Morgunblaðið - 27.02.1945, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Iriðjudagur 27. febrúar 1945.
IViinningarorð um
EYJÚLF BJÖRNSSON
írá Laxnesi
Skarð er fyrir skildi orðið
Skapa-dómi enginn hnikar.
-— Þegar dregur að 23. febr.,
minnast ýmsir enn mæts manns
sem fyrir nokkrum árum er
horfinn okkur sjónum, en var
fæddur þann dag fyrir 62 ár-
um, (1883). — Minnast hans
og sakna, um leið og þeir harma
að honum skyldi ekki verða
lengra lífs auðið, en raun varð
á. En það er oftar en þá, að
menn minnast og sakna þessa
manns, því svo eftirminnilegur
var hann og seingleymdur öll-
um þeim, sem þekktu hann
best og jafnvel þeim, sem voru
honum málkunnugir.
— Það er sagt um sumt að
betra sje seint en aldrei, en
hvort svo verður um þessi minn
ingarorð, skal ósagt látið. En
ástæðan fyrir því að þau koma
nú, — og fyrst nú — er m. a.
sú, að sá sem þau ritar hefir
ekki lengur getað varist þeirri
áleitnu umhugsun, að ekki væri
vansalaust að hann lægi leng-
ur óbættur í Græði — án þess
að hans væri að einhverju get-
ið. Og það því fremur sem minn
ingarorð, er skrifuð voru
skömmu eftir að víst þótti um
afdrif hans, misfórust hjá
ritstj. ónefnds blaðs, þótt ekki
væri um það vitað fyr en löngu
seinna og ekki kostur á að bæta
úr því þá. — Sú úrbót, sem hjer
verður gerð tilraun um, getur
þó ekki orðið svo vel úr garði
gerð sem sú minningargrein
var.
Sá maður, sem hjer er farið
orðum um, er Éyjúlfur Björns-
son vjelstjóri og bóndi að Lax-
nesi í Mosfellssveit, sem fórst
með Jarlinum í sept. 1941. —
Hann var fæddur í Laxnesi 23.
febr. 1883, misti föður sinn ung
ur, en ólst upp með móður sinni
og stjúpföður í Norður-Gröf á
Kjalarnesi.
Snemma hleypti hann heim-
draganum og rjeðst 18 ára gam
all til járnsmíðanáms í Reykja-
vík hjá Kristófer Sigurðssyni,
síðar vara-slökkviliðsstjóra, er
mörgum Reykvíkingum var að
góðu kunnur.
Þegar Eyjúlfur hóf járnsmíða
nám sitt, þurfti meiri mann-
dóm og einbeitni til að brjótast
nýjar leiðir heldur en síðar
varð. Og sýnir þetta m. a. það
áræði og viljafestu sem með
honum bjó. — Síðasta sumarið
sem hann var lærlingur, hjá
Kristófer og eins næsta sumar
á eftir, vann Eyjúlfur að brúar
smíði yfir Skjálfandafljót, en
annars var hann áfram í smiðj-
unni á Skólavörðustígnum. uns
hann fór til sjós 26 ára gamall,
1908. — Hafði hugur hans
snemma beinst að sjónum og nú
því fremur sem nýir afkomu-
möguleikar voru að skapast í
sambandi við togaraútgerðina.
Var Eyjúlfur nú ákveðinn í þvi
að verða vjelstjóri og sá ásetn-
ingur hans tókst þannig, að 4
árum síðar var hann orðinn 1.
vjelstjóri á togara. Og sú varð
hans aðalatvinna það sem eftir
var ævinnar.
Árið 1918 kvæntist Eyjúlfur
Guðrúnu Guðmundsdóttur, ætt-
aðri af Akranesi, ágætri konu
og eignuðust þau 3 börn, sem
öll eru uppkomin.
— Með þessu stutta „æviá-
gripi“ er í raun og veru lítið
sagt. Þau atriði sem gripið hef
ir verið á, eru fyrst og fremst
áfangar á lífsleiðinni sem
marka að nokkru megindrætt-
ina í þeirri lífsmynd sem okk-
ur var kunn. En bak við stend-
ur maðurinn sjálfur eins og
hann hefir mótast í deiglu ár-
anna, heilsteyptur eða vansmíð-
aður eftir því sem efni stóðu
•til.
— Jeg hygg að ekki orki tví
mælis að Eyjúlfur Björnsson
væri heilsteyptur maður. Per-
sónuleiki hans var á þann veg,
að maðurinn varð hvorttveggja
í senn minnisstæður og kær, ef
tækifæri gafst til nokkurar
kynningar. Hvernig sem á stóð
var Eyjúlfur jafnan glaður og
reifur og að því er virtist var
honum sá eiginleiki meðfæddur
að gera gott úr hverjum hlut.
Eftirminnileg tilsvör og hnitti-
yrði lágu honum laus í munni
og honum mun sjaldan hafa
orðið svarafátt. Hvar sem hann
var með einum eða fleirum var
hann jafnan sjálfkjörinn hrók-
ur alls fagnaðar. Og það hefði
verið undarlega samsettur mað
ur sem hefði getða leiðst í ná-
vist hans. Því flestum mun jafn
an hafa þótt sú stund ofstutt,
sem samvistanna naut. Hann
var ákveðin.n og sjálfstæður í
skoðunum og Ijet ekki hlut sinn
að óreyndu, ef því var að
skipta, en þó sanngjarn og
frjálslyndur í dómum sínum
um menn og málefni. Hann
valdi sjer ekki vini eftir stöðu
nje stjettum og leitaði litt eftir
mannvirðingum. Þeir sem f jellu
honum í geð þurftu ekki að ef-
ast um einlægni hans nje vin-
artryggð. :— Hinir máttu gjarn
an sigla sinn sjó óátalið og átölu
laust. Allur smásálarskapur og
styrfni var honum fjarri skapi,
en greiðvikni og hjálpsemi svo
í blóð borin að sjálfsagt þótti
að leysa úr hvers manns vanda,
ef tök voru til án allrar tilætlun
ar um endurgjald.
Á sjóferðum sínum fór Eyj-
úlfur víða um, m. a. til Amer-
íku. Kunni hann margt að segja
frá þeim ferðum sínum, því
hann kunni að gera glögg skil
á því sem fyrir augu bar og
eyru, bæði gagnlegum hlutum
og kátlegum, yiðhorfum.
— En þótt sjórinn hafi þannig
orðið aðal-vettvangur Eyjúlfs,
meira en helming ævinnar, var
honum jafnan kært að minnast
heimahagánna og það því frem
ur spm á ævina leið. Bar hann
órofa tryggð til átthaga sinna
og móðurmoldar, og því var það
að hann keypti Laxnesið (ásamt
Einari bróður sínum) árið 1929
og hóf þar búskap. — Við það
voru miklar vonir tengdar.
Jafnframt búskapnum í Lax-
nesi var Eyjúlfur samt áfram til
sjós nokkurn tíma ár hvert, en
nú átti,hver ferðin að verða
síðustu og seljast síðan að
heima, að fullu og öllu. — Að
því stefndi nú hugur hans óg
störf, enda jafnan svo verið að
þótt hann yrði að dvelja lang-
tímum saman fjarri heimili
sínu, bæði á hafi úti og í öðr-
um löndpm, var hann i eðli
sínu heimilisrækinn og heima-
kær. Og þær stundir mun hon-
um hafa þótt bestar, sem hann
gat notið heima meðal vanda-
manna sinna og málvina.
— Margvíslegar umbætur á
bújörð hans biðu framkvæmd-
ar. Að þeim hugðarmálum sín-
um ætlaði hann nú að vinna,
það sem eftir væri ævinnar. En
margt fer öðruvísi en ætlað er,
og svo fór hjer. Og sannast þar
sem oftar.að „enginn má sköp-
um renna.
— Nú er Eyjúlfur í Laxnesi
fyrir nokkru síðan horfinn okk-
ur sjonum, en minningin um
hann mun lengi. vara. Það er
oft erfitt að sætta sig við hin
óvæntu örlög, og svo var hjer
um. Og því er það að mjer kem
ur oft í hug það sem Matthías
kvað forðum:
Vantar nú í vina-hóp.
— Völt er lífsins glíma —
þann, sem yndi og unað skóp,
oss fyrir skemmstum tíma.
G. Þ.
UNGLING
vantar til að bera blaðið í hús við
Bergstaðastræti
Talið strax við afgreiðsluna, sími 1600.
Morgunblaðið
Brunatryggingar
Innanstokksmunir. Framleiðsluvörur. Verslunarvörur.
Flutningstryggingar
Sjó- stríðs og landflutningstryggingar, milli landa og
innanlands.
Skipatryggingar
Afla- og veiðarfæra-
tryggingar
Fullkomin og viðurkend sambönd í hverri grein.
Tjón gerð upp hjer á staðnum.
Carl D. Tulinius & Co. h.f.
Austurstræti 14 1. hæð. Símnefni Carlos.
Sími 1730
Framtíðaratvinna
Maður vátiur bókhaldi og sem getur skrifað verslunar-
brjef á ensku, getur fengið atvinnu um næstu mán-
aðamót. Umsókji ásamt meðmælum merkt „Reglu-
samur’' sendist blaðinu fyrir fimtudagskvölcf
Höfum fengið gott úrval af
harnaskóm. T. d. hvít, brún og
svört stígvjel á eins til þriggja
ára. Einnig lága skó í sömu stærð-
um. Hvita telpuskó og brúna og
svarta drengjaskó.
St óversíun ^te^dnóóonar
oCOL 14. Cj OL U & Cj 22 a