Morgunblaðið - 09.10.1942, Síða 6
Föstudaffur 9. okt. 1942.
M0RUUNSLAÐI3
Ung og hraust stúlka
með góða rithönd og fær í reikningi getur fengið
fasta atvinnu á skrifstofu nú þegar. Skrifleg um-
sókn merkt „50“ sendist blaðinu fyrir 15. þ. m.
Fyrlrliggfaodi:
Tb í 'l« og ’/8 Ibs. pökkum
Eggerl Krlsl)ánssoii & Go. h.f.
BEST AÐ AUGLYSA I MORGUN BLAÐINU
Ung oghraust stúlka
með stúdents- eða verslunarskólamentun getur feng-
ið framtíðaratvinnu nú þegar. Skrifleg umsókn
mrkt. „100“ sendist blaðinu fyrir 15. þ. m.
Skjalatöskur
Tr
' i'iXSISSES
2ja og 3ja hólfa.
[Bókaverslun _________
Þór. B. Þorlákssonarj
Bankastræti 11. — Sími 3359.
Ullar-
Hálstreflar
nýkomið
mjög fjölbreytt
úrval.
Geysir h.f.
FATADEILDIN.
í dag og á morgun seljum við
Karlmannaföf
05»' unglingaföl
á kr. 250.00
AÐEINS ÖRFÁ STÝKKI.
INGÓLFSBÚÐ
Sími 2662. Hafnarstræti 21. Sími 2662.
Jón Jónsson læknir
1EST AÐ AUGLYSA 1 MORGUNBLAÐJNL
FRAMH. AF FIMTTJ SÍÐU.
dalshjeraði og komin. af bestu
ættiuu, t. d. má rekja ætt Jóns
læknis til allra sona Jóns bisk-
nps Arasonar. Jón próf. í Hjarð-
arholti var sonur Outtorms próf.
í Vallanesi Pálssonar próf. á Val-
þjófsstað Magnússonar Jónssonar
yngra sýslum. á Einarsnesi, en
frú Guðlaug (móðir Jóns læknis)
var dóttir Jóns bónda á Brekku
í Fljótsdal og Margrjetar systur
Gísla læknis Hjálmarssonar.
Jón læknir ólst upp hjá foreldr-
um sínum í Hjarðarholti. Síðasta
veturinn sem Guðmundur próf.
Einarsson á Breiðabólsstað lifði,
lærði Jón hjá honum undir skóla,
en næsta vetur hjá Hjörleifi próf.
Einarssyni á Undirfelli og fermd-
nr var hann mislingasumarið 1882.
Settist í 2. bekk latínuskólans
haustið 1883 og lauk stridentsprófi
30. júní 1888, en frá læknaskól-
anum útskrifaðist hann 30. júní
189^ með 1. einkunn. Næsta vet-
nr dvaldi hann í Kaupmannahöfn
við framhaldsnám, kynti sjer þá
meðal annars tannlækningar, sem
hann síðar stundaði sem sjergrein,
þó án opinberrar viðurkenningar.
Sem hjeraðslæknir vann Jón:
í Fljótsdalshjeraði 1893—1896, í
Vopnafjarðarhjeraði 1897—1906
og Blönduóshjeraði 1906—1922, er
hann f jekk lausn frá embætti sak-
ir heilsubrests, sigldi þá til Þýska-
lánds til þess að reyna að fá bót
á heilsunni og jafnframt til að
stunda framhaldsnám í tannlækn-
ingum. Dvaldi hann í Þýskalandi
nokkra mánuði, fór þá heim og
vann að tannlækningum í Reykja-
vík, Hafnarfirði og víðar alt frani
að síðustu árum, að vísu með veik-
um burðnm, því hjartasjúkdómur
spilti mjög díðan hans og orkn
síðustu tvo áratugina.
Jóni lækni voru falin ýms störf
—- auk lækninganna — bæði fyrir
landið í heild og sveit sína, því
hann var maður vinnufús, áhnga-
samur og samvinnuþýður og vand
aði verk sitt að hverju sem hann
gekk. Þannig var hann skipaður
af amtinu fjárkláðalæknir í tvö
ár, nokkru eftir aldamótin, á svæð
inu milli Jökulsánna á Brú og
Fjöllum og aðstoðarmaður C. V.
Jensen við bráðafárbólusetningar
á Anstur- .0g Norðurlandi. Mun
hann liafa leitast við að afla sjer
þekkingar á þeim sjúkdómi, er
hann dvaldi í London veturinn
1896—1897.
Fyrir sveitiua sína vann hann
mörg ár sem hreppsnefndarodd-
viti, formaður sóknarnefndar og
sáttanefndarmaður, og mikinn og
góðan þátt átti hann í því — á-
samt sjera Sigurði Sivertsen og
fleirum — að kirkja var bygð á
Vopnafirði og myndarlegt barna-
skólahús, sömuleiðis að keypt var
þar lítið hús, sem svo var notað
sem sjúkraskýli, fjekk hann kon-
nr sveitarinnar í lið með sjer til
að safna fje til þess þarfa fyrir-
tækis. Þegar Jón læknir kom til
Vopnafjarðar fjekk hann ekkert
hús til íbiiðar — Arni læknir
Jónsson, sem var þar næstur á
undan honum, hafði búið uppi í
sveit. Jón varð því að hafast við
í barnaskólastofu í tvö ár uns
hann keypti lítið hús, sem var í
smíðúm.
Þegar jeg kom til Vopnafjarðar
haustið 1906, eftir burtför Jóns,
heyrði jeg hans mjög oft að góðn
getið, var hann vinsæll og sam-
viskusamur læknir, neytti aldrei
áfengis og studdi bindindisfjelags-
skap á ýmsa lund. Þar að auki
hann áhugasamasti um öll fje-
lagsmál. Sjerstaklega man jeg,
hve mörgu eldra fólki þótti vænt
um að hann hafði, brátt eftir
komn sína til Vopnafjarðar, tekið
upp þann sið að lesa húslestra í
samkomnhúsin,u á sunnudögum,
f jekk hann söngfólk þorpsins í lið
með sjer, svo sálmasöngur varð
hinn prýðilegasti, enda var kirkjn-
söngur eitt af mestu áhugamálum
Jóns alla æfi, lagði hann því lið
og hjelt um það fyrirlestra. Brátt
tók sóknarpresturinn að sjer þess-
ar guðsþjónustur og innan tíðar
var kirkjan svo reist, er Hofs-
prestakalli var skift í 2 sóknir.
Á Blönduósi stóð Jón iæknir
líka fyrir ýmsum framkvæmdum,
svo sem því að veita neysluvatni
um þorpið, sem þótti hin mesta
nauðsyn sakir yfirvofandi sýking-
ar, hættu frá ónothæfum vatns
bólnm.
Kona Jóns. Kristjana Sigríður
Arnljótsdóttir prests og alþingis-
manns á Bægisá og síðar á Sauða-
nesi, lifir mann sinn. Þau eignuð-
ust, 9 börn, tvo dóu ung, en á
lífi ern 3 synir og 4 dætur.
Hin mörgu, erfiðu og ábyrgð-
armiklu störf læknanna eru vana-
lega látin liggja í þagnargildi,
'því of langt. mál vrði að fara út
í þá sálma, Þeir standa oft nppi
einir síns liðs og illa að vopnnm
tránir í baráttunni við hinn skæða
og slynga sláttumann, en samt er
jeg viss um, að þeir sem liðsinn-
is þeirra njota, senda þeim oft
hlýja þanka.
Jeg sje eftir Jóni úr liópi sam-
verkamanna og vina og svo mun
um fleiri, og lengi mun hans get-
ið sem hins glaða, góða og áhuga-
sama læknis og manns.
Ing'. Gíslason.
iiiitiiimiiimiiiimiiimiimiimiiiiiHinii
MamniHiuiiir
Vandaðir munir j
tii sölu í dag og á morgun |
kl. 6—7 í Safnahúsinu Hverf- f
isgötu, efstu hæð:
3-
Hollenskt málverk. Gobelin |
veggteppi, lítil. íslenskt gólf- 1
teppi, lítið, mjög faliegt. |
Veggmyndir. gtórt rúmstæði |
úr mahogni með madressu |
I o. fl.
1 K
r -
mmmmiiimimmmmmimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuuiiuiiiiiiiiiiiiiit
Nýkomið [
Plyds í barnakápur. 5
Flauelsnáttkjólar. t
Mislit sængurver
og allskonar
satin undirfatnaður. j
Verslun J
S. Mýrdal :
Skólavörðust 4 *
Qt=
inBD[
=JQ
Vetrarfrakkar
(fremur litlar stærðir) |
0 nýkomnir. |
□ B
Klæðaverslun
H. Andersen & Sön,
Aðalstræti 16.
]EU=IBD
NÝ
vörubifreið
Ford 8 cyl. til sölu op;
sýnis á Baldursgötu 24
kl. 6—7 í kvöld.
Chevrolet
vöúubíll 1 tonn til sölu.
TJppl. í síma 1733 kl. 12—1
í dag.
tPQAÐ kvflhtt
mt§ fl«r*»|fiun fri
lOha.vjel
til sÖlu. Ný. — Upplýsingar
í síma 1733 kl. 12—1 í dag.
TÍLIf
Sendisveinn
óskast.
Ví*IR
Laugaveg 1,
Fjðlnisveg 2.
1
Ford 10
til sýnis og sölu í dág kl.
2—3 á Káratorgi við Njáls-
götu.
Morgunblaðið með
morgunkaffinu.
D-LISTINH er listi Sjálf-
stæðismanna.
AUGLÝSINGAR
verBa aO vera komnar fyrir kL 7
kvöldlö á ur en blaSlS komur ðL
Bkkl eru teknar auglýsingar þar
•em afgrelOslun-i er ætlaC a8 visa á
auslýsanda.
TilboS og t msóknlr eiga auglýs-
endur aC sækja eJálfir.
BlaCiö vei lr áldrel neinar upplýs-
logar um auglý ndur, sem vllja fá
•krifleg svör viQ auglýsinguns slnum.