Morgunblaðið - 06.06.1944, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.06.1944, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐID Þriðjudagnr 6. jám 1944 Sjómaniuistjettm er verðug veglegrur m entastofnunur SJÓMANNADAGURINN var haldinn hálíðlegur í 7. sinn hjer í Reykjavík á sunnudag- inn, eins og til stóð, í góðviðr- issólskini einhverju því besta, sem komið hefir á þessu vori. En nú í fyrsta sinn komu sjó- rnenn og aðrir bæjarbúar sam- an á þeim stað á 'þessum degi, sem i framtíðinni verður sam- komustaður sjómanna hjer í Reykjavík — við, Sjómanna- skólann, sem verið er að reisa á norðanverðu Rauðarárholti. Þessi veglega bygging. sem stendur nyrst á hæðinrti, er svo mikil, að hún er mjög áberandi í útlínu bæjarins, er blasir við sjónum manna frá innsigling- unni í höfnina. Þó er turn húss- íns ekki fullreistur enn. Hann hækkar frá þvi sem nú er um eina 14 metra. Hátíðahöld dagsins hófust með því að kl. 8 á sunnudags- morguninn voru fánar dregnir að hún á skipum í höfninni og sala á merkjum og blaði dags- ins hófst á götum bæjarins. Eftir hádegi söfnuðust svo sjómenn saman við Miðbæjar- barnaskólann og gengu þaðan hópgöngu að hinum n^ja Sjó- mannaskóla á Vatnsgeymishæð inni. Tíu sjómannafjelög úr Reykjavík og Hafnarfirði lóku þátt í göngunni og gengu hvert undir sínum fána og íslenska fánanum. í fararbroddi ljek Húðrasveit Reykjavíkur undir síjórn Albert Klahn. — Hóp- gangan var mjög mannmörg og virðuleg. Þegar skrúðganga sjómann- anna^kom upp að skólahúsinu, var þar saman kominn mikill mannfjöldi. En fólk hjelt áfram að streyma þangað upp eftir, og dreifði mannfjöldinn sjer um holtið sunnan undir skólanum. Vafalaust hafa margir af þeim^ sem þarna voru. ajdrei komið þangað upp eftir síðan skólinn tók að rísa af grunni, og sá því nú í fyrsta sinn hve þarna ’er að rísa mikið og veglegt menta- setur fyrir íslenska sjómanna- stjett. Svo margt fólk var þarna saman komið, að það minti, mann á mannfjölda Alþingis- hátíðarinnar 1930 á Þingvöll- um. Við skólann var komið fyrir upphækkuðum palli, sem var að lögun eins og skipsstefni og var ræðustóllinn þar uppi á.— Röðuðu fánaberar hinna ein- stöku sjómannafjelaga sjer út frá ræðustólunum. fimm hvoru megin, en í miðjunni var horinn hvíti stjörnufáninn, minningarfáni hinna föllnu sjó- manna. Ein gylt stjarna fyrir hvern sjómann, sem látið hefir Jifið í barátlunni við ógnir hafs ins frá síðasía sjómannadegi. Stjörnurnar mynduðu krcss. Að þessu sinni voru þær 67, tákn 63 sjómanna og 4 farþega. Minningarathöfnin hófst með þvi að I^úðrasveitin Ijek sálm- inn: „Jeg horfí yfir hafið“. Þá siing Hreinn Pálsson frá Hrísey ineð undirleik lúðrasveitarinn- ár: „Taktu sorg mína, svala hafa“. — Því næst minlist þiskup íslands, .hr. Sigurgeir í|igurðsson, látinna sjómanna. Ýar ræða hans þrungin vel- vijja. söknuði og þakklæti til hinna föllnu, sem tóku sjer Virðuleg hátíðarhöld sjómannadagsins slöðu á hinum íslenska víg- velli, þar sem hættan var mest, þakklæti til þeirra fyrir störf in í þágu ættjarðarinnar. — A sama tíma og biskup lauk rseðu sinni, lagði lítil stúlka blóm- sveig á,leiði óþekta sjómanns- ins í Fossvogskirkjugarðinum, en síðan var þögn í eina mínútu. Þá söng Hreinn Pálsson „Al- faðir ræður“, með undirleik lúðrasveitarinnar. Næst hóf Friðrik Ólafsson, skólastjóri, athöfn þá, er leggja skyldi hornstein hins nýja skóla. Rakti hann sögu bygg- ingarmálsins, en hún hafði ver- ið letruð á skinn og sett í blý- hólk, sem setja átti í horn- stein skólans. Þá lagði ríkisstjóri íslands, hr. Sveinn Björnsson, horstein- in að skólanum. Var það gert með þeim hætti, að blýhólk- urinn var settur inn í holu í anddyri hússins, en múrsteinn settur þar fyrir og múrað yfir. Framkvæmdi ríkisstjóri það verk. Þá flutti ríkisstjóri ávarp og fer það hjer á eftir: Ávarp ríkisstjóra. „Nú mun geymast í horn- steini þessarar byggingar um aldur og æfi sú forsaga sjó- - mannaskólamálsins, sem þið heyrðuð áðan. Jeg er einn þeirra, sem eiga því láni að fagna að hafa lifað gróandann í íslensku þjóðlífi, sem var svo áberandi fyrir óg' eftir aldamótin síðustu. í minni mínu eru geymdar margar á- nægjulegar mýndir frá þeim tima. Seinustu sex ár aldarinnar síðustu lá leið mín mikinnliluta ársins daglega milli heimilis míns og latinuskólans. Við skólapiltarnir, sem nokkuð bar á í litla bænum sem þá var, Rejkjavik, gengum þessa dag- legu göngu, ljettir í spori með námsbækurnar undir hand- leggnum. Við mættum þá oft öðrum skólapiltum, sem líka gengu með námsbækur undir handleggnum og voru líka farn ir að setja svip á bæinn. Það voru skólapiltarnir I Doktors- húsinu, sem Markús Bjarnason var að kenna siglingafræði. Þeir voru ljéttír í spori eins og við, en báru þó yfirleitt annan svip, hvort sem það stafaði af þeirri reynslu, sem þeir höfðu þegar fengið af fangbrögðum við Ægi eða öðru. Það var eins og skrefin væru fastari og á- kveðnari, þeir horfðu beint fram og viljinn brann í augum þeirra. Manni datt ósjálfrátt í hug: Þessir menn eiga eftir að setja r.ýjan svip á þjóð og land. Og.svo hefir orðið. Við munum eftir skútuöld- inni svokölluðu. Það var1 eitl aðalmarkmiðíð með stofnun sjómannaskóians fyrir rúmum 50 árum að skapa skilyrðin íil þeirra framfara um fiskveiðar okkar, að fiskinn mætti sækja á djúpmiðin á haffærum þii- skipum. Það tókst. Menn munu lengi muna marga frábæra dugnaðarmenn og sjóhetjur frá skútuöldinni, bæði þá sem Æg- ir skilaði ekki aftur að landi * Avarp ríkisstjóra , -- / . , -,.- Hópganga sjómanna á leið upp Laugaveg. Ámundi Hjörleifsson. Myndina tók og hina, sem fengu að halda áfram að bera merkið hótt. Síðan kom mólorbálaöldýi og togaraöldin. Skólinn var jafn- an á verði til þess að fullnægja nýjum framþróunarþörfum. Loks færðumsl við það í fang að byrja að taka siglingar landa á milli í okkar eigin hendur. Jeg hafði sjerstaka aðstöðu til að fylgjast með því, hve vel íslenska sjómannastjellin reynd ist þeim vanda vaxin. Þótt sumum þeim, sem heyra mál mitt, kunni að þykja það ólrú- legt, voru fyrir 30 árum marg- ir menn, innlendir og erlendir, sem höfðu þá trú — og reyndu að telja mjer og öðrum trú um — að þeim sigtingum væri ekki öðrum trúandi fyrir en erlendum mönnum. Máske mætti nota islenska háseta að einhverju leyti. En yfirmenn og vjelstjórar yrðu að verg,er- lendir. En við ^ildum annað. Og reynslan hefir sýnt, að ekki hefir orðið skortur á íslenskum mönnum, sem gátu annasl þessi störf engu síður en erlendir menn, jó, að sumu leyti betur. í því á sjómannaskólinn sinn ómetanlega þátt. Kjörorð hans undir forustu hinna ágætu skólastjóra og kennara virðist hafa verið: Áfrani, áfram. Mciri þekkingu, meira starf“. Þessi bygging, sem nú ris af grunni, á að vera umgjörð um og varpa ljósi á þessi kjörorð-. Hún á að skapa skilyrði til meiri mentunar og belri ment- unar fyrir íslenska sjómanna- stjett. Því flyt jeg þeim, sem Kjer ciga hlut að máli, inni- legar arnaðaróskir um gæfu og gehgi þessarar slofnunar. Dagur sjómanna hefir verið valinn til þessarar hátíðlegu athafnar. í>að á vel við. Því hjer má líta ávöxt af starfi ís- lenskra sjómanna. Og, bygg- ingunni er ætlað að eiga mik- ilvægan þátt í að halda merki íslensku sjómannasljellarinnar 'hátt á lofti. Það eru, fremur öðrum, ís- lenskir sjómenn, sem hafa afl- að þess fjár, sem gerir ríkinu kleift að reisa þessa myndar- legu byggingu. Og enginn á- greinmgur mun vera um það, að íslenska sjómannastjettin hefir til hennar unnið einnig á annan hátt. Með tápi sínu og dugnaði í sífeldri glímu sinni við Ægi, hefir hún ‘sýnl og sann að, að hún er verðug slíkrar menlastofnunar. Jeg geri ráð fyrir því, að það eigi eftir að hlýja mörgum sjómanni um hjarlaræturnar — og okkur hinum líka — er stefnt er heilu í höfn í höfuðborg- íslands, að sjá háborg íslensku sjómanna- stjellarinnar gæfa við himinn hjer á þessum stað. Og í dimmu verður hjer á húsinu sá vili, sem vísar hverju skipi rjetta leið er það leilar'hjer hafnar. Vili er öryggismerki sem mönnum þykir vænl um. En- við eigum einnig annað merki, sem er hvortlveggja í senn, öryggismerki og eining- armerki þjóðarinnar. Það er fóninn. Þótl okkur eigi öllum að þykja vænl um þetta iákn einnar og sameinaðrar þjóðar, þá eiga sjómennirnir hjer nokkra sjerslöðu. Það fellur í þeirra hlul að „sýna fánann“ á höfunum og í erlendum höfn- um. Þess vegna er okkur svo mikils virði að vita það að við eigum sjómannastjett, sem er þess megnug að „sýna fánann“ á þann hátt að jafnan megi segja um skip sem sigla undir fánanum okkar: „Þetta skip og áhöfn þess er íslenskt. Þess vegna má treysta hvoru- tveggja". Jeg hygg að því ljós- ari sem menn gei'a sjer þessa staðreynd, því vænna muni sjó- mönnunum þykja unl fánann, vegna þeirrar ábyrgðar sem þeim er falin, að halda uppi heiðri þessa þjóðartákns okkar, hvar sem íslenskl far er á ferð- inni. • -4.* Þess vegna á sjerstaklega vel við að minnast fánans og sýna honum virðingu okkar við þetta tækifæri". ★ Að ávarpinu loknu gekk merkisberi sjómanna fram fyr- ir ríkisstjóra og kvaddi hann með ísl. fánakveðjunni, en rík- isstjóri sýndi fánanum sjer- slaka virðingu. Lúðrasveilin ljek: „Rís þú unga íslands merki“. Þá fluttu ávörp: Siglingamála ráðherra, Vilhj. Þór, en Lúðra- sveitin ljek „ísland ögrum skorið“, fulltrúi sjómanna, Sig- urjón Á. Ólafsson, leikið „ís- lands Hrafnistumenn11, fulltrúi útgerðarmanna, Kjartan Thors, leikið „Gnoð úr hafi skraulleg skreið“, og fulltrúi F. F. S. í. í byggingarnefnd, Ásgeir Sigurðs son, leikið „Hornbjarg“, lag eftir Pál Halldórsson. Næst afhenti Henry Hálfdán arson, form. Sjómannadags- ráðs, björgunarverðlaun Sjó- mannadagsins, en þau eru af- hent fyrir mesta björgunaraf- rek unnið á sjó frá síðasta Sjó- mannadegi. Að þessu sinni hlaut Þorsteinn Jóhannesson, skipstjóri á v.b. „Jóni Finns- syni“ og skipshöfn hans þau, fyrir frækilega björgun skips- hafnarinnar á v. b. „Ægi“, 12. febr. s. L, sem mönnum mun enn í minni. — Síðan voru af- hent verðlaun fyrir íþrótta- kepni, en lúðrasveitin ljek að því lojjnu þjóðsönginn, „Ó, guð vors lands“. íþróttakepni Sjómannadagsins. Helgafell vann Fiskimann Morgunbtaðsins. Kappróðurinn fór fram á Rauðarárvíkinni s. 1. laugardag. Varð skipshöfnin á b.v. Helga- felli hlutskörpust á 4:12,7 mín., sem er glæsilegl nýtt met. Önn ur var skipshöfnin á Belgaum og skipshöfnin á Venusi nr. 3. Kept var um Fiskimann Morg- unblaðsins, sem er farandgrip- ur. Þetta er 1 annað sinn, sem Helgafell vinnur hann. Enn- fremur vann Helgafell róðrar- fánann, sem veittur er fyrir skemslan líma. ■*— „Freyja“ varð hlutskörpust af smærri skipunum. Þar var kept um June Munktell-bikarinn. í reipdrætti keptu þrjár skips hafhir, af b.v. Helgafelli, og slrandferðaskipunum Esjunni og Súðinni. Sigraði Helgafell Súðina á 3:26,0 mín. eftir afar harða kepni og Esju eflir 1:26,6 mín. — Esja vann síðan Súðina. Stakkasundið vann Jóhann Guðmundsson, á 2:54,9 mín. 2. var Valur Jónsson og 3. Finn- ur Torfason. — Björgunarsund Franih. á 5. síðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.