Morgunblaðið - 29.04.1943, Blaðsíða 2
2
V O R f; TT ff H L A f) r
Fimtudaffur 29. apríl 1943.
Barist við Mejez el Bab j Púlverjar svara Rússum
__ v ^ ___
Fiugveður
verra i gær
London í gærkveldi. —
Einkaskeyti til Mbl. frá
Reuter.
"14 IKLAR orustur eru nú
háðar í nánd við Mejez
el Bab, þar sem fyrsti herinn
breski hefir sótt fram. Náðu
Bretar þar á vald sitt hæð einni
mikilvægri, en Þjóðverjar gerðu
gagnáhlaup og fengu náð henni
aftur. Notuðu Þjóðverjar þama
eldspúandi skriðdreka í fyrsta
sinn í bardögunum i Tunis.
Flugveður var mun verra í gær
en undanfarandi, og voru flug-
ferðir færri.
Nyrst á víg-stöðvunum hafa
Frakkar og Bandaríkjamenn
enn sótt nokkuð fram, en fyrsti
herinn hefir, auk bardaganna
við Mejez el Bab, átt í miklum
orustum nálægt Tebourba og
er nú aðeins fáeinar m'ílur frá
þeirri borg.
Orustur eru enn mjög grimm
ar á öllum vígstöðvum í Tunis.
Harðlega er barist í nánd við
Point de Fachs, og hefir Alex-
ander hershöfðingi óskað
frönsku hersveitunum, sem þar
sækja fram, til hamingju með
hraustlega framgöngu. 1 tii-
kynningu Frakka í kvöld segir
svo, að þrátt fyrir mikla stór--
skotahríð óvinanna hafi Frakk-
ar haldið áfram sókn sinni nærri
Point de Facks, og hafi komist
á aðalveginn þaðan til Djebe-
dina og sje þarna barist á nokk
urra kílómetra langri víglínu.
Hafa Frakkar náð fótfestu í
nokkrum hæðum í Zaghouan-
fjallahlíðunum. Meðal fanga,
sem Frakkar tóku þarna, var
yfirprestur ítalska hersins í
Tunis.
NÁLGAST MATEUR
Útvarpið í Algier sagði seint
í kvöld, að sveitir Bandaríkja-i
manna nálgist nú Mateur, og
sjeu um 20 km. frá borginni,
og aðrar sveitir bandamanna
sjeu um 12 km. frá Tebourba.
FRAKKAR FÁ KROSSA
Þjóðverjar skýrðu frá því í
dag, að tveir af hinum frönsku
sjálfboðaliðum, sem með þeim
berjast í Tunis, hafi verið
sæmdir járnkrossum fyrir hug-
prýði og hetjulega framgöngu.
SKEMDIR í BARI
Breskar sprengjuflugvjelar
rjeðust á Bari í fyrrinótt, en
áður höfðu amerískar flugvjel-
ar varpað sprengjum á þann
stað. Tjón er álitið mikið, og
voru meðal annars um 50 flug-
vjelar eyðilagðar á flugvöllum.
BRETAR NÁLGAST
VEGINN TIL TUNIS
Seint í kvöld bárust fregnir
um það, að sveitir úr fyrsta
breska hernum hefðu sótt fram
milli Bou Arada og Goubellat,
og væru nú um 5 km. frá að-
alveginum til Tunis. Getur svo
farið, að þær rjúfi sambandið
milli hersveita Arnims og þeirra
er berjast við áttunda herinn
breska.
Frá sókn Breta í Tunis
❖
t
t
f,
X
t
t
t
t
Ý
y
••
♦
!
X
t
♦>
Þúsundasta
flugvjelin
London í gærkveldi.
O-ustuflugmenn frá Malta
skutu í dag niður þúsund-
ustu flugvjelina, sem þeir hafa
eyðilagt frá ófriðarbyrjun. Var
það Junkers 52, flutningaflug-
vjel þýsk. — Reuter.
| Myndin sýnir breska fót-
1«! gönguliða og vjelbyssu- •> .
? vagn sækja fram gegnum ý HareWOOCl VClKUr
. •
❖ eitt af hinum mörgu f jaila Y ______
•> .. ^
X skörðum í Tunis. .;. • London í gærkveíldi.
•>
ir Henry Harewood, flota-
v-^ foringi, yfirmaður Miðjarð
Japanwr aif|a
ekkl h|A“
London í gærkveldi.
Talsmaður japönsku her-
stjórnarinnar ljet svo um
mælt í Shanghai í dag, að
Japanar myndu ekki sitja auð-
um höndum og horfa á, ef inn-
rás yrði gerð á meginland Ev-
rópu, heldur hjálpa -banda-
mönnum sínum, Þjóðverjum,
eftir megni. Sagði þessi tals-
maður 'Japana, að það væri
mikil skyssa í hernaði banda-
manna, að ætla að útkljá stríð-
ið í Evrópu fyr en í Asíu.
Reuter.
Námumannaverkfall
I Baodarlkiunum?
Washington í gærkveldi.
Meira en 58.000 kolanámu-
menn komu ekki til vinnu
í dag, miðvikudag, vegna
launadeilu, sem hætta er á að
verði að umfangsmiklu verk-
falli. Forseti sambands námu-
manna, John L. Lewis sagði
fyr í dag„ að vegna þess að
nýir samningar hefðu ekki tek-
ist', mýndu rúmlega 4,50.000
námumenn leggja niður vinnu
á miðnætti á föstudag að kemí-
ur. Búist er við, að stríðsverka-
málanefndin, sem skorist hefir
1 deiluna, muni fá Roosevelt
forseta til þess að skerast í
leikinn, — Reuter.
arhafsflotans, hefir látið af
starfi sínu samkvæmt læknis-
ræði, þar eð hann er ekki vel
hraustur. Harewood er nú kom-
inn h-eim til Bretlands. Hare-
wood stjórnaði bresku beiti-
skipunumi í orustunni við þýska
vasaorustuskipið Graf Spee,
svo sem kunnugt er. — Reuter.
Hitler ræðir við
Pavelitz
Bretar sökkva
þýskum skipum
London í gærkveldi. *
Tveir breskir tundurspillar
rjeðust í dag á þýska skipa
lest fyrir Bretagneströndum.
Varð þarna bardagi, og er á-
litið að tveim þýskum flutninga
skipum, tveim varðskipum og
einum hraðbáti hafi verið sökt.
Tundurspillarnir bresku skemd-
ust lítið, og biðu ekki mikið
manntjón. .— Reuter.
Rachmnninofí
lát inn
SKÝRT hefir verið frá því í
frjettum, að tónskáldið
fræga og pianoleikarinn Rach-
maninoff hafi andast vestur 1
Californíu, en þar var hann bú-
settur. Var Rachmaninoff um
70 ára að aldri.
Ekkert titt trá Austur-
vígstoðvunum
London í gærkveldi.
Ekkert hefir verið um bar-
daga á Austurvígstöðvun-
um í dag, en flugvjelar beggja
aðila hafa haft sig nokkuð í
frammi. — Reuter.
íslendingafjelag
stofnað í London
Islendingar í London hafa
stoínað með sjer fjelag, sem
heitir íslendingafjelagið í Lon-
don, eða „Icelandic Society“ á
ensku. Fjelagið var stofnað 1.0.
þ. m.
Morgunblaðinu barst frjett
um þetta í skeyti frá Birni
Björnssyni kaupmanni. en ekki
er þar getið hverjir eru í stjórn
fjelagsins nje hve stofnendur
hafi verið margir.
London í gærkveldi.
Pýska frjettastofan skýrði frá
því í dag, að Hitler hefði
rætt við Pavelitz, þann er hann
hefir sett til að stjórna Króatíu,
í herstöð sinni fyrir nokkru.
Munu þessar viðræður hafa
verið með svipuðum hætti og
viðræður þær, sem Hitler hefir
að undanförnu átt við Anton-
escu, Quisling, Horthy, Boris
Búlgaríukonung og Tiso, for-
seta Slóvakíu. Sagt er að við-
ræðurnar hafi fjallað um her-
mál og stjórnmál. Göring, von
Ribbentrop og Keitel voru við-
staddir. — Reuter.
Xor^kur ttindiur-
ngiiilir ferwt
London í gærkveldi.
Norski tundurspillirinn ,,Esk-
dale“. hefir farist. Var
þetta tilkynt hjer í dag, af
norsku flotastjórninni.
Reuter.
★
Norski blaðafulltrúinn hefir
»fengið nánari fregnir af þess-
um atburði. Eskdale var full-
bygður í júlí í fyrra og tóku
þá Norðmenn við honum. Áhöfn
tundurspillisins sýndi mikla
hreysti í ýmsum viðureignum,
er skipið lenti í. Eitt sinn
sökti tundurspillirinn þýsku
skipi. Foringi skipsins komst af.
Hann hefir hlotið mörg heið-
ursmerki.
StftSug tunda-
hðld i London
London í gærkveldi.
Pólska stjórnin gaf út yfir-
lýsingu hjev í dag, varSS-
andi stjórnmálasambandsslit
Rússa við Pólverja. Áður hafði
Sikorski forsætisráðherra Pól-
verja átt tal við ChurchiII og
Eden.
í yfirlýsingu Pólverja er því
neitað, að pólska stjórnin hafi
haft nokkurt samband við
Hitler, og Rússneska stjórnin
beðin að láta lausa alla Pól-
verja á herskyldualdri, er í
Rússlandi dveljast, og einnig
alt fólk annað, sem áhangandi
er þessum mönnum. Þá segir í
yfirlýsingunni, að engan geti
furðað á því, þótt pólska stjóm
in vildi vita um afdrif' liðsfor-
ingja þeirra, er Rússar hand-
tóku árið 1940.
Ekki er í yfirlýsingunni
minnst á aðstoð þá, sem Pól-
verjar höfðu farið fram á við
Rauða krossinn, varðandi rann-
sókn á gröfum þeim, er fundust
við Smolensk, en Rússar höfðu
krafist þess, að beiðni Pólverja
til Rauða krossins um þetta
yrði aftm’kölluð.
Þá er sagt í tilkynningunni,
að samíeining sje hornsteinn að
sigrinum, og ennfremur er á
það bent, að enginn svikari hafi
komið fram meðal Pólverja. Þá
er það ítrekað, að Pólverjar
óski eftir skilningi og vinsam-
legri sambúð við Sovjetstjórn-
ina, á grundvelli fullkomins
sjálfstæðis og þess, að Pólverj-
ar haldi öllum sínum fyrri
löndum. Að lokum er það tek-
ið fram, að Pólverjar hafi eng-
ar landakröfur á hendur Rúss-
um. — Reuter.
Þýskur her
«11 Búlgaríu
Ankara í gærkveldi.
Fjögur þýsk herfylki eru ný-
komin til Búlgaríu, að því
er fregnir segja, er hingað hafa
borist. Álitið er að orðasveim-
ur, sem verið hefir á kreiki
áður um liðsflutninga Þjóðverja
til Búlgaríu, virðist vera af
þýskum, rótum runninn.
Reuter.
Neytfi áfeugis
viö akNtur
gær var kveðinn upp í lög-
reglurjetti Reykjavíkur
dómur yfir manni, sem í fyrri-
nótt neytti áfengis við bifreið-
arakstur.
Var maður þessi dæmdur í
10 daga varðhald og sviftur
ökurjettindum í 3 mánuði.
Vorboði. Aðalfundur Sjálistaiðis
fjelagsins Vorboði í Hafnarfirði
verður haldinn annað kvöld kl.
8.30 í húsi Sjálfstæðisflokksins.