Morgunblaðið - 27.02.1943, Qupperneq 7
jLaugardagur 27. febr. 1943.
HORGUNBLAÐIÐ
7
V
1-
Franska sjúkrahúsið
i London
Dagbók
• Unglingar
2Pöv-«S»«.’
—*HI«» IMIMaWnuBiui —
Anglýiendnr þeir, eein þaría
&S aaglýss ctan Eeykjavíknr.
o4 til flestra lesenda ! «reit-
tnn landsins og kauptúnnm
með því aB anglýaa 1
feafold og VerBl.
---- Sfmi 1600. -------
Hvar er knötturínn?
Framblaðið
í Grindavík (ekki Sandgerði
eins og misrita,ðist í blaðinu í
gær) verður skemtun sú í kvöld,
til ágóða fyrir kirkjuna á staðn-
um, þar sem Eg-gert Stefánsson
syngur með aðstoð Sigvalda
Kaldalóns. Skemtunin verður í
samkomuhúsinu og hefst kl. 9.
Ýmislegt fleira verður til skemt-
unar, m. a. upplestur, Ragnar
Ásgeirsson.
‘ □ Edda 5943327 — I.
Unglinga vantar til að bera
Morgunblaðið til kaupenda við
Aðaletræti, Hverfisgötu og
Karlagötu. Talið við afgreiðsluna
í dag.
Næturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12. Sími
2234.
Messur í dómkirkjunni á morg
un kl. 11 síra Friðrik Hallgríms-
son, kl. 1.30 Bamaguðsþjónusta
(sr. Fr. Hallgr.), kl. 5 sr. Bjarni
Jonsson (altarisganga).
Hallgrímssókn. Kl. 11 bama-
guðsþjónusta í Austurbæjarskól-
anum, síra Jakob Jónsson. Kl.
2 messa s. st. Ástráður Sigur-
steindórsson cand. theol. Kl. 10
f. h. Sunnudagaskóli í gagn-
fræðaskólanum við Lindargötu.
Nesprestakall. Messað í Mýr-
arhúsaskóla kl. 2x/i á morgun.
Nesprestakall. Bamamessa á
Grímsstaðaholti kl. 11 á morgun
Laugarnesprestakall. Messað á
morgun kl. 2. Síra Garðar Svav-
arsson. Barnaguðsþjónusta kl.
10 f. h.
Fríkirkjan í Reykjavík. Messa
á morgun kl. 2. Síra Árni Sig-
urðsson. Unglingafjelagsfundur í
kirkjunni kl. 11. Fjölmennið.
Frjálslyndi söfnuðurinn. Messa
í fríkirkjunni í Reykjavík á
morgun kl. 5. Síra Jón Auðuns.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Messa
á morgun kl. 2. Síra Jón Auðuns.
Kálfatjörn. Messa á morgun
kl. 2. Síra Garðar Þorsteinsson.
1 kaþólsku kirkjunni í Reykja-
vík, Hámessa kl. 10 og bæna-
hald kl. 6i/2 síðd. — 1 Hafnar-
firði: Hámessa kl. 9 og bæna-
hald kl. 6 síðdegis.
Hjónaband. Gefin verða sam-
án í hjónaband í dag af síra
Hálfdáni Helgasyhi prófasti að
Mosfelli, þau ungfrú ísafold
Kristjánsdóttir frá Álfsnesi á
K j alamesi og Jóhann Ingvar
Pjetursson vjelsmiður, Laugaveg
159.
Leikfjelag Reykjavíkur hefir
frumsýningu annað kvöld á skop-
leiknum Fagurt á fjöllum. — Að-
göngumiðasalan er opin frá kl.
4 til 7 í dag.
Happdrætti Laugárneskirkju.
Nú er aðeins rúmur mánuður,
þar til dregið verður í bílhapp-
drætti Laugarneskirkju. Nokkrir
miðar eru enn óseldir og fást
þeir meðal annars á afgreiðslu
Morgunblaðsins, í bókaverslun-
um Eymundsson og ísafoldar,
Skóbúð Reykjavíkur og hjá Har-
aldi Ágústínussyni rakara.
Útvarpið í dag:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18:80 Dönskukensla, 1. flokkur.
19.00 Enskukensla, 2. flokkur.
19.25 Hljómplötur: Samsöngur.
20.00 Frjettir.
20.30 Leikrit: „Jón Arason“ eft-
ir Matth. Jochumsson (Harald-
ur Björnsson, Gunnþórunn Hall
dórsdóttir, Soffía Guðlaugs-
dóttir, Gestur Pálsson, Tómas
Hallgrímsson, Friðfinnur Guð-
jónsson. Þorsteinn Ö. Step-
hensen, Valdimar Helgason,
Jón J. Sigurðsson, Ævar R.
Kvaran. Lárus Ingólfsson, Sig-
urður Magnússon, Ragnar Áma
son, Klemens Jónsson, Stefán
Haraldsson).
21.50 Frjettir.
22.00 Danslög.
ríliti fáninn blaktir við elli-
snjáð hlið franska spítalans
í London. Alt er í uppnámi í
byggingunni. — Sjúklingarnir
teygja sig til þess að sjá betur
um gangana.
„Hann er að koma.“
Þegar de Gaulle hershöfðingi
gekk hægt upp tröppur spítalans,
hækkaði skyndilega hitinn í
mörgum sjúklingunum.
Frakkland var komið 1 heim-
sókn. Sjúklingamir settust upp
í rúmum sínum, þvert ofan í fyr-
irskipanir jæknanna; sumir heils
uðu. Þeir voru úr liði Stríðandi
Frakka, er særst höfðu í orustu.
Þama voru sjómenn af kaupskip-
um bandamanna, Pólverjar, sem
bariat höfðu í Frakklandi, Belg-
ar, Grikkir, Hollendingar, menn
allra landa, lits og blands, tengdir
einni taug allir, — frelsisástinni.
HJÁLPFÝSI.
Frakkland hefir altaf verið
griðastaður flóttamanna. Það
hefir opnað dymar fyrir stærstu
þjóðflutningum nútímans, fyrirj
heimilisleysingjum allra landa.
Franski spítalinn í Londonj
fylgir þessari gömlu reglu og
tekur á móti sjúklingum „án til-l
lits til þjóðemis,, eða trúarbragða
ng án nokkra meðmælabrjefa“.
Sjúklingarnir em aðeins spurð
ir tveggja spuminga: „Talið þjer
frönsku?" og „Eruð þjer efna-
laus ?“
Þetta eru einu skilyrðín, sem
sett eru fyrir inngöngu. Sjeu þau
uppfylt, er sjúklingnunum hjúkr-
að þeim að kostnaðarlausu af
ágætum jæknum og skurðlækn-
uin, hver svo sem litarháttur
þeirra er og á hvaða Guð sem
þeir trúa.
Nunnur, er nefnast „Kærleiks-
systumar“, úr kaþólsku nunnu-
reglunni „Soeurs Servantes du
Sacré Coeur“, starfa þar sem
hjúkrunarkonur.
Aðeins helmingur sjúkling-
anna, sem hjúkranar hafa notið
á franska spítalanum í London
þau 75 ár, sem hann hefir starf-|
að, hafa verið franskir ríkis-J
borgarar, eða úr nýlendum
Frakka. Hinn helmingurinn hefir
verið úr öllum löndum heims,
frá Rúss]andi, Armeníu, Banda-
ríkjunum, Tjekkoslovakíu, Kína,
Tyrklandi, Arabíu, Japan, Spáni,
Siam og Austurríki.
De Gaulle, hershöfðingi, talar
við sjerhvem sjúkling.
„Hvar er fjölskyldan yðar?“
spyr hann ungan Frakka.
„Jeg á systur í París. Þeir
settu gula stjörnu á handlegg
hennar“, bætti hann við, lágri
röddu. Hún var Gyðingur.
Hann fylgir de Gaiflle hers-
höfðingja með augunum, þar
sem hann gengur frá einu rúmi
tij annars; hann hlustar eftir
fótataki hans þegar hann fer,
hann reynir að hlusta gegnum
veggina. Fyrst þegar hami veit,
að foringi Stríðandi Frakka er
farinn frá spítalanum, legst hann
aftur niður í rúmið, uppgefinn.
Uppástunga
t'
uin alheims
’ forðabúr
Washington 25. febrúar
ERIÐ er nú að gera áætl-
anir um alheims ráðstefnu
um matvælamál, eftir að Roose
velt forseti lýsti því yfir, að
hann væri slíkri hugmynd
fylgjandi.
W. H. Lawrence, frjettarit-
ari New York Times, skýrði
frá því í dag, að Bándaríkja-
stjórn hefði í hyggju að vinna
að stofnun alþjóðaforðabúra
fyrir matvæli, og ættu forða-
búr þessi aldrei að tæmast. —
Ætti með þessum forðabúrum
að jafna niður framleiðslu
heimsins af kornvörum, kjöti,
fituefnum, olíum og mjólkur-
vörum og verja forða þessum
til þess að hindra hungursneyð
eða afganga af birgðum, sem
ekki kæmu að notum.
Roosevelt forseti ljet þá von
í Ijósi, að matvælaráðstefnan
yyði haldin í vor. Hann sagð-
ist heldur vilja, að slíkar ráð-
stefnur væru haldnar í litlum
bæjum. en í stórborgum.
Laval semur
við Japana
Fregnir frá London hermdu
í gær, að tilkynt hefði
verið í Japan, að japanska
stjórnin hefði gert samninga
við Laval, þess efnis, að náin
samvinna skyldi vera milli Vic-
hystjórnarinnar og Japana um
það, að vernda og verja Indo-
'Kína, ef nokkur rjeðist á það
land, sem er nú á valdi Jap-
ana, svo sem kunnugt er.
• óskast til að bera Morgunblaðið til kaupenda
q við Aðalstrœtl, Hverfiagðtu
0 og Karlagötu
• Talið við afgreiðsluna strax. Sími 1600. Lítil hverfi
JíHotatmMaðið
Oinnleystar vörur
sem komið hafa hingað með e.s. „EDDU“ frá Italíu,
verða seldar fyrir kostnaði sjeu þær ekki innleystar
fyrir 7. næsta mánaðar.
Gunnar-ÍGuðjónsson
skipamiðlari.
| TILKYNNING
| Hefi opnað aftur Saumastofu á Þórsgötu 19, III,
£ Hefi gott úrval af 1. flokks fataefnum. Get bætt við «*
:j: nokkrum pöntunum til afgreiðslu bráðlega.
| GUÐMUNDUR BENJAMlNSSON
:*: klæðskerameistari.
Klæðskerasveinn
og saumasfúlka
vön að sauma 1. fl. karlmannajakka,
óskast nú þegar.
Hans Andersen
Aðalstræti 12. Sími 2783.
Karlmannaföt
TEKIN UPP I DAG.
ÁGÆT TEGUND.
Geysir h.f.
FATADEILDIN.
Tilkynning
frá ríkisstjóminni
Breska flotastjórnin hefir tilkynt ísiensku ríkisstjóm-
inni, að nauðsynlegt sje að öll íslensk skip, 10 til 750 smál.
að stærð, fái endurnýjuð eins fljótt og hægt er eftir 1.
mars 1943, ferðaskírteini þau, sem um ræðir í tilkynningu
ríkisstjórnarinnar, dags. 7. mars 1941.
Skírteini þessi verða afgreidd sem hjer segir:
. I Reykjavík hjá breska aðalkonsúlnum, á Akureyri hjá
breska vice-konsúlnum, á Seyðisfirði hjá bresku flota-
stjórninni og í Vestmannaeyjum hjá breska vice-kon-
súlnum.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneýtið, 26. febrúar 1943.
/