Morgunblaðið - 09.07.1944, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.07.1944, Blaðsíða 8
8 Simnudagirm 9. júlí 194í Vísiialan 266 Kauplagsnefnd og hagstofan hafa nú reiknað út vísitöluna fyrir framfærslukostnað í júlí- mánuði og reyndist hún vera 266 stig, eða tveim stigum lægri en fyrir júní. — Lækkun vísi- tölunnar mun stafa af verð- lækkun, sem orðið hefir á til- búnum fatnaði. Allsherjarmól I. S. I. hefst annað kvöld ALLSHERJAMÓT í. S. í. hefst á íþróttavellinum annað- kvöld kl. 8.30. Verur þá keppt í þessum íþróttagreinum: 100 *n. hlaupi, stangarstökki, 800 m, hlaupi, kringlukasti, lang- stökki og 1000 m. boðhlaupi. Mótið verður sett með hátíð legri viðhöfn. Þátttakendur ganga fylktu liði inn á leikvöll inn. Þar mun forseti Iþrótta- sambandsins, Ben. G. Waage, flytja ávarp. Lúðrasveitin Svan ur aðstoðar við setninguna. Allsherjarmótið var fyrst haldið 1921 og var þá með rneiri allsherjarblæ en það er rifc, með því að þá var keppt í fleiri íþróttagreinum en frjáls- um íþróttum. Loflárás á París London í gærkveldi: Breskar stórsprengjuflugvjel ar gerðu mikla árás á járn- brautir í úthverfum Parísar í 'nótt sem leið og komu upp eld- ar. — Þjóðverjar segja, að manntjón hafi orðið mjög mik- ið af árás þessari. Þá rjeðust breskar flugvjelar á ýmsa aðra staði í Frakkiandi, en Mosquito flugvjelar fóru alt til Þýska- lands. Orustuflugvjelar Þjóð- verja höfðu sig mikið í frammi og mistu Bretar als 33 flugvjel- ar. Se:< þýskar orustuflugvjel- ar voru skotnar niður í loftbar- dögum. — Reuter. Aiþýðusamband Vestfjarða efneilar Skutii ALÞÝÐUSAMLANDS Vest- fjarða hjelt ársþing sitt í vikunni sem leið. Alþýðusamband Vestfjarða hefir átt blaðið Skutul á ísa- firði og gefið blaðið vit. En kvo seni kunnugt er, snjerist blað þetta harkalega gegn lýðveldisstofnuninni. .Skrifaði ritstjóri blaðsins, Ilannibal Valdimarsson, hverja .greinina af annari gegn lýðveldinu. Þing Alþýðusambands Vest- fjarða vildi ekki vera við þessi skrif riðið. Það ákvað því að ha?tta að gefa Skutul út. Hinsvegar samþyktu krat- arnir, sem skipuðu meirihluta á fundinum. að gefa ritstjór- anum blaðið. Hefir Alþýðusamband Vest- fjarða þótt ráðlegast að taka sörnu afstöðu til Skutuls og Afþýðusamband Islands gerði .— afneitað blaðinu og öllu X«e-:s athæfi. Isleflskt námsfólk í Minneapolis i) Fremsta röð. Guðm. Sveinsson (vjelsmiður), Eiríkur Ásgeirsgon (hagfræði, heima á íslandi nú), Hörður Gunnarsson (hagfræði, nú í University of Chicago). Önnur röð: Dóra Kristins -nú í Kaliforníu), Ása .Jónsdóttir (sálarfræði), Kristbjörg Einarsdóttir (kona Benjamíns Eiríks- sonar), Oddný Stefánsdóttir (nú í Kaliforníu), Dóra Eiricks (d. húsráðanda), Esther Björns- son (röntgengeislafræði). Þriðja röð: Jón Friðriksson nú í Kaiiforníu), Sigurbjörn Þorbjörns son (hagfræði), Benjamín Eiríksson (n'ú í Harvard University, lauk meistaraprófi í hagfræði í Minneapolis í mars s. 1.), Björn Halldórsson (hagfræði), Hannes Þórarinsson (læknir á Uni versity Hospital), Guðm. Friðriksson (rafmagnsfræði, lauk námi í maí s. 1.). Aftasta röð: Har- aldur Bragi Magnússon (íþróttamenning: Physical Education), Jón Hannesson (heima á ís- landi nú), Jóhann Jakobsson (efnafræði), Edward Friðriksson(mjólkurfræði)Þorsteinn Thor steinsson (námuverkfræði. lauk námi 10. júní s. 1.). — Á myndina vantar Jón Ragnar Guð- jónsson (hagfræði), Jónas Árnason (blaðamenska), Halldór Sigurðsson (blaðamenska), Jón Metusalemsson (búfræði). Bæjarráð hnekkir rógi Cunnars Stefánssonar Á BÆJARRÁÐSFUNDI í gær var samþykt eftirfarandi grein argerð út af grein er birtist í Alþýðublaðinu í gær eftir Gunn ar Stefánsson, starfsmann húsa- leigunefndar: „7. júlí 1944. Gunnar Stefánsson, skrif- stofumaður húsaleigunefndar, segir í grein, sem birtist í Al- þýðublaðinu í dag, að það hafi síðast „fengist upplýst“, að „það sje bæjarráð Reykjavíkur ... eða meiri hluti þess, sem valdi því, að töf hafi orðið á, að húsaleigunefnd fengi meiru bráðabirgðahúsnæði til úthlut- unar“. Af þessu tilefni skal tekið fram, að bráðabirgðahús þau, sem hjer um ræðir, eru í eign ríkisins, og hefir bæjarráð því enga heimild til að fá þau húsa leigunefnd til ráðstöfunar. Þetta er húsaleigunefnd að sjálfsögðu kunnugt, enda segir svo í brjefi hennar til borgar- stjóra, dags. 1. júní s. L: „Með tilvísun til samtals, er formaður húsaleigunefndar átti við yður, herra borgarstjóri, í s. 1. viku, fór nefndin fram á það við fjármálaráðherra, að hún fengi þegar í stað, til ráð- stöfunar handa húsnæðislausu fólki hjer í bænum, hermanna- skála, sem nú erh ónotaðir. Fjármálaráðherra færðist und an að verða við þessum til- mælum, með því að um það leyti var verið að skipa nefnd þá, er um ræðir í bráðabirgáa- lögum nr. 27, 1944, sem á að hafá með höndum ráðstöfun og sölu allra skálanna, er ríkið hef ir keypt, og vildi ráðherrann að nefndin annaðist afgreiðslu þessa máls. Um s. 1. helgi var nefnd þessi fullskipuð og s. 1. þriðjudag átli formaður húsaleigunefndarinn- ar samtal við formann nefnd- arinnar, Skúla Thorarensen, og fór þess á leit að húsaleigu- nefndin fengi skála þessa þegar til bráðabirgðaráðstöfunar, en síðar yrði samið við bæjaryf- irvöldin um ráðstöfun eða sölu á skálum þessum, jafnframt samningum um alla þá skála, sem húsaleigunefndin hefir þeg ar fengið til ráðstöfunar. Færðist formaður nefndarinn ar undan þessu og virtist ekki vilja ráðstafa til húsaleigu- nefndarinnar neinum skálum, nema þeir yrðu jafnframt keypt ir“. Skömmu síðar hófust samn- ingar milli sölunefndar setu- liðseigna og bæjaryfirvaldanna um ráðstöfun þeirra af þessum eignum sem á bæjarlandinu eru. Einhvern næstu daga þar á eftir átti borgarstjóri tal við hlutaðeigandi ráðherra og bar fram þá ósk, að bærinn fengi þau bráðabirgðahús, sem til íbúðar þarf, afhent endurgjalds laust. Var því liðlega tekið en ákveðin svör eigi gefin. Fyrst ö dag, hinn 7. júlí barst borg- arstjóra brjef sölunefndar setuliðseigna, þar sem ákveðið boð er til bæjarins um afhend- ingu honum til handa á þessum eignum. Aðalatriði þess tilboðs hafa að vísu komið fram í sam- tölum aðila, áður, en þó þarfn- ast það rækilegri skýringa áður en unt er að taka afstöðu iil þess. Af því, sem nú hefir verið sagt, er ljóst, að mál þetta hefir enn alls eigi tafist í höndum bæjarráðs. Er því furðulegt, að starfsmaður húsaleigunefndar skuli bera fram slíkar ásakan- ir, sem að framan greinir, á hendur bæjarráði. Einkum þeg ar á það er litið, að-húsaleigu- nefnd telur í brjefi sínu frá 1. júní, að hún hafi skv. 1. mgr. 5. gr. húsaleigulaganna sjálf heimild til að taka skála þessa til sinna umráða á eigin spýtur og útbúa þá til íbúðar. 4 SEX KÓRAR Framh. af 1. síðu. í sambandi við hátíðahöldin 17. og 18. júní. Allmikill áhugi virtist fyrir því að sem fyrst yrði komið á söngmóti kóra. í stjórn voru kosnir: Formað ur Guðmundur Benjamínsson, Hrísateig 35, ritari Kristmund ur Þorleifsson, Sólvallag. 31, gjaldkeri Jón G. Halldórsson, Kaplaskjólsv. 9. — Varastjórn- endur: Sigurgeir Albertsson, Daníel Sumarliðason, Reinhard Reinhardtsson. — Endurskoð- endur: Bent Bjarnason og Ágúst Pjetursson. Kosnir í Söngmálaráð voru þeir Björgvin Guðmundsson, Akureyri, Brynjólfur Sigfússon, Vestmannaeyjum og Robert Abraham í Reykjavík. Löguleg bifreiða- þvaga Var í Austurstræti í gær« morgun. Stóðu bifreiðirnar í einni halarófu upp við gang- stjettina meðfram endilöngm strætinu hægra megin göt- unnar, og var ekki hægt að kotnast á milli þeirra fyrir; gangandi fólk, og sumstaðar; var röðin tvöföld. En á nýja bifreiðastæðinu, þar sem áðufi var Ilótel ísland, stóðu aðeins tvær bifreiðar. Þetta ástand er nú orðið óþolandi og sam- ræmist heldur ekki lögreglu- samþykt bæjarins. Er A onandí að þessu verði kipt í lag hið. fyrsta. — 191. dagur ársiens. Árdegisflæði kl. 8.45. Síðdegisflæði kl. 21.07. Næturvörður er í Ingólfs-Apó- teki. Næturakstur annast B. S. R., sími 1720. Næturakstur á mánudag ann- ast Hreyfill, sími 1633. Laugarnesprestakall. Messað í dag kl. 2 e. h. í samkomusal Laug arneskirkju. Sr. Garðar Svavars- son. Sextugur verður á morgun, mánudag, Björgvin Hermanns- son, húsgagnasmíðameistari, —■ Hverfisgötu 32 B. Fimtug er í dag Kristrún Þórð ardóttir frá Hvassahrauni. Nú til heimilis Selvogsgötu 20 Hafnarf. Silfurbrúðkaup eiga í dagRagn heiður Oddsdóttir og Ásgrímur Guðjónsson, Holtsgötu 20. ÚTVARPIÐ í DAG: 11.00 Messa í Hallgrímssókn (sr. Jakob Jónsson). 12.10—13.00 Hádegisútvarp. 14.00—16.30 Miðdegistónleikar: a) „Föðurland mitt“ eftir Smet ana. b) Dúettar úr óperum. c) Kreisler leikur lög eftir sjálf- an sig. d) Wayne King og hljómsveit hans leika valsa. 19.25 Hljómplötur: Valsar eftir Chopin. 20.20 Einleikur á píanó (Fritz Weisshappel): a) Postludium eftir Palmgren. b) Tónaljóð eft ir Mendelssonhn. 20.35 Frá sögusýningunni: a) Er- indi (Gils Guðmundsson kenn- ari). b) Lokaorð (dr. Einar Ól. Sveinsson). c) íslensk lög (plötur). 21.50 Frjettir. 22.00 Danslög. 23.00 Dagskrárlok. ÚTVARPIÐ Á MORGUN: 12.10—13.00 Hádegisútvarp. 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 19.25 Hljómplötur: Lög leikin á bíóorgel. 20.00 Frjettir. 20.30 Þýtt og endursagt: Öræfa- ferð á íslandi fyrir 100 árum (Kjartan Ragnars lögfræðing- ur). 20.55 Hljómplötur: Lög leikin á balalaika. 21.00 Um . daginn og veginn (Gunnar Benediktsson rithöf.). 21.20 Útvarpshljómsveitin: Lög frá ýmsum löndum. — Einsöng ur (ungfrú Kristín Einarsdótt- ir): a) „Leiðsla" eftir Kalda- lóns. b) „Þú eina hjartans ynd ið mitt“ eftir sama höfund. c) ,,í rökkurró hún sefur“ eftir Björgvin Guðmundsson. d) Vöggulag eftir Jarnefeldt. e) „Nína“ eftir Pergolese. 21.50 Frjettir. Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.