Morgunblaðið - 05.03.1944, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 05.03.1944, Blaðsíða 5
Sunnudagur 5. mars 1944. HOR G U X B L A Ð I Ð o - SKJOLGOÐ VETRARPEYSA - Efni: .Gult ullargarn, tveir prjónar nr. 1012, hnappar og heklunál nr. 8 7% 1. og 9 um- ferðir = 1 þumlungur. Mál: Brjóst: 32—34 þuml., (forsagnir fyrir 36—38 þuml. eru í svigum). Lengd = 22 þumlungar. Skamstafanir: P — prjóna, b — brugðið, 1 lykkja, sam. — saman, endurt. — end- urtak, þ — þumlungur. Bakið: Fitjið upp 113 (129) lykkjur. Prjónið 6 umferðir sljettar. Sjöunda umf:B. 1, * p. 7, b. 1. endurt. frá * og um- ferðirðina á enda. Á 11 u n d a u m f.: P. 1, * b. 7, p. 1, endurt. frá * umferðina á enda. Endurt. síðustu tvær umferð- ir, en tak úr á báðum endum á sjöundu umferð, og fjórðu hverri umferð þaðan í frá þar til 89 1. eru eftir. Prjóna áfram, þar til prjónaðir hafa verið 7 þ., en þá er komið í mitti. Aukið nú í fjórðu hverri um- ferð, þar til eru 113 (129) lykkj ur á prjóninum. Prjóna nú á- fram, þar til 6%—7 þ. eru frá mittinu, eða hin nauðsynlega lengd. Fellið af 8 1. í byrjun tveggja næstu umferða. Takið ur á báðum endum í annari hverri umferð, þar til 81 1. (97) 1. eru eftir. Prjónið síðan áfram, þar til handvegurinn er 8 þ. meðfram boganum, en 7 þ. þegar mælt er beint upp. Á öxlunum: fellið af 7 (8)1. i byrjun hverrar umferðar, þar til 25 (33) 1. eru eftir. Fellið þá af. Vinstri vasinn: Fitjið upp 50 1. Prjónið 6 umferðir sljettar. Sjöunda umf.: * B. 2, * p. 4, b. 4, endurt. frá * þar til 8 1. eru eftir, þá b. 2, p. 6. Áttundaumf. :P. 8*p. 4, b. 4, endurt. frá * þar til 2 1. eru eftir, þá p. 2. Endurt. þessar tvær umf. einu sinni. E 11 e f t a u m f.: B. 2, * b. 4, p. 4, endurt. frá * þar til 8 1. eru eftir, þá b. 2, p. 6. Tólf ta umf.: P. 8, * b. 4, p. 4, endurt. frá * þar til tvær 1. eru eftir, þá p. 2. Endurt. þess ar tvær umf. einu sinni. Endurtak þessar sýndu átta umf. þar til prjónaðir hafa ver- ið 3% þ. Þá haldandi áfram að prjóna, eins og sagt hefir verið fyrir, fellið af 19 1. hægra meg- in frá, til þess að fá boga vasa- opsins, og fellið svo af einu sinni í annari hvorri umf., þar til að- eins 22 1. eru eftir. Prjónið áfram þar til 6V2 þ. hefir verið prjónaður. Geymið þá lykkjurnar á öðrum prjóni, þar til seinna. Vinstri framhliðin. Fitjið upp 62 (70) 1. Prjónið sljett 6 umf. S j ö u n d a umf.: B. l,p. 7, endurt. frá * þar til 22 1. eru eft Áttunda umf.: P. 12, b. 4, p. 6, * b. 7, p. 1, endurt. frá ir, þá b. 6, p. 4, b. 6, p. 6. * umf. á enda. Endurt. þessar tvær umf. einu sinni. Ellefta umf.: * B. 1. p. 7, endurt. frá * þar til 22 1. eru eftir, þá b. 2, p. 4, b. 4, p. 4, b. 2, p. 6. T ó 1 f t a u m f.: P. 8, b. 4, p. 4, b. 4, p. 2, * b. 7, p. 1, endurt. frá * umf. á enda. Endurt. þess- ar tvær umf. einu sinni, en fell- ið af í byrjun þrettándu umf. Prjónið áfram þessar 8 sýndu umf., en fellið af eina lykkju við sauminn í næstu og síðan fjórðu hverri umferð, þar til um ferðirnar eru jafnmargar og í vasanum. Til þess að' ná saman við vas ann: Prjónið brugðið að hinum 22 1. að framan, og setjið síðan lykkjurnar á vasanum fram fyrir og prjónið saman, eina lykkju á hverjum prjóni, þar til allar lykkjurnar eru komnar á sama prjóninn. Prjónið síðan áfram á sama hátt og áður hefir verið sagt fyrir, og takið úr við sauminn, þar til aðeins 52 (60) 1. eru eft ir, en haldið þá áfram, þar til mitti er náð (jafn margar umf. og á bakinu). Aukið síðan í við sauminn í fjórðu hverri umf. þar til 63 (71) 1. eru á. Prjón- ið þá áfram, þar til saumurinn er 4 umf. lengri en á bakinu. Handvegurin: Fellið af 9 1. við sauminn, og takið síð- an úr í annari hverri umf., þar til 46 (54) 1. eru á. Prjónið síð- an áfram þar til handvegurinn er 6V2 þ., mældur beint upp. Hálsmálið: Haldið hand- vegsbrúninni beinni, en fellið af 6 1. í fyrstu umf. við háls- málið, síðan í næstu umferðum: 4 1., 3 1., 2 1. og 1 1., þrisvar sinn um, skiljið eftir 28 1. (32) fyr- ir öxlina. Öxlin: Feilið af 7 (8) 1. í byrjun hverrar umf., þar til all- ar 1. hafa verið feldar af. Hægri vasinn Hægri vasinn: Fitjið upp 50 1. Prjónið 6 umf., sljettar. Ath.: Búið til hnappagat í byrjun 5 umf. þannig: Prjónið 3 1. frá p. 6. hliðinni fellið af 2 L, prjónið sljett umf. á enda. I næstu umf.: fitjið upp 2 1. fyr ir ofan þær, sem feldar voru af. Gerið hnappagat í áttundu hverri umf. Sjöunda umf.: P. 6, b 2, * b. 4, p. 4, endurt. frá :< þar til 2 1. eru eftir, þá b. 2. Á 11 u n d a u m f.; P. 2, b. 4, p. 4. endurt. frá * þar til 8 1. eru eftir, þá p. 8. Endurt. þessar 2 umf. einu sinni. U.umf.:P. 6, b. 2, * p. 4, b. 4, endurt. frá * þar til 2 1. eru eftir, þá b. 2. 12. u m f.: P. 2, * p. 4, b. 4, endurt. frá * þar til 8 1. eru eft- ir, þá p. 8. Endurt. þessar 2 urnf. einu sinni. Endurt. síðan þessar 8 sýndu umf., og farið að eins og við vinstri vasann, nema fell ið af vinstra megin frá. Hægri framhliðin: Fitjið upp- 62 (70) 1. Prjónið sljett 6 umf., en haldið áfram að gera hnappa göt, samsvarandi þeim, sem eru á vasanum, þar til komið er upp að hólsmáli. 7. u m f.: P. 6, b. 6, p. 4, b. 6, * p. 7, b. 1, endurt. frá * umf. á enda. 8. umf.: :t P. 1, b.7, endurt. frá " þar til 22 1. eru eftir, þá p. 6, b. 4, p. 12. Endurt. síðustu 2 umf. einu sinni. 11. umf.: P. 6, b. 2, p. 4, b. 4, p. 4, b. 2, * p. 7, b. 1, endurt. frá * umf. á enda. 12. u m f.: * P. 1, b. 7, endurt, frá * þar til 22 1. eru eftir, þá p. 2. b. 4, p. 4, b. 4, p. 8. Endurt. síðustu 2 umf. einu sinni, en fellið af við sauminn í 13. umf. Prjónið síðan áfram- haldandi þessar 8 sýndu umf., en fellið af einu sinni við saum- inn í næstu. og síðan í 4. hverri umf., þar til komnar eru jafn- margar umf. og í vasanum, og gleymið ekki hnappagötunum. Til þess að ná saman við vas- ann: Setjið vasann fram fyrir og prjónið saman, í muntsrinu, fyrstu 22 1., en prjónið síðan. snúið umf. á enda. Hálsmálið: Fitjið upp 7 1. Prjónið 3 umf. sljettar. 4. umf.: P. 3, fellið af 2, p. 2. Fitjið upp 1. í næstu umf. Prjónið sljett áfram þar til nógu langt er til þess að ná ut- an um hálsinn, án þess að teygt sje mikið á því, (um 13—14 þ.). Ermarnar: Fitjið upp 49 1. (notið prjóna nr. 11 fyrstu þrjá þ.). Prjónið 6 umf. sljettar. Endurtak síðan 7. og 8. umf. í bakinu, en aukið í einu sinni hvorumegin á 27. umf., og i sjöttu hverri umf.. þaðan i írá, þar til saumurinn er 19. þ., eða hin hæfilega lengd. Fellið af 8 1. í byrjun tveggja næstu umf. Fellið síðan af 1 1. i byrjun hverrar umf. 6% þ. á að prjóna frá því að hinar 8 |. voru felldar af. Síðan er fellt af. Takið síðan hvern hluta peys- unnar og pressið vandlega. Saumið vasana við. Heklið me5 fram vösunum með tvöföldu hekli. Saumið síðan peysuna saman og setjið inn í ermarnar, og pressið alla sauma. .',-fc Veisluborð í íslenska sendtherrabúsfaðnum í Washington MYND ÞESSI er af veisl:iborði í íslenska sendiherrabúsfaðnum í Washington. Hún birt- ist nýlega í amerísku blaði, ásamt mjög lofsamlegum ummælum um smekkvísi sendiherrafrúar Ágústu Thors. Segir m. a., „að frumleiki frúárinnar og siðir heimalands hennar hjálpist að því að gera kvöldverð í sendiráðsbústaðnum að sjaldskeðum viðburði. T. d. setji hún heiðursgestina vinstra megin við sig í stað hægra megin, og að snæðingi loknum ætlist hún til þess, samkv. gam- alli venju, að allir taki í hönd hennar og þakki fyrir matinn. Einkennandi fyrir veisluborð henn ar sjeu pentudúkarnir, gerðir úr portúgölsku líni og kniplingum, er sjeu látnir standa upprjett ir á miðjum diskinum. Rauðu rósirnar, er standi í stórri silfurskál á miðju borðinu, fari einkar vel við hinn snjóhvíta, portúgalska kniplingadúk, og fjögur kerti varpi skemtilegri birtu á hin þungu kristalsglös og gömlu fjölskyldu vínkaröfluna. Borðbúnaðurinn sje þannig, að hann sæmdi hverju konungsborði, og postulínið sje frá Iíína. Kristalsaskja undir vindlinga, með silfurösku- bökkum fullkomni skreytingu borðsins".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.