Morgunblaðið - 06.06.1944, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 06.06.1944, Qupperneq 1
Kl 11.45: Aukablað II 81. árgangur. 122 tbl. — Þriðjudagur 6. júní 1944 Itafcldarprentsmiðja hX JSáðusÉsa írjettir mi innrmsimni: p aliSÍSlll BMÉ |i3P flMM D q g sk i p d n Eisenhowers London í dag. Eisenhower yfirhersöfðingi gaf í upphafi innrásarinnar út dagskipan, sem komið var til hvers og eins í innrás- arliði bandamanna. Var skipunin á þessa leið: . „Hermenn, sjóliðar og flugmenn innrásarhers banda- manna. Þjer eruð nú í þann veginn að leggja út í hina miklu herferð, sem vjer höfum verið að búa oss undir marga undanfarna mánuði. Augu alls heimsins hvíla á yður. Vonir og bænir frelsiselskandi fólks hvar sem er, fylgja yður. ,,í samfjelagi við vopnabræður yðar- og bandamenn á öðrum vígstöðvum, munuð þjer eyðileggja hernaðarvjel Þjóðverja, nema á brott harðstjórn Nasista yfir hinum hernumdu þjóðum og tryggja sjálfum oss frjálsan heim. • „Verk yðar verður ekki auðvelt. Óvinirnir eru vel æfð- ir og vel útbúnir og þaulæfðir bardögum. Þeir munu berj- ast af mikilli hörku. ,,En nú er árið 1944. Margt hefir skeð síðan Nasistar geystust fram árin 1ÍM0—1941. Síðan hafa bandamenn valdið Þjóðverjum mörgum ósigrum. Loftsókn vor hefir mjög lama^ styrk þeirra í lofti og hæfni þeirra til hern- aðar á landi. Þjóðir vorar hafa gefið oss algert ofurefli hvað snertir vopn og önnur hergögn og lagt upp í hendur vorar öll þau tæki, sem með þurfa. Ennfremur höfum vjer ógrynni æfðs varaliðs. „Nú er gangi málanna breytt. Frjálsir menn ganga nú saman til sigurs. Jeg hefi fyllsta traust á skyldurækni yð- ar og hæfni í orustum. Vjer munum ekki gera okkur neitt annað að góðu, en fullan sigur. Gangi yður vel. Og látum oss alla biðjast blessunar Guðs til handa þessu göfuga fyrirtæki“. Reuter. De Gaulfe kominn til Englands London í dag. DE GAULLE hershöfðingi er kominn til London og mun síðar í dag flytja útvarpsræðu til frönsku þjóðarinnar og hvetja hana til baráttu með innrásarherjum bandamanna. Nicholayzek vestur um haf. Washington í gærkveldi: Bú ist er við forsætisráðherra pólsku útlagastjórnarinnar, dr. Nicholayzek hingað í heimsíkn í kvöld, mUn hann ræða ýms mál varðandi framtíð Póllands við Roosevelt forseta og ráð- herra hans. Ekki er vitað að Bandarikjastjórn háfi á prjórr- unum neinar miðlunartillögur í deilu Rússa og Pólverja. — Reuter. 4000 skip taka þátt í innrásinni LONDON í dag. — Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá REUTER. CHURCHILL FORSÆTISRÁÐHERRA hefir sagt síðustu frjett- irnar af innrásinni. Ljet hann svo um mælt að 4000 stórskip hefðu flutt herinn, ásamt mörgum þúsundum minni skipa. Þá tilkynti Churchill að Montgomery hershöfðingi rjeði fyrir innrásarhernum, sem aðallega væri breskur, en í honum eru einnig hersveitir frá Bandaríkjunum og Kan- ada. — Sumsstaðar á.ströndinni hefir þegar verið þaggað niður í fallbyss- um Þjóðverja, að sögn Churchills, og einnig kvað hann lendingu fallhlífa liðs hafa tekist vel. AÐ SÖGN ÞJÓÐVERJA hafa bandamenn gengið á land milli borganna Cherbourgh og Le Havre, en hörðustu orusturnar kveða þeir vera á ströndunum í nánd við borgina Caen (sjá innrásarkort Morgbl.), en hún er um miðja vegu milli hinna tveggja fyrrnefndu borga. Churchill kvað bandamenn þegar vera komna á land á nokkrum stöðum, en hann gat ekki um, hvar það væri. Yfir Ermarsundi eru háðar miklar loítorustur, er flugvjelar Þjóðverja reyna að ráðast að skipum bandamanna hvarvetna á sundinu. — Einn af liðsforingjum bandamanna með innrásarflotanum hefir skýrt frjettaritara vorum svo frá, að skipamergðin á sundinu hafi verið ótrúleg. Montg'omery hershöfSingi stjórnar hersveitum, sem komn- ar er.u á land í Frakklandi. Hann sjest hjer á myndinni til vinsri með Ecsenhower, yfirhershöfðingja alls her afla banda- manna í Vestur- Evrópu. Montgomery öruggur um úrslitin ÁÐUR en Montgomery steig á skip, sagði hann blaðamönh- um, að hann væri algerlega öruggur um úrslit þeirra á- taka, sem nú væru að byrja. „Okkur ætti ekki að verða skotaskuld úr því að vinna, þenna leik“, sag-ði hershöfð- inginn ennfremur. Hann bjóst við að Rommel myndi rej-na að sigra innrásarherina þegar á ströndunum. „Það er ekki gaman að fást' við Breta og Bandaríkjamenn, þegar þeir ganga saman tiL oorustu' ‘, sag’ði Montgoméry, „Ekkert veit jeg, hvenær stríðinu lýkur, en jeg held varla, að Þjóðverjar geti hald-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.