Morgunblaðið - 04.07.1942, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.07.1942, Blaðsíða 3
Laugardagur 4. júlí 1942. MORGUNBLAÐIÐ a Framsóknar-ástanöið og rauða ðótið HtiUfllllimillllHIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIilHlllillllilNllllimilllllllUHfl s S s „Nytjaplanta“ Framsóknar- flokksins Skyldan kallar - Sjálfstæðismenn! PAÐ hefir vakið óskifta athygli bæjarbúa, hve mikils nú þykir við þurfa í báðum rauðu her- búðunum hjer í bænum, þar sem blöð þeirra nægja nú ekki í venjulegri mynd, heldur koma þau út tvisvar á dag, auk allra pjesanna og myndanna og ummæl- anna og skrifuðu brjefanna. Hvers vegna ganga þessi ósköp á? Þeir játa þó sjálfir, að ekki verði um annað kosið í raun og veru, en stjórnarskrárbreyt- inguna. Og það er laukrjett. Þeir þingmenn, sem nú verða kosnir, eru kosnir til örstutts tíma aðeins, og eiga ekki setu nema á einu stuttu þingi, sem sennilega afgreiðir ekkert annað en þetta eina mál. Efsti maður E-listans var fjölorður í útvarpinu um daginn, um nytja- plöntur þær, er Þjóðólfsmenn ætluðu að gróðursetja. Hjer er höfuðpaur E-listans við ræktunarstarfið. Orðsending til Sjálfstæðismanna S JÁLFBOÐ ALIEÐAR: Sjálfboðaliðar við kosningarnar eru beðnir að mæta á tilsettum tíma, hver á sínum stað. BÍLAR: Þeir Sjálfstæðismenn, sem ætla að lána bíla við kosningarnar, eru beðnir að koma með þá að Varðarhúsinu (suðurdyr) kl. 9 árdegis á morgun. Þeir sjálfboðaliðar, sem aðstoða ætla á bíla- skrifstofunni og í bílunum, mæti í Varðarhúsinu kl. SV2 árdegis á morgun. FULLTRlJARÁÐIf). Fulltrúar Sjálfstæðisfjelaganna og aðstoðar- menn þeirra mæti í Oddfellowhúsiiiu kl. Sl/2 árdegis á morgun. Símar kosningaskrifstofmmar á morgun eru: Bílaafgreiðslan: 1125 (6 línur). Upplýsingaskrifstofa fyrir kjósendur í Reykja- vík: 1500 (4 línur). \ Upplýsingar viðvíkjandi kjördæmum utan af landi: 2339 og 3315. Kosningin hefst kl. 10 árdegis. Sjálfstæðismenn! Ljettið starf kosningaskrif- stofunnar með því að kjósa snemma. Á SÍLDVEIOAR. FIMM MINKAR UNNIR. Ragnar & Jónas V vetur prentaði prentsmiðjá * Ragnars í Smára snepil, sem kallaður var frá óánægð- um Sjálfstæðismönnum. — Snepli þessum var dreift út á kjördag og var þar mælst til þess, að Sjálfstæðismenn afsöluðu sjer meirihluta sín- um í bænum. Svo sem nærri má geta hafði snepillinn eng- in áhrif, heldur vakti ein- ungis viðbjóð á þeim, sem slík vinnubrögð hafa. Nú hafa þessir sömu menn hafið iðju sína að nýju. Að þessu sinni hefir samt ekki þótt hyggilegt að láta sjást, hvar ósóminn væri prentað- ur. Þess vegna hefir það ráð verið tekið að senda út vjel- ritaðan miða, þar sem ,,vin- samlegast“ er skorað á menn að strika út 1., 3. og 5. mann á lista Sjálfstæðis- manna. Auðsjeð er hvaðan áskorun þessi er runnin. Ætlunin er að reyna að sá sundrungu meðal Sjálfstæðismanna og reyna að ginna einhverja til þess að eyðileggja atkvæði sín. Sömu erindrékarnir, sem standa fyrir sprengilistunum, hafa nú tekið tih þessa ráðs. En þeir, sem svo fara að, þekkja illa Sjálfstæðismenn í Reykjavík. Slík óþokkabrögð hafa þau ein áhrif að þjappa Sjálfstæðismönnum saman í enn órjúfanlegri heild en nokkru sinni fyr um Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði herða baráttnna Sjálfstæðisfjelögin í Hafnar- firði hjeldu fund s.l. fimtu- dagskvöld í húsi flokksins. Á fundinum kom fram eining og baráttuhugur Sjálfstæðismanna í kosningunum. Meðal margra á- gætra ræðumanna var frambjóð- andi flokksins, Þorleifur Jónsson. Fundarfólk og aðrir Sjálfstæð- ismenn í Hafnarfirði eru nú á- kveðnari en nokkru sinni fyr, að vinna vel að kosningu frambjóð- anda síns og svara þannig sví- virðilegum álygum og rógi um Sjálfstæðisflokkinn og frambjóð- anda hans. Sjálfstæðismenn og konur í Hafnarfirði. Til starfa í órjúfandi fylkingu fyrir sigri ykkar mál- staðar. Fylkjum okkur öll um Þor- leif Jónsson. X Þorleifur Jónsson. Sjálfstæðismenn! D-listinn er ykkar listi. Maður skyldi því ætla, að hjer yrði nokkurskonar „friðarkosn- ing“ nú að þessu sinni. En þetta er fjarri sanni. And- stæðingar okkar Sjálfstæðis- manna ætla sjer alt annað. Þeir ætla sjer að nota þessar kosning- ar til þess, að reita til sín fylgið í skjóli þess, að þeir fylgi nú einu sinni góðu máli með Sjálfstæðis- flokknum. Og þetta fylgi ætla þeir svo að nota til þess að beita því gegn Sjálfstæðisflokknum þegar að kosningunum loknum. ★ Það duldist engum, að Her- mann Jónasson var kominn á bið- ilsbuxumar í útvarpsræðu sinni á fimtudagskvöldið. Það var auð- heyrt hvert hann ætlaði að leita um næringu, þegar gæsagarður- inn væri farinn að gefa minna af sjer. Og það má svo sem nærri geta, að rauðu dömumar em til í Framsóknar-ástandið, hvenær sem það býðst. Það er því hin mesta nauðsyn og brýnasta skylda Sjálfstæðis- manna, að vera nú á verði og láta ekki blekkjast af neinum hafgúu- söngvum um það, að allir hjer sjeu sammála um það mál, sem aðallega er kosið um. Því að eitt er það, að koma stjómarskrár- málinu í höfn og annað það, hvort Framsóknar-ástandið á að halda innreið sína í Reykjavík þegar eftir þessar kosningar. Það gerir það, ef rauðu flokkamir eflast nú. Þetta þarf ekki að ske. Sjálf- stæðisflokkurinn á nú svo mikið og óskift fylgi, að flokknum er vís stórsigur, ef flokksmenn allir gera skyldu sína um það, að kjósa sjálfir og hafa vakandi auga á því þessa tvo daga, sem enn er tækifærí til þess, að allir flokks- menn kjósi. Reykvíkingar! Minnist þess nú, hvað Fram- sóknar-ástandið, í fjelagsskap við sína fimtu herdeild hjer, hefir verið og gert Reykjavík! Látið ekki slíkan skugga koma yfir bæinn á morgun. Greiðið andstöðuflokkunum það högg, að þeir haldi ekki höfði eft- ir helgina. Þeir eru sjálfir hræddir. Það FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. Sveinbiörn þrætir -- Hermann játar að var beðið með talsverðri eftirvæntingu eftir síðasta framboðsfundinnm í Rangár- vallasýslu, Stórólfshvolsfundin- um, en hann var haldinn á fimtu- daginn var. Vitað var, að síra Sveinbjörn Högnason myndi mæta á þessum fundi og ljek mönnum forvitnd á að heyra, hvað hánn hefði fram að bera gegn þeim þungu ákær- um, sem á hann hafa verið born- ar víða á fundum eystra, sem formann Mjólkursölunefndar. Staðhæft hefir verið, að síra Sveinbjöm hafi árið sem leið lát- ið greiða sjer 6500 kr. úr Verð- jöfnunarsjóði, án heimildar eða vitundar meðnefndarmanna hans í Mjólkursölunefnd. í mjólkursölulögunum er svo fyrir mælt, að hver nefndarmað- ur skuli fá 10 kr. fyrir hvem dag, sem hann er á nefndarfundi. Þetta lögboðna kaup tók síra Sveinbjöm eins og aðrir nefndar- menn, en þar að auki á hann að hafa tekið 6500 ikr. KLERKUR NEITAR. Á fundinum á Stórólfshvoli bar Bjöm Bl. Jónsson löggæslumaður þessa ákæru á síra Sveinbjörn, sem þar var viðstaddur. Síra Sveinbjöm svaraði hinni þungu ákæra á þann hátt, að Bj. Blöndal hefði tekið að sjer hlut- verk Marðar. Sjálfstæðismenn hefðu leigt Björn til þess að bera þenna róg austur um sveitir. Sigurjón Sigurðsson bóndi á Raftholti talaði næst á eftir presti. Hann skoraði á prófastinn, að vera ekki með undanbrögð og vífilengjur í þessu máli, skoraði á hann að koma hreint fram og segja annaðhvort já eða nei. Pró- FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU Frjettaritari ’vor í Eyjum sím- ar í gær: ' Fyrstu bátarnir era nú að fara af stað til síldveiða. Hjeðan munu fara mun færri bátar en vanalega, eða líklega um 15 bátar með 13 nætur. Engir teljandi erfiðleikar hafa verið á að ráða menn á skipin og mun nú fullráðið. Síðastliðinn mánndag skaut Kristinn Einarsson kaupmað- ur 4 villiminka við Elliðavatn og tók þann fimta með höndnnum. Segir Kristinn, að allmikið beri á villiminkum við Elliðavatn, þar sem hann á sjálfnr sumarbústað. Kristinn kveðst athuga minkana í kíki og reyna svo að vinna*þá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.