Morgunblaðið - 14.06.1942, Síða 3
MÖRGUNBLAÐIÐ
Simnudagttr 14. Júní 1942.
3
Bygging
Iíeykjavík
barnaspítala í
mjög aðkallandi
Frá Oslo
um siðastiið-
in áramót
Börnin hornreka
á spífölunum
Kvenf jelagiS „Hringurinn“ byrjar í dag merki-
lega starfsemi. Fjelagið beitir sjer fyrir fjársöfnun
til þess að koma upp barnaspítala hjer í höfuð-
staðnum.----Verða í dag seld merki á götunum,
samkoma í Hljómskálagarðinum kl. 2 og þar flutt-
ar rseður o. fl., einnig veitingar seldar í tjaldbúo.
-- I tilefni af þessu nytsairsa starfi *,Hringsins“
ritar Kristbjöm Tryggvason læknir eftirfarandi:
síðasta mannsaldri hefir verið mikill gróandi
l í þjóðlífi okkar íslendinga. Atvinnuhættir
' allir hafa tekið stórfeldum stakkaskiftum og
afkoma allrar alþýðu manna breytst stórlega til batnaðar.
Þjóðin hefir breytst úr kotungum í stórhuga þjóð, sem
þorir að leggja á nýjar brautir og bjóða örlögunum
byrginn.
Mannvirki, voldug á okkar mælikvarða, hafa risið upp, veg--
ir verið lagðir og brýr byggðar, símakerfi tengir saman fjarlæg-
ustu byggðir, og við höfum komið okkur upp álitlegum skipastól.
— 1 stuttu máli, við erum þjóðhagslega sjeð að verða sjálfstæð
þjóð.
Okkur er það líka metnaðar-
mál að verða sjálfstæð þjóð um
alt, en til þess þurfum við að
setja á stofn svipaðar stofnanir
og aðrar þjóðir hafa, þó eðli-
lega verði í því smærri stíl, sem
við erum færri að höfðatölu og
fátækari að fje.
★
Á síðustu hálfri öld hefir
Reykjavík vaxið úr þorpi með
ca, 4000 íbúum upp í vísi að
borg, að vísu smáan á heims-
mælikvarða, en líklega stærstu
höfuðhprg veraldarinnar að til-
tölu, því þriðji hluti lands-
manna er hjer samankominn.
Um leið og Reykjavík er
stærsti bær landsins, er hún líka
að öllu leyti miðstöð þess, allar
merkustu stofnanir og bygging-
ar hafa risið upp hjer, og svo
mun einnig verða i framtíðinni.
Eítt af því, sem reist hefir
verið á þessum árum, að heita
má frá grunni, eru heilbrigðis-
stofnanir landsins. Spítalar hafa
verið byggðir og rannsóknar-
stofur. Nú eru til handlækninga
deildir og lyílækninga, fæðinga-
aeild, húð- og kynsjúkdóma-
deild og röntgendeild. Spítalar
fyrir berklaveika, geðveika og
holdsveika.
Jm þetta er ajt gott að segja,
en, rnikið vantar samt á, að spít-
alamálin okkar sj<-u komin í
viðunandi horf. Stór hluti þjóð-
arinnar er enn illa afskiptur. Er
þá ekki átt við fólkið í dreyf-
býlinu, sem hlýtur aö eiga erfið-
an aðgang að spítöium vegna
tregra sairgangna, heldur er
þessi stóri hópur bömin — vaxt-
arbroddur þjóðarinnar.
Hjer í Reykjavík eru ca.
40.000 ibúar, og er á að giska
14 hluti börn. í spítölum hjer í
bæ munu vera um hálft þriðja
hundrað sjúkrarúm og af þeim
eru ekki yfir tveir tugir, sem ætl
uo eru bðrnum, eða með öðrum J
orðum, að fjórða hluta íbúanna
er ætlaður þrettándi hluti rúm-
anna.
Ef nú legudagar barnanna
væru færri en fullorðinna, væri
ekkert við þessu ósamræmi að
segja, en því fer fjarri að mál-
um sje þann veg faríð. Sjúkra-
dagar barnanna eru mun fleiri,
en fullorðna fólksins.
FRAMH. Á SJÖTTU 8ÍÐO
Ársþing I.S.1.
Arsþing íþróttasambands Is-
lands hefir staðið yfir hjer
í bænum undanfarna daga.
í sambandinu eru nú skráðir
16551 fjelagar og voru þó 11
fjelög strykuð út á s. 1. ári,
vegna vanskila. Meðal álykt-
ana, sem þingið gerði voru:
„Ársþing Íþróttasambands ís-
lands 1942, skorar á Þingvalla-
nefnd að láta byggja leikvang
á Þingvöllum fyrir árið 1950,
svo að hægt verði að halda þar
allsherjar-íþróttamót o g þjóð-
hátíð 1950, til minningar um
fullveldi íslands“.
„Ársþing JJþróttasamband ís-
lands 1942, skorar á Bæjar-1
stjórn Reykjavíkur og skipu-
lágsnefnd fíkisins, ’ að láta nú
þegar ganga frá að velja heppi-
legan stað fyrir væntanlegan
leikváng í höfuðstaðhuitt, þar
sem núverandi Iþróttavöllur ef
óviðunandi“,
I stjórn voru kosnir: Forseti
Ben. G. Waage, endurkosinn.
Énnfremur Einar Pálsson, verk-
fræðingur (í stað Sigurjóns
Péturssonar, gjaldkera, sem
bíiðst undan endurkosningu) og
Frímann Helgáson, formaður
Vals. En fyrir eru í sambands-
,Stjórn: Erlingur Pálsson og
Þörarinn Magnússon.
Varastjórnin var endurkosin
og einnig endurskoðendur.
Fólk, sem bíður til þess að komast að og fá afgreiðslu í matvör itbúð á Torvegaten.
Atvinnumála-
rðfiherrann var
i 6 fundum
norðanlands
Magnús Jónsson atvinnu-
málaráðherra, sem verið
4 ferðalagi um Norðurland und-
anfarrið var kominn til Búðar-
dals í gær. Þar mætir hann á
almennum fundi í dag, sem
Framsóknarmenn hafa boðað
til. Ráðherrann kemur heim
seint í kvöld.
Atv.i nnumáiaráðhe rra rfn var
alls búinn að mæta á 6 fundum:
Á Hvammstanga, Blönduósi,
Sauðárkróki, Hofsós, Siglufirði
og Akurevri. Voru alt flokks-
fundir, nema á Siglufirði var
almennur fundur. Ráðherrann
Ijet mjög vel yfir fundunum, er
tiðindamaður blaðsins átti sím-
tal við hann í gær. Sagði hann,
að Sjálfstæðismenn væru mjög
áhugasamir og einhuga í kosn-
ingabaráttunni. Allur móður-
inn í stjórnarskrármálinu væri
rokinn úr Framsóknarmönnum.
Það er þeim
mátulegt
tp rjettaritafi New York Post í
1 MoSkva sendir blaði sínu
ffegnir af því, að andúðar gæti
meðál þýskra stríðsfanga í Rúss-
landi, gegh Nazistum.
Ifánh hafði haft tal af fanga
eirihöi ér 'tekinn var á Staraya
R.ússa svæðinu. Hafði fangi þessi
haft þann starfa að gera við vjel-
byssur.
Þegar Þjóðverjinn var að því
spurður, hvort honum væri það
ljóst, að byssur þessar vrðu not-
aðar gegn Nazistum, sagði hann,
að það væri þeim ekki nema
mátulegt. Ilarin kvaðst hata Naz-
ista fyrir að hafa komið þýsku
þjóðinni út i stríð.
Islandsmótið:
Víkingur og Fram
í kvöld
¥ kvöld kl. 8,30 verður þriðji
* kappleikur Islandsmótsins
háður. Eigast þar við Fram og
Víkingur. Fram er eina fjelagið,
sém maður hefir ekki enn feng-
ið að sjá á þessu móti, en í síð-
asta leik sínum, í afmælismóti
I. S. í. unnu þeir íslandsmeist-
arana. Má því búast við fjör-
ugum leik og prúðmannlegum,
en svo eru leikir Fram og Vík-I
ings jafnan. Um úrslitin skal
engu spáð, en Fram mun að
sjálfsögðu reyna að hefna
greypilega fyrir 0 : 5 ósigurinn
um daginn, en Víkingur reyna
að sigra enn glæsilegar nú.
Hvað stigum viðvíkur, hafa
Valur og K. R. sín tvö hvort, en
önnur fjelögin ekkert ennþá.
Og ekki getur hjá því farið, að
þeim fjelögum, sém eiga stig í
sjóði, fjölgi í kvöld. Allir út á
völl. J. Bn.
Vorboðinn í
Hafnarfirði
f 7orboði“, fjelag sjálfstæð-
»♦ * iskvenna í Hafnarfirði
bjelt fund á föstudagskvöld.
Á fundinum töluðu Bjarni
Bjarni Snæbjörnsson alþingis-
maður og frambjóðandi Sjálf-
stæðisflokksins Þorleifúr Jóns-
son. Ennfremur María Maack,
frú Jónína Guðmundsdóttir frá
Reykjavík og frú Jakobína
Mathiesen form. Vorboðans.
Var mikill áhugi á meðal fje-:
’íagskvenna fyrir kosningabar-
áttunni.
Flokkslegum þroska og dugn
aði Sjálfstæðiskvenna í Hafnar-
firði hefir löngum verið við-
brugðið í undanförnum alþing-
iskosningum og munu þær ekki
fivað síst nú ætla að fylkja sjer
fast um stelnumál Sjálfstæðis-
flokksins í þessum kosningum.
Frjettaritari.
Eldur I
„Fagranesinu"
I Slippnum
Oíðdegis í gær kom upp eldur
« „Fagranesinu“, sem var
uppi í SIipp, til hreinsunar og
viðgeröar.
Eldurinn var á 1. farrými
skipsins, bæði ofan þilfars og-
neðan.
Fi'aman við farþegarýmið er
járnskilrúm; hafði eldurinn
kömist fram með olíugeymun-
um, beggja megin vjelar og var
því um tíma hætta á, að geym-
arnir gætu sprungið.
Var eldurinn allmagnaður, er
slökkviliðið kom á vettvang, en
því tókst brátt að slökkva eld-
inn.
Skemdir urðu allmiklar. —-
Brann alt innan í reykherbettg-
inu uppi, húsmunir allir og
klæðningar. Einnig brann tals-
vert niðri og miklar skemdir
urðu af vatni.
Óvíst er um upptök eídsitts.
Auk s'lökkviliðs bæjarins að-
stoðaði slökkviliðið frá breská
setuliðinu við að slökkva eldinn.
51 eyrir fyrir
Olafur Bjarnason í Brautar-
holti skrifar blaðinu ' um
mjólkurverðið:
— í huií eru okkúr bæmíum
reikuaðir 55 aurar fyrir mjólk-
urlítrann við mjólkurstöðína. Frá
því verði dragsst 4 aui-ar í flutn-
ingskostnað og vinsluafföll. Svo
jeg fæ 51 eyri fyrir lítrann.
Þetta útborgaða verð er harla
lágt, þegar tekið er tillit til þess,
að mjólkin er seld í Reykjavík í
lansu máli á 92 aura lítrinn, og
nær öll mjólkin seld sem drykkj-
armjólk.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.