Morgunblaðið - 23.07.1944, Side 1
SSS.JT
81. árgangur, 163. tbl. — Sunnudagur 23. júlí 1944. Isafoldarprentsmiðja h.f.
HELMÍRIMGIJR HERSIN8 A MÓTI HITLER
lippreisn í þýska
IRofanum i
Noregi
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
FRÉGNIR hafa borist um það frá ýmsum heimildum, að
uppreisn hafi verið gerð í þýska flotanum. Staðfesting hefir ekki
fengist á þessum fregnum; frerhur en öðrum fregnum um upp-
reisnina gegn nasistum. Útvarpið í Moskva segir frá því; að í
Norður-Noregi hafi þýskir sjóliðar gert uppreisp og neitað að
fara um borð í þýskt herskip; sem nýlega hafði verið lokið
viðgerð á í Oslo.
Fregnir frá Svíþjóð segja; að
þýskir sjóliðar í Oslo hafi gert
uppreisn gegn yfirmönnum sín
um.
Þýskur kafbátsforingi
skotinn.
Frá nasistum hefir aðeins bor
ist ein fregn; sem bendir til þess
að ókyrð sje meðal þýskra sjó-
liða. Þýska frjettastofan segir
í dag, að Karl Dönitz flotafor-
ingi hafi gefið út yfirlýsingu
um( að þýskur kafbátsforingi
hafi verið skolinn. Kafbátsfor-
ingi þessi hjet Werner Henke.
Sagt er að Henke kafbáts-
foringi hafi verið að gera til-
raun til að strjúka úr fanga-
búðum, er hann var skotinn til
bana. Ekki er getið um; hvaða
fangabúðum hann var í; eða
hvar.
Okyrð í Noregi.
Norska frjettastofan birtir
fregn í dag; sem styður þann
orðróm; sem gengið hefir; um
að þýskir sjóliðar og hermenn
í Noregi hafi gert uppreisn. •—
Segir frjettastofan að þýska
lögreglan í Noregi hafi fengið
fyrirskipanir um að vera við-
búin óvenjulegum atburðum.
Þýskir hermenn í Noregi hafa .
fengið sjerstakar fyrirskipanir •
og mega þeir ekki yfirgefa her-
búðir sínar.
Aðrar fregnir herma, að Ter-
boven, landstjóri Þjóðverja í
Noregi; hafi í skyndi verið kall
aður til Þýskalands.
Hæg en örugg sókn
bandamanna
á Ítalíu
LONDON í gær: — Frá
Italíuvígstöðvunum berast
.fregnir um hæga en örugga
sókn.
llersveitir úr 8. hernum
,sem tóku Ancona á dögun-
um hafa sótt fram 25 km.
meðfram Adriahafsströndum.
Á miðvígstöðvunum hefir
breski herinn, sem sækir að
.Florens einnig sótt nokkuð
,fram.
Á vesturströndinni . liafa
,verið allharðir bardagar milli
baksveita Þjóðverja og 5.
; hersins ameríska.
Bandaríkjamenn eru nú um
7 km. frá Pisa. Ilefir 5. her-
inn náð örug’gri fótfestu á
nyrðri böklcum Arnofljóts.
Þýsk hjeruð
Rússar
flæða vest-
ur yfir Bug
London í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
í RÚSSLANDI flæða hersveit
ir Rokossovskys vstur yfir Bug
fljót. Eru það alt í senn skrið-
drekahersveitir, stórskotalið og
fótgöngulið, sem varið er mjög
öflugum lofther. Á tveimur stöð
um tókst riddaraliði kósakka
með djörfum árásum að ná
tveimur brúm á sitt vald áður
en Þjóðverjum gafst tími til
þess að eyðileggja þær. Eru þær
nú notaðar til herflutninga vest
ur yfir fljótið.
Öllum gagnáhlaupum Þjóð-
verja var hrundið og er her
þeirra á undanhaldi.
Suður af Kovno, sem var höf
uðborg Lithauen fyrir stríð,
hefir rauði herinn brotist yfir
Niemen-fljót á nýjum stöðum
beint vestur af Vilna. Á vest-
urbökkum fljótsins hafa Rússar
unnið á þrátt fyrir öfluga mót-
stöðu Þjóðverja og að þeir tefli
þar fram varaliði frá Austur-
Prússlandi.
Það er viðurkent af Þjóðverj
um, að norðvestur af Lvov hafi
Rússar sótt frám. Þá viður-
kenna þeir einnig, að milli
Brest-Litovsk og Grodno sæki
fram öflugar fótgönguliðs- og
skriðdrekahersveitir Rússa. —
Þýska frjettastofan talaði í dag
um bardaga við Lublin, 50 míl-
ur fyrir vestan Bug-fljótið.
Truman
varaforsetaefni
CHICAGO í gær.
FLOIŒSÞING Demokrata-
flokksins hefir kosið Truman
senator frá Missouri, sem
varaforsetaefni flokksins við
forsetakosningarnar í haust.
Urðu allhörð átök í flokks-
þingskosningunum milli Tru-
mans og núverandi varafor-
seta, Henry Wallace, en at-
kvæðagreiðslan fór þannig, að
Truman fjekk 1100 atkvæði,
en Wallace 66.
Það er talið, að útnefning
Trumans, sem varaforseta
frambjóðanda muni styrkja
aðstöðu Roosevelts í kosning-
unum. Roosevelt reyndi ekki
að liafa nein áhrif á flokks-
þingið um það hvern það kvsi,
sem varaforsetaframbjóðanda.
á valdi hershöflingjanna
Nasistar segja upp-
reisnina bælda niður
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
ÞRÁTT FYRIR fullyrðingar nasista um að þeir hafi
bælt niður uppreisnina gegn Hitler á 6 klukkustundum,
berast þrálátar fregnir um að langt sje frá, að uppreisn-
inni sje lokið. Fregnir, sem lekið hafa út frá Þýskalandi,
herma, að gömlu hershöfðingjarnir, sem fyrir uppreisn-
inni stóðu, sjeu allir á öruggum stöðum og sumar heim-
ildir greina frá því, að þeir hafi nokkur hjeruð í Þýska-
landi á sínu valdi og stjórni uppreisninni þaðan.
Ströng ritskoðun.
Hitler og samverkamenn hans hafa síma og útvarp í
Þýskaland á sínu valdi og gríðarlega ströng ritskoðun er
á öllu, sem fer út úr landinu gegnum síma og útvarp. Það
er því bent á, að ekki sje hægt að segja neitt með vissu
hvernig ástandið sje innan Þýskalands. En eftirfarandi
fregnir eru sagðar frá Þýskalandi:
Uppreisnin var vel undirbúin.
Það er nú ekki lengur talinn neinn vafi á; að uppreisnin gegn
nasistum var vel undirbúin. Merkið um að hún ætti að hefjast,
var tilræðið gegn Hitler og samverkamönnum hans. Tilræðið
mistóksþ sem kunnugt er; en þar með er ekki sagt, að hætt hafi
verið við uppreisnina, eða að nasistum hafi tekist að bæla hana
niður.
Helmingur hersins á móti Hitler.
Það er nú ekki lengur talinn neinn vafi á, að það sje rjett,
að það voru gömlu hershöfðingjarnir; sem undirbjuggu uppreisn-
ina gegn Hitler og að þeir ætluðu að taka völdin í sínar hendur
og hafa jafnvel myndað nýja þýska ríkisstjórn.
Forystumenn uppreisnarinnar, meðal hershöfðingjanna, eru
þessir: Henrich von Brauchilsch; sem Hitler setti af sem yfir-
foringja þýska hersins 1941; Alexander von Halder; sem var
settur af sem yfirmaður herforingjaráðsins 1942. Feder von
Bock hershöfðingi; sem var hershöfðingi í Rússlandi og Wilhelm
von Keitel marskálkur; núverandi yfirmaður þýska herfor-
ingjaráðsins.
Fullyrt er, að hershöfðingjarnir hafi helming þýska
hersins á bak við sig og mikinn meiri hluta, eða alt
að % þýsku þjóðarinnar með sjcr í uppreisninni gegn
, Hitler.
Ýms hjeröð á valdi
hershöfðingjanna.
Þá ganga þrálátar fregnir
um það, að hershöfðingjarnir
og herinn, sem þeim fylgir
hafi yfirgnæfandi meirihluta
sjer fylgjandi í ýmsum hjer-
uðum Þýskalands. Ganga
sumar fregnir svo langt, að
fullyrða, að fylgismenn hers-
höfðingjanna hafi hjeruðin á
valdi sínu og að þeir hafi
handtekið alla embættismenn
nasista í þeim hjeruðum. —
Meðal hjeraða á valdi upp-
reisnarmanna eru nefnd Ba-
varia. Ruhrhjeruðin og hlut-
ar af Suður-Þýskalaudi. ITam
borgarhjeraðið og stór hluti
af Austurríki.
í'ramh. á 8. síðu.
„Hitler tilbúinn
að flýja land"
ÞYSKA leyniútvarpsstöðin
„Atlantis“ skýrði frá því í gær,
að Hitler og nánustu samverka
menn hans hefðu tilbúnar fjór-
ar sjerstaklega smíðaðar flug-
vjelar á flugvelli einum í Þýska
landi og að Hitler væri tilbú-
inn að flytja land, ef hann yrði
undir í viðureigninni, sem nú
á sýer stað innan Þýskalands.
Flugvjelar þessar hafa bensín
til 6000 mílna flugs, segir í
sömu fregn, en það þýðir. að
þær ættu að geta flogið frá
Þýskalandi til Japan, eða til
Suður-Ameríku.