Morgunblaðið - 25.03.1944, Page 12

Morgunblaðið - 25.03.1944, Page 12
12 Laugardagur 25. mars 1944, Samkór Tón- iistarfjelags- ins tekur til starfa EINS og áður hefir verið skýrt frá hjer í blaðinu, þá stofnaði Tónlistarfjelagið sinn •eiginn kór á síðastliðinu hausti. Pessi kór kevnur nú í fyrsta sinn opinberlega fram á hljóm- leikum fjelagsins í Gamla Bíó á morgun. Blaðið sneri sjer til hljóm- sveitarstjóra Tónlistarfjelags- ins dr. V. von Urbantschitsch, sem jafnframt er aðalsöngstjóri kórsins, og bað hann að segja eitthvað frá hinum nýstofnaða kór. Sagðist honum svo frá: ,,Enda þótt kór þessi sje ekki formlega stofnaður fyr í vetur, þá er þó flest söngfólkið gam- alkunnugt og valið úr hópi þess fólks, sem á undanförnum ár- um hefur á vegum Tónlistar- fjelagsins flutt hvert stórverk- ið eftir annað, svo sem „Sköp- unina“, „Messías“ og „Jóhann- esarpassíuna", svo að eitthvað eje nefnt. í kórnum eru nú um fjörutíu manns, allt góðar raddir og margar ágætar. Tel jeg það mikinn kost fyrir hinar fjöl- þættu starfsemi Tónlistarfje- lagsins, að hafa eignast sinn eigin kór. Hingað til höfum við orðið að safna fólki saman í hvert skifti, sem ákveðinn hef- ir verið kórflutningur og þá venjulega orðið að leita til karlakóranna um hjálp. Þetta heíir að vísu alltaf gengið sæmilega, en aðeins vegna góð vildar karlakóranna og skiln- ings þeirra á starfsemi fjelags- ins, þvi að sjálfsögðu hefir þétta truflað þeirra eigin starf- sémi. Þessi nýstofnaði kór okkar lýtur sjerstakri stjórn, er vinn ur í samráði við aðalsöngstjór- ann og' er hún svo skipuð, að ( *Tónlistarfjelagið skipar for- manninn og er það Olafur Þor- grímsson hrlm., en sjálfur kýs kórinn tvo meðstjórnendur, sem nú eru frk. Sigríður Þor- steinsdóttir og Sigfús Halldórs- son. Hljómleikarnir á sunnudag- inn verða fyrir styrktarfjelaga Tónlistarfjelagsins og vil jeg nota tækifærið til að vekja at- hygli á því, að þeir hefjast kl. 1,15, en ekki kl. 1,30, eins og prentað er á aðgöngumiða. — Verðum við að byrja stundvis- lega, vegna þess hve sönngskrá in er umfangsmikil. — Síðar munum við endurtaka þenna samsöng opinberlega, svo að sem flestum gefist kostur á að heyra hin fögru viðfangsefni okkar.“ - „En hver eru viðfangsefn- in?“ „Hingað til höfum við aðal- lega flutt andleg kórverk, en í þetta sinn verða viðfangsefnin veraldlegs eðlis og með píanó- undirleik, sem Fritz Weishapp- el annast. Tónskáldin, er við höfum valið okkur núna, eru Brahms og Schubert, eru verk- in glæsileg og meisíaraleéa aamin11. Farmgjalda- hæk! hjá Ríkisskip ÞVÍ HEFIR verið haldið fram í blöðum, að hækkun sú á farmgjöldum hjá Ríkisskip (25—33%), sem atvinnumála- ráðherra hefir fyrirskipað, hafi engin áhrif á vöruverð út um land, því að hækkunin nái ekki til sk'ömtunarvara. Hvað er hið sanna í þessu? Ilið sanna er, að Eimskipa- fjelag ísiands hafði samning við Ríkisskip um flutning á umhleðsluvörum til hafna út um land. Samkvæmt þeim samnirigi skyldi Ríkisskip flytja allar skömtunarvörur og ýmsar aðrar nauðsynjavörur, sem teknar voru í umhleðslu hjer í Reykjavík, fyrir hálft flutningsgjald. Þessum samningi sagði Rík- isskip upp frá síðustu áramót- um. Eftir áramótin tók Ríkis- skip aðeins skömtunarvörur og fáeinar vörur aðrar (fóðurvör- ur) til flutnings fyrir hálft flutningsgjald. Af öllum öðrum umhleðsluvörum er tekið fult flutningsgjald með strandferða skipum ríkisins; þar í eru ýms- ar nauðsynjavörur, sem áður voru fluttar fyrir hálft gjald. Þegar svo atvinnumálaráð- herra fyrirskipaði hækkun á farmgjöldunum i strandflutn- ingunum, kom 25% hækkun á allar skömtunarvörur, sem Eimskip sendir með strand- ferðaskipunum í umhleðslu. En á ýmsar aðrar umhleðsluvörur nemur hækkun farmgjaldanna 150% frá fyrra samningi Eim- skips við Ríkisskip. Sjá allir af þessu, að hjer er um að ræða mikla hækkun farmgjaldanna. — Eitt blað- ið hefir það eftir forstjóra Skipaútgerðarinnar, að Eim- skip verði látið taka þessa byrði á sig. En einkennileg væri sú ,,dýrtíðarráðstöfun“, að ríkisstofnun væri að velta byrðunum af sjer yfir á Eim- skipafjelagið. En þetta kann alt að skýrast betur síðar. uttWití>ií» Þannig eru skriðdrekar Japana Japanskir skriðdrekar eru nokkuð öðru vísi í útliti, eins og sjá má af myndinni hjer að ofan. Aðalmunurinn er sá, að þeir eru hærri og hjólabúnaður þcirra cinfaldari. Biskupinn fer frá Kyrrahafsströndum Kveðjusamsæii BLAÐAMANNAFJELAG ÍS- LANDS heldur Mr. Porter Mc Keever, forstjóra upplýsinga- skrifstofu Bandaríkjanna kveðjusamsæti að Iiótel Borg annað kvöld kl. 7,30, og hefst með borðhalíj. I samsætinu taka þátt fjelagar Blaðamanna fjelagsins og þeir kunningjar McKeevers, sem vilja nota þetta tækifæri til að kveðja hann, en McKeever er nú á förum af- landi burt, eins og kunnugt er. Aðgöngumiðar að samsætinu fást í dag til kl. 6 í afgreiðslu Morgunblaðsins, og í afgreiðslu Fálkans í Bankastræti. Nauð- synlegt er, að þátttakendur hafi sótt miða sína fyrir kvöld- ið. San Francisco, 20. mars. San Francisco hjeraðið, en það elur rúmlega eina milión íbúa, kvaddi í dag biskupinn, Sigurgeir Sigurðsson. — Hann hefir reynst einna áhrifamest- ur þeirra erlendu gesta, er þar hafa borið að garði, í að kynna þjóð sína og land og efla sam- hug í garð þjóðar sinnar. Á laugardaginn var biskup- inn gestur í Stanford háskóla, sem er einn af frægustu stofn- unum Ameríku, sem veita æðri mentun. Landsvæði skolans, um 1500 ekrur, er í um 55 km. fjar lægð suðaustur frá San Fran- cisco og liggur milli Kyrrahafs og Santa Cruz fjallanna. Dr. D. E. Trueblood, skóla- presturinn og Dr. Kirkpatrick, forseti eðlisfræðideildarinnar, ! tóku á móti biskupnum. Fyrst heimsóttu þeir „Memorial“ kapellu háskólans og skoðuðu þar tvær heimsfrægar glugga- myndir. Önnur sýnir Fjallræð- una en hin Síðustu kvöldmál- tíðina, Þaðan gengu þeir fram hjá hinum geysistóru efnarann ' sóknastofum, skólastofum, leik fimivöllum og svefnskálum, til hins nýja Hoover bókasafns. — ^ókasafn þetta er 16 hæðir og var fullgert árið 1941. Þar eru 5 miljónir binda á 27 tungu- málum frá 40 þjóðum. Það er stofnað árið 1914, með safni Herberts Hoover, fyrverandi Bandaríkjaforseta og er það góour heimildarstaður um sein ustu styrjöld og afleiðingar hennar. Nú hefir verið bætt við heimildarritum um núverandi styrjóld. * Hádegisverðar var neytt í garði lítils aðliggjandi íista- mannahverfis á landareign há- skólans. Eftir hádegisverð var farið til útihringleikahúss og hlýtt á hljómleika, er hljóm- sveit háskólans annaðist undir stjórn Dr. Jan Popper, fyrver- andi yfirmanns Operunnar í Prag, en sem nú er prófessor í tónlist við háskólann. Á sunnudaginn talaði bisk- upinn í dómkirkjunni í Grace, þar var saman komið eitt þús- und manns. I ræðu sinni talaði biskupinn um sögu Islands og hvaða þátt kirkjan ætti í fram- gangi þjóðarinnar. Hann lauk ræðunni með bæn á íslensku. Síðari hluta sama dags flutti hann ræðu á íslensku í Fyi'stu Lutherskirkju í San Francisco. Meðal áheyrandanna voru um 250 íbúar borgarinnar af ís- lenskum uppruna. í lok guðs- þjónustunnar skirði biskupinn þrjú börn. Hið ynsta þeirra 17 mánaða gamalt, Winston Hann esson, er dótir Jóhanns Hann- essonar frá Siglufirði, er stund ar nám í Califoríu hháskóla. Mikil þáitfaka í skíðamóti Norð- manna ÞEGAR útrunninn vav tími til að tilkynna þátttöku í skíðamóti því, sem Nord- mannslaget gengst fyrir að! IColviðarhóli n. k. sunnudag, höfðu tilkynnt þátttöku 15 norskir skíðastökkmenn og íslenskir skíðastökkmenn frá fjórum fjelögum, nefnil 1- þróttafjel. Reykjavíkur, Skíða fjel. Stúdenta, Skíðaborg, Siglufirði og Skíðafjel. Siglu- fjarðar. Iíyrjar kenppnin kl. 14, en kallað verður á kepp- endur kl. 13,30. Norskir her- menn hafa að undanförnu verið að undirbúa stökk- brautina. — Tvær árásir á London London í gærkveldi. í FYRRINÓTT og í nótt sem leið voru árásir gerðar á Lond- on af þýskum flugvjelum, sem komu í smáhópum inn yfir borg ina. Skemdir á húsum urðu all- miklar og einnig varð nokkurt tjón á mönnum. Sprengjur fjellu einnig á allmörgum stöð- um á Suður-Englandi og urðu þar einnig skemdir. — Tvær af hinum þýsku flugvjelum voru skotnar niður, sín hvora nótt- ina. — Enn var gefið árásar- mei’ki i London í kvöld. innanfjelagsmó! í hnefaleik Á MORGUN halda ÍR-ingar innanfjelagsmót í hnefaleikum. Fer það fram í iþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar og hefst kl. 8 e. h. Kept verður í 5 þyngdarflokk um, og eru keppendurnir alls 17, þar af 3 úr KR, er keppa sem gestir fjelagsins. Aðgongu miðar að hnefaleikunum fást í Nordmandslaget hjelt skemt- un í gærkveldi að Hótel Borg. Mag. Christoffersen hjelt einkar fróðlegan fyrirlestur um Sval- barð og sögu þess frá fornu og nýju og alt fram til vorra daga. Síðan sýndu 30 manns norska þjóðdansa við ágætar undirtéktir Lögfræðingadeilan í Noregi harðnar Frá norska blaða- fulltrúanum; DEILA SÚ, sem hefir komið upp milli lögfræðinga norskra og quislingayfirvaldanna, hef- ir harðnað, eftir að lögfræðing unum hafa verið settir úrslita- kostir. Hafa þeir verið settir með þriggja daga fresti t’il að skila svörum. Aðalatriði deil- unnar er það, að lögfræðingarn ir hafa neilað að gégna opin- berum stöðum innan quislinga- stjórnarinnar og embættum á vegum hennar. Deilan byrjaði, þegar quislingstjórnin ljet efna til dómaraprófs meðal lögfræð inga og krafðist skýrslna um alla lögfræðinga. Haldið er, að quislingar hafi þannig viljað fá lista yfir unga lögfræðinga, sem þeir gætu skipað í ýmsar stöður, en lögfræðingar hafa ekki viljað gegna neinum slík- um stöðum, síðan nýskipanin komst^a. Nú hafa lögfræðing- arnir fengið nýtt brjef, þar sem sagt er, að ef því sje ekki svarað, muni lögfræðingarnir verða sviftir rjettindum til þess að hafa nokkra lögfræðistarf- semi með höndum. Sænsk blöð segja, að meiri hluti lögfræð- inganna hafi ekki í hyggju. að beygja sig fyrir úrslitakostum quislinga, og að þeir fáu, sem svöruðu fyrra brjefi, muni hætta störfum, ef hinir verða sviftir rjettindum lögfræðinga. Norskir fangar í vinnu. Frá norska blaðafulltrúan- um; — Frá Osló hafa borist fregnir um það til sænskra blaða, að í síðastliðinni viku hafi 300 norskir fangar verið sendir frá Grini til Tromsödals í Norður-Noregi, þar sem þeir eiga að vinna fyrir Þjóðverja. S. I. B. S. bárusl 20 jsúsund krónur í gærkvöldi í GÆRKVÖLDI bárust Vinnuheimili S. í. B. S. pen- ingagjafir er námu að upphæð 20,000 krönur. Var ein pen- ingagjöfin 10,000 krónur, frá V. E. O., ennfremur 200 kr. frá h.f. Hrönn og 2000 krónur frá h.f. Dvergur. Þær 6 þúsund kr. er eftir eru, bárust Vinnu- heimilinu í smærri gjöfum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.