*
Spurningar:
1. Hvernig eru gleraugu nærsýnna
manna glípuð?
2. Hvaða íglensk kirkja hefir tvo
turna?
3. Hve mikill hluti af íbúum jarð-
ar er í Kina?
4. HvaSa mál talaði Jesús Kristur
og lærisveinar hans?
5. Hvar var Frímúrarareglan stofn-
uS?
lóhannes Einarsson
vatnsmaður í Hafnarfirði
Q á atburður varð hjer í Hafn-
^ arfirði föstudagsmorguninu
10. þ. m. á níunda tímanum, er
vatnsmaðurinn Jóhannes Einars-
son var að vinnu sinni á bæjar-
brvggjunni. að liann fjell af henní
niður á togara, er hanti var að
afgreiða, og beið þegar bana af.
Jóhannes var fæddur í Hafnar-
firði 5. des. 1879 og var þar síð-
an allan sinn aldur.
Foreldrar hans voru þau Jens-
ína Arnadóttir verslunarmanns í
Hafnarfirði Jónssonar prests í Am
arbæli Mathiesens, og Einar Jó-
hannesson Hansen, nafnkendur
formaður og mikill sjósóknari.
Hann var bæklaður af gigt á efri
árum, en stundaði sjó engu að
síður og reri þá oft ei'nn. Varð
hann þá að velta sjer upp í bát-
inn. — Jóhannes Hansen var
danskur, sjósóknari mikill, reri
oft einn á báti, var fyrst í Hafn-
arfirði, en síðar újá í Leiru. Eru
til sagnir um einkennilega háttu
hans, dirfsku og þrek í sjóferð-
um. Kona hans og móðir Einars
var Kristín Jónsdóttir frá Hraun-
prýði í Hafnarfirði.
Jóhannes Einarsson var því af
tápmiklu fólki kominn í báðar
ættir. Hann stundaði sjómensku
frá blautu barnsbeini. Var hann
hvorttveggja, sjómaður með ágæt-
um og fiskimaður með afbrigðum.
Skipstjórar á skútu-öldinni sóttu
því mjög eftir að fá hann í skip-
rúm. Hann hætti sjpmensku 1915
og vánn áð ýmsum störfum í
landi, þar til hann gerðist starfs-
maður Hafriarfjarðarbæjar árið
1925, og hafði síðan afhendingu
vatns í skip við bryggjurnar.
Hann kvæntist Steinunni Pálma-
dóttur úr Reykjavík. Voru þau
einkar samhent og farnaðist vel.
Lifir hún mann sinn. Þau eign-
uðust fjögur börn. Lifa tveir
synir og dóttir, en eitt barna þeirra
Ijest í æsku.
Jóhannes var áhugamaður um
ýmiskonar fjelagsmál. Hann var
alla ævi eindreginn Sjálfstæðis-
maður. — Hann starfaði og mikið
í Góðtemplarareglunni. G'ekk hann
í stúkuna „Morgunstjörnuna" 12
ára gamall, og hafði enginn nú-
lifandi fjelagi starfað þar jafn-
lengi.
Einlægur trúmaður var hann og
starfaði mikið í K. F. IJ. M. Hafði
sá fjelagsskapur mikil áhrif á
hann. Sýndi framkoma hans öll,
að hann lifði samkvæmt trú sinni.
Hann var mjög skyldurækinn,
hafði gleði af starfi sínu og
stundaði það með svo milcilli al-
úð sem best verður á kosið. Hann
var einatt jafn tilkippilegur að
sinna. afgreiðslum, hvort sem var
á nóttu eða degi, og hvort sem
vjelbátur þurfti eina tunnu eða
stórslcip margar smálestir af vatni
Einatt var alúðin söm og greið-
viknin í smáu og stóru. Samvisku-
semi, skyldurækni og trúmenska
einkendu störf hans, og þó að
hann fjelli svo skyndilega frá, þá
mun óhætt að fullyrða, að liann
hafi verið flestum fremur reiðu-
búinn, er hann hóf hinstu ferð
sína.
Jóhannes Einarsson.
Dagbóh
I. 0. O. F. (Síðasta spilakvöld).
Pjetur Benediktsson sendiherra
íslands í London, sem dvalið hef-
ir hjer í bænum í nokkrar vikur,
er nú kominn aftur til London.
Næturlæknir í nótt Úlfar
Þórðarson, Sólvallagötu 18. Sími
4411.
Nætnrvörður er í Ingólfs Apó-
teki.
Næturakstur annast B. S. R. —
Sími 1720.
Guðsþjónusta í dómkirkjunni
sumardaginn fyrsta kl. 6 síðdegis.
S. A. Gíslason cand. theol. prje-
dikar.
Frjálslyndi söfnuðurinn. Sumar-
komu guðsþjónusta og ferming í
fríkirkjunni í Rvík á morgun kl.
2 e. h. Sr. Jón Auðuns.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Sum-
arkomu guðsþjónusta á morgun
kl. 5. Sr. Jón Auðuns.
70 ára er í dag ekkjan Ilalldóra
Guðmundsdóttir, Iloltsgötxi 20.
Benedikt Guðmundsson hús-
gagnasmiður, Freyjugötu 48, er
fimtugur í dag.
Símalínan milli Ilafnarfjarðar
og Rvíkur slitnaði í gærmorgun,
og var samband ekki komið á í
gærkvöldi, en búist við að lag-
færing fáist á þessu í dag.
íþróttasýningar á sumardaginn
fyrsta. Það er íþróttakennarafje-
lag íslands, sem sjer um íþrótta-
sýningarnar á *skemtununum á
niorgun. Er þetta einskonar fram-
hald af skólasýningunum, sem
haldnar voru á dögunum, en þá
voru margir, sem ekki höfðu tæki-
færi til að sjá þessar leikfimisýn-
ingar.
Athygli skal vakin á því, að
sýning revýunnar Halló Ameríka
hefst kl. 8.30 á föstudag. — Að-
göngumigasala er I dag kl. 4, en
verður ekki á morgun vegna sum-
ardagsins fyrsta.
Barnadagsblaðið verður selt frá
kl. 9! f. h. til kl. 7 e. h. í dag. —
Blaðið verður afgreitt til sölu-
barna í barnaskólum bæjarins,
Grænuborg og á afgreiðslu Morg-
unblaðsins.
Gjafir til Barnavinafjelagsins
Sumargjöf: Frá Magnúsi Andrjes-
syni vitgerðarmanni 1500 kr. Frá
Ástu 100 kr. Kærar þakkir. Tsak
Jónsson.
Útvarpið í dag:
(Síðasti vetrardagur).
12.15 Hádegisútvarp.
12.55 Enskukensla, 3. fl.
18.30 íslenskukensla, 1. fl.
19.00 Þýskukensla, 2. fl.
19.25 Þingfrjettir.
20.00 Frjettir.
20.20 Kvöldvaka stiulentaráðs Ilá-
skólans.
| Linoleum
$ í öllum þyktum.
| Gólfpappa og
t Gólfdúkalím
Ý
X það besta fáanlega hjer,
<£ fáið b.ier í
j; Veggfóðursverslun
* Victors Helgasonar
T Hverfisgötu 37. Sími 5949.
T
*
Samkvæmiskjólaefni
tekln app i g«v —
c löxtdal
Vefnaðarvoruverslnn — Ausfnrsfræfl lO
Maðurinn minn, faðir okkar og sonur
GUÐMUNDUR ÁGÚST SIGURDSSON
frá Kluftum, andaðist að Vifilsstöðnm 21. þ. m.
Sigríður Ámadóttir og börn.
Helga Eiríksdóttir.
Jarðarför konunnar minnar, móður okkar og tengdamóður
KRISTÍNAR EYÓLFSDÓTTUR,
Hlíðarenda í Fljótshlíð, fer fram föstndaginn 24. apríl og hefst
frá heimili hinnar látnu kl. 12 á hádegi
Helgi Erlendsson. Ingvar Þórðarson.
Ingibjörg S. Helgad. Gunnar Helgas. Gnðjón Helgas.
Jarðarför mannsins míns, föður okkar og sonar
KJARTANS GUNNLAUGSSONAR kaupmanns
fer fram í dag, miðvikud. 22. þ. m. og hefst með húskveðjn aS
heimili hans, Laufásveg 7, kl. iy2 síðdegia,
Margrjet Gunnlaugsson og börn.
Ingveldur Kjartansdóttir.
Jarðarför mannsins míns
Þ. MAGNÚSAR ÞORLÁKSSONAR
fer fram föstudaginn 24. þ. m. Athöfnin hefst með húskveðjn
að heimili okkar Blikastöðum kl. 1 e. h. Jarðað verðnr að
Lágafellí.
Fyrir hond aðstandenda
Kristín Jósafatsdóttir.
Þökkum hjartanlega auðsýnda hluttekningu við andlát
og jarðarför
GUÐRÚNAR GUÐNADÓTTUR
* frá Sandi í Kjós.
- Aðstandendur.
Innilegar þakkir til allra, er auðsýndu hluttekningn við
jarðarför móðnr og tengdamóður okkar
JÓHÖNNU JÓNASDÓTTUR.
Hólmfríður Jóhannsdóttir. Jón J. Jóhannsson.
Jónas Guðmundsson.
Loftur Bjarnason.