Morgunblaðið - 23.01.1945, Side 6

Morgunblaðið - 23.01.1945, Side 6
MORGUNBLAPTÐ Þriðjudagur 23. janúar 1945 m Útg.; H.f Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Rltstjórar; Jón Kjartansson, Yaltýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Simi»1600. Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlands, kr. 10 00 utanlands. í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók. ÓLÍK VIÐHORF ÞAÐ ER EKKI alveg ómerkilegt að gefa því gaum, hvernig brugðist hefir verið við núverandi ríkisstjórn, ekki aðeins rjett fyrst í stað, heldur og þann tima. sem nú er liðinn frá myndun hennar. Að sjálfsögðu tóku Framsóknarmenn dndköf þegar í stað og hafa þau andköf orðið æ þyngri og erfiðari eftir því. sem á hefir liðið. ★ Dagblaðið Vísir, sem dyggilega hafði stutt fyrverandi ríkisstjórn, enda einn ráðherrann einn ráðamanna blaðs- ins, fór reyndar í upphafi stilt af stað. Sagði: „Ritstjóm þessa blaðs vill enga ábyrgð taka á þessari stjórnarsam- vinnu og telur sig óbundna með öllu af meiri hluta sam- þykt Sjálfstæðisflokksins um stuðning við stjómina. — Blaðið mun gagnrýna aðgerðir hennar svo sem rjett þykir hverju sinni og láta sig engu skifta önnur sjónarmið en hag alþjóðar”. ★ Reynslan hefir nú samt orðið sú, að lítt hefir hallast á um stjórnarandstöðuna hjá Tímanum og Vísi, en bæði þessi blöð róið dyggilega á sama borð. Fyrst var haft í háði um áform stjórnarinnar varðandi atvinnumál landsmanna, að stefna að algjörri nýsköpun í atvinnulífi þjóðarinnar. Þegar stjórnarandstaðan varð vör við að þjóðin lagði hinsvegar hlustir við nýsköpun- arstefnu stjómarinnar, — var breytt um tón. Jú, — ný- sköpun var að vísu góð, — en það var bara tómt mál að tala um slíkt, fyrr en búið væri að tryggja fyrir fram, að allt gæti borið sig. Nú er svo orðin uppistaðan í áróðri stjómarandstöð- unnar, að allt ráð stjórnarinnar sje bygt á sandi. Það eina. sem hefði átt að gera, var að skera niður dýrtíðina með allsherjar launalækkun í landinu. ★ Það vill syo til, að það er uþplýst staðreynd að meðan á samningaumleitunum allra þingflokkanna stóð í haust, einnig Framsóknar, þá ritaði Sjálfstæðisflokkurinn hin- um flokkunum brjef þann 14. september, þar sem lögð vom frumdrög að málefnasamningi samstjórnar flokk- anna. í þessu brjefi Sjálfstæðisflokksins segir svo um kaupgjaldið: „Unnið verði að því, að koma á allsherjar samningum um kaupgjaldið um land allt. Samið verði um núgildandi kaupgjald óbreytt. Þó verði einstakar breytingar gerðar til samræmingar, en þó hvergi svo, að vísitöluhækkun leiði þar af’.Við þetta hafði Framsókn- arflokkurinn ekkert að athuga, enda hvorki af Fram- sóknarflokknum nje neinum öðrum krafist kauplækkana allar þær vikur, sem samningaumleitanir stóðu yfir milli flokkanna, heldur aðeins krafist vinnufriðar, sem átti að vera keyptur fyrir vissar kauphækkanir. Eina skilyrðið sem sett var af hendi Framsóknarflokksins og annarra var, að þessar kauphækkanir yrðu ekki svo miklar, að af þeim leiddi hækkun vísitölunnar. ★ Þannig hefir þá stjórnarandstöðunni farið. Á hitt er svo að líta, hvernjg þjóðin hefir brugðið við. Þá kemur í ljós að kaupstaðir, kauptún, sveitir, fjelög og einstaklingar vænta sjer allir nokkurs og ýmsir mikils af þeirri stefnubreytingu, sem orðið hefir í stjórnmálum landsins með nýsköpunaráformum ríkisstjórnarinnar. ★ Allsstaðar er fólkið sammála um, að fyrsta skilyrðið til þess, að geta nú vænt sjer nokkurs á komandi árum, var að standa saman. Annað það, að sameinast um viðsýn og djarfhuga áform. Að þessu fengnu er, skapaður möguleiki til stórræða í þjóðfjelaginu. Það er von fólksins, að sá möguleiki verði að raunveruleika. ! i 1 ' í: Kvenna- heimili reist á næsta ári? BANDALAG KVENNA í Reykjavík hefir ákveðið að hefja á ný fjársöfnun til bygg- ingar kvennaheimilis hjer í Reykjavik. Verður það reist á næsta ári ef unt þykir. Bandalagið hefir beðið blað- íð í þessu sambandi fyrir eft- irfarandi ávarp: „ÞAÐ mun mörgum minnis- stætt, að fyrir allmörgum ár- um hófu konur hjer á landi fjársöfnun lil byggingar kvenna heimils, er bera skyldi nafn fyrslu húsfreyju landsins, Hall 'veigar Fróðadóttur. Varð bygg- ingarsjóður þessi aldrei svo hár að ráðlegt þætti að hefjast handa með byggingu hússins, og er striðið skall á og dýrtíðin fór sífelt vaxandi, dró það mál- ið enn á langinn. En jafnhliða þessu óx þörfin fyrir stofnun líka þeirri, er fyr var hugsuð, stofnun, þar sem hin ýmsu kyen fjelög og kvcnfjelagasambönd gætu fengið svigrúm til þess að vinna að áhugamálum sínum, sem öll að meira eða minna leyti stefna að því, að efla heill og hrg þjóðarheildarinnar. Það var Bandatag kvenna i Reykjavík, er fyrst hafði for- ustu í þessu byggingarmáli, og á aðalfundi sínum 5. desember síðaslliðið ár, samþykti það, að beita sjer fyrir málinu á ný með því að mynda fjáröflunar- nefnd sem skipuð er fulltrú- um frá hinum ýmsu fjelögiim Bandalagsins. Þessi nefnd hefir haldið nokkra fundi og ákveðið að skora á landsmenn, konur og karla, að styðja þetta nauð- synjarnál. Til þess er ætlast, að húsið varði reist á næsta ári, ef málið fær nú góðar undir- tektir. Undirrituð fjáröflunarnefnd tekur með þakklæti á móti gjöf um í þessu skyni, sömuleiðis skrifslofa Kvenfjelagasam- bands Islands í Lækjargötu 14 B, (Búnaðarfjelagshúsinu), og veitir hún jafnframt upplýsing- ar um málið. Reykjavík 19. janúar 1945. I fjáröflunarnefnd Hallveig- arstaða: Guðrún Jónasson. Kristin Sig- urðardóttir. Laufey Vilhjálms- dóttir. Anna Ásmundsdóttir. María Maack. Guðrun Arna- dóltir. Arnheiður Jónsdóttjr. Elín Þorkelsdóttir. Ingibjörg Jónsdóttir. Friðrikka Sveins- dótt'r. Sókn á Luzon London í gærkveldi. BANDARÍKJAHERINN á Luzon sækir stöðugt fram á íeið sinni til Manilla og hefir orðið vel ágengt þar síðustu tvo daga. Þar sem Japanar hafa gert hörðustu gagnáhlaup sín, á vinstra fylkingararmi innrásar liðsins, hafa Bandaríkjamenn hrundið mörgum árásum og bætt aðstöðu sína til mikilla muna. Flugherinn veitir land- hernum öflugan stuðning. Reuter. • Örstutt gönguferð. ÞAÐ ER ekki ótítt að við lleyk víkingar leitum langt yfir skamt til að hressa upp á hugann í frí- stundum okkar. Það fara fleiri bæjarbúar austur á Hellisheiði á góðviðrisdögum, en í gönguferð- ir hjer í nágrenninu og þó getur það bæði verið lærdómsríkt, skemtilegt og holt að leggja leið sína umhverfis bæinn á góðviðris dögum, eins og var t. d. á sunnu daginn. Það er gaman að sjá um- hverfi Reykjavjkur í vetrarham. Það þarf enginn að kvarta yf- ir útsýninu af hæðunum hjerna í kringum bæinn. Það er ein- kennilegt að sjá fjöruna við Skerjafjörð lagða ís og skoða fuglalífið hjerna vestur i Sels- vörinni. Og það eru nokkuð margir, sem gera þetta. • Fólkið á óskuhaugun- um. ÞAÐ ER alveg furðulegt hvað ber fyrir augu á örstuttri göngu- ferð hjer í nágrenni bæjarins. — Það vita t. d. ekki margir, að I inni fær hann far í lyftu — upp- ávið. Myndin er skemtilega tekin í , eðlilegum litum og vel leikin. — I Upphaflega var þetta leikrit og fjekk góðar viðtökur í Ameríku á sínum tíma. Feitlagni kvikmyndaleikarinn. í KVIKMYND þessari leikur m. a. hinn feitlagni leikari Laird j Creger, sem nýlega er látinn vest ur i Ameríku. Hann fer með hlut verk kölska, eða umboðsmanns hans. Cregar var einn af feitlögn ustu kvikmyndaleikurum í Holly ! wood. Aðeins 28 ára að aldri er hann ljest. Hann hafði átt erfitt uppdráttar áður en hann komst að í kvikmyndum, en vakti brátt á sjer athygli. Fyrir nokkrum vikum tók ! hann sótt og lagði þá af svo mik- í ið, að hann varð ekki nema 200 pund. Þá fjekk hann hjartaslag og dó. í amerískum blöðum hefir ver ið ritað um Creger eftir lát hans, öskuhaugarnir hjerna vestast í bænum eru eftirsóttur staður. En þetta sá jeg með eigin augum á sunnudaginn var. fjöldi fólks og flestir gengu hálfbognir fram og aftur, eins og þeir hefðu týnt ein- hverju. Nú kemur það fyrir, að fólk fleygir óvart einhverju verð mæti í sorpílátin sín, en jeg var að hugsa um, að varla gæti það verið svo alment, að menn kæmu í tugum vestur á öskuhauga til að leita að einhverju, sem þeir hefðu fleygt í ógáti, enda lítil von til að það fyndist aftur. Það kom líka á daginn, að fólk ið — aðallega unglingar — var ekki þarna í þeim tilgangi að leita að týndum munum, heldur eins og einn unglinganna sagði við mig: „Við erum bara að „gramsa“. En þar sem jeg var í göngu- ferð m. a. mjer til hressingar, dvaldi jeg ekki lengi þarna við öskuhaugana. Fanst líklegt, að það myndi ekki hressa neitt upp á heilsuna. Fuglarnir og hitaveitan. ÞEGAR jeg gekk vestur með Selsvörinni, tók jeg eftir, að þar var óvenjulega fjörugt fuglalíf. Þar var æðarfugl, máfar, rita, tjaldur og fleiri fuglar. í fyrstu fanst mjer einkennilegt, að þetta mikið af fugli skyldi hópast þarna saman á tiltölulega litlum bletti. En er jeg kom nær fjekk jeg skýringu á því. Þarna er skolpræsi út í sjóinn og vatnið í því er volgt. Það er afrenslisvatn frá hitaveitunni og blessaðir fugl arnir voru þarna umhverfis hlýj- una. En nú er jeg hræddur um að jeg verði að hætta að lýsa þessari stuttu gönguferð. Annars gæti farið svo, að jeg gæfi of miklar upplýsingar um veðrið. En það er „bannvara" ennþá af hernað- arástæðum. En hitt vil jeg hik- laust gera og það er að mæla með stuttri gönguferð hjer um ná- jgrennið í björtu og góðu veðri. Það verður enginn svikinn af því. Sjerkennileg kvikmynd. NÝJA BÍÓ hefir undanfarið sýnt sjerkennilega kvikmynd, sem heitir „Himnariki getur beð ið“. í mynd þessari er sagt frá Thanni einum, sém segir sögu sina í biðsal vítis. Að sögunni lok því hann þótti mjög efiýlegur I leikari, sem leikstjórar gerðu jsjer miklar vonir um. Var talið að hann myndi ekki hafa gefið eftir skapgerðarleikurum eins og Charles Laughton og Emil Jank- ins, ef honum hefði entst aldur til. „Samferða". BESTA kvikmynd ársins, sem j leið, er að dómi kvikmyndagagn- jrýnenda vestur í Ameríku, nefn- iist „Going my way“ og mætti jkanske þýða á íslensku „Sam- ferða“. Aðalhlutverkið í þeirri mynd leikur Bing Crosby, söngv ■ari. Leikur hann prest, og þó hann muni ekki yfirleitt hafa ver ið álitinn prestlega vaxinn mað- ur, þá fer hann Ijómandi vel með hlutverk sitt. En í þessari kvik- mynd mun gamli presturinn þó vekja samúð og hrifningu á borð við Bing og sennilega þó hafa vinninginn hjá flestum. Hlutverk gamla prestsins leik ur Barry Fitzgerald, sem hingað til hefir haft á hendi smáhlut- verk. Gagnrýnendur segja, að hann muni fá „Oscar“-verðlaun ársíns fyrir snildarlegan leik sinn |í þessari mynd. Og loks má geta iþess, að sömu gagnrýnendur telja, að leikstjóri myndarinnar, Leo McGary, sje besti leikstjóri ársins fyrir stjórn sína við þessa myfíHatöku. „Saratoga Trunk“. OG UR því við erum komin þetta langt í kvikmyndahugleið- íngum, er best að jeg segi ykkur frjett, sem mun gleðja marga les- endur Morgunblaðsins, og þá ekki síst kvenfólkið. Næsta framhaldssaga í Morgun blaðinu, sem hefst núna einhvern næstu daga verður „Saratoga Trunk“ eftir Edna Ferber. Sag- I an hlýtur nafnið Saratoga. Þetta | er bráðskemtileg saga, sem farið hefir sigurför um Bandaríkin á s. 1. ári. Nýlega hefir sagan verið kvik mynduð. Var nýlega heimsfrum- sýning á henni hjer í Reykjavík — hjá setuliðinu. í kvikmyndinni leika þau Gary Cooper og Ingrid Bergmann aðalhlutverkin. Ekki hafa borist dómar um sjálfa kvik. myndina ennþá, enda er alveg nýbyrjað að sýna hana vestur í Ameríku, en talið er að þetta muni vérða einstaklega góð kvik ! fnynd óg þeir, sem hafa sjeð hana njer, eru mjög -hrifnir af hennl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.