Morgunblaðið - 23.03.1944, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 23.03.1944, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur. 23. mars 1944. Mentamálaráð út- hlutar námsstyrkjum Friettir frá milliþinganefnd Bún- aðarþings 1943 MENTAMÁLAJtÁÐ ÍSLANDS hefir úthlutað þannig fje því, sem veitt er á fjárlögum 1944 (14. gr. II b.) til náms íslend- inga erlendis: Framhaldsstyrkir: 5000 kr.: Rögnvaldur Sigur- jónsson píanóleikari. 3600 kr.: Bragi Magnusson (íþróttir), Eiríkur Ásgeirsson (landbún.), Hjörtur Eldjárn (sauðfjár- rækt), Jóhann Jakobsson (efna fræði), Sigurbjörn Þorbjörns- son (hagfr.), Unnsteinn Stef- ánsson (grasafr.) og Þórhallur Halldórsson (mjólkurfr.). 2400 kr.: Ása Jónsdóttir (uppeldis- fr.), Ásgrímur Jónsson (garð- yrkja), Drífa Viðar (málara- list), Edda Kvaran (leiklist), Hildur Kalman (leiklist), Hilmar Kristjánsson (vjelfr.), Margrjet Eiríksdóttir (hljóm- list), Sigr. Valgeirsdóttir (íþr.) og Þorsteinn Hannesson (söng- ur). 1800 kr.: Edvard Friðriks- son (mjólk), Jóhannes Bjarna- son (vjelfr.), Jón M. Stefáns- son (búfr.) og Páll Sveinsson (sandgræðsla). Nýir styrkir: 3600 kr.: Haraldur Ásgeirs- son (verkfr.), Jón Pálsson (flugvjelaverkfr.), Vigfús Ja- kobsson (skógrækt) og Þór Guðjónsson (fiskifr.). 3000 kr.: Baldur Líndal (verkfr.), Björn Th. Baldvinsson (listasaga), Guðjón Á. Kristinsson (hagfr.), Jón R. Guðjónsson (viðskifta- fr.), Jónas G. Kristinsson (skipaverkfr.) og Þráinn Löve (lífeðlisfr.). 2000 kr.: Björn Halldórsson (hagfr.), Gunnar Magnússon (iðnfr.), Halldór Jónsson (garðyrkja), Haukur Gunnarsson (versl.), Hörður Ágústsson (teikn.), Kjartan Sigurjónsson (söngur), Njáll Símonarson (versl.), Pálmi Möller (tannl.), Rögnvaldur Johnsen (bygg.), Rögnv. Sæ- mundsson (uppeldisf r.) og Viggó Maack (verkfr.). 1800 kr.: ívar Daníelsson (lyffr.) og Sig. Jónsson (lyffr.). 1500 kr.: Alda Möller (leiklist), Ben. Gröndal (blaðam.), Daní- el Jónasson (viðsk.), Einar Siggeirsson (frærækt), Finnur Kristinsson (leiktjaldamáln.), Guðm. Sveinsson (smíðar), Guðrún Þorsteinsd. (hlj óml.), Gunnar Bergmann (blaðam.), Halldór Sigurjónsson (flug- vjelaviðg.), Hjalti Pálsson (bú- fr.), Inga Laxness (leiklist), Karl Stefánsson (versl.), Kjart an Guðjónsson (teikn.), Kol- brún Jónsdóttir (teikn.), Lár- us Bjarnason (búfr.), Sigfús Halldórsson (leiktjaldamáln- ing), Sigr. Th. Ármann (list- dans), Sig. G. Norðdahl (kvik- myndaiðn.), Steinn Steinarr (bókm.), Svafa Einarsd. (söng- ur), Vigdís Jónsdóttir (rönt- gen) og Þórður Einarsson (hag- fr.). Umsóknir um styrki til Mentamálaráðs voru mun fleiri í ár heldur en árið 1943, en upphæðin, sem laus var t'il út- hlutunar, var hinsvegar lægri en í fyrra, því að ekki þótti yf- irleitt rjett að breyta styrk- veitingum til þeirra, sem byrj- aðir eru á námi. Styrkupphæðir þær til einstakra manna, sem Mentamálaráð íslands úthlutar í ár, eru því yfirleitt lægri en þær, sem veittar voru árið 1943. Handtökur í Vestfold Frá norska blaða- fulltrúanum: SÆNSK blöð hafa birt fregn ir um það, að þýska leynilög- reglan hafi á fimtudaginn var tekið fjölda manna fasta í bæj- unum í Vestfold, Tönsberg, Sandefjord og Horten. Nokkrir þeirra hafa verið látnir lausir. En meðal þeirra, sem enn eru fangelsaðir, er hinn kunni málaflutningsmað- ur Odd Nerdun, er lengi hefir verið stórþingsmaður fyrir Vestfold, forseti bæjarstjórnar innar í Tönsberg, og verið á- hrifamaður í stjórnmálum og atvinnumálum bæjarins. Enn- fremur eru í fangelsum marg- ir af hinni kunnu Marthinsens- ætt í Tönsberg, sem eiga eitt af helstu silfurvöruverkstæðum landsins. Margar auglýsingar, er Quislings-yfirvöldin höfðu sett upp í Tönsberg, hafa verið rifn ar niður. Hefir lögreglan til- kynt, að ef slík skemdaverk haldi áfram, þá verði margir borgarar bæjarins teknir í svo nefnt borgaravarðlið. BEST AÐ AUGLÝSA I MORGUNBLAÐINU Frá milliþinganefnd Bún- aðarþings 1943 hefir blað- ið fengið eftirfarandi upp- Iýsingar: fulltrúum, til athugunar og á- lita og væntir hún þess, að þeir vinni þessari sjóðstofnun fylgi meðal bænda. Bygging útihúsa í sveitum. Nefndin hefir ákveðið að bjóða til verðlaunasamkepni um tillögur um haganlegt fyr- irkomulag á byggingu fjenað- arhúsa, svo og áburðar-, hey- og verkfærageymslu fyrir sveitaheimili, og þætti henni æskilégt, að teikningár eða a. m k,. riss fylgi til skýringar. Áherslu .skal leggja á, að af- staða bygginganna, sín á milli ög við íbúðarhús, svo og fyrir- komulag þeirra út af fyrir sig, sje þannig, að verkadrjúg verði umgengni og hirðing í húsunúm. Ékki gerir hefndin það aÖ skilyrði fyrir viðurkenningu, að tillögurnar. nái til allra þeirra húsa, sem áður greinir, tillögur um einstök hús og jafn vel um einstök fyrirkomulags- atriði í byggingu þeirra verða éinnig teknar til greina, .ef vert þykir. Nefndin hefir til umráða kr. 3000.00 til verðlaunaveitinga, ef hénni í samráði við forstöðu menn teiknistofu landbúnaðar- ins, þykir til þeirra unnið með væntanlegum tillögum. Tillögurnar skulu vera komn ar til Búnaðarfjelags íslands fyrir lok septembermánaðar n.k. Ymis mál fleiri hefir nefnd- in haft til athugunar, m. a. til- lögur þeirra Steingríms Stein- þórssonar búnaðarmálastjóra og Pálma Einarssonar ráðu- nauts um bygðahverfi í sveit- um, sem áður hefir verið skýrt frá. Þær tillögur eru svar til- lögumanna við fyrirspurn nefndarinnar til þeirra um það mál. Nefndin hefir ekki enn tekið neina ákveðna afstöðu til tillagna þessara, og svo er um mörg mál önnur, er hún hefir til athugunar, — eru þar á með al ýms mál, er Alþingi hefir haft til meðferðar, varðandi jarðræktarlögin og önnur jarð ræktarmál, og er því ekkert sjerstakt um þau mál að segja að sinni. Rússar spurðu ekki Breta ráða London í gærkveldi. EDEN, utanríkismálaráðh. var í neðri málstofunni í dag spurður um það, hvort Rússar hefðu sent sendiherra til Badog liostjórnarinnar eftir að hafa látið Breta vita nokkuð um það. Svaraði Eden, að svo hefði ekki verið, og myndu Bretar ekki senda neinn sendiherra til Ba- doglio. Erindrekar þar, væri Italíuráðið, og hefðu Rússar þar einnig fulltrúa. Ennfremur kvað Eden að Bretar og Bandaríkjamenn hefðu ávalt látið Rússa vita um allt, sem gerst hefði í Ítalíu- mólunum, sem gerst og hægt hefði verið, og Ítalíuherferðin væri verk Breta og Bandaríkja manna. Reuter-. LÖGTÖK Samkvæmt kröfu útvarpsstjórans í Reykja- vík og að undangengnum úrskurði, verða lög- tök látin fara fram fyrir ógreiddum afnota- gjöldum af útvarpi fyrir árið 1943, að 8 dög- um liðnum frá birtingu þessarar auglýsing- ar. Borgarfógetinn í Reykjavík, 22. mars 1944. KRISTJÁN KRISTJÁNSSON settur. ... NEFNDdN frestaði störfum sínum 4. f nóvember f. á., hóf þau ai'tur 3. febr. s.l., en frest- aði þeihi: svo á ný 13. þ. m. fram í miðjan apríl, eða um það bil. í þessari lotu er þetta helst af 'störfurn hennar að segja, til viðbótar því. sem áð- ur hefir verið ságt: Verðlaunaritgerðir. Vegna tilmæla þar um ákvað nefndin að framlengja frest til að skilaf samkepnisrítgerðum, um frarnfíðárskíþan landbún- aðar hjer á landi, til 1. mars þ. á., og höfðu henni þá borist 26 ritgerðit og mun nefndin taka þær til endanlegrar athug unar og álita í næstu starfslotu. Ein af þessum ritgerðum barst nefndinni frá Kaupmannahöfn. Framhaldsnám búfræðinga. Nefndin hjelt áfram athug- unum sínum um framhaldsnám búfræðinga, og þegar hún hafði fengið vilyrði fyrir því, að sam vinna mundi geta tekist milli Háskólans, landbúnaðardeildar atvinnudeildar Háskólans og Búnaðarfjelags Islands um kenslukrafta, húsrúm o. fl. fyr ir slíkt framhaldsnám, fal nefndin búnaðármálastjóra á- samt Halldóri Pálssyni ráðu- naut og Pjetri Gunnarssyni til- raunastjóra að gera tillögur um tilhögun námsins og fyrirkomu lag. Sömdu þessir menn ítar- legt álit um málið og gerðu frumdrög að kensluskrá fyrir námið. Er þar gert ráð fyrir, að rjett til framhaldsnáms hafi einungis búfræðingar með góðu prófi frá bændaskólunum, námstíminn sje óslitinn eitt ár, utan venjulegra skólafría, bók- leg kensla fari fram í Reykja- vík allan veturinn og i sam- bandi við hana nokkrar verk- legar æfingar, en að öðru leyti fari verklega námið fram að sumrinu, utan Reykjavíkur m. a. á vegum ráðunauta Búnað- arfjelags íslands, á tilrauna- stöðvum, nýtísku búum, skóla- búum, mjólkurbúum o. s. frv. Ráðgert er, að nemendur geti verið um 20. Tilgangur námsins er fyrst og fremst að gera unga, efni- legá búfræðinga færa um — án háskólanáms erlendis — að verða hjeraðsráðunautar í þjónustu búnaðarsambanda, bú fjárræktarfjelaga eða hjá sam- böndum þeirra, verkstjóra við stærri jarðræktarframkvæmd- ir og yfirleitt leiðbeinandi og fræðandi menn í öllum almenn um búnaðarmálum, út um sveitir landsins. Þetta mál hefir nefndin nú falið stjórn Búnaðarfjelags ís- lands til frekari aðgerða, á þeim grundvelli, er að framan greinir. Búnaðarmálasjóður. Nefndin hefir samið frum- varp til laga um stofnun bún- aðarmálasjóðs. Frumvarpið, á- sarpt greinargerð og brjefi til írekari árjettingar, hefir nefnd in nú senþ öllum búnaðarþings Um afsláttarhross. Þingsályktun Alþingis. um afsláttarhross, frá 15. október f. á., hefir verið vísað til nefnd arinnar til umsagnar. Ályktun- in er þess efnis, að ríkisstjórn- in láti fara fram rannsókn á því, hvérnig helst mætti koma afsláttarhrossum bænda í við- unandi verð. Nefhdinni er Ijóst, að nauð- syn ber til að fækka hrossum í landinu vprulega, og í sam- bandi við það að gera þær ráð- stafanir, sem unt er til þess að tryggja viðunandi verð á hrossakjötinu. Fyrir því hefir nefndin hú léitáð álit sýslu- nefnda í 9 mestu hrossasýslum landsins um það, hvort setja skuli lög um meðferð og sölu hrossakjöts, þar sem m. a. sje ákveðið: a) að afsláttarhrossum skuli framvegis slátrað einungis í þar til sjerstaklega viðurkend- um sláturhúsum. b) að kjötverðlagsnefnd verði nú þegar falið að safna árlega skýrslum um tölu af- sláttarhrossa og kjötþunga þeirra, svo og að úthluta slát- urleyfum handa eigendum af- sláttarhrossa og ákveða verð- lag á hrossakjöti. Þegar safnað hefir verið skýrslum um tölu afsláttar- hrossa í 2 ár án þess að þar til komi lagaákvæði, ætlast nefnd in til, að kjötverðlagsnefnd hafi fund með fulltrúum þeirra sýslufjelaga, sem málið varð- ar, áður en fyrirhuguð lög verða sett, nema sýslunefnd- irnar telji skjótari aðgerðir í málinu nauðsynlegar. í sambandi við þetta mál hefir nefndin hvatt sýslunefnd irnar til þess að beita sjer fyr- ir því, að fram verði fylgt lög- um um ítölu, frá 10. nóvem- ber 1943, alstaðar þar, sem ætla má að lándí sje oíboðið með á- gangi búfjár. Að fengnum svörum sýslu- nefndanna tekur nefndin mál- ið til ákveðnari meðferðar. Utanför vegna meðferðar og sölu búfjárafurða. Nefndin hefir, að fengnu samþykki Búnaðarfjelags ís- 'lands og dr. Halldórs Pálsson- ar ráðunauts, farið þess á leit við landbúnaðarráðherra, að hann ráði Halldór til utanfar- ar, til Bretlands og Ameríku, þeirra erinda, að hann kynni sjer sjerstaklega: a) ullarmat og ullarþvott í ullarþvottahúsum, b) hraðfrystingu á kjöti og sölumöguleika á því. c) hvort hagkvæmt mundi vera við hin stærri slátur- hús að vinna fóðurmjöl úr blóði, fótum og öðrum úr- gangsefnum á sláturhúsum, t. d. til refafóðurs. d) markaðsskilyrði fyrir lje- legri kjöttegundir, s. s, ær- kjöt, nautakjöt og hrossa- . ájöt. .

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.