Morgunblaðið - 04.07.1942, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.07.1942, Blaðsíða 2
MOKGUímBLAÐíÐ Laugardagur 4í júlí 1942. Rommel hörfaði fyrir gagnáhiaupum Breta |Ný orusta haíin um E1 Alamein Ameríkumenn taka þált í bardögunum ROMMEL neyddist til að hörfa undan gagnárás- um Bandamanna íyrir vestan EI Alamein í fyrradag og hverfa með lið sitt til stöðva sinna, sem hann notar til að endurskipa lið sitt. En í gær gerði hann áhlaup á ný og höfðu engar frjettir borist í gær- kvöldi um, hvernig orustunum í gær hefði lyktað. Orustur voru afar harðar í fyrradag og tók fluglið Breta mikinn þátt í þeim. Var barist allan daginn og flug- liðið undi sjer engrar hvíldar. Loftárásir voru gerðar á Tobruk og aðrar stöðvar öxulríkjanna, en aðalárásirnar gerði flugliðið á hersveitir Rommels. Frjettaritarar, sem eru með áttunda hernum segja, að tvent hafi orsakað, að Rommel neyddist til að hörfa undan. 1) Vegna þess hve vörn Breta var hörð og 2) vegna gagnárásanna á hlið og að baki öxulherjanna. Sókn Þjóðverja fer harðnandi í Rússiandi Reyna að rjúfa samgöng- ur milli Moskva og Rostov ÞAÐ þykir nú ljóst orðið, að tilgangurinn með sókn Þjóðverja á svæðinu frá Kursk til Vol- ehansk sje að reyna að rjúfa járnbrautarlín- una frá Moskva til Rostov og skifta þannig aðalherjum Rússa og birgðaleiðum. Sókn Þjóðverja hefir farið vaxandi undanfarna daga, og segja þeir sjálfir, að þeir hafi brotist í gegnum varnar- línur Rússa á 300 kílómetra svæði. í rússneskum fregnum er því hinsvegar haldið fram, að Rússar hafi alstaðar hald- ið stöðvum sínum o°' bó að Þjóðverjum hafi tekist að brjót- ast sumstaðar inn . 'narlínur þeirra í bili, hafi þeir jafn- an verið hraktir til naka. í fregn frá Rússlandi er talað um gífurlegt manntjón og her- gagna hjá Þjóðverjum og að sókn þeirra verði þeim dýr, en lítil- fjörlegt, sem þeir vinni á, miðað við tjónið. I herstj.tilkynningu rússnesku herstjórnarinnar í nótt er skýrt frá því, að Rússar hafi hrundið miklum árásum Þjóðverja á Kursk vígstöðvunum. Segir í tilkynningunni, að á einum degi hafi Þjóðverjar mist 250 skrið- dreka og manntjón þeirra hafi verið 15000 liðsforingjar og ó- breyttir hennenn á þessum eina degi. Tilkynningin segir, að einnig hafi verið hrundið áhlaupum Þjóðverja sem þeir hafi gert í áttina til Byelgorod og Volc- hansk. RÚSSAR VIÐURKENNA FALL SEVASTOPOL. Loks er í herstjórnartilkynn- ingunni skýrt frá því, að Rúss- ar hafi hörfað úr Sevastopol. — Breski frjettaritarinn Paul Winterton skýrir frá því, að Rússar hafi varið hvert hús og hverja götu í Sevastopol. Hitler hafi lofað hermönnunum, sem börðust við Sevastopol, að þeir skyldu fá sjerstakan heiðurs- pening, en „fæstir munu lifa til að bera það heiðursmerki“, seg- ir frjettaritarinn. „Borgin er að verða að þýskum kirkjugarði milli fjalls og f jöru“. 1000 KRÓNA GJÖF TIL HÚSMÆÐRASKÓLA HAFNARFJARÐAR. De Gaulle hvetur Frakka að vera viðbúna I útvarpsræðu til Frakklands, “ sem de Gaulle hershöfð- ingi flutti í gærkveldi hvatti hann Frakka til að undirbna sig undir lokaúrslitin, því í þeim myndu þeir hafa mikið hlutverk að vinna. — ,,Hver getur neit- áð því, að með hverjum degin- um sem líður aukist líkurnar fyrir því, að orustan um Frakk- land fari að hefjast, þrátt fyrir sigra óvinanna?“ Herstyrkur bandamanna, sem óvinurinn verður að vinna bug á áður en hann vinnur endan- legan sigur er nú fimm sinnum stærri, en hann var á sama tíma í fyrra. Síðastliðna 12 mánuði hefir óvinurinn mist tíu sinnum fleiri menn en tvö ár þar á und- an. Á hverjum þrem mánuðum auka bandamenn sprengju- þunga sinn, sem varpað er á þýskt land, þrefalt. Erfiðleikar óvinanna við að afla sjer vista, flutningaerfiðleikar þeirra og skortur á vinnuafli, aukast eftir því, sem styrjöldin stendur lengur. Jafnvel forsprakkar nasista viðurkenna þetta. Reuter. EL ALAMEIN. Frjettaritari sænska blaðsins Allehanda skýrir frá því, að í fregnum frá Rómaborg sje skýrt frá því, að nokkur þúsund Ame- ríkumanna, sem sjeu sjerstak- lega vel útbúnir að vopnum, berjist með Bandamönnum við EI Alamein. Hermálasjerfræðingur Reu- ters segir í gærkveldi, að frjett- irnar frá Egyptalandi sjeu nú hagstæðari Bretum, en þær hafi verið undanfarna daga. Sókn Rommels hafi verið stöðvuð, um það sje ekki hægt að deila. — Hvort hjer (sje um að ræða stöðvun, eða algjöran ósigur hans muni kom fram á næstu klukkustundum. Hann segir að augljóst sje, að annað hvort verði Rommel eða Auchenleck, að hörfa. þar sem að hvorugur þeirra geti haldið stöðvum sínum á þeim slóðum, sem þeir sjeu nú, til lengdar. Til þess sjeu þær óhentugar. — Það sje nú Ijóst orðið, að full- yrðingar öxulríkjanna frá í gær úm að herir þeirra hafi brotist í gegn um varnarlínur Banda- manna hjá E1 Alamein og að þeir eltu flóttann til Alexandria, hafi verið ósannar. Frjettir berast um, að Rom- mel hörfi vestur á bóginn. Það er undir því komið hve langt hann hörfar og hvort honum tekst að skipa liði sínu til or- ustu á ný. Eftir því sem lengra líður fara horfur batnandi fyrir Auchenleck. Þátttaka breska flughersins á sinn mikla þátt í að hindra framkvæmdir Rom- m^ls“. ÞJÓÐVERJAR HAFA BETRI FALLBYSSUR. Frjetaritari Reuters, Ralph Walling, símar í gær, að það hafi verið vegna þess, að Þjóð- verjar hafi haft betri fallbyssur, að þeim tókst að brjótast í gegn um varnarlínur Bandamanna, um stund, við Dir el Shein fyrir sunnan Ei Alamein, fyrsta dag- inn, sem orusturnar stóðu þar. Aðstaða okkar er ekki slæm, sagði breskur liðsforingi einn við Walling. „En ef við, eigum að verjast árásum Þjóðverja verðum við að fá rjett hergögn, á rjettum tíma og á rjettan stað“. Þjóðverjar notuðu fall- byssur, sem hafa 105 millimetra hlaupvídd. „Til að byrja með höfðum við jafngóðar byssur og Þjóðverjar og við Ijetum þá hafa alt, sem þeir þurftu“, sagði annar liðs- foringi í samtali við Walling. — Við skutum tvo eða þrjá skrið- dreka í tætlur, en þá komu Þjóð verjar með stórskotalið sitt ein- hversstaðar frá og við urðum að hörfa frá Dir el Shein undir rökkrið“. Eldsvoði í franskri verksmiðju Mikill eldsvoði braust út í gærfnorgun í stórri verk- smiðju í Conneuil Sur Marne. rjett hjá París. Verksmiðjuhús brunnu til kaldra kola og mikið tjón varð á vjelum verksmiðj- unnar. Tjónið er áætlað 1 miljón franka. Talið er að eldssvoðinn hafi stafað af íkveikju. Sjálfstæðismenn þeir, konur og karlár, sem vilja taka að sjer að vera í bílum á morgun, eru beðn- ir að láta skrásetja sig í dag á skrifstofu D-listans í Varðarhús- inu. Húsmæðraskólafjelagi Hafnar- fjarðar hefir borist 1000 kr. gjöf frá frú Helgu Jónasdóttur, Hafn- arfirði. Bestu þakkir. Stjórnin. D-USTINN er listi Sjálfstæðis- manna í Reykjavík. Hjeðinn Valdimarsson sást ný- lega norður á Vatnsskarði, þar sem hann var að taka kvikmynd af fjallasvönum. Hann hefir stund um haft annað fyrir stafni svona rjett fyrir kosningar. Þjóðliátíðardapur Bandarikjanna erf dap Aiðalþjóðhátíðardagur Banda ríkjamana, fullvveldisdag- ur, er í dag, 4. júlí. — Dagur- inn er hátíðlegur haldinn í minn ingu um yfirlýsinguna um sjálf- stæði Bandaríkjanna, sem gefin var út í Philadelphia 4. júlí 1776. Það var upphaf Banda- r í k jaþ jóðarinnar. í dag verður ekki frídagur í Bandaríkjunum, eins og áður þenna dag, en aðalhátíðahöldin eru fólgin í því, að hleypt verð- ur af stokkunum 6 nýjum versl- unarskipum. í fyrsta sinn í sögu Banda- ríkjanna birta rúmlega 500 vikurit fána Bandaríkjanna á forsíðu sinni um þessa helgi í tilefni af fullveldisdegi Bandaríkjanna hefir Roosevelt forseti borist margar kveðjur frá leiðtogum hinna sameinuðu þjóða. Meðal þeirra, sem sent hafa Roosevelt forseta kveðjur sínar eru Georg Grikkjakon- ungur og forsætisráðherra hans, stjórn Luxembourg og Benes forseti Tjekkoslóvakíu. Skipatjón Breta í Miðjarðarhafs- orastunni jTTt lotamálaráðuneytið breska *- skýrði frá því í gær, að ný- 1-ega hafi verið sökt beitiskipinu Hermione (5.450 smál.) og fjórum tundurspillum. — Einnig skýrði’ pólska flptamálaráðuneytið frá því, að pólskum tundurspilli hefði verið sökt. Þetta skipatjón varð, er skipin voru í fylgd með flutningaskipá- lestum til Malta og Tobruk fyrir 10 dögum_, og skýrði Attlee þá frá þessu tjóni í breska þinginu. Tjón ítala í þessum átökum varð. Samkvæmt frásögn Attlee’s: Eitt orustuskip varð fyrir tundur- sbeyti, einu 8 þuml. fallbyssna beitiskipi og tveimur tundurspill- um sökt, einum kafbát sökt. Loftárás á Bremen I fyrrinótt Loftárás var gerð á Bremen í fyrrinótt og tóku allmarg- ar fjögrahreyfla „Halifax“, ,Stirling‘ og ,Lancaster‘ sprengju- flugvjelar þátt í árásinni, sem stóð yfir í 30 mínútur. 1 opinberum breskum fregnum um loftárásina er sagt, að flug- mennirnir hafi sjeð elda mikla loga að árásinni lokinni, einkum í hafnarhverfum borgarinnar. Loftvarnir í Bremen eru mjög öfl- ugar og ennfremur sendu Þjóð- verjar fram næturorustuflugvjel- ar. Ein næturorustuflugvjel var skotin niður, en 13 breskar flug- vjelar komu ekki aftur til bæki- stöðva sinna. Telja Bretar þetta lítið tjón þegar tekið sje tillit til þess hve flugvjelamar hafi verið margar, sem árásina gerðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.