Morgunblaðið - 19.11.1944, Blaðsíða 1
INNRÁS BRETA í ÞÝSKALAND
Funda- og kröfu-
göngubanni
afljett í Belgíu
Briissel í gær: — Stjórnmála
ástandið í Belgíu er enn all al-
varlegt. Þó hefir stjórnin á-
kveðið að leyfa megi funda-
höld og kröfugöngur, sem fyr-
irhugaðju- eru á morgun (sunnu
dag) víða í Belgíu. Emhættis-
menn í hverju hjeraði eða borg
um fyrir sig skulu ákveða,
hvort fundahöld og kröfugöng-
ur verða leyfðar eða ekki.
Stjórnin hefir fyrirskipað, að
þess skuli stranglega gætt, að
menn beri ekki vopn á fundum,
sem haldnir verða, eða í kröfu-
göngum.
I nokkrum borgum verða
fundahöld alls ekki leyfð, þar
á meðal í Briissel.
Rússar lefia fram
skíðahermönnum
London í gærkvöldi.
I fregnum frá Moskva í dag
segir, að vetur sje nú fyrir al-
vöru genginn í garð ávígstöðv
uiTunr í Norður-Rússlandi og
miðvígstöðvunum. Hefir rúss-
neska lierstjórnin því teflt
frám skíðahersveitum.
1 Ungverjalandi eru háðar
hárðar orustur umhverfis
Budaþest og segjast Rússar
liafa unnið nokkuð á á þeim
slóðum.
Bandamenn nálgasf
Ravena
RÓM í gær: •— Áttundi her-
inn hefir enn sótt fram á aust-
urströnd Italíu og er nú eina 3
km. frá Ravena. í Appenina-
fjöllunum hafa Pólverjar sótt
fram. um nokkra kílómetra.
Skam.t frá Genúa tóku frels-
isvinir smáborg og 400 fanga.
Þjóðverjar hafa.hafið miklar
hefndarráðstafanir í þessu hjer
aði í tilefni af hernaðaraðgerð-
um frelsisvina.. —- Reuter.
Petain í Suður-Þýska-
landi.
LONDON: — Þýska frjetta-
stofan lýsti í gær lifnaðarhátt-
um Petains marskálks, þar sem
hann nú dvelur í borg einni í
Suður-Þýskalandi. Sagt er, að
hatin hafi komið til Þýskalands
með konu sinni og líflækni sín
um. Ekkert hefir hann þjón-
ustufólk, utan einn bifreiðar-
stjóra, en þýsk matreiðslukona
býr til mat þeirra hjónanna.
Furðuleg björgun
Það þótti kraftaverk, er átta af áhöfn þessarar brennandi flug-
vjelar björguðust. Vjelin var flugvirki, sem nauðlenti nærri
Pittsburg í Bandaríkjunum. Fjórir af áhöfninni vörpuðu sjer út
í fallhlífum, en hinir fjórir, sem björguðust, nauðlentu flugvjel-
inni, og rjett sluppu út, áður en kviknaði í bensíninu.
Skipaljónlð í sjó-
orustunni við Fil-
ipseyjar
Washington í gær: — Flota-
málaráðuneytið hefir nú birt
iista yfir skipatjón, sem varð í
orustunni miklu við Leyte-ey
í októbermánuði.
Japanar mistu 14 stór her-
skip; auk þess voru 7 orustu-
skip Japana löskuð, 10 minni
skipum sökt og 17 tundurspill-
ar sukku, eða voru laskaðir
mikið.
Bandaríkjamenn mistu 10.000
smálesta flugvjelamóðurskipið
„Princetön“, tvö minni flug-
vjelamóðurskip og 3 tundur-
spilla. Ennfremur var ástralSkt
beitiskip laskað í orustunum.
— Reuter.
Harðar loftárásir á
þýskar borgir
London í gærkveldi.
Harðar loftárásir hafa í dag
verið gerðar á þýskar bor.gir.
Breski flugherinn fór til árása
á flugvelli og aðra hernaðaf-
staði við Múnster, en amerísk-
ar flugvjelar fóru til árása á
olíuvinslustöðvar og sani-
gönguæðar Þjóð verj a.
Reuter.
Tirana failin
London í gærkveldi.
Þýska frjettastofan skýrir
frá því í dag, að Þjóðverjar
hafi hörfað úr Tirana, höfuð-
borg Albaníu. 1 fregnum frá
bandamönnum í dag var hins-
vegar sagt, að albanskir frels-
isyinir hafi náð ráðhxisi borð-
arinnar, útvarpsstöðinni og
nokkrum öðrum aðalbygging-
uni borgarinnar á sitt vald#
Þjóðverjar segjast hafa
komið' liði s'ínu umlan frá
borginni.
Þjóðverjar hörfa til
Sarajevo.
Ffegnir frá aðálstöðvum
Titos marskálks segir, að Þjóð
verjár 'hörfi riú norðuf á bóg-
inn á Bálkanskaga og stefni
með undanhaldslið sitt til
Sarajevo.
Bústaður Hitlers í reyk-
skýi.
LONDON: — Fregnir frá
Sviss herma, að í hvert skifti,
sem óvinaflugvjelar fljúgi yf-
ir Berchtesgaden og nálægar
sveitir, sje bústaður Hitlers og
alt umhverfi hans sveipað
þykku reykskýi, svo flugmenn-
irnir sjái ekki til jarðar.
Geilenkirchen um-
kringd
Bandaríkjamenn í
Metz
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
ANNAR HERINN breski, sem er undir yfirstjóm Mont-
gomerys hershöfðingja, hóf í morgun innrás á þýska grund
og hefir þegar sótt nokkuð fram. Þetta er í fyrsta sinn,
sem Bretar berjast í Þýskalandi sjálfu og bendir margt
til, að þessi nýja breska sókn hafi komið Þjóðverjum mjög
á óvart. Bretar hófu sókn sína í morgun klukkan 7, fyrir
norðan Aachen og sækja úr tveimur áttum að þýðingar-
mikilli borg, Geilenkirchen.
Fregnir seint í kvöld herma, að Bretar sjeu komnir um
12 km inn í Þýskaland og að þeir hafi nærri umkringt
Geilenkirchen. Sækja Bretar fram úr suðaustri og norð-
vestri að borginni. en á hægra fylkingararmi hersveita
þeirra, berst 9 ameríski herinn.
Hollendingar og
Belgir vilja taka
þátt í hernámi
Þýskalands
Brússel í gær Einkaskeyti
til Morgunbl. frá Reuter.
Eftir Denis Martin
RÍKISSTJÓRNIR Ilollands,
Belgíu og Luxembourg hafa
farið fram á, að þessar þrjár
þjóðir fái að taka þátt í her-
námi Þýskalands. Þetta var
tilkynt í dag í ntanríkisráðu-
neyti Belga.
Stjórnum Breta og Bauda-
ríkjanna var tilkynt ]>essi ósk
viðkomandi ríkisstjórna í sjer
stakri orðsendingir, sem utn
leið var svar við fyrirspurn-
urn frá nefnd, sem unnið baf-
ir að því að nndanförnu í
London að semja vopnahljes-
skilmála, sem krafist verður
af Þjóðverjum, er þeir gefast
HPP. ,
Sjö flotaforingjar
fallnir.
LONDON: — Japanska flota
stjórnin tilkynti fyrir skömmu,
að síðan Japan lenti í styrjöld-
inni, hefðu alls sjö flotaforingj
ar þeirra fallið í bardögum. —
Stjórnuðu menn þessir ýmist
flotadeildum, eða deildum úr
flugliði flotans.
Patton sækir inn
í Metz.
Á öllum vesturvígstöðvun-
um hafa bandamenn sótt fram
í dag. Veður hefir verið gott og
hafa hersveitir bandamanna
notið góðrar aðstoðar flughers-
ins.
Á Metz-vígstöðvunum hafa
hersveitir Pattons sótt fram í
dag. Fregnir seint í kvöld
herma, að Bandaríkjamenn
sjeu komnir inn í borgina og
hafi vesturhverfi hennar á sínu
valdi. Margt bendir til þess, að
Þjóðverjar hafi yfirgefið borg-
ina, eða sjeu sem óðast að flytja
austur á bóginn, eftir einustu
undanhaldsleiðinni, sem þeim
er enn opin. Bandaríkjahersveit
ir geta skotið á veg þenna með
fallbyssum.
Tveir þýskir bæir teknir.
Við landamæri Luxembourg,
Þýskalands og Frakklands
hafa bandamenn tekið tvo bæi
í dag. Heita þeir Perl og Ober.
Á þessum slóðum hafa banda-
menn sótt fram nokkra kíló-
metra.
Franskar hersveitir
sækja fram.
Á vígstöðvunum í Vosgesa-
fjöllum og Juralfjöllum hafa
franskar hersveitir sótt fram
um 16 kílómetra og er riú sótt
að Belfort úr suðri og austri.
Benda líkur til, að þarna ætli
Frakkar að láta til skarar
skríða og leggja áherslu á að
ná Belfort.
Þjóðvarnaliðsmenn
handteknir.
Bandamenn tóku í dag
fyrstu fangana úr hinu svo-
Framh. á 2. síðu