Morgunblaðið - 03.05.1944, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.05.1944, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 3. maí 1944 Sexiugsafmæli vesiur-íslenskrar merkiskonu: Sólveig Jónsdóttir írá Múla Frá Nemendasam- tiandi Verslunar- slélans 5, MÓT Nemendasambands | jverslunarskóla íslands var | fialdið að Hótel Borg síðástl. jsu:n*radag•' og' ■'•íiófst 'það iáeð ; f>orðíialdi. ; Raeður voru fluttar og tóku til raáls fyrv. skólastjóri skól- jaiis Jón Þ. Sívertsen, formað- kir Verslunaráðs Hallgrímur ÍB^nediktsson og formaður Iskálaráðs Sveínn M. Sveinsson, !er mælti fyrir hond skólastjóra, |or verið hefir veikur að und- 'pnförnu. j Þá tóku til máLs ’ fulltrúar inokkurra árganga og talaði ■ fieirra fyrstur fulltrúi 25 ára árgangs, Gáfu þeif; 'allríflega fjárhæð í húshyggmgarsjóð skólans, næstur tók til máls f. h, 15 ára árgangs Hjörtur Jóns- son, en sá árganguf gaf einnig fjárhæð í húsbyggingarsjóð skólans, 10 ára árgangur afhenti skól anum1 ” brjóstm>-nd af ; skóla- jsr,jóra Vilhjálmi' Þ. Gíslasyni, en þeir voru fyrstu nefmendur er.gengið höfðu'í' gegnum skól- ann eftir að hann tók við skóia stjórn, þ. e. a. s. þeir sett*|t í fyrsta- bekk, er 'Viih'jálfnur Þ, jGísláson tók við skólastjórn. ' j 5 ' árgangur stofnaði sjer- pí.akan námsstýrktarsjóð, er pí.yrki efnilega,' en efnalitla loemendur í■ skólanUm. j f tilefni mótsirís tiikynti for- beti Nemendasámbandsins, Guðjón Einarsson; að sambend íð ætli að gefa skólanum fána stöng og fána, er nota skuli p. júní á lóð skólans. ! Á milli ræðanna var sungið pg skemt, en að lokum var öans stiginn fram á morgun og sk.eratu menn sjer hið besta, Frakkar reiSlr við jLibanofimenn j London í gærkveldi. I FRANSKA sendisveitin í Beyrut hefir gefið út mótmæli jtií þess að mótmæla „yfirlýs- ingum, sem sjeu móðgandi fyr- >r Ffakka ', vegná óeirða þeirra pr urðu í borginní fyrir helg- >na. Segir í mótmælum þessum pð með því að gefá út slíkar /firlýsingar, hafi Frakkar ver- ð sakaðir um það sem þeir hafi ekki átt neina sök á, og bætt /ið, að franska sendisveitin í jíbanon hafi altaf vérið hlut- aus við innanríkLsmál Liban- ■ >nmanna. v ■ Ségir ennfremur í mótmæl- inum, að orð sjeú ékki nærri i lægileg til þess að afmá þann • :mánarblett, sem getsakir og isakanir hafi sett á Frakka, en >eir hafi altaf verið vinveittir Liib anonmönnuni. S.L sunnud. átti 60 ára afmæli merkiskona ísl. vestan hafs, Sol veig Jónsdóttir frá Múla, og þótt ef til vill væri nær, að ein- hver mjer pennafærari maður, sem þekkir Solveigu frá því að hún var ung hjer heima, mint- ist þessa merkisafmælis henn- ar, þá hefi jeg mikinn hug á láta það eftir mjer, að stinga niður penna, og geta að nokkru Solveigar og hélstu æfiatriða hennar, við þetta tækifæri. r Soiveig Jónsdóttir er fædd 30. apríl 1884, dóttir Jóns Jönssonar alþingismanns og Valgerðar konu hans. Ættir kann jeg illa að rekja, og mun ekki gera tilraun til þess að rekja ættir Solveigar, enda eru þær svo kunnar, að þess mun ekki gerast þörf. Óist Solveig upp á heimili foreldra sinna og fjekk þar ágætt uppeldi og staðgóða al- menna mentun, en stundaði auk þess nám um skeið i Rvík og Kaupmannahöfn. Tvítug að aldri giftist Sol- veig Jóni Stefánssyni, er þá var kaúpfjélagsstjóri á Seyðis- firði. Hann var 11 árum eldri en Solveig, hinn mesti atgerv- ismaður. Hafði hann á unga ^ldri ferðast mjög víða, og var stundum kallaður Jón Filipps- eyjakappi, því að hann tók þátt í bardögum á Filippseyjum með Bandaríkjamönnum í spánska stríðinu svoakllaða árið 1896. Bjuggu þau hjónin á Seyð- isfirði um nokkurt skeið, og eignuðust þar fjóra syni. Það ber vott um álit það, sem Sol- veig aflaði sjer þar, að hún var kosin í bæjarstjórn Seyð- isfjarðar 25 ára að aldri, og gengdi því starfi um eitt kjör- tímabil, en gaf ekki kost á sjer aftur, Mun -hún hafa verið fyrsta kona á íslandi og jafn- framt sú yngsta, sem kosin hefir verið til slíkra starfa. Árið 1913 afrjeð Jón að fara vestur um haf í annað sinn, og flutfist Solveg með þrjá drengina vestur nokkfum ár- um seinna, Var það að vetrar- lagi í lok fyrri heimsstyrjald- arinnar, að hún tókst þessa ferð á hendur, og mun það dómur þeirra, sem til þekktu, að þá hafi Solveig, eins og reyndar oftar, sýnt frábært þrek og mikla fórnfýsi, Yngsta drenginn, Karl, sem þá var á fimmta ári, fól hún syStur sinni og móður á Seyð- isfirði til uppfósturs. —- Fjekk hann hjá þeim ágætt uppeldi og naut hins mesta ástríkis þeirra. Þegar Solveig fluttist vestur, hafðí Jón fengið fasta atvinnu, og stofnuðu þau heimili að nýju í Baltimore í Maryland- fylki, og hefir Solveig búið þar* æ síðan. I Baltimore eignuðust þau hjónin tvær dætur og árið 1930 fluttist Karl, sem þá var orðinn 16 ára gamall, éinnig vestur til foreldra sinna. Okkur hjónum veittist sú ánægja að kynnast Solveigu og hennar fjölmenna heimili skömmu eftir 1930, og að eiga nábýli við hana, eða því sem næst, um nokkurra ára skeið. Voru þessi kynni okkur til mik illar ánægju og um leið lær- dómsrík, því að þar sem Sol- veig var, kyntumst við óvenju- legri mannesju um mannkosti, gáfur o'g myndarskap. Hið sama var að segja um mann hennar, Jón Stefánsson, hinn besta dreng, enda var auð sjeð, að þau hjónin, meðan Jóns heit. naut við, voru samhent í besta lagi. Bar allur heimilis- bragur þess vott, Hin besta ein- ing ríkti á heimilinu og sýnilég virðing barna til foreldra sinna, jafnframt hispurslauSú viðmóti. Árið 1932 varð Solveig'fyrir þeirri þungu sorg, að Jón mað- ur hennar ljest eftir»stutta legu. Var það og mikið áfall fyrir heimilið, þar sem dæturn- ar voru fyrir innan ferming- araldur og yngsti drengurinn í skóla, en mjög erfiðir tímar í Bandaríkjunum um þéssar mundir og atvinna yfirleitt rýr. Við þetta bættist, að líftrygg- ingarfje, er Solveigu var greitt við lát manns hennar, fór að mestu forgörðum í bankahruni. í þessum raunum sýndi Sol- veig, að hún átti mikið þrek og hugrekki til að bera. Alltaf sama glaða og góða viðmótið og sama gestrisnin, enda gerðu börnin það, sem þau gátu til þess að Ijetta raunir hennar. Solveig .ann mjög söng og hljómlist, og mun hafa verið afbragðs söngkona á yngri ár- um sínum, enda notið nokkur- ar söngmentunar. Börn hennar elu einnig sönghneújð og var oftast nær, þegar fundum bar saman, óspart sungið og leikið á hljóðfæri. Nú, á sextugsafmælinu, get- ur Solveig litið til baka yfir vel unnið starf. Börnin'eru nú öll upp komin og öll hin mann vænlegustu. Þau hafa hlotið góða mentun og sum afbragðs mentun. Börn Solveigar eru þessi: Stefán, iðnaðarmaður, Ragnar, liðsforingi (captain) í Banda- ríkjaher, nú staddur hjer á landi, Karl, jarðfræðingur, hlaut doktorsnafnbót í jarð- fræði við Johns Hopkins há- skólann í Balttimore s.l. ár, Valgerður, hjúkrunai'kona og Solveig, kennari. En elsta son sinn, Jón Múla, verslunarmann misti Solveig af slysförum fyr- ir rúmum tveimur árum. Var hann mikill harmdauði móður sinni og systkynum og öllum, sem hann þekktu. Ragnar er giftur, einnig Valgerður. Ste- fán og Solveig eru til heimilis hjá móður sinni, en Karl starf- ar nú í Washington. Solveig er íslensk mjög í anda, og oftast er þær röbbuðu saman, Solveig og konan mín, eða við þrjú, barst talið að átt- högunum og æskuárunum. Kann hún vel frá mörgu að segja frá þeim árum og þeim slóðum. — En þótt hugurinn hvarfli oft heim til íslands og æskustöðvanna. mun Solveig nú „una glöð við sitt“ í sínu vistlega heimili í Baltimore, meðal barna sinna, sem hún hefir helgað líf sitt og starf. Það hefir vafalaust verið gestkvæmt á heimili Solveigar á sunnudaginn, eins og reynd- ar oft endranær. En auk þeirra, sem heimsóttu hana, munu fjöl margir vinir og ættingjar, einn- ig hjerna megin hafsins hafa sent henni í huganum hlýjar. kveðjur og hugheilar afmælis- óskir. Guðni. Marteinsson. Flokkaglíma Ármanns FLOKKAGLÍMA Ármanns fór fram siðastliðinn spnnudag. Kept var í þremur þyngdar- flokkum. í þyngsta flokki sigraði Guð- mundur Ágústsson (Á). Lagði hann alla keppinauta sína og hlaut 3 vinninga. Annar var Haraldur Guðmundsson (KR) með 2 vinninga og 3. Einar Ingimundarson (Vöku) með 1 vinning. í miðþyngdarflokki sigraði Guðmundur . Guðmundsson (Trausta). Hann hlaut fimm vinninga, lagði alla keppinauta sína, Annar var Davíð Hálf- dánarson (KR) með 4 vinnina og 3. Rögnvaldur Gunnlaugs- son (KR) með 3 vinnina. I ljettasta flokki voru kepp- endur aðeins 3. Þar var hlút- skarpastur Sigurður Hallbjörns son (Á) méð 2 vinningí^og 2. Ingólfur Jónsson með 1 vinn- Mikil þátttaka i há- höklunum 1 maí. HÁTÍÐAHÖLD verklýðsfje- laganna 1 .maí fóru fram eins og fyrirhugað hafði verið með ’iópgöngu, útifundi, skemtun- um í samkomuhúsum bæjarins og dagskrá í útvarpinu. Veð- ur var hið besta allan daginn og voru götur miðbæjarins full ar af fólki, einkurn um það leyti sem hópgangan og útifundur- inn stóð yfir. Hópgangan lagði af stað frá Iðnó um 2 leytið. Var margt manna í göngunni og voru bornir íslenskir og rauðir fán- ar, en lúðrasveit gekk fyrir. —• Mörg spjöld voru í göngunni, sem gömul, sem hafa sjest á slíkum göngum ár eftir ár, en mörg voru ný. Voru á spjöld þessi rituð hvatningarorð margskonar. Hópgangan hjelt um Vonar- stræti, Suðurgötu, Túngötu, Ægisgöngu, Vesturgötu, Hafn- arstræti, Hverfisgötu, Frakka- stíg og Laugaveg. Staðnæmst var í Lækjargötu og Banka- stræti og þar settur útifundur. Þar töluðu formenn, eða for- ystumenn margra stjettarfje- laga, en mannfjöldi mikill hlýddi á. Á götunum voru seld merki dagsins og tímarit Alþýðusam- bands íslands. Margir höfðu keypt merki, sem ekki tóku þátt í hópgöngunni. Yfirleitt virtist dagurinn ekki bera sama blæ og oftast áður, þeg- ar einstök pólitísk fjelög, eða pólitískir forkólfar hafa tran- að sjer fram. Bar dagurinn meiri svip almenns frídags og hátíðardags, eins og t. d. sjó- mannadagurinn, barnadagurinn o. s. frv. Virðist vel fara á því. Gott samstarf innan sænsku stjórnarinnar. Stokkhólmi: — í ræðu, sem viðskiptamálaráðherra - Svía, Domö, flutti á flokksþingi í- haldsflokksins sænska fyrir skemstu, ræddi hann um þjóð- stjórnina sænsku og sagði að eigi væru tímabærar rökræður um það, hvort hún ætti að sitja að völdum lengur. Sagði hann að samstarf innan stjórnarinn- ar væri ágætt og myndi verða svo áfram. Húseign til sölu <> < > < > < > < > Stór húseigti, 10 kin. frá hœnuni, einn góður veit- ‘ingasalur, éldhús, búr og 6 herbergi, með 3000 fer- .raetra eignarlóð selst á ki, 40,006,00. Tilboö Jeggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir fimtudagskvöíd, mérkt: „Laust 14. maíí Á mg. „Ráðskonan“ í 50. sinn Leikfjelag Hafnarfjarðar sýnir. Ráðskonu Bakkabræðra í 50. sinn í kvöld, og hefir aldrei neitt leikrit verið sýnt svo lengi í Hafnarfiröi, enda hafa leiksýningar verið bestu skemt- anir vetrarins þar. — Myndin sýnir, ráðskonuna, Huldu Run- ólfsdóttur og bræðuma þrjá, Gísla (Ársæl Pálsson), Eirík;' (Eirík Jóhannesson) og Helga (Hafstein Baldvinsson).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.