Morgunblaðið - 03.05.1944, Síða 6

Morgunblaðið - 03.05.1944, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 3. maí 1944 .ÍJtg.: H.f. Árvakur, Reykjavík Framkv.stj.: Sigfús Jónsson ,! Ritstjórar:r • Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Óla Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlands, kr. 10.00 utanlands f lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók. Urslitastundin nálgast ÓÐUM nálgast úrslitastundin í sjálfstæðismálinu. — Maímánuður er upp runninn. Það er í þessum mánuði, sem íslenska þjóðin á að leggja smiðshöggið á sambands- slitin og lýðveldisstofnunina. Þar verður að koma fram einhuga og samtaka þjóð. Vonandi þarf engu að kvíða í þessu efni. Þjóðin hefir aldrei látið á sjer standa, þegar um hefir verið að ræða að ná nýjum áföngum í sjálfstæðisbaráttunni. Hún mun því áreiðanlega ekki bregðast nú, þegar mest á ríður. Ef til vill hugsa einhverjir sem svo, að ekki muni um þeirra atkvæði. Úrslitin sjeu hvort sem er gefin. Enginn má hugsa þannig. Enginn má láta undir höfuð leggjast, að greiða atkvæði með sambandsslitum og stofnun lýðveld- isins, með því að treysta á aðra. Enginn má sitja heima með þeim forsendum, að ekki muni um eitt atkvæði. Allir verða að gera skyldu sína — hver einasti kjósandi. Það á að verða metnaður hreppa, sýslu- og bæjarf jelaga, að skila hæstri hlutfallstölu við þessar atkvæðagreiðslur. Það hjerað, sem skilar hlutfallslega hæstri jákvæðri at-. kvæðatölu, hlýtur heiðurssess á hinum mikla degi, 17. júní, þegar lýðveldið verður stofnað. Sagan mun geyma nafn þess hjeraðs um aldur og æfi. ★ Samhuga þing — einhuga þjóð! Hver hefði trúað því fyrir svo sem þrem mánuðum, meðan óeiningin og sundr- ungin stóð sem hæst, að einmitt þetta ætti eftir að ske? En þetta er orðin staðreynd. Og það er Alþingi, sem vann þrekvirkið. Því tókst að sameina hin sundurleitu öfl í þinginu, svo að lokum stóð þingið einhuga og óskift að lausn málsins. Ekki einn einasti þingmaður skarst úr leik. Með þessu gaf þingið þjóðinni fagurt fordæmi. Nú er málið lagt í hendur þjóðarinnar. Nú kemur til hennar kasta, að sýna sömu einingu og Alþingi gerði. Nú má þjóðin ekki bregðast. Hún gerir það áreiðanlega ekki. ★ Stjórnmálamennirnir unnu þrekvirki síðastliðinn vet- ur, er þeim tókst, eftir alt, sem á undan hafði gengið, að sameina þingið um lausn sjálfstæðismálsins. Þeim mönn- um, sem unnu þetta verk, verður aldrei nógsamlega þakk- að það heillaríka starf. En gætu ekki stjórnmálamennirnir unnið annað þrek- virki? Er óhugsandi að þeir géti kunngert stofnun lýð- veldisins 17. júní með þeim-hætti, að frá og með peim degi taki allir flokkar þingsins höndum saman og myndi sam- eiginlega ríkisstjórn? Ef þetta gæti tekist, myndi það kunngera umheiminum betur en nokkuð annað, að hjer er þjóð, sem stendur ein- huga og samtaka í sjálfstæðisbaráttu sinni. Einhverjir kynnu að segja sem svo, að um sameigin- lega stjórnarmyndun allra flokka geti ekki verið að ræða, vegna þess, að engirin málefnagrundvöllur sje fyrir hendi. En þessa menn mætti spyrja: Er nokkurt mál til, sem hafið er yfir þau stóru mál, sem nú er verið að leysa: sambandsslitin og stofnun lýðveldisins? Eru ekki einmitt þessi mál mál málanna? Jú, vissulega er það svo. Þótt ekkert annað væri sam- eiginlegt hjá þingflokkunumæn lausn þessara mála, rjett- lætti það fullkomlega sameiginlega stjórnarmyndun á hinum mikla hátíðisdegi þjóðarinnar, sem í vændum er. En svo er líka annað, sem stjórnmálamennirnir verða að athuga. Þeir verða að fara að hugsa um eftirstríðs- tímabilið. Þjóðin hefir ótal möguleika til þess að koma sterk út úr þessari styrjöld, ef hún heldur viturlega á mál- unum. Markmiðið á að vérða það, að öllum geti liðið ve'l í þessu landi. En til þess að þessu takmarki verði náð, þarf samstilta þjóð. Öldur sundrungar og flokkadráttar verða að lægja. Hjer geta stjórnmálámennirnir unnið þrekvirki, ef þeir setja markið hátt, eins og þeir gerðu, er þeir íeystu sjálf- stæðismálið. . Ferming s.l. surniu- dag. (Áf vangá fjell eftirf’áraiidi listi úr sunnudagsblaðiriu). 1 Dómkirkjunni. (Sjera- Bjarni Jónsson) Drengir: Ágúst Ifólin Magnússon, Sniiftjustíg 13. Andri Orn i leiíJl)erg, llring- braut 81. Bjargnuindur Ifai'st. Flór- entsson, Teigarveg 2. Bjöiai Tómas Kjaran, Tjarn argötu 101). Frantz Adol])h Bjetursson, Njálsgötu 11. (íiuuiai' Axelsson. Ilring- braut 152. (iunnar íljeöinn Jakobsson, Bergþórugötu 45. Halldór Óskársson, Álfheim um. Tlörður Benediktsson, (irett- isgötu 37. Jón Gárnnar Arndal, Urðar- stísr 7A. •Tón Árnason, ITafnarstr. 20. Jón Samúel, Elíasson, As- vallagötu 35. Jón Stefánsson, Ásvalla- götu 18. Jónas Ellert, Guðmundsson, Bæðraborgarstíg 14. Konráð. Ragnar Sveinsson, Korpúlfsstöðum. Leifur Blumenstein, Garða- stræti 39. Páll Þórarinsson, Aðal- stræti 9. Randver Þorv. Gunnarsson, Sólvallagötu 72. Stefán Jóriasson, Vitastíg 11. Svanlaúgur Gunnar Guð- mannsson, Sólvallagötu 24. 1 lfljotur Baldur Gíslason, Framnesvegi- 8A. 1 ilhelm Frímann Frimanns- son, Ilringbraut 146. Þórhallur Guðm. Filipus- son, Selás 3. Grn Ævarr Markússon, Kirkjutorg 6. Stúlkur: Ágústa Sigurðardóttir, llá- tún 17. Andrea Elísabet Oddsteins- dóttir, Ásvallagötu 31. Bergljós íngvarsd. Lauga- veg 20A. Elísabet B. Gluðmuriclsdóttir, Urðarstíg 2. Erla Margrjet Ólafsdóttir, I íræðraborgarstíg 4. Erna Guðrún Jensdóttir, Bræðfaborgarstíg 23. Guðbjörg Gísladóttir, Tjarn a rgöt u 8. Guðrún Margot Ólafsdóttir, Ásvallagötu 13. Gyða Gestsdóttir, Njálsgötu 8G. Ifallfríður Ilelga Dagbjarts dóttÍT', Ifverfisgötu 100B. Ifelga Hafsteinsdóttir, Marar- götu 6 Tlrafnhildnr Guðjónsdóttir, Spítalastíg 3. Ifulda Friði'iksdóttir, Grett- isgötu 79. •Töhanna Ásta Tíelgadóttir, B e i; gs t a ð a s 111 æ t i 28B. Magnea Bjarney Sigurjóns- dóttir, Grundarstíg 12. Margrjet Ragnarsdóttif, ÍTverfisgötu 83, ðfaría Svava TT. ITjarna- Framh. á 8. síðu \JiLuerji íhrij^ar: Ú l ci cýíecý ci Íífi inu Tekið undir í Iand- kynningarmálinu. í EIMREIÐINNI, sem kom út íyrir nokkrum dögum er m. a. ágætra greina nokkur orð um landkynningarmálið, eftir ritstjór ann, Svein Sigurðsson. Hjer í blaðinu hefir verið hamrað á þess um málum í mörg ár. Virðist mál- ið hafa hlotið góðan hljómgrunn hjá öllum almenningi og einnig hafa nokkrir blaðamenn ljáð mál inu lið, en á „æðstu stöðum“ hef- ir því ekki verið sá gaumur gef- in sem skyldi. í áminstri Eim- reiðargrein segir m. a., mjög rjettilega: Alskonar missögnum og jafnvel hættulegum rógi hefir stundum verið dreift út um okk- ar fámennu þjóð. Eitt nýlegt dæmi þess mun fæstum úr minni liðið. Þörfin á öflugri upplýsinga skrifstofu er brýn. Þótt einlægir vinir verði stundum til að taka svari okkar erlendis, þá sannast á okkur sagan um Helgu i ösku- stónni, að auðvelt er hinn um- komulausa að sverta. Eitt nýjasta dæmi þess, gat að líta í einu dag- bíaðanna fyrir tveim dögum. — Sænskur blaðamaður ritar bók um ástandið í hernumdu löndun- um á meginlandi Evrópu, þar á meðal Norðurlöndum (Arvid Fredborg: Bakom Staaivallen) og getur þar þess, samkvæmt frá- sögn blaðsins, um Höyer þann, er eitt sinn leitaði hælis hjer á ís- landi, að hann sje ein hin alræmd asta nasistasleikja í flokki blaða- manna nú í Danmörku. En hvort sem það nú er til að hreinsa bæði sina þjóð, Dani og Norðmenn af þeirri smán að eiga Höyer þenna að landa eða af öðrum ástæðum, gerir Fredborg hann að íslend- ingi, og hefði þó nafnið eitt átt að nægja til þess, að svo gat tæplega verið“. • Tveggja ára gömlu brjefi ósvarað. SÍÐAN FÆRIR greinarhöfund- ur fleiri rök fyrir því að nauð- synlegt sje, að sett verði á stofn upplýsingaskrifstofa fyrir Island. Þetta er sannarlega mál, sem hefði átt að vera afgreitt fyrir löngu síðan, en áhugi stjórnar- valdanna er ekki meiri fyrir mál inu, en það, að enn hefir ekki verið svarað nærri tveggja ára gömlu brjefi, sem Blaðamanna- fjelag íslands sendi Alþingi og utanríkismálanefnd mun hafa fengið til umsagnar. • Vanraeksla bókaút- gefenda. ÞAÐ VAR ANNAÐ MÁL, sem jeg rak mig við lestur síðasta heftis Eimreiðarinnar, sem þar er einnig rjettilega á drepið, en þáð er vanræksla bókaútgefenda, að geta heimilda á greinum, eða öðru efni, sem áður hefir verið birt í tímaritum eða blöðum, en síðar er gefið út i bókaformi. Vill það oft bregða við, að bókaútgef endum láist að geta þess, ef efni hefir áður verið birt. Segir svo um þetta í „Ritsjá'1 Eimreiðar- innar: „Sumar þessara smásagnS hafa áður birst í blöðum og tímarit- um, án þess að útgefandi bókar- inriar hafi þó gætt þess að geta um hvar og hvenær. Þetta er of tíður siður útgefenda, ónærgætni við lesendur og enginn greiði höf j undum. Til eru þeir lesendur, sem Jelja sig vonsvikna yfir nýrri bók, jer þeir uþpgötva við lesturinn, j að efni þeirra sje þeim að ein- ihverju leyti áður kunnugt og kotnið út á prenti. Og hpfundi er það hrós og meðmæli, að verk hans sjeu að nýju útgefin, eng- inn bót að þukri og leynd í þessu efni“. Hjer er vissulega rjett mælt.' © Gerið ekki gys að börnunum. GREININ, sem .birtist á 7. síðu Morgunblaðsins s. 1. laugardag hefir vakið mikla athygli, enda prýðisgrein og gagnleg. Um þessa grein skrifar mjer E. B. á þessa leið: ,,í Morgunblaðinu 29. f. m. birt ist grein eftir hinn stórmerka rit höfund Dale Carnegie, þar sem þessi góði höfundur sýnir fram á með mörgum dæmum og ljósum rökum, hverja hættu það geti haft í för með sjer að gera gys að börnum og hafa þau að háði vegna barnalegra hugmynda þeirra og skoðana. Ennfremur er á það minst, hversu mikill og merkur þáttur það er í uppeldi og sálarlífi barnsins, þegar það verður vart skilnings og velvild- ar frá fullorðnum. Það, sem jeg vildi fara með lín um þessum er hvorttveggja, að þakka Morgunblaðinu fyrir að hafa birt þessa grein og eggja menn og konur, sem umgangast börn, að less hnna, já, geyma greinina, eiga hana og lesa með nákvæmni, því greinin er stór- merkileg. • Spanskgræna á mynda styttum. BÆJARBÚAR hafa vafalaust veitt því eftirtekt, að á fótstöll- um flestra líkneskja, sem hjer eru í bænum, renna grænir straumar frá sjálfum líkneskjun- um. Mun þetta vera það, sem nefnt er spanskgræna og er til mikillar óprýði. Einkum eru þessir spansk- grænu straumar áberandi á fót- stalli Jóns Sigurðssonar-líkneSk- isins á Austurvelli og þyrfti nauð synlega að hreinsa þetta af fót- stallinum, sem allra fyrst og sjer staklega þó fyrir hátíðahöldin í vor. Jeg hefi leitað mjer upplýs- inga um það, hvernig haégt sje að ná þessu efni af steinum og segir mjer kunnáttumaður í þeim efnum, að það sje hægt með salt- sýru-upplausn. Oþarfa ráðstöfun við greftranir. NÝLEGA VAR AÐ því vikið hjer í dálkunum, að það væri dýrt að koma látnum manni í gröf sína og rjett er það, að dýrt er að deyja hjer á landi á þess- um síðustu og verstu tímum. En það er nú svo, að mjög mætti jgera allar greftranir einfaldari en þær eru og þar með lækka jarð- arfararkostnaðinn frá því sem nú er. Eitt er það t. d., sem mjög er farið að tíðkast við greftranir hjer í bænum, en það er að setja vatnsheldan dúk (vaxdúk) útan um kistuna, sem venjulega er blómum prýdd. Þegar menn eru spurðir að því til hvers þeir lúti setja slíka dúka, er svarið venju- lega, að þeir -viti það eiginlega ekki, eða að það sje gert til að hlifa blómunum á kistunni. Sjá allir heilvita menn, að gagnslítið er að hlífa blessuðum blómunum eftir að búið er að moka yfir gröf ina. Þetta er aðeins eitt atriði, sem merin réka ; aúgun í, af þeim ó- þarfa, ‘ sem eýtt er stórfje i við greftranir. , .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.