Morgunblaðið - 03.05.1944, Side 1
Bandaríkja-
menn gera árás
á Truk
Washington í gærkvcldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
IVtJÖG ÖFLUG flotadeild
Bandaríkjamanna, sem í voru
bæði flugvjelaskip og orustu-
skip, hefir gert aðrá stórárás
á bækistöðvar Japana i Truk-
hringrifinu.
Yfirmaður Kyrrahafsflotans
tilkýnnir, að herskipin, sem á-
rásina gerðu hafi verið fjölda
mörg, orustuskip, beitiskip og
tundurspillar og heill flokkur
af fiugvjelaskipum. Var ráðist
á Sataman auk Truk og márgar
árásir og harðar gerðar á hvor
tveggja staðinn.
Eitt hundrað tuttugu og sex
japanskar flugvjelar voru eyði
lagðar í tveggja daga árásum
á Tr'uk.
1800 smálestum af sprengj-
um var varpað á eyjarnar í
Truk-klasanum. Urðu spjöll
mikil á strandvirkjum og öðr-
um stöðvum. Einnig skutu or-
ustuskip á stöðvar við Ponape
á mánudag, en árásirnar á
Truk stóðu laugardag og sunnu
dag. —
Usli í liði Titos
ÞJÓÐVERJAR hafa gefið út
skýrslu um hernað í apríl við
skæruliða Titos í Júgoslavíu,
og kveðast þeir hafa unnið á
þeim í möírgum orustum og
alls felt 9000 manns af skæru-
liðunum í þessum mánuði.
Þýsk flugvjel yfir
Akureyri
L( JFTVARNAM ERKI var
gefið á Akureyri s.l. f'östudag,
iámkvæmt upplýsingum, sem
ameriska herStjórnin birti í
gærkyeldi.
Segir I tilkynningu herst.jórn 1
arinnar að óvinaflugvjel, sem
I
ekki var hægt að^greina liverr
ar tegundar var, liaf-i' flogið
yfir bæinn. Flugvjelin vapaði
ekki nið.ur neinum sprengjum.
Skotið var að flugv.jelinni úr
loftvarnabyssum.
2219 norskir sjó-
menn hafa farist
Frá norska blaðafull-
trúanum:
FRÁ New York er símað, að
skipatjón Norðmanna árið 1943
sje hálfu minna en það var
árið 1942, að því er Öyvind
Lorentscn útgerðarstjóri hefir
skýrt frá.
607 menn fórust af norskum
skipum á árinu, og voru 419
Norðmenn meðal þeirra, en
hinir af ýmsum þjóðum.
Alls hafa- farist 2219 norskir
sjómenn í styrjöldinni, en með
þeim margir annara þjóða
menn.
Harðar loffárásir á Frakk-
JL- ~:. v .... —
land í sólarhring
London í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
BRETAR og BANDARÍKJA-
MENN hafa beint mjög hörðum
loftárasum gegn mörgum stöð-
um í Frakklandi, bæði í nótt
sem .leið og, eins í dag. Voru
það hinar stóru sprengjuflug-
vjelar Breta, sem fóru yfir um
Ermarsund í nótt og vörpuðu
niður alls um 25000 smálestum
sprengja.
Borgir þær, sem á var ráð-
ist, voru þessar: Lyon, Tours,
Toulouse,; Chalmi, Malin og St.
Dumier. Hinar tvær síðast-
nefndu borgir eru í Belgíu. —
Einn flokkur flugvjela gerði
atlögu að Ludwigshafen í,
Þýskalandi. — Alls komu 10
sprehgjuflugvjelar ekki aftur.
Flugmálaráðuneytið breska
segir að einkum hafi sprengj-
unum verið beint að flugvjela
smiðjum, iðnverum öðrum og
járnbrautarstöðvum. Enn frem
ur lögðu allmargar flugvjelar
tundurduflum.
Dagárásir.
1 björtu í dag var svo átök-
unum haldið áfrarn og einkum
beint að járnbrautarstöðvum í
Norður-Frakklandi og Belgíu,
stöðvum á brautum þeim er
liggja til Ermarsundshafnanna,
ásamt hernaðarstöðvum á
Calaissvæðinu að gömlum
vanda.
Flugvjelarnar, sem í dag
fóru til árása, voru bókstaflega
af öllum'tegundum, sem banda
menn hafa yfir að ráða til
slíkra sóknarferða, alt frá or-
ustuflugvjelum og upp í flug-
virki og Liberatorflugvjelar.
Þetta er 15 dagurinn sem loft-
sókninni er haldio áfram.
Spánverjur minkn wolfram-
útflutning til Þýskalands
Kannist þSð við hann!
ÞEKKIÐ þið hann þennan?
Hann er enginn annar en breski
leikarinn Laurence Oliver, sem
nú er sjóliðsíoringi í breska
flotanum. Myndin var tekin er
hann var að halda ræðu nýlega
fyrir sjóliða.
Ekkert sam-
komulag í vega-
vinnudeilunni
SAMNINGAUMLEITANIR í
vegavinnudeilunni hafa staðið
yfir. undanfama daga. Á mið-
nætrti í nótt barst blaðinu eft-
irfarandi afrit af brjefi, er
vegamálastjóri f. h. ríkisstjórn-
arinnar sendi Alþýðusambandi
Islands:
,,Ríkisstjórnin hefir falið
mjer að lýsa yfir því, að vega-
gerð ríkissjóðs mun á þessu
sumri greiða gildándi verka-
kaup verklýðsfjelaga á fjelags-
svæðum þeirra, en utan fjelags
svæða sama kaup og síðastliðið
ár og eftir sömu kaupsvæða-
skiftingu og veita verkamönn-
um sömu hlunnindi og áður“.
Samkvæmt þessu hafa samn
ingar ekki tekist í deilunni,
Alþýðusamband íslands hafði
boðað verkfall í allri vega-
vinnu frá og með deginum í
dag, ef samningar tækjust
ekki, og leggja vegavinnu-
verkamenn samkvæmt því nið
ur vinnu í dag.
Fá nú aftur bensín og olíur
frá bandamönnum
London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
TILKYNT hefir \?erið í London og Washington, að Spán-
verjar hafi samið við Breta og Bandaríkjamenn um ýms
atriði, víðskiftalegs og annars eðlis. Eitt af aðalatriðum
samninganna er það, að Spánverjar skuldbinda sig til
þess að minka mjög wolframútflutning til Þjóðverja. —
I staðinn byrja bandamenn nú aftur olíu- og bensínflutn-
ing til Spánar, en hann hefir legið niðri um nokkurt skeið.
Snörp átök nærri
Jassi
London í gærgv.
í herstjórnartilkynningu Rússa
í kvöld segir, að ekkert hafi orð
ið um breytingar á vígstöðvun-
um í gær. Þjóðverjar segja
aftur á móti að harðir bardagar
hafi verið háðir nálægt Jassi,
og að þýskar og ungvérskar
hersveitir hafi enn getað sótt
nokkuð fram á svæðinu fyrir
austan og sunnan Stanislovo.
Rússar kveðast hafa gert harð-
ar loftárásir á Lvov enn þá og
hafi flugmennirnir sjeð mikla
elda. Þjóðverjar segja frá loft-
árásum þýskra flugsveita á
ýmsar stöðvar Rússa, t. d.
Schepetovka, þar sem komu
upp eldar miklir og sprenging-
ar urðu víða.
Fyrir suðvestan Kowel í
Póllandi segjast Þjóðvefjar
hafa getað hrundið nokkrum
áhlaupum Rússa. Tilkynning
Rússa ber með sjer að bardagar
hafa sumsstaðar verið allharð-
ir, þar sem 20 þýskir skriðdrek-
ar voru að sögn hennar eyði-
lagðir í gær.
•— Reuter.
17 japönskum
skipum söki
London í gærkveldi.
KAFBÁTAR Breta og Banda-
ríkjamanna á Kyrrahafi og Ind
landshafi hafa gert mikinn usla
í skipastól Japana. Háfa þeir
að því er tilkynt er, sökkt 17
skipum japönskum, þar af einu
beitiskipi og tveim tundurspill-
um, en laskað ýms fleiri.
Bandaríkjakafbátar söktu
einu beitiskipi, einum tundur-
spilli og einu stóru olíuskipi.
Ennfremur 8 meðalstórum
flutningaskipum. — Bretar
söktu tundurspilli og meðal-
stórum flutningaskipum tveim,
var þessum skipum öllum sökt
við Aandamaneyjar
jgfc , * •
Wolframsala Spánverja tii
Þýskalands hefir numið mn
120 smálestum á mánuði að
undanförnu, en ekki er bú-
ist við að hún verði meira
en 40 smálestir á. mánuði
mest í framtíðinni. Wolfram
er sem kunnugt er, málm-
tegund, sem er mjög þýð-
ingarmikil í hergagnaiðn-
aði.
Ræðismannsskrifstofum
lokað.
Þá hafa Spánverjar að
beiðni bandamanna, lokað
ræðismannsskrifstofum
Þjóðverja í Tangier
(Spánska Marokkó) og enn
fremur látið handtaka þar
allmarga ermcireiva Þjoð-
verja, og eins á svæðinu
næst Gibraltar. Er svo ráð
fyrir gert, að þeir láti taka
fleiri þýska erindreka á
Spáni fasta, að því er Eden,
utanríkisráðherra Breta
sagði í dag.
Itölskum skipum sökt
Þá hafa Spánverjar sam-
þykt að láta bandamenn fá
sex ítölsk kaupskip, er liggja
í spönskum höfnum, en tvö
verður gerðardómur látinn
skera úr, hvað um verður
og eins þau ítölsk herskip,
sem flýja til spánskra hafna
er ítalir gáfust upp.
Enginn berst í Rússlandi.
Þá hefir spánska stjórnin
fullvissað stjórnir Breta og
Bandaríkjamanna um það,
að enginn Spánverji berjist
nú lengur með Þjóðverjum
í Rússlandi, hvorki sje bláa
herfylkið nje bláa flugsveit-
in lengur við lýði.
Eden ánægður.
Anthony Eden ljet svo
um mælt í dag, er hann til-
kynti samninga þessa, að
hann væri ánægður með þá
og sýndu þeir, að Spánverj-
ar hefðu í hyggju að vera
hlutlausir í styrjöldinni hjer
eftir.