Morgunblaðið - 26.03.1943, Qupperneq 4
4
HORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 26. mars 1943-
VarHveitifl
falnaðinn
frá tilraunum með Ijeleg
þvottaefni, nú, þegar
FLIK-FLAK fæst í hverri
búð. Silkisokkar, hinir fín-
ustu dúkar og undirföt
eru örugg fyrir skemdum,
þegar þjer notið FLIK-
FLAK í þvottinn.
PLII
- '4«*’
Ftik.
F/ak
FLÁK
FLIK-FLAK ER BESTA ÞVOTTAKONAN.
Mjólkufstöðin við Hringbraut
ásamt tilheyrandi bílskúrum er til sölu nú þegar,
og til afhendingar er mjólkurstöð sú, er nú er ver-
ið að reisa, er fullgerð.
Skrifleg tilboð óskast send Mjólkursamsölunni
í Reykjavík, er gefur allar nánari upplýsingar.
Rjettur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem
er, eða hafna öllum.
MJÓLKURSAMSALAN.
Nemendasamband Verslunarskóla íslands.
AHalfexntlnxr
verður haldinn miðvikudaginn 31. mars kl. 9 e. hád. að
Fjelagsheimili V. R. í Vonarstræti 4. Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Minningarorð um Guðmund
Einarsson útvegsbónda
Idag verður borinn til graf-
ar í Vestmannaeyjum
Guðmundur Einarsson útvegs-
bóndi að Viðey þar í Eyjum, en
hann andaðist á sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja hinn 14. þ. m.
Guðmundur var fæddur 18.
nóv. 1885 að Rifshalakoti í Ása-
hreppi í Árnessýslu, sonur Ein-
ars bónda að Bjólu í Holtum og
Guðrúnar Jónsdóttur frá Keld-
um.
Búskap byrjaði Guðmundur að
Ytra Hóli x Landeyjum, en flutti
til Vestmannaeyja árið 1921 og
bjó þar rausnarbúi síðan til
dauðadags.
Kvæntur var Guðmundur Pál-
ínu Jónsdóttur frá Nýjabæ í Ása
hreppi, hinni mestu ágætiskonu,
og hefir þeim hjónum orðið ell-
efu barna auðið. Auk þeirra
eignaðist hann þrjár dætur utan
hjónabands.
öll eru börn Guðmundar hin
mannvænlegustu og hafa mörg
þeirra staðfest ráð sitt og stofn-
að eigin heimili, ýmist í Eyjum
eða utan þeirra.
Vestmannaeyjar hafa orðið
fyrir miklu áfalli við lát Guð-
mundar Einarssonar. Hann var
með afbrigðum dugmikill og rak
búskap sinn bæði til sjós og lands
af hinum mesta myndarskap og
röggsemi. Þá gegndi hann mörg-
um trúnaðarstörfum í hjeráði og
skal hjer drepið á nokkur þeirra.
Hann var formaður Sjúkrasam-
lags Vestmannaeyja tvö fyrstu
starfsár þess, sat í niðurjöfnun-
arnefnd í nokkur ár og í skatta-
nefnd hin síðari árin. Þá sat
hann í bæjarstjórn Vestmanna-
eyja, sem varafulltrúi eitt kjör-
tímabil.
Af þessu mætti ljóst vera, að
mikið hefir á Guðmund hlaðist af
opinberum störfum og eru þó
enn ótalin þau, er mest kvað að
honum í, og sem hann fórnaði
miklu af starfskröftum sínum.
Formaður hins merka Bátaá-
birgðarfjelags Vestmannaeyja
var hann í mörg ár og allt til
æfiloka. Reyndist hann þar af-
kastamikill og úrræðagóður. Sá
fjelagsskapur hefir átt marga á-
gæta forvígismenn, alt frá því er
Bjarni E. Magnússon, sýslumað-
ur Vestmannaeyja hóf merki
hans árið 1862, og var Guðm.
einn af þeim, er bar merki fje-
lagsins hátt og sparaði hvorki
tíma nje fyrirhöfn til þess að
vinna þvr gagn og efla veg
þess. Fyrir forgöngu Guðmund-
ar gekst stjórn Bátaábyrgðar-
fjelagsins meðal annars fyrir því
árið 1937, er fjelagið var 75 ára
gamalt, að gefa út minningarrit
þess, er Jóh. Gunnar Ólafsson nú
bæjarfógetafulltrúi í Hafnarf.
færði í letur. Er það hið ágæt-
asta heimildarrit um þróun báta-
útvegsins í Vestmannaeyjum og
geymir auk þess margan fróðleik
um menn og málefni í Eyjum..
Ekki má svo við þetta mál
skiljast, að eigi sje getið þess
málsins, sem Guðmundur bar
mest fjrrir brjósti og vann að
með óþrjótandi elju.
Eins og áður segir, var hann
fæddur í sveit og hóf þar búskap,
enda var sveitabúskapur honum
í blóð runninn. I Eyjum bjó hann
fyrirmyndarbúi, og var mjög
sýnt um alt, er að slíkum búskap
laut. Kunni hann á fingrum sjer
öll skil á skepnuhöldum, stærð,
og árlegum afrakstri hvers eins
af lögbýlum Eyjanna. Ræktun
alls óræktaðs lands í Eyjum taldi
hann með rjettu vera brýna
nauðsyn og stærsta framtíðar-
málið.
Hann hafði og verið formaður
Búnaðarfjelags Vestmannaeyja
urn margra ára skeið, er hann
ljest. Það fjelag hafði allmikinn
verslunarrekstur með áburðar-
og fóðurvörur. Gegndi hann því
starfi svo vel að af bar og sýndi
þar sömu forsjá og fyrirhyggju
eins og í sínum eigin búskap.
Ekkert mál virtist honum vera
eins mikið hugðarefni og það, að
landið yrði sem best nytjað og
kæmi sem flestum heimilum
Eyjanna að rjettum notum.
Af því, sem nú hefir sagt ver-
ið, mun það ljóst, að þar fór eng-
inn meðalmaður, er Guðmundur
Einarsson var. Atorka hans,
forsjá og kapp var alt meira en
venjulegt er. Hann var skapfestu
maður, úrræðagóður og ósjer-
hlífinn að hverju er hann gekk.
Tryggur í lund og góður vinur
vina sinna.
Er að ástvinum Guðm. mikíR
harmur kveðinn við fráfall hans,
og almenningur í Eyjunum mun
lengi minnast þessa manns, er á
svo mörgum sviðum var í fylk-
ingarbrjósti og dugði vel í hví-
vetna, alt til þess er sigð dauð-
ans feldi hann fyrir aldur fram.
J. Þ. J.
Á íslandi er almenningi meiri þörf á að njóta heilsu-
styrkjandi sólbaða en víðast hvar annarstaðar.
Veðurfarið er þó sjaldnast þannig, að það leyfi fólki
að taka sólböð úti við, en í gegnum venjulegt rúðu-
gler nýtur sólarljósið sín ekki til heilsubóta.
SÓLGLERIÐ sem hleypir gegn um sig 60 sinnum
meira útfjólubláu ljósi heldur en venjulegt gler — á
því mikla framtíð fyrir sjer hjer á landi.
í SÓLGLERSBYRGJUM og á SÓLGLERSVÖLLUM
eiga böm yðar eftir að njóta hins mikla heilsugjafa
í ríkara mæli en flesta órar nú fyrir.
í sumarbústað yðar ættuð þjer að nota SÓLGLER
í stað venjulegs glers eða jafnvel byggja yður sjer-
stakt sólbyrgi, sem getur verið ósköp einfalt og
ódýrt.
SÓLGLER ætti auk þess að vera fyrir hendi á hverju
heimili í sveit og kaupstað til öryggis, því að ekki
getur þægilegra efni að grípa til ef rúður brotna.
SÓLGLERIÐ fæst í 15 metra löngum ströngum 91
cm. breiðum og kostar kr. 130.00 stranginn sendur
gegn eftirkröfu hvert á land sem er meðan birgðir
endast. Einnig fyrir hendi á skrifstofu vorri.
Gerið pöntun yðar nú þegar.
EINKAUMBOÐSMENN
GÍSLI HALLDÓRSSON H.F.
Austurstræti 14 -- Sími 4477. Símnefni: Mótor — Reykjavík.
EF LOFTUR GETUR ÞAÐ EKKI----ÞÁ HVERX,