Morgunblaðið - 12.03.1943, Síða 8
8
JRtfBnHaMft
Föstudagur 12. mars 1ÍMX
GAMLA Bíö
Fárviðrið
(„The Morta! Storm“)
eftir samnefndi'i skáldsögu
Phyllis Bottome’s.
Aðalhlutverkin:
Margaret SuIIavan
James Stewart
Robert Young
Frank Morgan.
Bannað fyrir böm innan
12 ára.
Sýnd kí. 7 og 9.
3%—6 Vz:
LeAkljelagar
Kay Kyser og hljómsveit.
► TJARNARBÍÓ ^
Stevpiflug
(Dive Bomber).
Stórmynd í eðlilegum litum
tekin í flugstöð Bandaríkjar-
flotans.
ERROL FLYNN,
FRED Mc MURRAY,
ALEXIS SMITH.
ANNA FAKLEY
Sýning kl. 4
6.3 — 9.
AUGLfSINGAB
▼ertSa aB vera konnar fyrlr kl. 7
kvöldiB á.Bur en blaBlB kenur ðt.
Kkkl eru teknar auglýeinKar þar
aem afgreiBalunni er œtlaB aB vlaa &
auglýaanda.
TilboB og umsðknir eiga auglýa-
endur aB sækja sjálflr.
BlaBlB veitir aldrei neinar upplýa-
lngar um auglýsendur sem vllja fá
akrifleg avðr vlB auglýainguaa alnuaa.
AUGAÐ hvílist
raeð gleraugum frá
TYLlr
EF LOFTUR GETUR ÞAÐ
EKKI-----ÞA HVER?
60. daiíur
Hún hjelt fyrst að hann ætlaði
að reka upp öskur eins og venju-
lega þegar honum var mótmælt,
en það varð ekkert af því, þótt
það kæmi snöggvast allískyggi-
legur svipur á hrukkótt andlit
hans.
„Lærirðu nokkuð hjema“,
spurði hann.
„Heilmikið“, svaraði Anna
hiklaust.
„Þjer veitti sannarlega ekki af
því. Hvað lærirðu?“
„Heimspeki".
.Karlinn gapti. Hann hafði auð-
sjáanlega ekki búist við þessu
svari.
„Og líka það að kaupa og
selja“, bætti hún við. „Hvað
maður má segja og hvað ekki og
hvaða verð er sanngjarnt og
hvað ekki“.
„Þú ættir að borga fyrir að
fá að vera hjerna“. Þetta voru
gullhamrar gamla mannsins.
„Ertu enn skotin í syni mínum“
var næsta spurning hans.
Hún svaraði: „Það erum við
allar“.
„En ekki jafn skotnar í mjer.
Ha? Þú veist að jeg vil ekki að
afgreiðslustúlkumar sitji auðum
höndum í vinnutímanum. Það
áttu að passa. Fegin að vera kom
in aftur býst jeg við? Gott. Þú
ert fædd undir happastjömu“.
Anna velti orðum hans fyrir
sjer á leiðinni inn í sjaladeild-
ina. Þar hitti hún Nolan, sem var
að tala við Mauru Arkwright.
Ilún heyrði að Maura sagði:
„Hr. Nolan. Mig langar svo heim
til Manchester. Get jeg farið?“
Nolan hló. Auðvitað getið þjer
það. Ekki getum við aftrað yður
frá því. Okkur þætti auðvitað
vænt um að hafa yður lengur,
en þjer eruð sjálfráðar ferða yð-
ar“.
„Hvenær gæti jeg farið?“
„Á laugardag“.
Hún þakkaði honum og gekk
burtu. Anna gekk til Nolan.
„Hr. Nolan. Ráðið þjer ekki
einhverju um hver verður ráðin
í stað Mauru?“
„Jeg get auðvitað mælt með
einhverri“.
Skáldsaga eftír Gtiy Fletcher
„Viljið þjer mæla með stúlku
sem jdg þekki, fyrir mig-“
„Það má vel vera“.
„Það myndi vera hreinasta
góðverk".
„Hvað heitir þessi stúlka?“
„Ethel Brooks Gladwyn street
Shepherd Bush“.
Hann skrifaði það hjá sjer.
„Hefir hún nokkra reynslu?“
„Hún er sölustúlka í lítilli
kjólaverslun. Hún hefir starfað
á sama stað í þrjú ár og þó eru
eigendur verslunarinnar gyðing-
ar“.
„Þetta eru þá nægar upplýs-
ingar“.
„Haldið þjer að hún geti feng-
ið tvö pund tíu shillinga á viku ?“
„Segið henni að skrifa Ric-
hards og sækja um stöðuna með
því skilyrði. Jeg skal mæla með
henni“. •jj,
„Þakka yður kærlega fyrir“.
★
Febrúar mánuður kom og
Brooks var að byrja starf sitt i
sjaladeildinni. Sadie var búin að
segja upp stöðu sinni í leikfanga
deildinni og var farin alfarin frá
Maxton.
Ethel kom skjálfandi af tauga-
óstyrk til Önnu.
„Ungfrú Farley“, sagði hún.
„Jeg vona að þjer þurfið aldrei
að sjá eftir að hafa útvegað
mjer þessa atvinnu. Jeg vona að
jeg verði yður aldrei til skamm-
ar“.
Anna hló. „Jeg býst ekki við að
það sje nokkur hætta á því. Kate
Anderson ætlar að kynna yður
starfið“.
En stundum neyddist Anna þó
til að setja ofan í við hana, þeg-
ar hún, greip til sölumáta gyð-
inganna“.
„Ungfrú Brooks, þjer megið
ekki dekstra viðskiftavinina til
að kaupa“.
„Jeg skal reyna að forðast
það. En þetta var mjer einu
sinni kennt og jeg á svo bágt með
að venja mig af því“.
LEIKFJELAG REYKJAVÍKUR.
Jeg er stoltur af dætrum
mínum, og það væri mjer
mikil ánægja að sjá þær vel gift-
ar“, sagði gamall maður við ung-
an ferðalang. „Jeg hefi safnað
saman dálítilli fjárupphæð, og
þær munu ekki ganga alveg
snauðar inn í hjónabandið. Fyrst
er það Bergljót. Hún er 25 ára
gömul og reglulega góð stúlka.
Jeg læt hana hafa 6 þúsund
krónur, þegar hún giftist. Þá er
Birgitta. Hún er rúmlega 35 ára
gömul. Hana læt jeg fá 18 þús-
und krónur, og Ioks er það Bót-
hildur, sem er 40 ára. Hún fær
30 þúsund krónur“.
Ungi maðurinn ljómaði eitt
augnablik, en sagði síðan með
ákafa: „Áttu ekki eina fimtuga
eða eldri?“
v»
é*
,Fagurl er á f jölluni
Sýnln^ í kvöid kl. 8.
Aðgöngumiðasalan er opin frá kl. 2 í dag.
Lcikfjelag Reykjavíkur.
Óli smaladrengur
Sýning i dag kl. 5,30
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 í dag.
7 *
S. K.T. Dans.leiknr
í kvöld í G. T.-húsinu kl. 10. — — DILLANDI MÚSIK.
NÝIR DANSAR — DANSLAGASÖNGUR — NÝ LÖG-
Húnrefningaf jelagið
heldur skemtifund að HÓTEL BORG miðvikudaginn 17.
þ. mán.
Stjóm Húnvetningafjeíagsins.
STÚLKA
óskast strax til að ganga um
beina. Matsalan, Hverfisgötu
32. —
ALLSKONAR SKÓ og GÚMMl
VIÐGERÐIR.
Sækjum. — Sendum.
Sigmar & Sverrir, Grundar-
stíg 5. 5458 sími 5458.
TÖKUM KJÖT
til reykingar. Reykhúsið Grettis
götu 50.
SOKKAVIÐGERÐIN
gerir víð lykkjuföll í kven-
«okkum. Sækjum. Sendum.
Hafnarstræti 19. Sími 2799, —
5kifUið-furuU£
BOMSA
hefir fundist á Gunnarsbraut.
Vitjist á Hringbraut 73. •
SJÁLFBLEKUNGUR
tapaðist á mánudaginn fyrir
utan Útvegsbankann. Skilist á
Bárugötu 30.
„Afsakið, en hafið þjer ekki
sjeð lögregluþjón hjerna ná-
lægt?“
„Nei, jeg hefi ekki sjeð neinn“.
„Það er ágætt, verið þjer þá
fljótir, og látið mig hafa úrið yð-
ar og veskið“.
★
Þegar Jana litla ætlaði að fara,
að hátta, sagði mamma hennar
við hana:
„Þú veist það, Jana mín, að
amma þín er komin til okkar, og
mundu nú eftir, þegar hún bið-
ur guð að varðveita okkur, að
biðja hana einnig að lofa ömmu
þinni að lifa miklu lengur og
verða gömul.
„Ó, hún er nógu gömul“, svar-
aði Jana. „Jeg ætla heldur að
biðja guð að gera hana yngri“.
i f r
KOTEX
dömubinji. Versl. Reynimelur,
Bræðraborgarstíg 22
LÍTIÐ, LJETT BARNARÚM
helst á hjólum, óskast til kaups
— Upplýsingar í síma 4954 til
hádegis í dag og eftir klukkan
6 í kvöld.
HJÓNARÚM
eða tvö samstæð rúm, óskast
keypt. Upplýsingar í síma 5793
NOTUÐ HÚSGÖGN
keypt ávalt hæsta verði. Sótt
fíeim. Staðgreiðsla. Sími 5691.
Fornverslunin Grettisgötu 45.
FULLORÐIN KONA
óskar eftir herbergi gegn hús-
hjálp. Ráðskonustaða á fá-'
mennu heimili kemur til
greina. Tilboð merkt „Strax —
80“, sendist blaðinu fyrir laug
ardagskvöld.
NtJA Blö
Sltn (£iva pirii
(SABOTEUR).
PRICILLA LANE
ROBERT CUMMINGS
NORMAN LLOYD
Bönnuð börnum yngri en
12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
| 'f jvlagzlíf
AFMÆLIS-
SKEMTIFUND
heldur K. R. mið-
vikudaginn 17. þ.m„
í Oddfellowhúsinu klukkan ©
síðdegis. Til skemtunar verður
Einsöngur: Pjetur Á. Jónsson
óperusöngvari. Ræða: Minni
K. R. sjera Jón Thorarensen.
Skuggamyndir frá liðnum dög
um, Friðrik Lúðvígsson. Ný"
K. R. „revy“: „Hvítir ítalir‘%
eftir E. O. P. — Dans til kl. 3.
Tilkynningar um þátttöku
komi fyrir laugardagskvöld tii.
Baldurs Jþnssonar c/o Silli &:
Valdi, Vesturgötu 29 og til Ás-
geirs Þórarinssonar Versl. Hana.
þorg, Laugaveg 44. — Tryggið
yður aðgang í tíma, því rún£
er takmarkað. Aðeins fyrir K„
R.-inga. Dökk föt.
Æfingar í kvöld:
í Austurbæjarskólanum: kL
9—10 Fimleikar 1. o. 2. fL
karla.
I Miðbæjarskólanum: kl. 8
—9 Handbolti kvenna, kl. ÍÞ
—10 Frjáls-íþróttir.
Stjórn K. R.
ÍÞRÓTTAFJELAG
REYKJAVÍKUR
Ferð að Kolviðarhóli klukk-
an 8 í kvöld. Farmiðar seldÍF
klukkan 12—3 í versl. Pfaff.
Lestrarfjelag kvenna
SKEMTIFUNDUR
sá, sem frestað var í febrúar*.
verður haldinn í kvöld á samsi
stað og tíma og áður auglýsL,
SHZ&yn-vdnijui?
BETANÍA
Almennar föstuguðsþjónust-
ur á föstudögum klukkan 8,30.
Þessir menn prjedika:
12. mars stud. theol. Jóhanr
Hlíðar. 19. mars stud. theol.
Sverrir Sverrisson. 26. mars
stud. theol. Lárus Hálldórsson.
2. apríl stud. theol. Sigurður
Guðmundsson. 9. apríl stud.
theol. Sigmar Torfason. 16.
apríl stud. theol. Guðm. Guð-
mundsson. 23. apríl stud. theol.
Jón Á. Sigurðsson.
Aðeins notaðir Passíusálmar.
(Geymið auglýsinguna).
GÓÐ ENSKUKENSLA
Upplýsingar á Baldursgöt
24, eftir klukkan 6 í dag o
á morgun.