Morgunblaðið - 12.01.1944, Síða 5
t
MiSvikudagur 12, jan. 1944.
MORGUNBLAÐIÐ
- HVAÐ AFREKAÐI ÞINGIÐ?
LANDBÚNAÐARMÁL
Á ÞESSU þingi voru mjög
mikilsverð landbúnaðarmál til
afgreiðslu eins og oftast áður.
Aðallega voru þau samt af-
greidd í sambpidi við fjárlögin,
þó nokkur lög og tillögur væru
til meðferðar þess utan.
Verðlagsuppbæturnar á út-
fluttu vörurnar er auðvitað
stærsta málið, en á það hefir
áður vei'ið drepið svo hjer í
blaðinu, að ekki er skýringa
þörf. Til þessa eru áætlaðar 10
miljónir króna, og er það býsna
mikil upphæð. Þó ætti þeim
mönnum eigi að vaxa hún í
augum, sem ekki láta sjer til
hugar koma, að hægt sje að
lækka neitt framlögin til verð-
lagsuppbótar á laun og kaup-
gjald og sem nema mörgum
fugum miljóna. Hvorutveggja
verður hið fyrsta að lækka í
jöfnum hlutföllum, en meðan
annað er greitt fult, verður líka
að greiða hitt. Það verða menn
að gera sjer grein fyrir.
Næsta stórmálið er snertir
framtíð landbúnaðarins, er á-
burðarverksmiðjan væntanlega
Til hennar eru ætlaðar 2 milj-
ónir króna á fjárlögum, og er
það vii'ðingarvert skref í rjetta
átt.
Til vjelasjóðs til verkfæra-
kaupa eru ætlaðar 500 þús. kr.
Getur sú upphæð áreiðanlega
gert mikið gagn, einkum ef
fáanleg verða þau stæi’ri verk-
færi, sem mestu skiftir að fá:
skurðgröfur, dráttarvjelar o. s.
frv.
Jarðabótastyrkurinn svo-
nefndi er áætlaður 700 þús. kr.
Til byggingar og landnámssjóðs
300 þús. Til byggingarstyrkja
250 þús. Til nýbýla 310 þús. og
til lánadeildar smáb’la 100 þús.
Búnaðarfjelagi íslands eru nú
ætlaðar kr. 550 þús.
Auk þessa er ein ískyggilega
há fjárhæð í fjárlögunum, sem
landbúnaðinn varðar, en það
eru rúmar 3 miljónir króna
vegna baráttunnar við Karakúl
pestirnar. Er örðugt að átta sig
á hvar eða hvenær hægt verði
að finna einhver landamei’ki
á þeim leiðum. Ein upphæð í
þessari súpu kemur vafalaust
að gagni, eu það eru uppeldis-
styrkirnir, sem áætlaðir eru
kr. 900 þús. Er þeirra mikil
þörf til þeirra hjeraða sem ein
göngu byggja framleiðsluna á
sauðfjárrækt, og þar eiga þeir
ekki að skerast við nögl. Hitt
ér fullkomið vaifamál, hvort
rjett er að halda þeim áfram
í þeim hjeruðum sem geta bygt
aðallega á mjólkurframleiðslu.
Aðrar upphæðir sem til þess-
ara mála eru ætlaðar munu að'
eðlílegum hætti stinga óþægi-
lega í augum. Til girðinga er
ætlað 530 þús. kr. Til fjárskifta
600 þús. kr. og til vörslu og
rannsókna 800 þús. kr. Mundi
margur bóndi efast um það,
hvei’ra hagsmuna er að vænta
af þessu sumu hverju og hvort
eigi væri rjettara að verja
þessu fje öilu í rannsóknar-
stofnun, sem hægt væri að
vænta einhvers af. Ef ekki finn
ast önnur ráð en hingað til við
þessuni ófögnuðí, þá er til lít-
ils barist.
Önnur landbúhaðármál 19em
fengu afgreiðsjlu .á þjepsv^ i>ingi,
2. grein
hafa að nokkru verið skýrð hjer
í blaðinu áður. Er þar helst að
nefna lögin um ættaróðul og
erfðaábúð; lög um ítölu; breyt-
ingu á vegalögunum, sem heim
ila sýslunefndum kaup á vega-
vinnuvjelum til sýsluveganna
of tillögu til þingsályktunar
um rannsókfiarnefnd mjólkur-
mála. Einnig má geta* þess að
samþykt var breyting á lögum
um kjötmat, í þá átt, að kjöt
á innanlands markaði vei'ði
metið á sama hátt og lengi hef-
ir verið gert á þeim stöðum.
sem verka kjötið fyrir útflutn-
ingsmarkað.
Þau landbúnaðarmál, sem
eigi náðu afgreiðslu, eru mikið
meiri deilumál en hin og skal
þeirra helstu getið aðeins.
1. Afnám 17. gr. jarðarlaga,
flutt af Ingólfi Jónssyni, Jóni
Pálmasyni og Gunnari Thor-
oddsen. Þetta frv. var drepið
svo sem fyr af Framsóknar-
mönnum og Sósíalistaflokkun-
um. Hafði íormaður Búnaðar-
fjelags íslands forustuna fyrir
því að bjarga þessari frægu
grein einu sinni enn. Ástandinu
innan Framsóknarflokksins
vai'ðandi þetta mál, er best
lýst með tveim atriðum, sem
jeg vjek að í umræðuríí. Ann-
að er það að í tveim síðustu
kosningum þótti ýmsum fram-
bjóðendum flokksins vænleg-
ast til fylgis að lofa því að losa
bændur við þessa andstygð, en
á þingi er aðeins einn maður
í hópnum, sem vill verða við
þeim óskum bænda.
Hitt dæmið er það, að á
fundi, sem þeir Eysteinn og
Skúli G. lijeldu á vestui'landi
s. I. haust, gerði einn flokks-
maður fyrirspurn um afnam 1!.
greinarinnar og fjekk það svar,
að líklega yrði hún eigi afnum-
in. Fyrirspyrjandinn kvaðst
kunna þessu illa, því sú venja
ríkti í sinni sveit, að skera
strax mæðiveikar ær, sem eigi
gætu lifað. Voru fundarmenn
í efa um, hvort samlíkingin
átti við 17. gr. jarðræktarlag-
anna eða Framsóknarflokkinn.
2. Önnur breyting á jarð-
ræktarlögunum lá fyrir efri
deild, ílutt af Framsóknar-
mönnum, þess efnis, að heimila
Búnaðarsamböndum að setja
sjer ræktunarsamþyktir ér
tryggi aukna ræktun, þannig
að hvert býli geti haft 500
hesta vjelfært land að 10 ár-
um liðnum. Er hugmynd þessi
frá Búnaðarsambandi Skag-
firðinga og allrar virðingar-
vérð. Þessu máli var vísað frá
í efri déild að þessu sinni,
vegna ónógs undirbunings. Það
er og auðsætt mál, að því að-
eins er þess að vænta. að slik
lagasetningv nái tilgangi, að
hún sje vel undirbúin þannig
að eigi verði miklLr árekstrar
við fi'amkvæmdir. Meðal ann-
ars þarí að trvggja það, að
framlög ríkisins verði ekki
skoðuð sem lán til að eyða
eignarrjetti bænda á jörðum
sínum. Einnig þarf að athuga
það áðui' en ákveðið er. að v.erja
miklu fje til jarðræktar á öll-
um jdr.ðum, hvoi't ;að rjettmætt
sje vegníji legu a,ð, þær verði all
ar í bygð áfram, þannig #að
þangað sje lagður vegur, sími
og rafleiðsla.
3. málið sem eigi náði af-
greiðslu, var frumvarp um
kynnisferðir sveitafólks. Er það
svo mikið rætt mál hjer í blað-
inu, að eigi gerist þörf að bæta
þar við. Mun og mikið efa mái,
að bændur harmi dauða þessa
frumvarps, enda þótt það væri
að lökum komið í ólíkt að-
gengilegra horf en áður var.
4. Breytingar á mjólkurlög-
unum. Um það voru flutt tvö
frumvöi’p, gagnólík að efm.
Urðu bæði óútrædd. Annað var
flutt af kommúnistum og fór
fram á bæjarrekstur á mjólkur
sölu og eignárnám þeirra stofn
ana, sem nú hafa verið settar
upp til að annast mjólkurversl-
unina. Þetta er orðið alkunnugt
mál, sem eigi er þörf að ræða.
En fylgi hafði það ekkert utan
þess flokks, sem það var flutt
af. Hitt frumvai’pið var um að
taka til viðbótar inn á verðjöfn
unarsvæði Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar Snæfells og
Hnappadalssýslu, Dalasýslu,
Húnavatnssýslu og Bæjarhrepp
í Strandasýslu, og inn á Eyja-
fjai'ðarsvæðið Þingeyjarsýslu
og Skagafjarðarsýslu. Þetta
frumvarp^ var flutt af okkur
Gunnari Thoi’oddsen og er á-
reiðanlega þýðingarmikið fram
tíðarmál fyrir þau hjer^ð, sem
eiga hlut að máli. Mun því og
fast fylgt framvegis. Að þessu
sinni varð það óútrætt og frest
unin bygð á því, að nákvæm
rannsókn mjólkurmálanna ligg
ur fyrir og því rjett að sjá til-
lögur hinnar væntanlegu mjóik
urnefndar, áður en frumvarpið
er lögfest. Það kom þó brátt í
ljós, að þessi breyting á harðri
andstöðu að mæta frá fulltrú-
um þeii'ra hjeraða, sem nú
njóta einkasöluaðstöðu á þessu
sviði.
5. Bann gegn minkaeldi.
Pjetur Ottesen flutti frumvarp
um þetta efni og fylgdi því
fram með miklum dugnaði og
sterkum rökum. En frumvarpið
var drepio í neðri deild og mun
þar um hafa miklu ráðið stund
ar hagsmunir þeirra manna,
sem byrjað hafa þessa vafa-
sömu atvinnugrein.
SJÁVARÚTVEGSMÁL.
NOKKUR MÁL varðandi
sjávarútveginn voru til með-
ferðar á, hinu liðna þingi og
skal þeirra að nokkru getið
hjer.
1. Ilafnarbótasjóður. Þetta
mál var flutt af Sigurði Bjarna
syni, Sigurði Kristjánssyni og
Jóhanni Þ. Jósefssyni og naði
samþykki næstum . óbreytt. Á
samkvæmt þeim lögum að
leggja fram 3 miljónir króna
af tekjum ársins 1943 og 300
þús. kr. á ári upp frá því og
sje sjóðnum varið til hafnar-
bóta á þeim stöðum, sem hafa
besta aðstöðu til sjósóknar og
framleiðslu sjávarafurða. Sknlu
reglur settar um úthlutun úr
sjóðnum áður en starfeemi hans
hefst. Þetta mál er mjö^ þýð-
ingæ-mikið, þjví hafpjarbsgturn-
ár eru eitt at því sem- meptu
ræður um það, hvort útgerð
getur borið sig eða ekki víða í
sjávarþorpum landsins.
2. Hlutatryggingarfjelög. —
Þetta mál, sem nú loks náði af-
greiðslu, hefir legið fyrir mörg-
um þingum og tekið nokkrum
breyt. frá því sem var í upp-
hafi. Er Sigurður Kristjánssor.
upphafsmaður þessara ráðstaf-
ana og hefir hann barist fyrir
þeim af miklum áhuga og
dugnaði, lengst af við harða
andstöðu Framsóknarmanna,
sem jafnan hafa litinn skilning
á útgerðarmálum. Nu loks hafð
ist þetta í gegn og eru lögin
heimildarlög til að stofna sjóði
til tryggingar aflahlutum hluta
sjómanna. Mun þetta geta orð-
ið sjómannastjettinni til mik-
illa hagsbóta. Verður þessa
máls nánar getið síðar hjer í
blaðinu.
3. Sjerstakur frádráttur
skattskyldra tekna vegna firn-
inga fiskiskipa. Þetta er þings-
ályktun flutt af Sigurði Krist-
jánssyni og Sig. Bjarnasyni.
Hafðist þetta í gegn eftir harða
deilu og mun hafa talsverða
þýðingu í þá átt að forða fiski-
skipaeigendum frá óhóflegu
skattaráni.
4. Stríðsslysatrygging ís-
lenskra skipshafna. Þetta er
mikill lagabálkur, fluttur af
ríkisstjórninni. Munu lög þessi
hafa mikla þýðingu meðan
stríðið stendur. Verður þeirra
og nánar getið síðar hjer í
blaðinu.
5. Olíumálið, sem svo hefir
verið kallað, er fyrst og fremst
útgerðarinnar mál, þó að það
snerti nokkuð aila landsmenn.
Þetta var á vissu stigi allheitt
deilumái, en að lokum náðist
samkomulag um það. Málið!
er orðið það kunnugt, að eigi'
gerist þörf að geta þess freltar
að þessu sinni.
6. Skiptsmíðastöð við Elliða-
árvog. —- Bygging skipasmíða-
stöðvar hefir verið í undirbún-
ingi að undanförnu og nær sá
undirbúningur þó aðeins til_
skipulagningar og staðarvals.
Starfaði milliþinganefnd í því
máli og náði samkomulagi, sem
þessi lög um breytingu hafnar
laga fyrir Reykjavík eru bygð
á. Ætlast er fii .að ríkissjóður
ábyrgist þriggja miljóna króna
lán til verksins ef hafið verð-
ur og greiði þeint 2 railjónir
kr. Skipabyggingar eru auð-
vitað eitt aðalmál útgerðarinn-
Ur og ef þær gætu orðið inn-
lent fyrirtæki væri það mjög
þýðingarmikið mál. En eins og
nú horfir með efni, kaupgjald
og annan kostnað, er hætt við
að dýrara sje að bvggja skip
nú, en víðast annars staðar.
7. Reikningaskrifstofa sjáv-
arútvegsins. Frumvarp um það
efni var flutt af ríkisstjórninni
og samþykt nærri eða alveg
óbreytt. Er til þess ætlast að
skrifstofa sú, samsvari að
mestu búreikningaskrifstofu
ríkisins og afli sem gleggstra
gagna um afkomu útgerðar-
innar á ári»hverju.
8. Bygging fiskiskipa. Sam-
þykt var á heimildargrein fjár
iaganna að verja alt að 5 milj.
króna til byggingar fiskiskipa
úr íramkvæmdasjóði ríkisins.
Skul Alþingi síðar setja reglur
um þær framkvæpidir. Nokkr-
ar hærri tiliögur voru bornar
fram fram af Sosíalistaflokkun
um beinlínis til að taka til þess
það fje, sem ella átti að ganga
til verðlagsuppbóta útfluttra
landbúnaðarvara. Virtist mörg
um í því lítil heilindi einkum
þegar þess var gætt að sam-
tímis voru sömu menn að berj-
ast fyrir því að taka eignir og
tekjur útgerðarinnar í ríkis-
sjóð á miklu stórfeldari hátt,
en gert er rpeð gildandi lög-
um.
9. Hafnarmál. Um hafnar og
lendingabætur á ákveðnum
stöðum voru samþykt nokkur
lög, bygð á sömu reglum um
greiðsluhlutfall og annað eins
og áður hefir tíðkast. Hafa
þau flest þá þýðingu að auka
skyldur ríkisins frá því er áður
var til framlaga í hafnar og
lendingaframkvæmdir og
stefna því í sömu átt og lögin
um hafnarbótasjóð.
Nokkur fleiri mál varðandi
útveginn voru til meðferðar á
hinu liðna þingi, flest þings-
ályktunartillögur. Annars eru
sum þýðingarmestu sjávarút-
vegsmálin bundin skattgjöld-
um útgerðarinnar og mun
verða að þeim vikið síðar í þess
ari grein. (Niðurlag.)
Sextuysafmæli
í DAG er sextug Kristjana
S. Jónsdóttir til heimilis á
Hverfisgötu 99A, hjer í bæ. —
Hún er fædd á Granda í Dýra-
firði 12. janúar 1884. Hún er
gift hinum alkunna dugnað-
armanni Þorkeli Guðmunds-
syríi frá Bæ í Strandasýslu.
Þau hjónin hafa alið upp þrjú
fósturbörn og sýnir það best,
hina stórbrotnu og fórnfúsu
lund þeirra hjóna.
- Það pem sjerstaklega ein-
kennir Kristjönu, er bjartsýni
og hin jafna glaða lund henn-
ar. •— I dag mun verða gest-
kvæmt á heimili Kristjönu, því
við munum heimsækja hana,
vinir og vandamenn, með inni-
legu þakklæti og hjartanlegum
hamingjuóskum á þessum
merku tímamótum æfi hennar.
Guð blessi*þín ókomnu ævi-
ár. Vinur.
SKOTIÐ Á ÍTALSK-
AR BORGIR.
London í gærkveidi. — Bresk-
ir tundurspillar hafa verið á
sveimi iangt uppi á Adriahafi
og skotið á nokkrar borgir á
ströndinni, - ennfremur járn-
| brautarlestir og strandvirki. —
■ Auk þessa söktu tundurspill-
1 arnir 4 seglskipum. — Reuter.