Morgunblaðið - 30.01.1944, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 30.01.1944, Qupperneq 1
31. árgangur, 22. tbl. — Sunnudagur 30. janúar 1944 Isafoldarprentsmiðja h.f. Á leið iil Þýskalands Þær sprengjuflugvjelategundir, sem Bretar nota nú aðallega til árásar á þýskar borgir, eru Pancaster- og Halirax-flug- vjelar. Myndin sýnir tvær Halifax-flugvjelar á leið til Þýska- lands í rásarleiðangur Álitsgerð lýðveldis- nefndar UM, ÞAÐ LEYTI sem þrír stjórnmálaflokkar á Alþingi — Sjálfstæðisflokkurinn, Fram- sóknarfíokkurinn og Sósíalista flokkurinn bundust samtökum ujn að fylgja fram lausn sjálf- stæðismálsins á þessu ári og birtu um það yfirlýsingu 1. des. f. á., kusu þeir samvinnunefnd til þess að- arjnast ákvarðanir og framkvæmdir í því efni. Er hún skipuð þrem fulltrúum frá hyerjum þessara flokka, alls 9, mönnum. Eru þeir þessir: Gísli Sveinsson (form.), Bj. Bpnediktsson, Olafur Thors, Hermunn Jónasson, Hilmar, Stefánsson, Jónas Jónsson, Áki Jakobsson, Brynj. Bjarnason, Einar Olgeirsson. Með nefnd- inni starfa einnig að skilnað- aðarmálinu tveir fulltrúar rík- isstjórnarinnar, sem tilkynnti um fylgi sitt við framgang málsins þann 1. nóv. fyrra árs, eins og kunnugt er. Frá þessari nefnd er álits- gerð sú í skilnaSarmálinu, sem birt er á öðrum stað hér í blað- inu. (Sjá bls. 2). Síamsljóm flytur frá Bangkok FREGNIR hafa borist frá Siam þes's efnis, að stjórn landsins sje að flytja frá höf- uðborginfii, Bangkok, vegna loftárása bandamanna. Einnig hafa margar þúsundir íbúanna verið' fluttar til bækistöðva, sem eru um 30 km. frá borg- inni. Ekki hafa enn borist neinar fregnir af því, hvar stjórnin hafi í hyggju að setj- ast að. — Reuter. Þingvallaleiðin verður opnuð VONIR manna um, að leiðin austur- yfir Fjall yrði fær í gær, hafa brugðist mönnum. Fannkoma var á Fjallinu í fyrrinótt og gerði þá brátt ó- færð, svo að nú er ekki fært nema upp að Lögbergi. Austur i Ölfusi, Flóa og Grímsnesi mun hafa verið ófært í gær. Vegamálaskrifstofan hefir þeg ar gert ráðstafanir til þess að cpna Þingvallaleiðina. Á henni mun vera frekar lítið um tafir. Indverskur liðsfor- ingi segir frá grimd Japana London í gær. INDVERSKUR liðsforingi, sem er nýsloppinn úr haldi frá Japönum, hefir skýrt frá hinni hroðalegu grimd, sem Japanar beita við fanga, sem þeir taka. Hann var tekinn til fanga fyr- ir einu ári ásamt 500 öðrum breskum og indverskum föng- um. Japanar ljetu fangana ekki fá neinn mat svo dögum gkifti og skipuðu þeim síðan að ganga langar leiðir í ógurleg- um hita. Er þeir komu að á nokkurri, fengu fangarnir fyrst vatn. Tveir fanganna ljetust þegar. Síðan voru fangarnir fluttir i fangelsi og m. a. máttu þeir ekki tala orð saman í fangels- inu. Þegar, breskur ofursti reyndi að halda guðsþjónustu fyrir fangana, var hann barinn með riffilskefti á hinn hrotta- legasta hátt. Síðar voru fangarnir sendir í þrælavinnu við vegagerð í Norður-Burma. Þar ljetust 65 fanganna úr malaríu og blóð- kreppusótt. Fangarnir fengu elcki að jarða hina látnu fjelaga sína í marga daga, heldur voru nevdd ir til að sofa hjá líkunum. Hússar ná Novosokoiniki, Chudovo og Smyela Hörfa úr þrem bæjum í Ukraniu London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morg- unblaðsins frá Reuter. RÚSSAR TILKYNTU í KVÖLD, að þeir hefðu með snörpu skyndiáhlaupi tekið járnbrautarbæinn Novosok- ilniki, sem er alllang beint i norður af Vietebsk, og hefir þar ekki verið mikið um bardaga að undanförnu. — Bær þessi er allmikilvæg járnbrautarstöð. — Einnig tilkyntu Rússar töku járnbrautarstöðvarinnar Chudovo, hinnar síðustu sem Þjóðverjar höfðu á Leningrad-Moskva lín- unni. Litiar breyt- ingar á Ítalíu London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. AÐSTAÐA herjanna á Ítalíu vígstöðvunum hefir lítið breyst síðan í gær, enda hefir mikill stormur og rigning erfiða all- ar hernaðaraðgerðir. —- Fin^ti herinn breski náði á sitt vald í dag brú, sem er 12 mílur frá Anzio, á Anzio—Albano veg- inum. — Brú þessi er þrjár míl ur frá Caracetto, þar sem Þjóð verjar gerðu áköfust gagn- áhlaup í gær. Voru 100 þýskir hermenn teknir þar til fanga. Herskip bandamanna halda uppi ákafri skothríð úr stærstu íallbyssum sínum á virki Þjcð- verja í landi og flutningalestir Flugvjelar bandamanna höfðu sig nokkuð í frammi, gerðu aðallega árásir á járn- Japanar hraktir í Etri-Burma_____________ London í gærkveldi. KÍNVERSKAR hersveitir, þjálfaðar af Bandaríkjamönn1 um, hafa hrakið baksveitir Þjóðverjar tilkyntu í dag að þeir hefðu yfirgefið járn brautarbæinn Smyela, sem er suðvestan Cherkassi, og sem lengi hefir verið barist um. Rússar segjast hafa orð ið að yfirgefa þjár ónafn- greinda bæi í Ukrainu, vegna gagnárása Þjóðverja að undanförnu. brautarstöðvar og flugstöðvar. Alls voru skotnar niður fyrir andstæðingunum 36 flugvjelar í gær, þar af 21 yfir Anzio- vigstöðvunum. Á vígstöðvunum fyrir sunn- an hélda hérflutningar ,Amer- íkumanna áfram yfir Rapido- ána. Breski herinn á þessum vígstöðvum ér í hægri sókn norðaustur af Suio í Garligliano hringgeiranum. Japana í Efri-Burma all-langt afturábak og tekið af þeim nokkurt herfang. Er enn bar- ist þarná í þjettum frumskóg- um. — Á Arakanvígstöðvun- um gerðu Japanar mikið á- hlaup að næturlagi, en því var hrundið eftir siiarpa viður- eign. Er Bretum mikilsvert að vénida veg einn á þessum slóð- um, en Japanar eru komnir ískyggilega nærri honum. Næturárás á Berlín og dagárás á Frankfurt London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. % LOFTSÓKN bandamanna á Þýskaland og meginland- ið hefir verið meiri undanfarinn sólarhring, en nokkru sinni fyr. í nótt gerðu breskar sprengjuflugvjelar árás á Berlín, og í dag um 800 amerískar sprengjuflug- vjélar í björtu á Frankfurt am Main. Auk þess hafa or- ustuflugvjelar og sprengjuflugvjelar haldið uppi loftárás- um á hernaðarstaði í Norður-Frakklandi og herteknu löndunum í dag. Doolilfle kominn til Breliðnds DOOLITTLE flugforingi, einn af kunnustu flugmönnum Bandaríkjanna, er nú kominn til Bretlands og tekur hann þar við yfirstjórn Bandaríkja- flughersins, sem þar hefir bækistöð, í stað Eakers herfor- Jingja, sem nú ræður fyrir flugher við Miðjarðarhaf. Við Leningrad Bardagar virðast nú hafa minkað allmikið á vígstöðv- unum suður við Leningrad og voru síðustu bardagarn- ir sem miklir gátu talist, háðir fyrir norðan og um- hverfis Chudovo, en þar var sagt að setulið Þjóðverja hefði verið innikróað og fall ið. Frá vígstöðvunum suð- vestan Leningrad er ekkert að frjetta. Árásin á Berlín Arásin á Berlín í nótt var önnur árásin á höfuðborg- ina á tveimur nóttum og einhver sú mesta, sem gerð hefir verið á Berlín, en nú- er búið að varpa meira en 20,000 smálestum af sprengj um á borgina. Telja flug- menn að ógurlegt tjón hafi orðið af þessari árás. Varnir Þjóðverja voru Framhald á bls. 12 Fall Smyela Smyela var bær, sem mjög var getið í fregnum fyrir nokkru síðan, er Rúss- ar reyndu að ná staðnum, en umræður um atburðinn minkuðu aftur, er Þjóðverj- ar hrundu áhlaupum Rússa þarna. Nú tilkynna Þjóð- verjar alt í einu að þeir hafi yfirgefið þenna bæ, og virð- ist það að mestu hafa verið bardagalaust. Lítur svo út, sem Þjóðverjar kunni að hörfa frá þeim slóðum, sem þeir enn eru á austur við Dnieper I nánd við Char- kassi. Það munu vera hersveitir Vatutins, sem næst voru komnar Vinnitza, sem orðið hafa að yfirgefa hina þrjá bæi, sem Rússar tala um í tilkynningu sinni í kvöld, en Þjóðverjar hafa að und- anförnu sagt frá nokkrum ávinning á þessum slóðum. I ga'r vöru éyðilagðar fyrir Þ.jóðvcrjum 120 skri.ðdrekar á öilum vígstöðvunum í Rúss- jandi og 28 flugvjelar skotnar niður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.