Morgunblaðið - 12.03.1943, Page 7
Fostudagur 12. mars 1943.
M0H6UN BLAÐIt)
Tjún Rauða Krossins
ekki eins mikið og
haidið var I fyrstu
að hefir komið 1 ljós, sem
betur fer, að tjón Rauða
Kross Islands í eldsvoðanum í
fyrrakvöld, er ekki nærri eins
mikið og haldið var í fyrstu.
Tjónið er samt alltilfinnanlegt,
þar sem vörurnar voru ekki vá-
trygðar og óvíst, hvenær hægt
er að útvega aðrar vörur í stað-
inn fyrir þær, sem eyðilögðust.
Samkvæmt upplýsingum, sem
form. R. K. 1. gaf blaðinu í gær,
skemdust eða eyðilögðust 130
dýnur, álíka mikið af koddum og
teppum, nokkur rúm skemdust,
en aðeins fá, eða um 5, eyðilögð-
ust.
Um upptök eldsins er ekki upp
iýst til fullnustu ennþá, en allar
likur benda til þess, að kviknað
hafi út frá rafmagns miðstöðvar-
hitun. Skýrsla frá Rafmagnseft-
irliti ríkisins, sem ljet rannsaka
brunastaðinn í gær, er væntan-
leg í dag.
HJÚKRUNARVÖRUR
UEYMDAR Á MÖRG-
UM STÖÐUM.
Morgunblaðið fjekk þær upp-
iýsingar í gær, að hj úkrunarvör-
ur þær, sem Rauði Kross íslands
fjekk að gjöf frá Rauða Krossi
Bandaríkjanna, sjeu geymdar á
nokkrum stöðum í bænum og að
sumt sje farið út á land.
Þegar vörumar voru afhentar
í byrjun júnimánaðar í fyrra,
voru blöðunum gefnar þær upp-
iýsingar, að í gjöfinni væru m.
a. 800 sjúkrarúm, 800 dýnur,
200 koddar, 3200 lök, 1680 kodda
ver, 7400 ullarteppi og 300 sjúkra
börur, auk ýmislegs fatnaðar og
hjúkrunargagna. Auk þess átti
Rauði Kross íslands fyrir rúm-
iega 200 sjúkrarúm raeð öllura
útbúnaði.
Rauði Kross tslands hefir þeg-
ar gert ráðstafanir cii að gert
verði við hina skemdu nmni, að
svo miklu leyti, sem unt er, og
ætlar sjer að útvega sem allra
fyrst nýtt í stað þess sem eyði-
lagðist.
Minningarorð
„Vort líf er eins og lukkuspil
og lánið alt á völtum fæti,
það hverfur frá og færist til,
hjá fæstum á það stuðugt sæti“.
TTUgi þarf að leita út um víg-
velli veraldar, eða að ham-
förum hafs og veðra, til þess að
sjá það sannast er vísan segir.
Lífið og lánið er iíka ein-
einatt á völtum fæti í friðsælu,
blíðu og unaði bæja og afdala á
íslandi.
Enn þá eitt sinn í dag, vottar
þetta samkoma margra syrgjandi
og samúðarríkra manna, að Stóra
Núpi. Verða þar jörðu helgaðar
jarðneskar leifar, húsfreyju Guð-
rúnar Stefánsdóttur frá Haga í
Gnúpverjahreppi. Umskifti lífs
hennar urðu mjög fljótt, á besta
aldri, að afloknum barnsburði, á
heimili sínu, 25. f. m.
Heimilisstoðin, makahöndin og
móðurbrjóstin hurfu skjmdilega
frá 4 dætrum, öllum barnungum.
Treystir slíkur atburður mjög á
þrek og orku eiginmannsins,
Haralds Georgssonar, bónda og
bílstjóra. Ásamt margrejradri og
mæddri móður hinnar framliðnu,
Margrjetar Eirílcsdóttur, fyrv.
andi húsfreyju í Haga, ekkju
Stefáns Sigurðssonar frá Hrepp-
hólum. 1 dag er líká djúp vík
milli vina, þar sem 2 bræður
Guðrúnar, Eiríkur og Gestur
Stefánssynir eru norður á Akur-
eyri í Menntáskólanum þar. Og
Og fjarlægð og ófærð hindrar
líka marga frændur aðra og
vini frá því, að votta samúð
sína með handabandi þar eystra.
Guðrún var getin af góðu fólki.
Afar hennar báðir, Eiríkur bóndi
í Fossnesi og Sigurður bóndi í
Ilrepphólum, voru synir sjera
Jóns að Stóra Núpi Eiríkssonar
og konu hans Guðrúnar dóttur
Ólafs dómkirkjupr. Pálssonar
(Smæfir IV. 178). Eru það merk-
ir og mannmargir ættliðir.
Guðrún var heimilisprýði að
rausn og myndarskap á stóru
búi sínu, vinsæ! og gáfum g.odd.
Hafði líka lært cg tekið kennara-
próf. Svcit c;
land rná oakna
góðrar og göfugrar
hverrar
konu.
„Kom hönd og bind um sárin“.
V. G.
Umbúðepappíf
Höfum fengið sendingu af sjerstak-
lega góðum hvítum umbúðapappír
20, 40 og 57 cm. breiðum.
Veföið inicg haQKvæmt
Rúllurnar eru hæfilega stórar fyrir
öll venjuleg umbúðastatív.
TaIíD vi0 ok&ur »cn» fyriil
Éngeít Knstjánsson & Co. It,f.
Niðurskurður fjár
i Þingeyjarsýslu
Frá frjettaritara vorum
á Húsavík. ,
U ulltrúafundur bænda úr öll-
- um hreppum Þingeyjarsýslu
milli Jökulsár og Skjálfanda-
fljóts að undanskildum Reyk-
dælahreppi samþykti niðurskurð
f jár og f járskipti á nefndu svæði
vegna hinnar þingeysku mæði-
veiki. i
Fundur þessi var haldinn á
Húsavík 9. og 10. mars. Var
hann haldinn til þess að ræða og
taka ákvörðun um framkomna
tillögu um niðurskurð fjár og
fjárskipti á nefndu svæði á
næsta hausti, eða þegar ástæður
leyfa, vegna hinnar þingeysku
mæðiveiki. En mæðiveikin þing-
eyska hefir, sem kunnugt er,
veitt bændum þar í sýslu þung-
ar búsifjar. Niðurskurður og
fjárskipti fóru fram í Reykdæla-
hreppi haustið 1941 og verður
ekki sjeð, að sá stofn hafi sýkst.
Á fundinum komu fram og
voru samþyktar þessar ályktan-
ir:
1. Að sauðfjárrækt verði að
vera *vo sem verið hefir grund-
vallaratvinnuvegur bænda í þessu
hjeraði vegna náttúruskilyrða
og staðhátta.
2. Að fram sje komið, að sauð-
fjárrækt sje vonlaus atvinnuveg-
ur á meðan þingeyska mæðiveik-
in sje í stofninum.
3. Að eina leiðin til umbóta sje
niðurskurður alls sauðfjár á
nefndu svæði og f járskifti. Legg-
ur fundurinn því eindregið til,
að sú leið verði valin og ákveður
að semja frumvarp til samþykt-
ar um fjárskipti á þessu svæði
á grundvelli laga nr. 88 frá 1941
og kjósa síðan tvo menn til að
flytja þetta mál við sauðfjár-
sj úkdómanefnd og einnig við rík-
isstjórn og Alþingi, ef þörf kref-
ur.
4. Að gera kröfur til þess við
s a uð l j árs; ú IíJ.u; uar efncl og lög-
gjafarvaidið, aC meS fjárskiptum
hjer sjé hafíh rú stefna, að út-
rýraa fjárpeéfcum úr- landu-nu mcð
a’lsherjar niöurskurði sauðfjár
á öllum sýktum svæðum og lög-
gjöfinni um fjárskipti sje breytt
með ákveðnu tilliti til þess.
Fundurinn samþykti síðan
frumvarp um fjárskipti á svæð-
inu milli Jökulsár og Skjálfanda-
fljóts og kaus tvo fulltrúa til
þess að flytja þetta mál fyrir
sauðfj ársj úkdómanef nd.
Næturvörður er í Reykjavíkur)
Apóteki.
Næturakstur: Bifreiðastöðin
Ilekla.
Borgarstjóri hefir tjáð Mbl.,j
að verið sje að vinna að því á-l
fram, að Bæjarþvottahúsið fái |
mögule'ika til að annast flntning
á þvotti til og frá heimilunum,
| eins og verið hefir, og megi von-
andi vænta þess, að þetta komist
í lag.
Næturlæknir: Ólafur Jóhanns-
Dagbóh
1.0.0. F.l s 12431287*2
Áheit og gjafir til Laugames-
kirkju: Fjölskyldan Hömrum
uppi 50 kr. Safnaðarkona 2 kr.
Heimili H. St. 100 kr. Ilúsbóndi
við Nýbýlaveg 30 kr. Kristín 10
kr. M. S. 50 kr. Kona í Fossvogi
15 kr. Gestur við Elliðaár 50 kr.
Áheit frá N. N. 50 kr. Kona á
Eskifirði 10 kr. V. E. 50 kr.
ónefnd 15 kr. Áheit frá K. J. 50
kr. Frá Laufholti 100 kr. Lítil
sending frá Guðnýju 50 kr. Ing-
var 10 kr. Katrín 10 kr. Einar
30 kr. Bóndi í sókninni 10 kr.
Þóra í Tungu 5 kr. Kona 15 kr.
Frá Þjóðbjörgu 25 kr. Laufholt
25 kr. Oluf Kirkeby 250 kr.
Fjölskyldan Melum við Hálsveg
50 kr. N. N. 30 kr. N. N. 15 kr.
Kona á Rauðárárstíg 100 kr. Jón
og. Sigurlaug 20 kr. Hugi 25 kr.
Ingigerður 10 kr. Jóna 15 kr.
Fjölskyldan Laugaveg 147 A
niðri 30 kr. Ónefndur 20 kr. Frá
góðra vina fundi 75 kr. N. N. 10
kr. Frá konu 10 kr. Listmálari í
prestakallinu 100 kr. Áheit frá
L. C. 30 kr. Til minningar um
afa og ömmu frá tveimur litlum
bræðrum 100 kr. — Kærar þakk-
ir. Garðar Svavarsson. — NB.
I síðustu skilagrein hefir mis-
prentast kr. 10.00 frá G. Ó.
Tungu — eiga að vera 50 kr.
Útvarpið í dae:
12.10—13.00 Iládegisútvarp. •
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Islenskukensla, 2. flokkur.
19.25Þingfrjettir.
20.00 Frjettir.
20.30 Utvarpssagan: Kristín
Sviadrotning VIII (Sigurður
Grímsson lögfræðingur).
21.00 Strokkvartett útvarpsins:
Kvartett, Op. 77, nr. 1, eftir
Ilaydn.
21.15 Erindi: Um sálarlíf kvenna
I (dr. Símon Jóh. Ágústsson).
21.40 Hljómplötur: Frægar söng-
konur syngja.
.1.50 Frjettir.
ý2.00 Symfóníutónleikar (plöt-
ur): a) Fiðlukonsert eftir Vi-
valdi. b) Píanókonsert í A-dúr
eftir Bach. c) Flautu- og hörpu
konsert eftir Mozart.
Amerlskur
vinnufatnaður
NÝKOMINN
Þjónajakkar margar teg.
Læknasloppar
Kvensloppar
Kokkabuxur
Kokkahúfur
Bakarabuxur
Samfestingár i
hvítir, Khaki og; bláir
Nankinsjakkar
Nankinsbuxur
Geysir h.f.
FATADEILDIN.
Lokail i dag
frá kl. 12-4 wcgua f^rðaflnrav
«/
Quðmundur Oiafssoa & Co.
Ausiursfiwli 14
scn, Gunnarsbraut 39.
5979*
Shni
Best auglýfea
í Morgunbia<fvnu.
Jarðarför marutsins mftis og föður okkar
MARGEIRS JÓNSSONAR,
Ögmundarstöðum í Skagafirði fer frarn þriðjudaginn 16.
mars næstkomandi frá heimili hins látna og hefst athöfnin
kl. 12 á hádegi. Jarðað verður að Reynistað.
Helga Óskarsdóttir og börn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför móður minnar . f*
GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR.
Fyrir hönd sysstkina og annara vandamanna
Soffía Jacobsen.
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
JÓNS GUÐMUNDSSONAR,
fyrrum bónda að Hlíð í Grafningi.
Vandamenn.