Morgunblaðið - 11.03.1944, Side 5
Laugardagmr 11. mars 1944
MORGUNBLAÐIÐ
5
M.rjoí itá JHþingyi:
Lýðveldi og skilnaður — Synjunarvald for-
seta — Þjóðaratkvæðagreiðsla í 4 daga —
Sneypuleg útreið i kapphlaupi
FUNDUM ALÞINGIS verður
frestað í dag. Hefir það þá set-
ið tvo mánuði og einum degi
betur.
Þessi seta Alþingis er ein hin
merkilegasta er um getur í
sögu þess. Ný stjórnarskrá um
stofnun lýðveldis á íslandi hef-
ir verið samþykt. Tillaga um
skilnað við Dani hefir einnig
hlotið samþykki. Bæði þessi
merkilegu mál hafa verið af-
greidd frá þinginu með sam-
hljóða atkvæðum allra þing-
manna, er ferlivist máttu hafa.
Stefnan í sjálfstæðismálum
þjóðarinnar hefir verið mörk-
uð skýrt og ótvírætt.
Stórviðburðir sögunnar.
í RAUN RJETTRI hefir hjer
gerst sögulegri viðburður en
ýmsir átta sig á. Stjórnskipu-
laginu hefir verið breytt úr
nær 700 ára gömlu koung-
dæmi undir erlendum yfirráo-
um, í óháð og fuliválda lýðveldi
með íslenskum þjóðhöfðingja í
æðsta valdsessi.
Slíka atburði.mun bera hátt
í íslenskri sögu um alla fram-
tíð.
Sá einhugur, sem að lokum
rjeði stefnu Alþingis í þéssum
málum, mun ekki aðeins verða
öllum íslendingum hvatning til
algerrar einingar um málið,
heldur og verða komandi kyn-
slóðum bjartur viti í hinni ei-
lífu baráttu þjóðarinnar fyrir
frelsi sínu. Alþingi hefir vaxið
af framkomu sinni á örlaga-
stundum tveggja síðustu mán-
aða. Það hefir sannað þjóðinni,
sem hefir fengið því hið virðu-
lega hlutverk, að það var vand-
anum vaxið og trútt þeirri hug-
sjón, sem rjeði endurreisn þess
fyrir 101 ári. Það er glæsileg
tilviljun, að samþykt hinnar
nýju lýðveldis stjórnarskrár
hefir borið að á 101. ártíð til-
skipunarinnar um endurreisn
Alþingis, en hún var, eins og
kunnugt er, gefin út 8. mars
1843. Þannig hefir þráður ör-
laganna verið spunninn til
gæfu þeirri þjóð, sem heitt og
lengi hefir þráð eigin endur-
reisn. En Alþingi hefir einnig
hlotnast mikil gæfa. Þjóðin
barðist fyrir endurreisn þess til
þess að skapa sjer baí-áttu-
tæki, vopn í harðsóttum deil-
um fyrir rjetti, sem í senn var
skráður skýrum stöfum á bók-
fell löggerninga og ómáðum
rúnum í hjörtum hennar. Þessa
baráttu leiddi Alþingi til lykta
á 101. afmælisdegi endurreisn-
ar sinnar. Ávöxt hennar hefir
það gefið þjóðinni.
Synjunarvald forseta.
ÞÓTT ÍSLENDINGAR fagni
nú hinni nýju lýðveldisstjórn-
arskrá, má vel vera, að ein-
hverrar óánægju gæti um ein-
stök ákvæði hennar. En þess
ber vendilega að minnast í
þessu sambandi, að hún er
fyrst og fremst sett til bráða-
birgða. Einungis þeim ákvæð-
um stjórnarskrárinnar, sem ó-
hjákvæmilega er talið að
breyta þurfi, vegna flutnings
hins æðsta valds inn í landið
og skilnaðarins við Dani, hefir
verið breytt. - Heildarendur-
skoðun margra annara ákvæða
hennar stendur því fyrir dyr-
um í nánustu framtíð. Það
væri því mjög óhyggilegt að
láta ágreining um einstök á-
kvæði hinnar nýsamþyktu lýð-
veldisstjórnarskrár, verða að
deiluatriði í sambandi við
sjálfan kjarna málsins, lýðveld
isstofnunina og flutning hins
æðsta valds inn í landið. Það
ákvæði, sem heist kynni að
valda slíkum óhyggilegum deil
um, er ákvæði stj.skr. um
synjunarvald forseta lýðveld-
isins. Um það stóð einnig nokk
ur deila á Alþingi. Hafði stjórn
arskrárnefnd lagt til, að ef
forseti synjaði lagafrumvarpi
staðfestingar, skyldi það engu
að „síður öðlast lagagildi, en
jafnframt skyldi leggja það
undir atkvæði allra kosninga-
bærra manna í landinu, svo
fljótt sem kostur væri á, til
samþyktar eða synjunar.
1 Nd. var þessu ákvæði breytt
þannig, samkvæmt tillögu frá
íorsætisráðherra, að ef forseti
synjaði lagafrumvai’pi staðfest-
ingar, skyldi það ekki öðlast
lagagildi þá þegar, heldur leggj
ast undir atkvæoi allra kjós-
enda í landinu, til samþyktar
eða synjúhar, en öðlast gildi
án staðfestingar, ef það næði
samþykki. í Ed. var frv. svo
breytt í hið upprunalega horf
stjói'narskrárnefndar, en tillaga
forsætisráðherra feld er frv.
kom aftur til Nd. og hún var
borin þar fram að nýju.
■ Jeg hefi verið einn þeirra
manna, sem hneigst hafa að
fyrgreindri breytingartillögu
forsætisráðherra um synjunar-
vald forseta. Að sinni verður
það sjónarmið ekki rætt hjer.
En þrátt fyrir það, að' hið gagn-
stæða varð oían á, getur engin
ástæða verið til uppnáms eða
æsinga vegna þess. Þetta á-
kvæði og fjölmörg fleiri verða
tekin til gagngerðrar athugun-
ar er heildarendurskoðun
stjórnskipunar vorrar fer fram
innan skams. Við gildandi á-
kvæðí, sem auk þess hafa ekki
mikla raunhæfa þýðingu, verð-
ur því vel unað um skeið. Þau
hvorki eiga nje mega spilla
samhug þjóðarinnar um sjáifa
lýðveldisstofnunina.
Þjóðaratkvæðagreiðslan
hefst 20. maí.
ALÞINGI HEFIR nú einnig
samþykt lög um tilhögun þjóð-
aratkvæðagreiðslú um þings-
ályktun um niðurfelling dansk-
íslenska sambandsIagasamn-%
ingsins frá 1918 og lýðveldis-
stjórnarskrá íslands. Sam-
kvæmt þeim lögum skal þjóð-
aratkvæðagreiðslan hefjast 20.
maí og standa til 23. maí, eða
í 4 daga.
Atkvæðagreiðslan er leyni-
leg og atkvæðisrjett eiga allir
kjósendur til Alþingis, sam-
kvæmt gildandi reglum þar
um. Reglur um atkvæðagreiðsl
una eru flestar í samræmi við
hin almennu ákvæði um kosn-
ingar til Alþingis.
Atkvæði skulu að lokinni at-
kvæðagreiðslu talin hjá for-
manni yfirkjörstjórnar í hverju
einstöku kjördæmi og úrslit at-
kvæðagreiðslunnar gerð heyr-
um kunn.
Það mikilsverða nýmæli er
þó í lögum þessum, að heima-
kosningar eru heimilaðar við
ákveðnar aðstæður. Þeir, er
sakir sjúkdóms, ellihrörnunar
eða -óhjákvæmilegra heimilis-
anna geta eigi samkvæmt
drengskaparyfirlýsingu sinni
og vottorði hreppstjóra í sveit-
um og oddvita yfirkjörstjórn-
ar í kaupstöðum, eða fulltrúa
hans, farið af heimili sínu eð'a
dvalarstað til atkvæðagreiðslu,
mega greiða þar atkvæði, enda
fari sú atkvæð’agreiðsla fram
síðustu viku fyrir fyrsta kjör-
dag eða í síðasta lagi á kjör-
degi.
Um atkvæðagx'eiðslu þessa
gilda hin almennu ákvæði
kosningalaga til Alþingis.
Með því að heimila heima-
kosningu við slíkar aðstæður,
er fyfst og fremst að því stefnt
að hver einasti maður, heill
eða sjúkur, geti neytt atkvæð-
isrjettar síns. í sömu átt miðar
það að hinir eiginlegu kjör-
dagar eru ákveðnir 4. Loka má
kjördeild og slíta kjörfundi ef
kjörstjórn er um það' sammála,
þegar er 80% kjósenda hafa
greitt atkvæði.
Eins og gengið er frá lögum
þessum, sýnist auðsætt, að all-
ir íslendingar geti með hægu
móti neytt atkvæðisrjettar síns.
Að því marki hlýtur þjóðin
einnig að stefna. íslendingar
hljóta með þessari atkvæða-
greiðslu að sýna öllum heim-
inum einhug þjóðar, sem fagn-
ar unnum sigri í langri bar-
áttu.
Margar þjóðir, sunnrar ná-
skyldar oss, færa frelsi sínu
blóðugar fórnir um þessar
mundir.
Lokaskrefið í sjálfstæðisbar-
'iáttu Islendinga krefst engra
slíkra fórna, aðeins þess að
hver borgari í landinu neyti
þess mikilsv. rjettar er lýðræð-
isskipulagið hefir trygt hon-
um, kosningarjettarins. Það eitt
er því samboðið þjóðinni, að
hver maður, sem þess á kost,
greiði atkvæði, á kjörstað eða
utan kjörstaðar, og gjaldi skiln
aði og lýðveldisstofnun já-
kvæði sitt. Þegar slikri niður-
stöðu er náð, mun þjóðin sjá
árroða hins rísandi dags i lifi
sínu. Hún hefir þá lagt traust-
an hornstein að framtíð sinni,
bættum þjóðfjelagsháttum, feg
urra og betra lífi. Sá horn-
steinn er trú hennar á sjálfa
sig og rjett sinn til þess að
njóta öryggis og rækja skyldur
í frjálsum fjelagsskap sið-
mentaðra þjóða.
Sneypuför Eysteins.
FYRIR SKÖMMU var hjer
skýrt frá endemislegu kapp-
hlaupi tveggja þingmanna af
Austurlandi. Báðir þessir þm.
höfðu borið fram þingsálykt-
unartillögur hvor í sínu lagi,
um stofnun nýrra nefnda til
þess að vinna að vei’keíni, sem
Alþingi hafði falið nefnd, sem
þeir sjálfir áttu sæti í. —
Alþingi hefir nú tekið afstöðu
til þessara fáránlegu tillagna.
Tillaga uppbótaHþingmannsins
hefir fengið þá afgreiðslu hjá
nefnd þeirri, sem fjekk hana
til athugunar, að nefndin legg-
ur nær einróma til að henni
verði vísað frá með rökstuddri
dagskrá. Byggist sú afstaða
nefndarinnar á því m. a., að
starfandi sje milliþinganefnd i
sjávarútvegsmálum, sem það
verkefni heyri undir, er tillag-
axi fjallaði um. Á það bendir
einnig Fiskifjelag íslands í áliti
því, sem það hefir látið þing-
nefndinni í tje um tillöguna.
En tillaga hins kjördæma
kosna þingmanns, Eysteins
Jónssonar, sem kapphlaupið
hóf við uppbótarþingmann sinn
fær þó sínu háðulegri útreið.
Um hana hefir nefndin ekki
einu sinni talið sjer fært að
gefa út nefndarálit, svo fráleitt
þótti efni hennar og eltinga-
leikurinn við tillögu uppbótar-
þingmannsins. Hinn kjördæma
kosni Sunn-Mýlingur hefir þvi
orðið að kyngja rækilega gasp-
uryrðum sínum í Tímanum og
á Alþingi um tillögutetur sitt.
Sneypuför hans er nú öllum
auðsæ orðin. Fer vel á því, og
má svo fara, að annað fari eft-
ir því hjá þessum steigurlætis-
fulla þingmanni.
Við Þinglok.
ALÞINGI mun nú verða
frestað til 10. júní n.k. Það
mun trauðla ofmælt að flestir
þingmenn fagni því, hve giftu-
samlega hefir til tekist um
lausn þess höfuðverkefnis, er
þingið starfaði að. — En hin
vandasömu og ábyrgðarmiklu
verkefni hafa kostað mikla
vinnu og þrautseigt starf. Hin-
ar æstu öldur dægurstjórn-
málanna, hafa lægt nokkuð
um skeið. Einlægur vilji þorra
þingmanna til farsællar niður-
stöðu í stærsta máli þjóðarinn-
ar, hefir knúið andstæð öfl til
nánara samstarfs en áður.
A það var drepið í upphafi
þessara brjefa, að Alþingi gæf-
ist nú kostur þess að sýna,
hversu mikils, það mæti sjálf-
stæðismálið Alþingi hefir nú
sýnt hug sinn í því máli. En
það þarf að halda lengra á-
leiðis. Landinu verður ekki til
lengdar stjórnað með þeim
hætti, sem nú er á hafður. Al-
þingi verður að mynda ábyrga
ríkisstjórn, er njóti stuðnings
meirihluta þess. Hin fyrsta
ganga íslensks lýðveldis má
ekki bera svíp þess festuleysis,
sem nú rikir um stjórn lands-
ins, og sem Alþíngi á að veru-
legu leyti sök á.
Við stofnun íslenskS lýð-
veldis, eru tengdar glæsilegar
vonir framsækinnar þjóðar í
göðu landi. Látum þær voirir
rætast.
S. Bj.
Ólafur ríkisarfi
vestanhafs
Frá noi'ska blaða-
fulltrúanum.
FREGN hefir borist frá New
York um það, að Ólafur ríkis-
arfi Noregs sje nú staddur í
Bandaríkjunum. Þetta er þriðja
heimsókn hans þangað, síðan
Noregur lenti í styrjöldinni.
Hann hefir nú, ásamt Mörthu
prinsessu, heimsótt hafnirnar
New Orleans og Moblle og er
kominn aftur til Washington.
Var hann í viku við Mexikó-
flóann.
Þau hjónin skoðuðu hafnirn-
ar og skipasmíðastöðvarnar í
fyrnefndum borgum, og í einni
skipasmíðastöðinni ávarpaði
Ólafur krónprins 18.000 vei’ka
menn og sagði þeim frá stríðs-
átaki Norðmanna í baráttu
hinng saméinuðu þjóða og
einnig um baráttu fólksins
heima fyrir. í tveim öðrum
skipasmíðastöðvum ávarpaði
hann einnig þúsundir verka-
manna. Með krónpi'insessunni
heimsótti hann norsk skip, sem
lágu í höfn og norska sjúklinga
í sjúkrahúsum.
Landstjórinn í Louisiana og
borgarstjói’inn í New Orleans
gerðu 29. febrúar að Noregs-
degi og var borgin fánum
skreytt til heiðurs rikisarfa-
hjónunum.
Kom niður á host.
London: — Amerískur flug-
maður, sem henti sjer út úr
brennandi flugvirki, kom nið-
ur á bak á hesti, sem var á beit
úti á engi. Ekki varð hestinum
vel við komu þessa riddara og
henti honum af sjer hið bráð-
asta, og var það slæmt, því ann-
ars hefði flugmaðurinn unnið
það einstaka afrek, „að koma
aftur til bækistöðva sinna á
hestbaki“.