Morgunblaðið - 09.08.1944, Síða 5
Miðvikudag'ur 9. ágúst 1944,
MORGUNBLAÐÍÐ
B
/
Hvað segja vísindin nú um
hálskirdana?
ÞAÐ er í hálskirtlaaðgerðum
sem læknisfræðin kemst næst
því að vera talin með stórion-
aði. Þær aðgerðir eru oftar
framkvæmdar heldur en nokkr
ar aðrar. m
Hálskirtlarnir eru gróðrastí-
ur kvillanna. Þeir gera senni-
lega meira ilt af sjer en nokkur
annar líkamspartur. Þessir litlu
vefjapartar; sem venjulega eru
á stærð við þrastaregg, geta
valdið hverju sem er^ alt frá
meinlausri hálsbólgu upp í ill-
kynjaða skjaldkirtilsveiki.
Hálskirtlarnir eru hluti af
sogæðakirtlakerfi mannsins.
Það eru fjórir hálskirtlar í
hverjum manni. Nefkokskirt-
illinn; sem er þar sem nefgöng-
in opnast inn í kokið; í þaki
koksins; eins og segja má. Þeir
eiginlegu hálskirtlar; sem eru
tveir, sinn hvoru megin í hlið-
arvegg koksins; og svo tungu-
kirtillinn; sem liggur langt aft-
ur á tungu.
Tungukirtillinn gerir sjaldn-
ast nokkuð af sjer. Þaðæru hin-
ir eiginlegu hálskirtlar sem oft-
ast sýkjast. Þeir eru ljósrauðir
á lit og möndlulaga. Stærðin er
mismunandi; en þeir geta orðið
eins stórir og golfbolti.
Hálskirtlarnir.
Hálskirtlar eru í því sem
næst öllum dýrum. Hestar hafa
litla hálskirtla, svínin stóra. Að
almismunurinn er sá; að í dýr-
unum sýkjast þeir nær aldrei,
en í möhnunum mjög oft.
Hálskirtlarnir eiga að vera
nokkurskonar sýklasía í kok-
inu( þeir eiga að halda eftir og
eyðileggja sýkla sem annars
færu niður í lungun eða mag-
ann.
Þetta gera þeir með því að
framleiða veikifrumur sem
gleypa í sig sýklana og drepa
þá. Ef athugað er hvaða sýkla
má finna jafhvel á heilbrigðum
hálskirtlum; þá er þar saman
komið slíkt sýklafár; að engan
skyldi gruna. Þar má finna
sýkla þá sem valda skarlatssóttj
jafnvel þá sem valda barna-
veiki og fjöldann allan af sýsl-
um, sem valda öðrum veikind-
um. Undir venjulegum kring-
umstæðum eru hálskirtlarnir
fljótir að yfirbuga þessa fjend-
ur. Stundum eru kirtlarnir yf-
irbugaðir og þá byrja vandræð-
in. Sýklarnir setjast að í hruf-
um og smugum, sem eru í háls-
kirtlunum. Umhverfið er hið á-
kjósanlegasta fyrir þá til vaxt-
ar og fjölgunar — það er heittj
dimmt og rakt alt í kring.
Hálskirtlarnir bólgna nú og
roðna. Ef hepnin er með; þá
ná þeir aftur yfirtökunum og
maðurinn sleppur með háls-
bólgu.
En ef þeir tapa striðinu al-
gerlega, þá getur grafið í háls-
kirtlunum. Ef til vill gpfa sýkl-
arnir frá sjer eitur; sem þeir
senda út í blóðrásina. Þá verða
hálskirtlarnir upphafsstaðir
meinsemda víðsvegar í líkam-
anum.
EiturvesSarnir geta ráðist á
hjartað, hjartalokurnar geta
bólgnað og innsta lag hjarta-
vöðvans með. Ef til vill ráðast
þeir á nýrun; eða liðamótin og
vöðvana og valda gikt.
Það er hægt að rekja fjölda
af sjúkdómum til sýktra háls-
kirtla.
Venjulega er hægt að sporna
við þessu ef hálskirtlarnir eru
teknir strax.
Nefkokskirtillinn.
Nefkokskirtillinn gerir sjaldn
ar ilt af sjer. Mjög oft er hon-
um að ósekju kent um alls-
konar stíflur í nefi; en það er
aðeins örsjaldan sem hann
stækkar svo að hann hindri
andardrátt með nefi. Helsti
kvillinn; sem af nefkokskirll-
inum leiðir; er að stundum lok-
ar hann gönglmum sem liggja
frá innra eyranu út í kokið,
rjett hjá kirtlinum. Þessi göng
eru til þess að jafna loftþrýst-
ingnum fyrir utan og innan
hljóðhimnuna. Ef þau stoppast(
þá eyðist loftið inni í eyranu;
þrýstingurinn verður þar miklu
minni en fyrir utan; hljóðhimn-
an dregst inn og verður stíf og
spennt; þyknar og að lokum
missir maðurinn heyrnina.
Svona lieyrnarleysi batnar
oft skyndilega. þegar nefkoks-
kirtillinn er tekinn þurtu.
Stundum getur bólga frá
kirtlinum borist eftir göngun-
um inn í eyra og komið þar af
stað bólgu í innra eyranu.
Saga aðgerðanna.
Rómverskir læknar byrjuðu
á því í fornöld að nema brott
þessa kirtla. Þeir fláðu þá lausa
frá undirlaginu og slitu þá-svo
burtu með einum kipp. Aðgerð-
in gaf góðan árangur eir það
dóu alt of margir sjúklinganna
úr blóðmissi. Á þessari aðgerð
varð mjög lítil breyting alt fram
á þessa öld^ en nú á vorum dög-
um eru skurðlæknar stöðugt að
bæta aðferðina.
Eitt sinn var reynt að láta
radiumgeisla falla á hálskirtl-
ana eri þeir skemdu of mikið af
vefjunum í kring.
Önnur aðferð var að brenna
hálskirtlana burtu með raf-
magnsstraum; með mjög mik-
illi tíðni. Hægt var að brenna
þá burtu nær sársaukalaust á
nokkrum tímaj með því að taka
lítið fyrir í einu. Gallinn á þessu
var sá; að oft urðu sýklar eftir
undir brunaskorpunni og
hjeldu þar áfram starfi sínu.
Nú er hætt að mestu leyti við
þessar aðgerðir og fleiri, en þess
í stað teknar upp fyrri aðgerðir
með mjög breyttri tækni til hins
betra.
Eins og sakir standa blæðir
varla nokkuð við þessa aðgerð
og eftirköstin eru ekki nærri
eins slæm og áður var.
Ef við nú horfum á þegar
hálskirtlar eru teknir; hvað
skeður þá?
Ef ástæoa þykir fil, er mæld-
ur storknunartími blóðsins til
þess að útiloka möguleika á
blæðingum. Ef kirtlarnir eru
mjög 'bólgnir( bíður læknirinn
ef til vill með aðgerðina þar til
mesta bólgan er farin úr.
Ef sjúklingurinn er svæfður
við aðgerðina, leggst hann upp
á borð og andar að sjer svæf-
ingarefninu uns hann sofnar.
Ef kirtlarnir eru teknir með
staðdeyfingu, eru gerðar nokkr
ar stungur með sprautunál
kringum þá og sprautað inn
blöndu af hovocaini; sem deyf-
ir vefinn og adrenalini sem herp
ir saman smáæðarnar sem
þarna eru; svo að ekki blæðir
úr þeim strax; og heldur einnig
devfingunni lengur við.
Fyrst er gerður svolítill skurð
ur yfir kritlinum og hann síð-
an losaður frá úndirlagi sínu
með sljóum verkfærum. Að
lokum hangir hann aðeins fast-
ur á mjóum streng. Þá er
smeygt yfir hann vírlykkju,
sem stendur fram úr mjórri
pípu. síðan er kipt í vírinn og
hálskirtillinn er laus.
Hvenær á að íaka
hálskirtlðna burtu?
Á að taka háls og nefkoks-
kirtlana strax úr börnum. án
þess að þeir sjeu sýktir? Nei!
Als ekki. Það er margt sem
bendir til þess að kirtlarnir sjeu
meira sýklaeyðandi í börnum
heldur en í fullorðnum og varn
ir því að þau fái ýmsa sjúk-
dóma.
Ef langvarandi bólga er í
kirtlununrij á að nema þá strax
burtu. Ef maður rennur niður
greftri frá kirtlunum; leiðir af
því meltingaróreglu. Ef líkami
barnanna eitrast af hálskirtlun-
um, verða þau daufgerð, af-
skiftalítil og taugaóstyrk. Af
þessu leiðir oft að barninu
gengur illa í skóla.
Fullorðnir menn; sem hafa
byrjandi gigt( fá oft bata, ef
sýktir hálskirtlar eru teknir
burtu.
Óperusöngvarar vilja flestir
fremur missa annan fótinn held
ur en hálskirtlana. því að þeg-
ar þeir eru teknir, breytist lag-
ið á kokinu og oft breytist rödd
in meo. Þetta getur ráðið um
ríkidæmi eða fátækt. En þetla
á ekki við um venjulega dauð-
lega menn. Ef eitthvað skeður
með rödd þeirra við aðgerðina,
þá er það oftast til hins betra.
Læknir nokkur athugaði fjög
ur þúsund börn^ sem ýmist
höfðu mist hálskirtlana eða
höfðu þá enn. Hann fann að
þau börn, sem voru kirilalaus,
fengu nokkuð frekar lungna-
bólgu5 bronchitis og barka-
bólgu, heldur en hin, sem aftur
■á móti voru miklu móttækilegri
fyrir venjulegu kvefi, hlusta-
verk og hálsbólgu.
Hvenær á að taka kirtlana?
Hálskirtlarnir hafa verið tekn
ir úr fólki á öllum aldri, meira
að segja úr sex vikna hvítvoð-
ungum, sem þó er ekki gert
nema að hætta sje á að kirtl-
arnir stífli hálsinn. En venju-
lega ráðleggja læknar ekki að
taka kirtla úr yngri börnum en
íveggja ára.
Ef þetla er þá alt dregið sam-
an, verður þetta útkoman: Ef
hálskirtlarnir eru yður til óþæg
inda, þá skuluð þjer láta taka
þá b#4tu. Ef þeir ónáða yður
ekki; — þá skuluð þjer ekki
ónáða þá.
70 ára:
Sveinbjörn Kristjáns
son, Isafirði
ÞAÐ VAR veturinn 1907 að
jeg fyrst kyntist Sveinbirni
Kristjánssyni. Hann var þá
gift Lofti Bjarnasyni útgerðar-
m.; Þórunn gift Hafliða Hall-
dórssyni bí óst j Lína forstj.
verkstjóri hjá verslun Arna | Gjafabúðarinnar og María list-
Jónssonar á ísafirði. Rjeð hann j teiknari, báðar ógiftar. Dvelur
þar yfir stórum hóp karla og hann nú; ásamt konu sinni
kvenna og skipaði fyrir með hjá dætrum og tengdasonum,
þeim myndugleik að eftir því sem munu gera hónum daginn
var tekið. Virtist sem öllum * ógleymanlegan.
væri ljúft að lúta boði hans, | Meira en hálfa öld hefir
eldri sem yngri. Voru þó kröfur ( Sveinbjörn alið aldur sinn á ísa
firði. Hann hefir verið þátttak-
andi þar í fjörugu athafnalífi,
en jafnframt áhorfandi að
mörgu, sem miðuí- hefir farið.
Hann hefir sjeð gamla tímann
hverfa með kostum sínum og
göllum og nýja siði koma í
staðinn. Sumt af því finst hon-
um að betur mætti fara. Hann
er öruggur fylgismaður sjálf-
bjargarstefnunnar og trúir því
að manndómur skapist við
þjálfun og fórnir, en ekki fyrir
kröfur til annara. Hann ‘ ann
bænum sem alt líf hans og
starf hefir verið tengt við og
hann vonar ao hann verði skjólt
aftur forvígisstaður á sviði at-
hafna eins og í gamlá daga.
Margir vinir Qg kunningjár
hans til afkasta engan veginn
vægar? enda var hann hollur
og trúr húsbændum sínum.
Þeir, sem eigi þektu Sveinbjörn,
hefðu mátt furða sig á því valdi,
sem hann hafði yfir fólkinu og
þeirri virðingu; sem það bar
fyrir honum; en við, sem þekt-
um hann^ vissunp að þótt hann
gerði miklar kröfur til annara,
gerði hann ávalt meiri kröfur
til sjálfs sín og það þótt bæði
heilsa hans og líf'hjengi oft á
veikum þræði. Þetta vissi einn
ig starfsfólkið. Því var einnig
kunnugt um samviskusemi
hanSj rjeltlæti, lipurð og prúð-
mensku, gegn hverjum, sem í
hlut átti. Á þessum traustu stoð
um stóð virðing fólksins fyrir
yfirmanni sínum og vald hans munu senda afmælisbarninu
yfir verkum þeirra. Þegar hann j hugheilar óskir um fagurt og
síöar gerðist fiskimatsmaður, I friðsælt æfikvöld, og mörg fræ
komu fram í starfi hans sömu korn, sem þau hjónin hafa sáð
eiginleikarnir. Rækti hann í kyrþey, munu birtast og ber-
það í mörg ár með hinni sömu | ast þeim í líki ylmandi blóma,
samviskusemi og lipprð; og naut
þar fylsta trausts allra aðila.
Eftir að hann ljet af því starfi
vegna vanheilsu, stofnaði hann
verslun á ísafirðý er hann nú
hefir rekið þar í mörg ár. Einn-
ig hjer bar ávalt mest á þess-
um eiginleikum hans, sem svo
mjög hafa mótað alt starf hans
í lífinu.
í dag er Sveinbjörn sjötugur
að árum. Hann er enn þrung-
inn kímnigáfunni sem hann
fjekk í vöggugjöf. Þegar hann
beitir henni framkallar hann
umhverfis sig líf. hlátur og
gleði, svo ao þar á sjást engin
ellimörk.
Sveinbjörn hefir aldrei verið
auðugur að fje, en hann hefir
verið þeim mun auðugri af
öðrum verðmætum; sem ekki
verða með gulli goldin. Glað-
lyndið, trúmenskan og lraustið(
á alt sem gott er; hafa verið
hin berandi öfl í lífi hans. ^ann
hefir eignast ágæta konu og
barnaláni þeirra er viðbrugðið.
Dæturnar eru: Anna gift Lár-
usi Jónssyni kaupm Sólveig
sem þakklætisvottur fyrir fórn-
fýsi; viháttu og trygð.
8. ágúst ’44
Gísli Jónsson.
?>3>^^<$><$><$^>,$'<$><$><$^3><$>,$>^3>,$^><$<í><$>^
I
Plastic-vörur
Ávaxtahnífar
Smjörhnífar
R 'ikulinífar
Tertuspaðar
Kökuspaðar
Salatsett
Tesíur
3.25
1.25
3.25
4,00
3,25
3.25
1.25
I
X
*
I
}
%
'i
f
:í
Ý
x
•X
x
•«*
X
v v
♦%
K. Einarsson
& Björnsson
Tökum upp í dag
ameríska
karlmannaírakka
mikið og fallegt úrval.
INÚLFSBIÍB
Hafnarstræti 21. Sími 2662.