Morgunblaðið - 29.06.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.06.1944, Blaðsíða 12
12 Allsherjarnáðanir í sambandivið lýð- veidisslofnunina , Eftirfarandi barst biað inu frá ríkisráðsritara 28. þ. m.: Á fundi, sem haldinn var í ríkissráði í dag í skrifstofu forseta Islands Alþingishús- inu, se* l 2 3 4'ðist m. a. þetta: 1. 14 refsifangar voru náð- aðir skilorðsbundið af því sem þeir eiga óúttekið af refsiuiruni sínum. 2. 76 menn voru náðaðir •skilorðslnmdið af refsingum. 3. Sektir 8 manna fyrir land helgisbrot voru með náðun færðar niður-í 2,500,00 krón- ur. og einn þeirra jafnframt náðaður skilorðsbundið af 2ja mánaða varðhaldsrefsingu. 4. 6 menn náðaðir skilorðs- bundið af óúttekinni refsivist. 5. 56 menn fen"u með náð- un refsivist sinni, vegna ölv- unar við akstur breytt í 1000 króna sekt. Ufðnríkisþjén- uslan Tilkynning frá skrif- stofu ríkisráðsritara. Á RÍKISKÁÐSPUNDI, sem. haldinn var í skrifstofu for- seta %lands í Alþingishúsinu þriðjudaginn 20. júní, var m. ?t. Aguar Kl. Jónsson skiþaður skrifstofustjóri í utanríkis- ráðuneytinu. Ennfremur undirritaði for- seti Islands veitingarbrjef fyr- ir Vilhjálm Finsen. sem sendi- fulitrúa Islands í Svíþjóð. Sænska íþróliasam- bandið sendir í. S. L kveðjo l.S.l. hefir borist skeyti frá sænska íþróttasambandinu. — Þakkar sænska íjiróttasam- bandið gjöf, veggskjöld Í.S.Í., sem Ottó .Johanson, ræðismað- ur Svía tilkynnti, að ])ví hefði itorist að gjöf frá I.S.f. á fjömtíu ára afmæli Jiess. Segir í skeytinu, að sænska íþróttasambandið vænti góðr- ar samvinnu við I.S.I. um í- þróttamál. 7509 séttu úthlutun- arseðla í gær. I GÆR, fyrsta dag úthlut- unat' matvæiaseðla, sóttu um 7500 menn seðla sína. Úthlutunin helduf áfram í dag og á morgun í Hótel Ifeklu kl. 10. til 18. Menn ættu að sækja úthlutunarseðla sína sern fyrst til þess að forðast þrengsli. Ráðherra myrtur, London í gærkveldi: — París- arútvarpið segir. að útbreiðslu- málaráðherra Vichystj órnarinn ar hafi verið myrtur í nótt sem Ieið. Ruddust 15 menn, dulbún ir sem lögreglumenn, inn í svefnstofu hans í ráðuneytis- lyg'gir.gunni og skutu hann. \ Barnakór heimsækir Reykjavík BARNAKÓRINN „SMÁV INIR“ frá Vestmannaeyjum, söng-stjóri Helgi Þorláksson, er kom- inn hingað til bæjarins og mun syngja í Tjarnarbíó á laugardaginn kemur kl. 13.30 og í Gamla Bsó á sunnudagissn á sama tíma. í kórnum eru 55 börn og um helmingur þeirra fullnaðarprófs- börn frá barnaskóla Vestmannaeyja í vor. Þetta er fyrsti barnakórinn, sem heimsækir Reykjavík. Merkar ályktanir gerð- ar á landsfundi kvenna ÚHör dr. B. J. SJÖTTI landsfundur kvenna, sem haldinn var hjer í Reykja- vík. er nýafstaðinn. Voru gerð ar þar margar merkilegar á- lyktanir og tillögur, og fara nokkra þeirra hjer á eftir. Tillögur varðandi hina væntan legu stjórnarskrár: 1. Landsfundur kvenna ger- ir þá kröfu fyrir hönd íslenskra kvenna, að jafnrjetti karla og kvenna sje tryggt sjerstaklega í stjórnarskránni, og tekið fult tillit til aðstöðu konunnar sem móður. 2. Kona, sem mist hefir ríkis borgararjett sinn með giftingu eða á annan hátt, hafi mögu- leika til að öðlast hann aftur með umsókn til stjórnarráðsins eða næsta íslenska sendiráðs í útlöndum. Ríkisborgararjettur karlmanna endurheimtist á sama hátt. 3. Rjettur gamalla manna og sjúkra til framfærslu sje trygð ur af ríkinu án tillits til aðstand enda. 4. Konur hafi sama rjett og karlar til allrar vinnu, sömu laun fyrir samskonar vinnu og sömu hækkunar-möguleika og þeir. Gifting eða barnseign sje enginn hindrun fyrir atvinnu nje ástæða til uppsagnar. Var einnig skorað á ríkis- stjórnina að skipa 4 konur í nefnd þá, sem fjaliar um end- urskoðun stjórnarskrár lýðveld isins. Tiliögur um lagabreytingar. 1. Landið sje alt eitt fram- færslusvið og öll meðlög greitt úr ríkissjóði. 2. Konur, sem sviftar eru fyrirvinnu heimilisins, vegna sjúkdóms, örorku, fangelsis- vistar eða óreglu manna sinna, eigi rjett á meðlögum með börnum sínum á sama hátt og tkkjur. Aðrar áskoranir og ályktanir. Skorað var á ríkisstjórn Is- lands að gera þegar í stað ráð- stafanir til, að samningar verði gerðir við hin erlendu ríki, sem haft hafa hjer setu- lið, um það, að íslenskar konur er fæða mönnum þessara þjóða börn, geti notið fyllsta rjettar samkvæmt íslenskum lögum, fyrir íslenskum dómstólum. Einnig var skorað á ríkis- stjórnina að beita sjer fyrir þvi, að þegar verði hafinn und- irbúningur að byggingu Hjúkr- unarkvennaskóla íslands, sam- kvæmt frumvarpi til laga, sem ríkisstjórnin hefir lagt fyrir A1 þingi. Margar aðrar tillögur og á- lyktanir voru gerðar, sem fyllilega eru þess verðar, að teknar sjeu til athugunar af hlutaðeigandi aðiljum. Gunder Haegg fapaði Stokkhólmi í gærkveldi. I DAG fór fram hin lang- þráða kepni í 1500 metra hlaupi milli hinna tveggja sænsku hlaupagarpa, Arne Anderson og Gunder Haegg. Var óhemju fjöldi áhorfenda á Stadion hjer í Stokkhólmi. Leikar fóru svo, að Arne Anderson vann, rann skeiið á 3 mín. 48.8 sek., en Gunder Haegg hljóp vegalengd ina á 3 mín. 50.2 sek. —Reuter. Samkomulagi spilt. London í gærkveldi: — Einn talsmaður grísku stjórnarinnar sagði í London í dag, að Grikk- ir álitu, að dauðadómur og líf- lát þriggja grískra sjóliða fyrir uppreisn í Alexandríu myndi særa grísku þjóðina ólæknandi sári og spilla mjög samvinnu hinna ýmsu grísku flokka. Brandson Frá utanríkisráðuneyt- inu barst blaðinu eftir- farandi, 28. júní: ÚTFÖR dr. II. J. Brandson, hins víðkunna Vestur-íslenska skurðlæknis, fór fram 24. þ. m. í "Winnipeg'. — Hundruð rnanna fylgdu til grafar og hylltu minningu þessa stór- mérka manns. Meðal Jxeirra voru fulltrúar stjórnarinnar og læknastjettarinnar. (Sarnkv. skeyti frá ræðis- manni Islands í Winnipeg.) Karlakór iðnaðar- manna fer söngför til Norðurlands LAUGARDAGINN 1. júlí leggur Karlakór Iðnaðarmanna af stað í 9 daga söngför til Norðurlands. Verður sungið á Blönduósi, Sauðárkróki, Siglu- firði, Akureyri og Húsavík. — Söngskráin verður sú sama og á hljómleikum þeim, sem kór- inn hjelt hjer í bænum í vetur. Söngstjóri er Róbert Abra- ham, en undirleik annast Jó- hann Tryggvason, í forföllum Önnu Pjeturss, sem ljek undir hjá kórnum á hljómleikunum í vetur. Brefland-, Rússland- Ítalía London í gærkveldi. HINAR amerísku sprengju- flugvjelar, sem fyrir nokkru rjeðust á Berlín og flugu það- an til bækistöðva í Rússlandi, fóru þaðan í dag, gerðu árásir á olíulindir við rætur Karpata- fjallanna og flugu síðan til bækistöðva á Ítalíu. Lentu flug vjelarnar í nokkrum loftorust- um á leiðinni, en komust þó allar leiðar sinnar. Álitið er, að flugvjelar þessar lendi aftur í Rússlandi eftir næstu árásar- ferð sína. — Reuter. Fimtudagur 29. júní 1944 Inning Bjarna frá Vogi heiðruð FORSETAR ALÞINGIS, með tilstyrk annarra þingmanna, fengu Ríkarð Jónsson mynd- höggvara til þess að láta steypa í bronz lágmynd, er hann átti í gipsi, af Bjarna Jónssyni frá Vogi og hafði gert af honum í lifanda lífi, svo líka, sem besfc varð á kosið. Steypa þessi átti að vera fullbúin fyrir 17. júní og skyldi hengja hana á vegg í salarkynnúm Alþingis. Alfi þetta stóð heima. Listamaður- inn afhenti myndina 16. júní og var henni komið fyrir á hæfi legum stað, en nú er hún ásamfc ýmsum öðrum myndum Alþing is í láni á sögulegu sýningunni. Er vel, að þessum ágæta Sjálf stæðismanni, Bjarna frá Vogi, var þessi sómi sýndur, og á- nægjulegt að hans var minst á þessum merkilega tíma í sögu þjóðarinnar með þessum hætti, þegar vonir hans, eins og allra hinna bestu íslendinga voru að rætast. Svifsprengjuárás- um heldur áfram London í gærkveldi. HJER VAR opinberlega til- kynt í dag, að svifsprengju- árásum Þjóðverja hefði haldið áfram i alla nótt sem leið og í dag. Varð sem áður manntjón og eigna, en nokkrar af sprengj unum voru skotnar niður. Peter Frazer, forsætisráð- herra Nýja Sjálands, sagði í við tali við blaðamenn, áður en hann lagði af stað til Kanada, að sprengjur þessar hefðu eng- in áhrif á gang styrjaldarinnar, þótt þær væru að vísu trafl- andi. Sir Frederick Pile, yfirmað- ur loftvarnasveitanna sagði í dag, að varla væri mikill vandi að skjóta niður 10—12% af svifsprengjunum, eins og tekist hefði að granda svo mörgum flugvjelum Þjóðverja á sínum tíma, en helst þyrfti að skjóta 90% af þessum nýju vágestum. Sagði hann, að brátt myndu Bretar taka upp nýjar aðferðir gegn þessu vopni. — Reuter. Ármenningar sýna glímu í Seyðlsffrði Seyðisfirði í gær. Frá frjettaritara vorum. SÝNINGARFLOKKUR Glímu fjelagsins Ármanns sýndi glímu hjer í gærkvöldi við mik inn fögnuð áhorfenda, sem voru voru á fjórða hundrað. í morg- un fóru svo glímumennirnir hjeðan, og urðu að ganga nokk urn kafla af Fjarðarheiði, sem enn er. ekki fær bifreiðum, en verður það vonandi eftir nokkra daga. Kom bifreið á móti glímumönnunum og sýndu þeir á Kópaskeri í kvöld. —• Glímumönnunum leið öllum vel og líkar ferðin ágætlega. HODZA LÁTINN. Clearwater, Florida, í gær- kveldi: — Fyrrverandi forsæt- isráðherra Tjekkóslóvakíu, dr. Milan Hodza, andaðist hjer í gærkveldL — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.