Morgunblaðið - 12.03.1943, Blaðsíða 6
0
-Jp-
MOHGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 12. mars 1943.
«wninnmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiniiiiiiiiiiiu
(5)'/' / f Z?/7
r y oóvr aaaieaa iipmu
o/cztiar: <7 /7 / S
' 'pt
H
■uiiiiiiiiiiuiiimiiiiiiiiii
★
Betra lag komið á
Ameríkupóstinn ?
ÞEÍR, sem viðskifti hafa
við Amerxku, hafa veitt
því eftirtekt, að undan-
íarið hefir betri regla en áður á
póst8endingum frá Ameríku. Eru
dæmi til þess að hingað hafa bor-
ist brjef, sem ekki eru eldri en
þriggja vikna til eins mánaðar.
Er þetta mikil framför frá því,
aem áður var, er brjef voru stund-
um orðin þriggja og fjögra mán-
aða gömul er þau bárust viðtak-
anda í hendur. V
Hvað eftir annað hefi jeg hamr-
að á því hjer í blaðinu, að betra
skipulag yrði að taka upp á póst-
aendingum milli Ameríku og ís-
lánds. Vonandi er, að það 3ag, sem
nú virðist loks vera komið á póst-
Jhn, haldist í framtíðinni, því vit-
að er, að það er hægt, ef vilji
hlutaðeigandi yfirvalda er fyrir
hendi.
Svartur markaður.
J Á ófriðarþjóðunum,
þar sem matvæli eru
af skornum skamti, og
þar sem nýting þeirra veltur á lífi
eða dauða þjóðanna, þykir það ein-'
hver Ijótasti glæpur, sem fráminn
er, að selja mat- og nauðsynjavöru'
við okurverði. Er hengt þunglega
fyrir slik afbrot og þeir, sem þau
fremja eru andstygð allra góðra
rhanna. Það er talað um „svartan
tnarkað", þegar vörur eru seldar
oikurxTferði.
^ Sem betur fer höfum vjer íslend'
ingar ekki haft neitt af hungri að
alegja. Sennilegt að engin þjóð í
Evrópu Jifi eins vel í mat og drykk
og við. En síðan stjórnarvöldin
fóru að hafa strangara eftirlit og
setja Ipg um verðlag nauðsynja-
vara, er elcki laust við að borið
hafi á fyrstu einkennum hins'
„svarta markaðs" hjá okkur. Svo
að segja hið eina, sem hingað til
hefir verið selt á „svörtum mark-
aði“ er áfengi. Sagt er, að dæmi
sjeu til þesa1, að whiskyflaska hafi
verið selt á 250 krónur. Segja má,
að éf einhverjir eru svo miklir
aumingjar að þeir vilji greiða ok-
urverð fyrir áfenga drykki, þá
sje þeim það mátulegt. Má vel vera
að rjett sje, en yfirvöldin verða að
taka í taumana, ef það kemur í ljós
að nauðsynjavörur sjeu seldar ok-
Urverði.
Nú er t. d. talið að Reykjavíkur
bær sje að verða kartöflulaus og
smjör er nærri ófáanlegt, eftir að
verðið á því var lækkað. Kartöflu-
u
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiTi
leysið er kent ljelegri uppskeru, en
samt fullyrða kunnugir menn, að
hægt sje að fá nægjanlegar kart-
öflur úti á landi, ef nægilega hátt
verð er í boði.
Ef þetta er satt, þá er hjer hætta
á ferðum. Það er vísir að „svörtum
markaði".
Kynnisferðir sveita-
fólks.
N G stúlka i Hafnar-
firði skrifar mjer um
kynnisferðir og sum-
arfrí sveitafólks. Hún segir meðal
annars: „Jeg get ekki setið á mjer
að leggja ekki orð í belg, þegar
Verið er að rökræða hinar svo-
kölluðu kynnisferðir sveitafólks. —■
Mitt álit er, að sveitafólkið geti
ekki fengið betri nje hollari skemt-
un en það hefir í sveitinni sinni.
„Við kaupstaðarfólkið förum í
sumarfrí okkur til heilsubótar, eft-
ir árlanga innivenx við okkar störf
og finnst mjer varla ástæða til þess
að öfunda kaupstaðarfólkið af 14
dága sumarfríi, eftir tólf mánaða
inniveru. Það má vitanlega segja
sem svo, og það með rjettu, að
sveitafólkið sje heldur ekki iðju-
laust og einhver kynni að segja
sem svo, við mig: „Vill ekki þessi
unga stúlka vinna sjálf allt árið
um kring án sumarleyfis ?“
„Þessu vil jeg svara með því,
að segja eins og er. Jeg vinn í
kaupstað á veturna en er í kaupa-
vinnu í sveit á sumrin. Er ekki
nóg af sköttum og útgjöldum lagt
á kaupstaðarfólkið, þótt ekki sje
bætt ofan á landbúnaðarafurðirnar
enn hærra verði í tómri vitleysu
og vafalaust í óþökk meiri hluta
sveitafólksins sjálfs".
¥
Jeg held mjer sje óhætt að segja
þessari ungu stúlku það, að frum-
varpið um kynnisferðir sveitafólks
er ekki framkomið vegna óska þess
sjálfs, heldur eru það hinir svo-
nefndu „fulltrúar" þess hjer í
Reykjavík, sem hafa fundið þetta
mál upp hjá sjálfum sjer til þess
að „trekkja“ nokkur atkvæði.
Skiðalandsmót
ið hefst i dag
IANDSMÓT Skíðamanna
__ hefst í Hveradölum í dag
klukkan 3, með kappgöngu.
24 keppendur taka þátt í
göngunni í aldursflokknum
20—32 ára og sex í aldurs-
flokki 17—19 ára.
Bílar komust upp í Skíða-
skála í gær, en færðin er mjög
slæm.
Englands-siglingar
Ferðir á skíðamótið. Dagana er
Landsmót skíðamanna stendur
vfir í Hveradölum ráðgerir
Skíðafjelag Reykjavíkur að fara
ferðir uppeftir (eða svo langt
sem komist verður): Á föstudag-
inn lagt af stað kl. 1 e. h. Á
laugardaginn lagt af stað kl. 9
árdegis-. Á sunnudag, ekki ákveð-
inn enn burtfarartími. Farið frá
Austurvelli. Farkostur takmark-
aður. Farmiðar seldir hjá L. H.
Muller.
Akureyrarskíðamenn-
írnir komu í gær
O kíðamennirnir frá Akureyri
komu hingað í gær með
Larfossi, og fóru upp í Skíða-
skála eftir stutta viðdvöi í bæn-
um,
Akureyringamir eru 11 auk
fararstjórans, Hermanns Stefáns
sonar, 8 frá fþróttaráði Akur-
eyrar og 3 frá íþróttafjel. Menta
skólans. Auk þess komu með
þeim 2 Þingeyingar.
Blaðið hafði í gær tal af far-
arstjóranum, Hermanni Stefáns-
syni. Ferðalag skíðamanhanna að
norðan var hið sögulegasta. Þeir
íögðu af stað frá Akureyri með
Esju, en ætluðu að taka sjer far
suður með Dettifossi, sem lá á
Siglufirði. Lagðist Esja við fest-
ar á höfninni, en Dettifoss lá við
bryggju. Bátur úr landi gerði
tilraun til þess að ná í skíðamenn
ina, sem voru um borð í Esju,
en hún mishepnaðist vegna of-
veðurs. Um nóttina fór Esja upp
að bryggju, ’en „Fossinn“ út á
höfnina. Gerði fararstjóri þegar
ráðstafanir til þess, að þeir yrðu
fluttir um borð í Dettifoss, en
bát var ekki hægt að fá til þess
fyrr en birta tók af degi. Um
svipað leyti og báturinn lagði frá
bryggjunni, ljetti „Fossinn“ akk-
erum og lagði af stað. Þegar
báturinn hafði elt hann nokkuð
út fjörðinn án þess að það bæri
árangur, var snúið við og skíða-
mennimir hjeldu áfram með
Esju til Sauðárkróks. Þaðan fóru
þeir svo landleiðina til Borgar-
ness, drógu farangurinn á stökk-
skíðunum yfir fjöllin.
„Ferðin suður gekk ágætlega",
sagði Hermann að lokum, „en
verst þótti okkur að þurfa að
bíða í tvo sólarhringa í Borgar-
nesi eftir ferð til Reykjavíkur“.
FRAMH. AF ÞRIÐJU 8ÍÐD
hina sömu kröfu til núverandi
ríkisstjórnar bæði munnlega og
brjeflega, sem engan árangur
hefir borið enn sem komið er.
Vjer undirritaðir viljum því
enn á ný beina þeirri áskor-
un til hæstvirtrar ríkisstjórn
ar, að hún leiti lagaheimild-
ar hjá Alþingi um að mega
setja reglur um samsiglingu
tveggja eða fleiri skipa til
og frá Bretlandi.
Um nauðsyn laga í þessu efni
viljum' vjer benda á, að þótt
allmargir skipaeigendur sjeu
þessara kröfu vorri fylgjandi
og hafi framkvæmt hana eftir
að siglingar hófust eftir síð-
ustu áramót, þá hafa aðrir ekki
talið sig við hana bundna.
Ríkir því næst glundroði í
þessum efnum og eru meiri lík
ur til að samsigling skipa hverfi
með öllu úr sögunni. Á yfir-
standandi tímum er fullkomin
nauðsyn þess, að allar leiðir
sjeu farnar, sem nokkur
'j reynsla er fyrir að verði til
bjargar þeim, sem um höfin
sigla, og teljum vjer þessa til-
lögu vora um samsiglingu svo
þunga á metunum, að ekki
megi þegja hana í hel.
Vjer óskum og væntum
skjótrar afgreiðslu á máli þessu
af hálfu hæstvirtrar ríkis-
stjórnar.
Virðingarfylst,
Vjelstjórafjelag íslands,
Hallgrímur Jónsson,
Þorsteinn Ámason.
F.h. Skipstjóra- og stýrimannafjel.
,rÆgir“,
Sigurður Sigurðsson.
F.h. Skipstjórafjelagsins „Áldan“,
Guðbjartur Ólafsson,
Jón Otti Jónsson,
Kristján Schram.
F.. Skipstjóra og stýrimannafjel.
Reykjavíkur,
Konráð Gíslason.
F.h. Skipstjóra og stýrimannafjel.
„Kári“,
Jón Halldórsson,
Guðmundur Sigurjónsson,
Friðirik Agúst Hjörleifsson.
F.h. Sjómannafjelags Reykjavlkur,
Sigurjón Á. Ólafsson.
Sigurður Ólafsson,
Garðar Jónsson, Ól. Friðriksson,
Sveinn Sveinsson.
F.h. Stýrimannafjelags íslands,
Jón Axel Pjetursson.
F.h. Fjelags ísl. loftskeytamanna,
Haukur Jóhannesson,
Halldór Jónsson,
Friðirik Halldósson.
F.h. Sjómannafjel. Hafnarfjaröar
Þórarinn Kr. Guðmundsson,
Ingimundur Hjörleifsson,
Pálmi Jónsson,
Borgþór Sigfússon,
Kristján Eyfjörð.
Skipastóllinn
[ FTRAMH AF ÞRIÐJU 8ÍDU
talan samt lælckað um 658 lest-
ir. Mótorskipum hefir fjölgað
um 33 og lestatala þeirra hækk-
að um 900 lestir. Hinsvegar hef-
' ir gufuskipunum fækkað um 6
og lestatala þeirra lækkað um
1558 lestir. Reyndar hefir 1 gufu
(skip bæst við, sem var keypfc
strandað og síðan gert við (Our-
em), en aftur á móti hafa 7 fall-
ið í burtu. Eitt þeirra er komið
í útlenda eigu (Gullfoss), 3 hafa
farist (Fróði, Jón Ólafsspn og
Sviði), en 3 hefir verið breytt í
mótorskip. Þó að mótorskipunum
hafi fjölgað, hafa samt líka mörg
j þeirra fallið burtu á árinu. í
Sjómannaalmanakinu er talið,
að 15 þeirra hafi strandað eða
farist á annan hátt, en 2 verið
rifin.
Óli smaladrengur verður sýnd-
ur í Iðnó í dag kl. 5.30 og hefst
sala aðgngöumiða kl. 2 í dag.'
Bifreiðastjóranámsskeið
111 imelra préfs
Reglugerðmni hefir verið breytt þannig, að engin
kensla fer fram í akstri, heldur fer próf í akstri fram áð-
ur en námskeið hefst. Þeir einir komast á námskeiðið, sem.
standast akstursprófið. --
Næsta námskeið hefst í Reykjavík að loknu aksturs-
prófi umsækjenda, væntanlega um 22. mars. Aksturspróf
hefjast um 17. mars.
TJmsóknir með tilskildum skilríkjum sendist bifreiða-
eftirlitinu í Reykjavík fyrir 17. þessa mánaðar.
Aðeins takmörkuð tala kemst á námskeiðið.
Vegamálastjóri.
Mlkki
Mús
Eftir
Walt Disney.
10-12
C>r>i 1942, Wah Disncy tVoductíonu
• World Rigltt* Reærvcd
MikM: „Komdu Snati sæll. Við skuluni vinna á þrælnum.“
Snati: „Jeg fylgi þjer, Mikki, í opinn dauðann“.
Mikki: „Hamingjan góða. Sjerðu Snati. Hann fer á stangarstökM,
þrjóturinh. Áfram nú, 'Snati“