Morgunblaðið - 06.04.1945, Síða 8

Morgunblaðið - 06.04.1945, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 6. apríl 1945 Útg.: H.f Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Óla. Rilstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Simi 1600. Áskriftargjald: kr. 7.00 á manuði innanlands, kr. 10.00 utanlands. í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók. Átökin framundan VERKEFNIN eru mörg og stór, sem bíða ríkisstjórn- arinnar. Aðgerðirnar í sambandi við nýsköpunaráform stjórnarinnar eru í fullum gangi. Ekki er annað sjáan- legt, en að einstaklingarnir hafi fullan hug á að verða þátttakendur í því mikla viðreisnarstarfi, sem þar er stefnt að. Ætla því engan veginn að rætast hrakspár stjórnarandstöðunnar, sem reyndi á alla lund að telja mönnum trú um, að ekkert vit væri í að ráðast í kaup nýrra framleiðslutækja á þessum tímum. Einstakling- arnir hafa til þessa ekki látið á sjer standa, að gerast kaupendur þeirra framleiðslutækja, sem þjóðinni hafa staðið til boða. ★ Allar líkur benda til þess, að unt verði að sjá nokkurn veginn fyrir eðlilegum vexti bátaútvegsins. Hitt er enn í meiri óvissu, hvernig gengur með öflun hinna stærri skipa, sem þjóðina vantar nú svo tilfinnanlega. En það stendur ekki á einkaframtakinu, að kaupa þessi skip strax og þau eru fáanleg, sem okkur hentar. Eimskipafjelagið hefir þegar öll spjót úti í öflun hentugra skipa, til þess að geta fylt eitthvað í það mikla skarð, sem höggvið hefir verið í skiþastól fjelagsins. Hvort fjelaginu tekst að fá skip fyrr en eftir stríð, er enn í óvissu. Um togarana, er svipaða sögu að segja. Togarafjelögin hafa mikinn hug á að eignast ný og fullkomin skip. ís- lendingar þekkja best enska togara og þýska, enda hafa þau skip reynst hjer vel. Um það er ekki að ræða, að fá togara smíðaða í Þýskalandi og verður ekki fyrst um sinn. Hinsvegar vænta íslendingar þess, að Bretar sýni nú sem endranær skilning á þörfum þjóðarinnar og leyfi smíði togara fyrir þá, þegar skipasmíðastöðvar Bretlands geta á ný farið að sinna friðsömum störfum. Vonandi rætist vel úr þessum málum. ★ En þótt allvel horfi í nýsköpuninni, getur hitt ekki dulist, að ýmsir erfiðleikar verða á vegi ríkisstjórnar- innar. Þegar ríkisstjórnin tók við völdum, voru fjármál rík- isins í megnustu óreiðu. Til þess að bjarga ríkissjóði frá yfirvofandi greiðsluþrotum, varð ríkisstjórnin á síðasta þingi að beita sjer fyrir álagningu nýrra skatta. Þessir skattar koma víða þungt níður og því ekki viðlit, að þeir geti orðið til frambúðar. Enda var því yfirlýst af ríkisstjórninni, að stærsti skatturinn (veltuskatturinn), yrði ekki á lagður nema þetta eina ár. Af þessu leiðir, að þegar á þessu ári verður að hefjast handa um niðurfærslu á rekstrarútgjöldum ríkissjóðs. Ber í því efni að leggja höfuðáherslu á, að gera sjálfan ríkisreksturinn einfaldari og hagkvæmari en hann nú er. Hefir ríkisstjórnin lýst yfir, að hún vilji vinna að þessu og í þinglokin fekk hún stuðning frá Alþingi, að hefjast þegar handa um framkvæmdir í þessu efni. ★ Eitt erfiðasta viðfangsefnið. sem ríkisstjórnin fær við að glíma á þessu ári, verður án efa í sambandi við afurða- sölu landbúnaðarins á næsta hausti. Hjer var aðkoman þannig hjá ríkisstjórninni, að búið var að flækja ríkis- sjóði svo hatramlega inn í þessi mál, að hann varð að. standa undir 20 milj. króna bagga árlega, eða jafnvel enn meir, til þess að halda dýrtíðinni í skefjum. Núverandi fjármálaráðherra hefir lýst yfir því, að ekki sje viðlit að halda áfram á þessari braut. En hvaða úrræði verða fundin, til þess að losna út úr þessum ógöngum? Það verður áreiðanlega eitt erfiðasta viðfangsefni ríkis- stjórnarinnar, að ráða fram úr þegsu vandamáli. En takist ríkisstjórninni að leysa þenna flókna hnút, ^ verður gatan greiðari í framtíðinni og auðveldara að i ráða fram úr öðrum erfiðum viðfangsefnum. Þjóðin myndi af alhug fagna því, að ríkisstjórnin fyndi farsæla lausn á þessu máli. \Jílar ólrijar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Messur í skíðaskálum.' ÝMSIR hafa skrifað mjer vegna ummæla, sem birtust í Bæjarpósti Þjóðviljans 4. þ. m. og voru um kirkju og kenni- menn, næsta viðurstyggileg. Til- efnið mun vera það, að messað var í skíðaskálanum um pásk- ana, og er það nýbreytni, en Þjóðviljamönnum er sem kunn- ugt er ekki sem best við messur og presta, og hefir það þó aldrei komið eins glöggt í ljós eins og nú. Þá er þeim ákaflega mikið í nþp við hús, sem kallast kirkj- ur, og fer líklega að minka það álit, sem þeir hafa haft á skíða- skálum, fyrst búið er að hafa Guðs orð um hönd þar. • Illa kom það við þá. SKÉÐAMAÐUR skrifar um þetta efni: „Það hefir verið sagt að síðan Sovjetríkin lentu í styrj öldinni, hafi kommúnistar um allan heim farið að gerast ákaf- lega trúaðir og tilbiðja Guð í stórum stíl, en hann höfðu þeir áður fyrirlitið. Ef maður hefir heyrt þetta og ekki trúað því, þá fær maður staðfestingu á því að trú manns var rjett, við að lesa bæjarpóst Þjóðviljans í gær. Þar ætlar sá, sem skrifar að umhverf ast yfir því, að prestar flyttu messur þar sem margmenni er saman komið á einni aðalhátíð kirkjunnar. • Dáfallegt orðbragð. ORÐBRAGÐIÐ í áðurnefndum Þjóðviljapistlum er líka þannig, að höfundurinn virðist aldrei hafa á æfinni orðið reiðari og hatursfyllri, en þegar hann frjetti, að messað hefði verið í skíðaskálum. En hvað ætli sá góði maður segði, ef orð postula hans, Lenins sáluga, væru köll- uð andlegur mygluruddi og slepjugt heimskusúrhey? Ætli hann gæti reiðst meira af því, en þessu, að prestar voguðu sjer að fara með gott orð upp til fjalla á páskum“. • Hjer datt gæran af. SKÁLAGESTUR skrifar: „Jeg sje ekki betur en kommúnistarn- ir sjeu eins inn við beinið og þeir hafa altaf verið, ef það á að dæma eftir því sem þeir sögðu í Þjóðviljanum í gær um messur í skíðaskálunum um páskana. Ef þeir halda að menn sem boða kristni sjeu að færa út starfið og vinna fleiri áhangendur einhvers staðar, þá rjúka þeir upp með svívirðingum og skömmum. Á því sjer maður og sjer vel, að þeir vilja kristna trú feiga, hvað sem skoðanabræður þeirra í Rúss landi kunna að vera orðnir trú- aðir upp á síðkastið. Þessvegna finst mjer líka dálítið napurlegt, þegar þessir herrar geta ginnt kirkjuhöfðingja iijer á Islandi eins og þursa, til þess að styrkja sinn málstað.“ • Svo mörg eru þau orð. ÞETTA verður nú að nægja úr þeim brjefum, sem mjer bárust um skíðaskálamálin, að minnsta kosti í bili. Það, sem Þjóðviljinn skrifaði um þetta, hefir vakið á- kaflega mikla reiði sumra, en gapandi undrun annnarra, sem voru farnir að halda, að mennirn ir, sem að því blaði standa, hafi nákvæmlega jafn miklar mætur á kristindómi og kirkjum og hverjir velkristnir menn. En þarna sjest bara að mörgum hef ir skjátlast hraparlega, og að þeir hafa gleymt hinu fornkv.eðna: — Sjaldan bregður mær vana sín- um. Ennfremur virðist það sanna hitt, að því aðeins finnast Þjóðviljamönnum staðir góðir, að þar komi aldrei prestar, síst til að messa. • Smábilanir í útvarp- inu. ÚTVARPSHLUSTANDI skrif- ar: „Hr. Víkar! Mig langar til að grenslast eftir hvernig á því muni standa, hve oft koma fyr- ir smábilanir í útvarpinu okkar. Eins og allir vita, skeður það ósjaldan, að útvarpssendingin hættir alt í einu en síðan biður þulurinn hlustendur að afsaka þetta hlje, sem stafað hafi af bil un í stöðinni. — Jeg minnist ekki að jeg hafi nokkru sinni heyrt það í erlendum útvarps- stöðvum, að slíkar truflanir eigi sjer stað. Hvað er það, sem bilar hjer? Og hvað skyldi þurfa til þess að losna við slíkar trufl- anir? Þær eru heldur margar.. ÞETTA er rjett hjá hlustanda. Þessar truflanir á útvarpinu eru orðnar helst til margar, og væri mál komið til þess að fá að minsta kosti að vita af hverju þær stöfuðu. Þær koma eins og þruma úr heiðskýru lofti, enginn tími útvarpsdagskrárinnar er laus við þær. Og svo þessar leið inlegu afsakanir, eins og útvarp ið sje að biðjast afsökunar á því að það sje til. Stundum byrjar útvarp ekki nærri í tæka tíð, og þá er það afsakað með bilun á stöðinni. Maður skyldi ekki halda að hún yrði langlíf þessi stöð, annað eins gargan og hún er orðin og hefir raunar altáf verið. í þessu sambandi má geta þess, að síðast í fyrrakvöld, er verið var að leika ísl. þjóðsöng- inn, hætti útvarpið í miðju lagi. • Að múrhúða sundhöll. K. Guðmundsson skrifar: — „Mig langar tll að spjalla við yð ur um Sundhöllina. Hún er okk ar myndarlegasta íþróttahús og heilsulind besta, sem við eigum völ á og fullkomin vel. Jeg er alveg á því, að þetta sje rjett, nema að einu leyti, þ. e. a. s. út- litinu að utan, sem er mjög til minkunnar. Það fyrsta, sem mað ur sjer erú gráflekkóttir stein- veggirnir, svo ljótir að óvíða sjest annað eins. Jeg vil þess- vegna beina þessum fáu línum til þeirra, sem hlut eiga að máli, að láta ekki eitt sumar enn líða án þess úr þessu verði bætt. — Æskilegast væri að sundhölhn yrði múrhúðuð með hrafntinnu og kvarsi. Þá fyrst á hún hallar nafnið“. • Göring er seigur. 1 FYRRADAG bárust eftirfar- andi frjettir frá Stokkhólmi: 1) Göring hefir framið sjálfsmorð. 2.) Göring var í bifreiðinni, sem skotið var á nýlega nærri Berlín, og stjórnin hjet 100.000 mörkum fyrir að finna þann, sem skaut og 3.) Göring er fyrir nokkru flúinn frá Þýskalandi. Ef Gör- ing hefir gert alt þetta, ekki síst sama daginn, þá verður ekki ann að sagt, að við ýmsu er enn hægt að búast af þeim feita. FRÁ FRÆNDÞJÓÐUNUM NÚ NÁLGAST 9. apríl, sá dagur, er þýski herinn gerði inn- rás í Noreg og Danmörku fyrir 5 árum síðan. Engir, sem háfa verið utan við þessi löhd, geta gert sjer fulla grein fyrir því, hvernig líðan Dana og Norð- manna hefir verið þessi þung- bæru ár. ★ Fyrir nokkrum dögum andað- ist í Svíþjóð einn sá maður, sem þar í landi hefir lagt mesta á- herslu á, að þjóð hans gerði alt, er í hennar valdi stendur til þess að verða hinum bágstöddu frænd þjóðum að liði, Torgny Seger- stedt aðalritstjóri blaðsins Göte- borgs Handels och Sjöfartstidn- ing. í frjettaskeyti frá norska blaðaíulltrúanum í gær segir, að forsætisráðherra Norðmanna, Johan Nygaardsvold kæmist svo að orði um þenna látna Noregs- vin. Hann var einn af fremstu for- vígismönnum freísis og lýðræð- is á Norðurlöndum. Hann vann áf alefli gegn yfirdreþsskap, of- beldi og þvingun. Hann var ekki aðeins vinur Noregs, heldur einn af fremstu stuðningsmönnum Norðmanna í baráttu þeirra hin erfiðu hernámsár. Nafn Torgny Segerstedts mun ekki gleymast. Minning hans mun lifa í hugum frelsisunnandi norskra karla og kvenna. Allir Norðmenn munu syrgja fráfall hans, með þakklát- um hug fyrir alt það, sem hann hefir unnið fyrir þjóð vora“. Þessi fremsti blaðstjóri Svi- þjóðar varð 68% árs að aldri. ★ Svo segir í fregn frá norska blaðafulltrúanum, að quislingar Noregs sjeu nú í hinni svörtustu örvæntingu um framtíðarhag sinn, síðan útlitið varð eins og það er orðið fyrir Þjóðverjum á vígstöðvunum. Quislingar þeir, sem eru á her- skyldualdri, hafa líka fengið al- varlega áminningu um það, hvar þeir eru staddir. Þeir hafa feng- ið leynilegt herútboð frá flokks- stjórninni. Á hverjum degi birta nazista- blöð Noregs hinar einbeittustu áskoranir til flokksmanna sinna um það, að láta flokksþjónustuna sitja fyrir öllu, og gefa sig fram til varnarsveita „hirðarinnar“ eða til annarar vopnaðrar þjón- ustu. Er það lögregluráðherrann svonefndi, Jonas Lie, og hirðfor- inginn Thronsen, er senda út á- skoranir þessar. En hinir ó- breyttu flokksmenn reyna með öllu móti að hliðra sjer hjá því að verða við áskorunum þessum. Vegna þessara orðsendinga yf- irmannanna hafa margir quisl- ingar horfið frá heimilum sín- um og blátt áfram lagst út. Sann- ir Norðmenn vilja að sjálfsögðu ekkert samneyti hafa við þessa menn og enga hjálp veita þeim. En þeir vilja heldur reyna að draga fram lífið í óbygðum held- ur en að lenda í herþjónustu við hlið Þjóðverja. Þeir sem fá útboðsskjalið, eiga að framvísa því við þýsk yfir- völd, sem síðan eiga að greiða göfu þessara manna, svo þeir geti komist leiðar sinnar til ákveð- inna staða, þar sem þeir fá nán- ari fyrirskipanir. Framhald á bls. 9.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.